Morgunblaðið - 03.02.2008, Blaðsíða 54
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
„ÉG ætla að gera mynd um leik-
stjórann að Börnum náttúrunnar og
móður hans. Vinnuheitið er Mamma
Gógó,“ segir Friðrik Þór Frið-
riksson kvikmyndagerðarmaður
sem er með mynd byggða á eigin
ævi í bígerð. „Þetta fjallar um móð-
ur mína og samskipti hennar við
mig. Þetta er sem sagt leikin gam-
anmynd, og ég skrifa handritið.“
Þótt myndin sé á frumstigi er
Friðrik Þór nú þegar búinn að finna
aðalleikarana tvo. „Kristbjörg Kjeld
mun leika móður mína og svo mun
Hilmir Snær fara með hlutverk leik-
stjórans,“ segir hann og bætir því
við að um verði að ræða fremur ýkta
útgáfu af honum sjálfum. „Eins og
Bíódagar er þetta byggt á minni
ævi, og atriðum úr mínu lífi þjappað
saman. En þessi mynd tengist bæði
Bíódögum og Börnum náttúrunn-
ar.“
Fer hugsanlega í tökur í sumar
Þessa dagana er Friðrik Þór að
ljúka við sitt nýjasta verkefni, heim-
ildarmynd um einhverfu sem verður
líklega frumsýnd í haust. Aðspurður
segist hann vera búinn að klippa
myndina gróflega. „Hún er reyndar
ansi löng eins og er, einhverjir fimm
tímar. Ég ætla hins vegar að stytta
hana niður í hefðbundna bíólengd,
svona 90 mínútur,“ segir hann. „Við
erum búin að taka upp 350 klukku-
tíma og þetta er mikill fróðleikur
þannig að kannski verðum við með
eitthvað af því á DVD,“ segir leik-
stjórinn, en vinnuheiti myndarinnar
er Sólskinsdrengurinn.
Friðrik Þór vonast til þess að geta
hafið tökur á Mömmu Gógó fljótlega
eftir að vinna við Sólskinsdrenginn
klárast, hugsanlega strax í sumar.
„Núna fer maður vonandi að
vakna til lífsins aftur eftir að hafa
legið í dvala í nokkur ár. Nú fer
maður bara á fljúgandi ferð,“ segir
Friðrik Þór glaður í bragði.
Sambland af Bíódögum
og Börnum náttúrunnar
Friðrik Þór
undirbýr kvikmynd
byggða á eigin ævi
Hilmir Snær
Guðnason fer með
hlutverk leikstjórans
Hilmir Snær
Guðnason
Kristbjörg
Kjeld
Merki ýmiss konar eru
allt í kringum okkur,
við veitum þeim sjálfsagt
fæst mikla eftirtekt … 60
»
reykjavíkreykjavík
Myndir Friðriks Þórs
Brennu-Njálssaga (1980)
Rokk í Reykjavík (1982)
Kúrekar norðursins (1984)
Hringurinn (1985)
Skytturnar (1987)
Börn náttúrunnar (1991)
Bíódagar (1994)
Á köldum klaka (1995)
Djöflaeyjan (1996)
Englar alheimsins (2000)
Fálkar (2002)
Niceland (2004)
FRIÐRIK Þór gerði Bíódaga árið 1994, en hún
fjallar um ungan dreng á sjötta áratug síðustu
aldar sem hrífst af bandarískum bíómyndum
sem sýndar voru í íslenskum kvikmynda-
húsum á þeim tíma. Börn náttúrunnar er hins
vegar frá árinu 1991 og segir frá fullorðnum
manni sem bregður búi og flytur til Reykjavík-
ur. Þar hittir hann æskuástina sína, og saman
lenda þau í miklum ævintýrum. Börn náttúr-
unnar var tilnefnd til Óskarsverðlauna sem
besta erlenda myndin á sínum tíma.
Fjör Úr
Bíódögum.
Bíódagar og börnin
Fegurð Úr
Börnum nátt-
úrunnar.
Árvakur/Kristinn
Leikstjórinn „Nú fer
maður bara á fljúgandi
ferð,“ segir Friðrik Þór.