Morgunblaðið - 03.02.2008, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. FEBRÚAR 2008 21
Bandaríkin eru ekki þekktfyrir skattþyngsli, en þarhefur engu að síðursprottið upp lítil, en vax-
andi andófshreyfing gegn sköttum.
Þekktasti félagi þessarar hreyfingar
er leikarinn Wesley Snipes, sem of-
bauð þegar honum var gert að
greiða tvær milljónir dollara í skatt
árið 1999. Síðan þá hefur hann átt í
útistöðum við skattyfirvöld og á end-
anum var hann sóttur til saka í Flór-
ída. Á föstudag féll dómur í máli Sni-
pes og var hann sýknaður af
alvarlegustu ákæruliðunum, sem
vörðuðu svik og samsæri, en sekur
fundinn um þrjú atriði og gæti átt
þriggja ára fangelsi yfir höfði sér.
Fylgdi foringjunum
Hann var ákærður ásamt tveimur
öðrum árið 2006 eftir að hann lagði
fram kröfu um endurgreiðslu sjö
milljóna dollara, sem hann hafði
borgað í skatt fyrir 1997. Hann var
einnig ákærður fyrir að hafa ekki
goldið skatt á árunum 1999 til 2004.
Snipes hefur í andstöðu sinni við
að borga skatta fylgt ráðum leiðtoga
skattleysishreyfingarinnar. Sér-
fræðingar segja að sýknun Snipes
beri því vitni að hvatamennirnir eigi
yfir höfði sér þunga dóma, en þeir,
sem fylgi ráðum þeirra, geti átt von
á vægari refsingu. Skattleysissinnar
halda því ýmist fram að skattalögin
eigi ekki við um þá, eða að ekki sé
hægt að knýja fólk til að greiða
skatta með lögum og stjórnvöld beiti
brögðum til að fá fólk til að borga.
Helstu málsvarar hreyfingarinnar
segja að fólk geti löglega hætt að
borga skatta með því að leggja fram
tiltekin skjöl og sleppa því að und-
irrita framtöl sín. Yfirvöld eiga erfitt
með að lögsækja alla þá, sem fylgja
kenningum skattleysishreyfing-
arinnar í verki og hafa því reynt að
sækja með þunga að frægum ein-
staklingum, sem það gera, í þeirri
von að búa til víti til varnaðar.
Hæstiréttur hefur hins vegar úr-
skurðað að skattleysissinnar geti
sýnt fram á það að glæpsamlegur
ásetningur hafi ekki búið að baki
með því að staðhæfa að þeir trúi því
af einlægni að þeir eigi ekki að borga
skatta. Þar með komist þeir þó ekki
hjá því að borga skattana sína.
Snipes hefur leikið í rúmum 50
myndum á 22 árum. Meðal þeirra
eru vampíruþríleikurinn Blade og
glæpatryllirinn Rising Sun þar sem
hann lék með Sean Connery.
Andófshreyfing
gegn sköttum
Reuters
Sýknaður Enga skatta, takk.
SKATTHEIMTA»
Hús verslunarinnar | s: 588-8910 | www.ikv.is
Viðskiptatækifæri í Kína
Hópferð á Canton vörusýninguna
Félag íslenskra stórkaupmanna og Íslensk kínverska viðskiptaráðið (ÍKV) efna til hópferðar á
Canton vörusýninguna í Kína. Sýning þessi er haldin tvisvar á ári og er ein stærsta vörusýning í
heiminum.
Flogið verður til Kína 14. apríl. Dagana 15.-16. apríl verður sýningin heimsótt, en þar eru sýndar
allar gerðir af iðnaðarvöru; allt frá vefnaðarvöru, lyfjum og heilsuvöru til bifreiða. Að sýningunni
lokinni gefst fólki tækifæri til að sækja heim borgirnar Guilin, Xian og Bejing og skoða merk
kennileiti á þessum svæðum. Heimferð verður 22. apríl. Fararstjóri verður Örn Svavarsson,
formaður ÍKV.
Áætlaður heildarkostnaður við ferðina er u.þ.b. 300 þúsund fyrir tveggja manna herbergi.
Þeir sem hafa áhuga á þátttöku eru beðnir að skrá sig sem fyrst, eigi síðar en 1. mars, hjá
dogg@fis.is eða í síma 5888910.
Nánari upplýsingar um dagskrá ferðarinnar er að finna á heimasíðu ÍKV en einnig veita
upplýsingar Andrés Magnússon, andres@fis.is og Dögg Árnadóttir, dogg@fis.is.
Launasjóður fræðiritahöfunda auglýsir eftir umsóknum um starfslaun úr sjóðnum sem
veitt verða frá 1. júní 2008. Rétt til að sækja um laun úr sjóðnum hafa höfundar alþýð-
legra fræðirita, handbóka, orðabóka og viðamikils upplýsingaefnis á íslensku. Megin-
hlutverk Launasjóðs fræðiritahöfunda er að auðvelda samningu bóka, og verka í staf-
rænu formi, til eflingar íslenskri menningu. Starfslaun eru að jafnaði veitt til hálfs árs, en
heimilt er að veita þau til allt að þriggja ára. Þeir sem hljóta starfslaun úr sjóðnum
skulu ekki gegna föstu starfi meðan á starfslaunatímanum stendur. Starfslaun miðast
við núgildandi kjarasamning Félags háskólakennara.
Umsóknarfrestur er til 3. mars.
Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð fást á Rannsóknamiðstöð Íslands (Rannís) að
Laugavegi 13, sími 515-5800, eða á heimasíðu Rannís – www.rannis.is.
Umsóknir sendist til:
Launasjóður fræðiritahöfunda
Rannís
Laugavegi 13
101 Reykjavík
Launasjóður fræðiritahöfunda
Auglýsing um starfslaun
Rannís
Rannsóknamiðstöð Íslands
Laugavegi 13, 101 Reykjavík
www.rannis.is
Fáðu úrslitin
send í símann þinn