Morgunblaðið - 03.02.2008, Qupperneq 24
lífshlaup
24 SUNNUDAGUR 3. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
sem ég gerði 1980, frá öldunga-
deild skólans – náttúrusviði.
Í menntaskólanum tók ég nám-
skeið sem olli straumhvörfum í lífi
mínu. Ég tók sem valfag kúrs í
myndlist – það var algjör tilviljun,
ég ætlaði í eitthvað allt annað en
þar var ekki pláss.
Ég varð svo hrifin að ég sótti
um Myndlista- og handíðaskólann
og fór að gera ljósmyndaverk til
að senda inn. Ég bjóst ekki við að
komast inn – en ég komst inn.
Mér fannst gaman að vinna við
þetta, gott að vera ein að dútla við
þessi verkefni. Ég flutti til
Reykjavíkur og tveimur árum
seinna skildum við ég og maðurinn
minn. Þannig var að meðan ég enn
var við nám í myndlistarskólanum
gerði ég námshlé og fór til Am-
eríku í ljósmyndaskóla rétt við
landamæri Kanada. Ég fór um
haustið en eftir jólin fór ég til
New York og fékk vinnupláss á
verkstæði, ég komst þangað eftir
auglýsingu. Þetta var vel tækjum
búið verkstæði og mjög gaman var
að vinna þar við grafíkina, sem ég
var mjög heilluð af. Þarna úti
byrjaði ég að búa til bókverk,
hluti af þeim er nú á sýningunni í
Suðsuðvestur í Keflavík. Ég hef
gert fjölmörg bókverk, þau eru nú
talin nokkuð sérstök. Sum eru
með texta, önnur ekki – þar tala
bara myndirnar. Þetta er fyrsta
sýningin á bókverkum mínum.
Jæja, eftir vinnuna í New York
fór ég heim og lauk námi í Mynd-
lista- og handíðaskólanum. Að
þessu loknu ákvað ég að fara í
akademíuna í Amsterdam, þá var
ég sextug.“
– Var ekki erfitt að gjörbreyta
svona lífi sínu?
„Nei, það eina sem var sárt var
að þegar ég kom heim frá Am-
eríku var maðurinn minn tekinn
saman við aðra konu og sagði mér
ekki satt. Hann hefði getað sagt
mér eins og var þegar ég spurði.
Við seldum eignir okkar í
Hveragerði og ég fékk lítið, gam-
alt og skemmtilegt hús hér á
Lindargötunni en hann fékk íbúð.
Hingað í þetta nýja fjölbýlishús
hér við Klapparstíg flutti ég fyrir
sjö árum.“
– Þig hefur sem sagt ekki
dreymt um að verða myndlist-
armaður – það bara gerðist?
„Ég bjóst í það minnsta alls
ekki við að komast inn í Rík-
isakademíuna í Amsterdam. Vinur
minn skrifaði mér og sagði mér að
sækja um og ég gerði það.
Í akademíu í Amsterdam
Sá sem þá var fyrir akademí-
unni var mikill Íslandsvinur, Peter
Holstein. Ég sýndi honum það
sem ég hafði gert og það sem ég
hefði gert í Ameríku og hann tók
mig inn strax. Það var spennandi
að vera í Hollandi. Ég lauk nám-
inu og þar vann ég aðallega með
tréristur. Þá skar ég út í tré og
Ung Þarna er Ragna árið 1945, rétt um það leyti sem hún kynntist tilvon-
andi eiginmanni.
Garðyrkjukonan Ragna 1962, rétt
áður en hún eignaðist börnin sín
þrjú, stelpu og tvo stráka.
Listamaðurinn Ragna 1984, um
það leyti sem hún var í Hollandi
Hvað varð um allan upp-ganginn? Hvert fóru all-ir þessir milljarðar?Það er ekki skrýtið
þótt fólk velti þessu fyrir sér í ljósi
nýlegrarþróunar á hinum gull-
bryddaða verðbréfamarkaði.
Það hefur verið nokkuð athygl-
isvert að fylgjast með ferðum
einkaþotuliðsins á síðustu vikum.
Þeir sem í október svifu svo hátt að
það rétt grillti í þá bakaða sjóðheit-
um hágengisgeislum fjármagnssól-
arinnar hafa upp á síðkastið
skreiðst naumlega yfir húsþökin á
Skólavörðuholtinu, belgsíðir og
sveittir á leið til magalendingar inn-
an um sinustráin í snjónum í Vatns-
mýrinni.
Þeir sem sjálfir skinu eins og tví-
fættar sólir og ólguðu af sjálfs-
trausti og bjartsýni á hvað sem fyrir
varð, vaða nú í vindaskýjum um
langa ganga og bíða eftir yfirlýs-
ingum frá útlöndum um betri tíð og
blóm í fjárhaga. Vísitalan er bara
dapurlegt minnismerki um sjálfa
sig. Hvernig gátu svona pottþéttir
menn brotlent svona
harkalega í veruleikanum? Svarið
er auðvitað það að þetta er allt
spurning um trú.
Það gleymist jafnan þegar fjallað
er um hlutabréfamarkað að í innsta
eðli sínu er hann byggður á sama
grunni og trúarbrögð, þ.e. þörf
mannsins fyrir trú á eitthvað sem er
máttugra en hann sjálfur og getur
stytt honum leið til hamingju og
friðar. Það eru engin haldbær raun-
vísindi til sem geta reiknað út gengi
hlutabréfa til lengri tíma.
Það er mun auðveldara með nú-
tímatækni að spá fyrir um veður
heldur en virði.
Þetta eru einfaldlega trúarbrögð
og hagfræðingar og verðbréfamiðl-
arar eru spámenn samtímans. Rétt
eins og í fyrndinni fórna menn eig-
um sínum til guðanna og talsmanna
þeirra og hlýða hugfangnir á spá-
sagnirnar, þar til þær stangast á við
veruleikann og veðköllin glymja í
eyrum. En spámennirnir hafa ávallt
nóg að bíta og brenna.
Í þessu samhengi er eðlilegt að
rifja það upp að sjálft lykilorðið í
hlutabréfaviðskiptum, hið al-
þjóðlega orð yfir fjárfestingu, „in-
vestment“, á sér trúarlegan upp-
runa, þótt það hljómi nú ekki þannig
innan um gengistölur, sérsaumuð
föt og tólf milljóna jeppa.
„Vestis“ er latneskt orð yfir klæði
og „investire“ merkir að klæða
eða íklæða. Enska orðið „vest-
ment“ er auðvitað af þessum meiði
og notað um trúarleg helgiklæði
kirkjunnar þjóna. Upprunaleg
merking orðanna „in vestment“ er
því helgiklæddur, eða helgiskrýdd-
ur. Á tímum Rómaveldis var það
sem hofprestar sögðu „in vestis“
talið guðsorð. Þeir voru skrýddir
guðdómnum og því fulltrúar hans
þegar þeir mæltu fram spásögnina
sem goðið sjálft hafði lagt þeim í
munn.
Á þroskuðum hlutabréfamörk-
uðum vita menn þetta og eru ekki
ginnkeyptir fyrir endalausum fag-
urgala. Hér á landi er þetta hins
vegar allt nýtt og spennandi. Eða
hver man ekki eftir kínalífselex-
írnum DeCode sem allir þurftu að
eignast hér fyrir nokkrum árum?
Einhverjir lærðu af því. Aðrir ekki.
Einhverjir eru enn í svimandi
gróða. Aðra svimar bara.
Sjálfur hlusta ég á allar spásagn-
irnar, fullkomlega sáttur við að eiga
ekki fjármagn sem tekur því að hafa
áhyggjur af. Nóg er nú samt.
Helgistundir á hlutabréfamarkaði
Sveinbjörn I. Baldvinsson:
Fréttir á SMS
HUGSAÐ UPPHÁTT
TVISVAR Á DAG
OG EKKI SKOLA
Burstaðu tennurnar tvisvar á dag og
ekki skola tannkremið burt - bara skyrpa.
Flúor í tannkremi veitir virka
vörn gegn tannskemmdum.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
18
0
8
7
Ökukennaranám á vegum Símenntunar – Rannsókna – Ráðgjafar
Kennaraháskóla Íslands hefst í júní 2008, fáist til þess næg
þátttaka. Upplýsingar um inntökuskilyrði og fyrirkomulag
náms má fá á vefslóðinni http://srr.khi.is/okukennaranam
eða hjá Arnaldi Árnasyni, verkefnastjóra ökukennaranáms,
sími: 5634888 (kl. 9-12).Netfang: arnarnas@khi.is.
Umsóknarfrestur til 15. febrúar.
Ert þú efni í góðan ökukennara?