Morgunblaðið - 03.02.2008, Side 16
16 SUNNUDAGUR 3. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
orkuöflunin er líka samkeppnis-
rekstur. „Er hægt að fullyrða við
þessi skilyrði að almannaþörf krefjist
þess að eign eins sé tekin og færð öðr-
um? Umræðan um þetta verður há-
værari með hverju árinu,“ segir Elín.
Samkvæmt núgildandi lögum þarf
leyfi forsætisráðherra til að nýta
vatns- og jarðhitaréttindi en ekki
liggur fyrir með óyggjandi hætti
hvort ráðherra er heimilt að fram-
selja varanlega grunneignarrétt á
þjóðlendum. Til þess þyrfti þó vænt-
anlega að koma sérstök lagaheimild.
Mælst hefur verið til þess að
tekjum sem kunna að falla til vegna
gjalda (leigu) fyrir afnot lands og
landsgæða innan þjóðlendu verði var-
ið sérstaklega í þágu verkefna innan
þjóðlendna en renni ekki í ríkissjóð
eða einstaka sveitarsjóði. Að því er
Morgunblaðið kemst næst hefur sölu-
andvirði þó ekki verið nefnt í þessu
sambandi.
Ekki á að selja
grunneignarréttinn
Sú hugmynd að orkuauðlindir fari
varanlega til einkaaðila virðist ekki
njóta mikils fylgis. Margir eru sann-
færðir um að ekki eigi að selja „frum-
burðarréttinn“, þ.e. grunneignarrétt-
indin. Verði það gert þykir þó brýnt
að vanda til upphaflegrar ráðstöfunar
svo sem með almennum útboðum. En
svo er að því að hyggja að verðmæti
orkuauðlinda stefnir hraðbyri upp á
við.
Annar möguleiki er fólginn í opin-
beru eignarhaldi en leigu til afmark-
aðs tíma í senn. Yrði sú leið valin yrði
útdeilingarvandinn eftir sem áður
fyrir hendi. Þá kynnu að rísa marg-
vísleg vandamál vegna takmarkaðs
leigutíma. Ýmsar lausnir hafa verið
nefndar til sögunnar, s.s. að leigutím-
inn yrði 40 ár en endurskoðaður eftir
30 ár og þá að gefnum leikreglum, s.s.
um aðlögun leigu að breyttum að-
stæðum.
Bent hefur verið á hættur sem
kunna að fylgja þessari leið, m.a. í
Reykjavíkurbréfi Morgunblaðsins 12.
janúar síðastliðinn. Þar segir bréfrit-
ari m.a.: „Vandinn við þessa leið er
hins vegar sá, að ef allar orkulindir í
eigu ríkisins og þar með almennings
væru nýttar á þennan veg má segja,
að þeir eyjarskeggjar, sem byggja Ís-
land, væru komnir í greipar eigenda
slíkra orkufyrirtækja í einkaeigu að
því er varðar orkuþörf. Þessir eig-
endur gætu hækkað verð að eigin
geðþótta vegna þess, að við núver-
andi aðstæður alla vega eiga eyjar
Hvaða grundvallarþýðingu hafa
auðlindir landsins fyrir okkur?
Orkulindir eru afar margvíslegar og mjög víða
í kringum okkur en vatnsorka og jarðhiti eru
mikilvægustu orkulindir á Íslandi. Báðar hafa
þær sín séreinkenni en sameiginleg einkenni
þeirra skipta einnig miklu máli fyrir nýtingu
þeirra.
Í báðum tilvikum einkennast orkulindirnar af
orkustraumi. Vatnsorkan byggir á þeim orku-
straumi sem kemur að ofan – úrkomunni, en
jarðhitinn lifir á þeim orkustraumi sem kemur
að neðan, þ.e. þeim varma sem kemur úr iðrum
jarðar í formi bráðinnar kviku og varmaleiðni.
Orkustraumur úrkomunnar er gefinn sem 285
TWh/a en orkustraumur að neðan sem 263
TWh/a. Skekkjumörk í þessu mati eru veruleg
þannig að rétt er að segja að orkustraumarnar
að ofan og neðan séu álíka. Bæði jarðhiti og
vatnsorka hafa það einkenni að orka safnast
irleitt innan við suðumark, oft á bilinu 70-90
stig, en á háhitasvæðum getur hann verið miklu
meiri, jafnvel yfir 200 stig. Jarðhitasvæði lands-
ins eru yfirleitt á svokölluðu gosbelti sem liggur
þvert yfir landið frá suðvestri til norðausturs.
Vestfirðir og Austfirðir eru utan gosbeltisins og
þar er lítið um jarðhita. Háhitasvæðin á Íslandi
eru yfirleitt tengd eldstöðvum og eldvirkni eins
og til dæmis í Henglinum við Reykjavík, kring-
um Trölladyngju á Reykjanesskaga, við Svarts-
engi, við Þeistareyki í Þingeyjarsýslu og kring-
um Torfajökul í grennd við Landmannalaugar.
Upphaflega hitaveitan í Reykjavík fékk vatn frá
Reykjum í Mosfellsbæ en þar er lághitasvæði. Í
sumum sveitum landsins, til dæmis í Árnessýslu,
má finna jarðhita af því tagi næstum því á
hverjum bæ.
Heimildir: Orkustofnun og Vísindavefurinn.
saman á vissum stöðum í náttúrunni. Auk hins
samfellda orkustraums eru þannig fyrir hendi
orkubirgðir (eða bundin orka) sem hluti af
orkukerfinu. Í vatnsorkunni eru það fyrst og
fremst jöklarnir sem geyma bundna vatnsorku,
en grunnvatnsgeymar, stöðuvötn og miðlunar-
lón eru einnig dæmi um bundna vatnsorku.
Áætlað er að bundin orka í jöklum landsins sé
7.600 TWh. Þessi orka flokkast sem óvinnanleg.
Segja má að vatnsorku sé að finna alls staðar
þar sem vatn fellur fram af steini. Hún er þó
fyrst og fremst hagnýtt eða virkjuð þar sem
mikið vatn fellur um verulegan hæðarmun á til-
tölulega litlu svæði, eins og til dæmis í fossum
og flúðum. Jarðhitinn er hins vegar fyrst og
fremst á svokölluðum jarðhitasvæðum. Greint
er á milli lághitasvæða og háhitasvæða sem svo
eru kölluð. Á lághitasvæðum er hiti vatnsins yf-
Vatnsorka og jarðhiti mikilvægustu
orkuauðlindirnar hér á landi
Morgunblaðið/Rax
Trölladyngja Miklir gufustrókar stígu til himins á Trölladyngjusvæðinu þegar háhitaholunni var hleypt upp á sínum tíma.
EIGNARHALD Á ORKUAUÐLINDUNUM
gbergmann.is
15.-17.feb. í Reykjavík
Helgarnámskeið með Guðjóni Bergmann sem fjallar um það
hvernig hugurinn starfar og hverju þú getur stjórnað, hvernig þú
getur að nýtt þér streitu til framdráttar, byggt upp sjálfstraust og eflt
jákvætt hugarfar, komið lífinu í betra jafnvægi með því að skilja hinar
sjö mannlegu þarfir og þjálfað upp einbeitingu og aukið afköst.
Kenndar eru einfaldar öndunar-, slökunar- og hugleiðsluæfingar.
Samnefnd bók fylgir með ásamt geisladiski.
Næsta námskeið í Reykjavík helgina 15.-17.febrúar.
Kennt föstudag frá 20:00-22:30, laugardag og sunnudag frá 9:00-17:00.
Verð 32.900 kr., skráning og nánari upplýsingar á www.gbergmann.is.
Eitt vinsælasta sjálfseflingarnámskeið síðustu ára.
Þú
ert það
sem þú
hugsar
Morgunblaðið/ÞÖK
Kárahnjúkar og Kringilsárrani Fossar, gróður, lækir, blóm og annað sem hvarf þegar vatni var hleypt á stífluna.