Morgunblaðið - 03.02.2008, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. FEBRÚAR 2008 23
hefði þekkt fleiri stráka. Hann átti
hús í Hveragerði og lóð og fyrstu
árin okkar fóru í að koma þar upp
gróðrarstöð. Þetta gekk mjög vel,
við ræktuðum blóm og unnum
saman í þessu.
Það skyggði á gleði okkar að við
eignuðumst ekki börn. Ég varð
ófrísk að utanlegsfóstri sem ég
missti. Árið 1952 fór ég til kaup-
mannsins og lét þar þau orð falla
að ég hefði ekki efni á að kaupa
einhvern hlut sem hjá honum
fékkst. Þá sagði hann: „Þú hlýtur
að hafa efni á því – ekki hefur þú
börnin!“ Ég varð voðalega reið og
ákvað að reyna að fá að taka barn.
Ég fékk litla stúlku sem fæddist
einmitt þetta ár sem ég reiddist
við kaupmanninn. Ég fékk hana í
hendurnar þegar hún var á öðru
ári. Það var yndislegt. Tveimur
árum síðar ákvað ég að taka ann-
að barn, þá fékk ég dreng sem var
ársgamall. Fáum árum síðar tók-
um við þriðja barnið, dreng. Fóst-
urbörnin færðu mikla gleði inn í
líf okkar. Þau hafa alla tíð verið
yndisleg. Núna, þegar ég er orðin
gömul, þá eru þau mér svo góð,
þau gætu ekki verið betri þótt ég
hefði fætt þau sjálf.
En börnin uxu upp og það var
ekki lengur pláss fyrir mig í gróð-
urhúsinu, maðurinn minn réð
mannskap, það var svo mikið að
gera og búið að stækka stöðina.
Ragna eignast
kassamyndavél!
Þá var það sem ég fór allt í einu
að fá svo mikinn áhuga á ljós-
myndun. Ég átti kassavél.
Ég hafði hætt að reykja og not-
aði þá peninga sem ella hefðu far-
ið í sígarettur í að kaupa mér
góða og vandaða myndavél. Smám
saman varð ég mjög upptekin af
að taka myndir. Ég útvegaði mér
græjur til að framkalla myndir og
gat útbúið mér framaköllunar-
herbergi í þvottahúsinu. Ég tók
myndir af krökkum og þau komu
hvert af öðru til að fá af sér
myndir. Þá fékk ég þá hugmynd
að koma mér upp ljósmyndastofu.
Það var engin ljósmyndastofa fyr-
ir austan fjall. Ég kom mér upp
ljósmyndastofu í húsinu okkar,
setti upp fyrirtæki og tók passa-
myndir af fólki og hafði nóg að
gera. Ég var við þetta og hafði
gott upp úr þessu. Ég ákvað því
að fara í bréfaskóla, sem var eins-
konar fjarnám. Þetta var amer-
ískur skóli sem stóð í tvö ár. Mað-
ur skilaði verkefnum í ljós-
myndun, eitt á mánuði. Eftir tvö
ár útskrifaðist ég og fékk réttindi.
Síðar fór ég til Ameríku, Idaho,
Sun Valley, þar var ljósmynda-
skóli, „fames“, eins og allt í Am-
eríku. Krónan stóð þá vel því mér
fannst þetta fimm vikna námskeið
ekki svo dýrt.
Maðurinn minn var ekki stór-
hrifinn en sagði ekki margt. Á
endanum varð hann leiður á þessu
ljósmyndabraski mínu.
Það sem var sárt …
En svo komu litmyndirnar og
þá hætti ég. Mér fannst of dýrt að
endurnýja tækjakostinn. Þá ákvað
ég að fara í Menntaskólann við
Hamrahlíð og taka stúdentspróf,
Draumur Þarna gengur Ragna í bókverki sínu inn í drauminn
Tíminn í Marfa er skemmti-
legastur. Ég get þó ekki
borið þetta saman við upp-
eldi barnanna. Þar er um
að ræða tilfinningar af öðr-
um toga
Forsíða Úr bókverkinu Skuggar af
draumum frá árinu 2002.
LISTMUNAUPPBOÐ
verður haldið sunnudagskvöldið 3. febrúar,
kl. 20 á Hótel Sögu, Súlnasal
Á uppboðinu verður að venju gott úrval verka,
meðal annars fjölmörg verk gömlu meistaranna.
Boðin verða upp um það bil 100 listaverk.
Öll verkin eru sýnd í Galleríi Fold við Rauðarárstíg
föstudag 10-18, laugardag 11-17 og sunnudag 12-17.
Hægt er að skoða uppboðsskrána
með myndum á vefslóðinni myndlist.is.
Rau›arárstíg 14, sími 5510400 · www.myndlist.is
Jóhann Briem
Morgunverðarfundur Slysavarnaráðs
6. febrúar á Grand Hóteli
2+2 EÐA 2+1 VEGIR:
Öryggi vegfarenda – kostnaður samfélagsins – erum við á réttri leið?
Skráning fer fram á www.lydheilsustod.is/skraning fyrir 5. febrúar
Dagskrá
Fundarstjóri: Þóra Arnórsdóttir, fréttamaður
Kl. 08.00 Skráning og greiðsla þátttökugjalds
Kl. 08.25 Setning morgunverðarfundar
Guðlaugur Þór Þórðarson, Heilbrigðisráðherra
Kl. 08.35 2+1 vegir - öruggur og ódýr valkostur
Haraldur Sigþórsson, Línuhönnun
2 + 2 = 0 – reiknum dæmið til enda
Steinþór Jónsson, formaður Samstöðu og FÍB
Framanákeyrslur 1998-2007
Gögn rannsóknarnefndar umferðarslysa um banaslys
Ágúst Mogensen, Rannsóknarnefnd umferðarslysa
Kl. 09.35 Fyrirspurnir og pallborðsumræður
Í panel verða: Haraldur Sigþórsson, Steinþór Jónsson, Ágúst
Mogensen og Þórólfur Þórlindsson forstjóri Lýðheilsustöðvar
Kl. 10.00 Fundarslit
Þátttökugjald er 2.000 kr. og greiðist við upphaf fundarins
Innifalið í þátttökugjaldi er morgunverðarhlaðborð