Morgunblaðið - 03.02.2008, Blaðsíða 14
14 SUNNUDAGUR 3. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
nýju raforkulaganna 2003 þar sem
skapaður er grundvöllur fyrir sam-
keppni í raforkuframleiðslu. „End-
anleg niðurstaða í bótamálum vegna
vatnsréttinda Kárahnjúkavirkjunar
liggur ekki fyrir en meirihluti mats-
nefndar, sem skilaði áliti sínu sl. sum-
ar, gengur út frá sjónarmiðum sem
hafa að einhverju leyti fest sig í sessi
og byggjast á Blönduúrskurðinum
svonefnda. Í kröfugerð vatnsrétt-
arhafa í þessu máli skjóta upp koll-
inum ný sjónarmið um verðlagningu
fallréttinda, þ.e. að miða eigi bætur
við hlutfall af tekjum starfseminnar,
þ.e. af raforkusölunni,“ segir Aagot. Í
þessu sambandi hefur verið vísað til
dóms í undirrétti í Noregi þar sem
fallist var á þessi sjónarmið að hluta
til. „Þar átti að vísu í hlut lítil virkjun
og Norðmenn eru komnir inn á sam-
eiginlegan orkumarkað, þannig að
það horfir öðruvísi við og óvíst að
sama niðurstaða yrði um stærri virkj-
anir.“
Einkaeignarréttur auðlinda kemur
ekki í veg fyrir takmarkanir á rétti til
hagnýtingar og eru ríkinu faldar
heimildir til að takmarka og stýra
nýtingu. Nýtingarleyfi eru nauðsyn-
leg vegna allrar nýtingar auðlinda í
jörð, nema til heimilis- og búsþarfa.
Þetta þykir nauðsynlegt til að stýra
og samræma nýtingu með heildar-
hagsmuni og umhverfissjónarmið að
leiðarljósi.
Elín Smáradóttir bendir á, að fram
komnar hugmyndir um að takmarka
með lögum heimildir opinberra aðila
til að framselja auðlindaréttindi
breyti á engan hátt eignarheimildum
„almennra“ fasteignaeigenda eða
eignarheimildum yfir auðlindum sem
háðar eru einkaeignarrétti.
Svipuðu máli gegnir um vatnsorku
og háhita en þó er flokkun vatnsork-
unnar flóknari, þar sem vatn rennur
iðulega úr þjóðlendu og niður í eigna-
land, samanber Jökulsá á Dal og
Þjórsá.
Frumvarp iðnaðarráðherra
Í frumvarpi iðnaðarráðherra sem
nú er til meðferðar á Alþingi er gert
ráð fyrir því að ríki og sveitarfélög
Morgunblaðið/BFH
Þeistareykir Litadýrð er mikil á háhitasvæði Þeistareykja. Óbyggðanefnd fjallar nú um þjóðlendur á þessu svæði og er úrskurðar að vænta.
EIGNARHALD Á ORKUAUÐLINDUNUM
!"
#$ % &
"
'
" #
( )$
"
*+
&
,-
.
)" &
#
.
# /
##&# #"
!"
#$%
&
'" (
!"#$
!"#%
!"#&'
!"#&&
!"#(
/&
-&
"
%
"
)
0 &
"
+
1&
(+
(+
/
##
/
$& #