Morgunblaðið - 03.02.2008, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. FEBRÚAR 2008 45
! "# $!% & '
(!!%
! $)
(!!*% !! +! (
(!!*% , ( '$
(!!*% - $ .! $
(!!*% / 0
(!!*% 0 1 !
(!!*% Vönduð og persónuleg þjónusta
Inger Steinsson,
útfararstjóri,
s. 691 0919
Sími 551 7080
Bárugötu 4, 101 Reykjavík.
Ólafur Örn
útfararstjóri,
s. 896 6544
Inger Rós
útfararþj.,
s. 691 0919
✝
Þökkum innilega kveðjur, sýnda samúð, vináttu og
hlýhug við andlát og útför ástkærrar móður okkar,
tengdamóður og ömmu,
SIGRÍÐAR HALLGRÍMSDÓTTUR.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Hlíðar fyrir einstaka
nærgætni, hjartahlýju og umönnun.
Benedikt Ólafsson, Bergþóra Ingólfsdóttir,
Hallgrímur Ólafsson, Brynja Sigurmundsdóttir,
Ragnheiður Ólafsdóttir, Ingvi Jón Einarsson,
Margrét Ólafsdóttir, Gunnar Pétursson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og
vinarhug við andlát og útför mannsins míns, föður
okkar, tengdaföður og afa,
ÞORSTEINNS SÖLVA VALDIMARSSONAR,
áður til heimilis að
Vesturbrún 28,
Sérstakar þakkir viljum við senda starfsfólki á
þriðju hæð á Hjúkrunarheimilinu Skjóli.
Bryndís I. Einarsdóttir,
Sigríður Þorsteinsdóttir, Eggert Ó. Antonsson,
Þórunn G. Þorsteinsdóttir, Eiríkur Hreinsson,
Valdimar F. Þorsteinsson, Sesselja Jónsdóttir
og barnabörn.
✝
Við þökkum af alhug fjölskyldum okkar, vinum,
samstarfsfólki og öllum sem sýndu okkur hlýju og
stuðning vegna fráfalls elskulegs sonar okkar og
bróður,
JÓNS GUNNARS STEFÁNSSONAR.
Sérstakar þakkir færum við séra Sigfinni
Þorleifssyni.
Þorgerður Gylfadóttir, Stefán V. Jónsson,
Rebekka Stefánsdóttir,
Rut Stefánsdóttir, Helgi Magnússon,
Sigrún Sif Stefánsdóttir, Ólafur Harðarson.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra er sýndu okkur
samúð, hlýju og stuðning við andlát og útför elsku-
legs eiginmanns, föður, tengdaföður og afa,
GUÐJÓNS ÞORSTEINSSONAR,
Hamrabergi 6,
Reykjavík,
sem lést á Líknardeild Landspítalans, Landakoti,
þann 8. janúar.
Sérstakar þakkir til starfsfólks líknardeildar fyrir alla
umönnun og aðhlynningu.
Lilían Kristjánsson,
Hörður Guðjónsson, Brynhildur Sveinsdóttir,
Jóhanna Guðrún Guðjónsdóttir,
Guðmundur Jón Guðjónsson, Dóra Magnúsdóttir,
Ásta Kristjana Guðjónsdóttir, Jóhann Gestsson,
Þorsteinn Sigurður Guðjónsson
og barnabörn.
✝
Innilegar þakkir til allra sem auðsýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför okkar ástkæru
móður, tengdamóður, ömmu og langömmu,
SALVARAR KRISTRÚNAR
VETURLIÐADÓTTUR.
Halldór Sverrir Arason, Ingibjörg Magnúsdóttir,
Helgi Arason, Maj-Britt Krogsvold,
Sveinn Árnason,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og
hlýhug við andlát og útför elskulegrar sambýlis-
konu, móður, tengdamóður og ömmu,
HELGU ÍVARSDÓTTUR,
Hæðargarði 29,
Reykjavík.
Sverrir Guðjónsson,
Björn Erlendsson, Þórunn Brandsdóttir,
Ívar Erlendsson, Joanna Marcinkowska,
Sigríður Erlendsdóttir, Jón Víkingur Hálfdánarson,
Magnús Erlendsson,
systkini og barnabörn.
✝
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu
okkur samúð og hlýhug vegna fráfalls og útfarar
ástkærrar eiginkonu minnar, móður, tengdamóður,
systur okkar og ömmu,
GUNNÞÓRUNNAR JÓNASDÓTTUR,
Gundu,
Gnoðarvogi 56,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Landspítala -
Háskólasjúkrahúss.
Einar S. Ingólfsson,
Ásta Einarsdóttir,
Dagur Freyr Ingason
og barnabörn.
á Spáni í haust. Þar var hlutverkum
skipt. Þú, sem leiddir mig og ókst í
kerru ungum dreng, varst ekki leng-
ur jafn fótaviss svo nú var það ég
sem leiddi og ók. Og mikið var gam-
an að busla í Miðjarðarhafinu með
þér mamma.
Já, lífið hefur oft verið býsna
skemmtilegt en því hefur sjaldan
verið haldið fram að það sé auðvelt
og víst var þitt stundum enginn dans
á rósum. En hvað er það sem máli
skiptir þegar upp er staðið? Hvað er
betra en sá auður sem fæst með vin-
samlegri og ánægjulegri vegferð
með fjölskyldu, vinum og öðrum
samferðamönnum og að skilja síðan
eftir sig stóran hóp mannvænlegra
afkomenda?
Þinn elskandi sonur –
Daníel.
Elskuleg mágkona mín Þorbjörg
Daníelsdóttir andaðist að morgni
sunnudags 13. janúar sl. á Landspít-
alanum í Reykjavík.
Eftir standa góðar og skemmtileg-
ar minningar frá samferðinni gegn-
um lífið. Ég kynntist Þorbjörgu og
Þórarni manni hennar árið 1956 þeg-
ar ég trúlofaðist systur hennar Gróu
Magnúsdóttur. Þá bjuggu þau á
Kvisthaga 3 í Reykjavík. Þau eign-
uðust níu börn mannvænleg og
skemmtileg og hefur þeim vegnað
vel í lífinu, en einn dreng misstu þau
nokkurra mánaða gamlan. Hann var
skírður Magnús.
Þorbjörg var glæsileg kona og
Þórarinn myndarlegur og skemmti-
legur maður. Þeirra heimili var gest-
kvæmt og skemmtilegt að heim-
sækja alla tíð, sama hvar þau
bjuggu, en þau bjuggu á ýmsum
stöðum á landinu eftir atvinnu Þór-
arins á hverjum tíma. Þorbjörg var
listakokkur svo það var leitun að
öðru eins. Allt í mat lék í höndunum
á henni og alltaf voru allir velkomnir
á þeirra heimili.
Þorbjörg sá um möruneyti þegar
Þórarinn var með útgerð bæði í
Grindavík og Höfnunum. Hún var af-
burða kona sem aldrei lét deigan
síga og stóð alltaf þétt við bakið á
manni sínum. Oft fórum við saman á
árshátíðir, böll á Sögu, í sumarbú-
staði o.fl. Við Gógó eigum margar
skemmtilegar minningar um þær
samverur með þeim hjónum. Þor-
björg var listræn með góðar hendur
en nýtti ekki þá hæfileika sína því
miður.
Blessuð sé minning hennar.
Jónas G. Sigurðsson.
vildum að sjálfsögðu fá eitthvað í
staðinn. Í skónum daginn eftir
voru ömmulagaðar smákökur sem
við vorum hæstánægðar með og
bréfin frá sveinka að sjálfsögðu
horfin. Laufabrauðsgerðin hennar
ömmu stóð alltaf fyrir sínu og
söknum við þess sárt. Ferðalögin á
sumrin eru líka minnisstæð og þá
sérstaklega bústaðaferðin í Hvera-
gerði sem Ella fór í með ömmu og
Davíð ásamt vinkonu sinni. Farið
var að skoða Gullfoss og Geysi og
mikið tekið af myndum, en það
sorglega var að það var engin
filma í vélinni en þetta vakti samt
mikla kátínu.
Amma var einnig mikil handa-
vinnukona og var dugleg við
saumavélina og einstaklega lagin
prjónakona. Þegar Inga fór sem
skiptinemi til Ameríku þá tóku
amma og mamma sig til og prjón-
uðu peysur og sokka á heila fjöl-
skyldu í jólagjöf á mettíma.
Amma var alltaf mjög vel til
höfð og fín. Hún var ungleg og
hafði mikla reisn, þannig var hún
líka síðustu dagana sína í rúminu á
spítalanum.
Og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer.
Þó þú sért horfinn úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð.
Þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir.)
Elsku amma, við þökkum þér öll
árin sem við áttum saman.
Guð veri með þér og varðveiti
þig.
Þínar nöfnur,
Elín Anna og Inga Birna.
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð, hlýhug og
vináttu vegna andláts og útfarar elskulegs föður
okkar, tengdaföður, afa og langafa,
KRISTINS ENOKS GUÐMUNDSSONAR,
Dengsa,
fyrrv. starfsm. Rafmagnsveitu Reykjavíkur,
hjúkrunarheimilinu Skógarbæ,
áður Lindagötu 57,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir viljum við færa starfsfólki á K2 á Landspítala,
Landakoti, starfsfólki Skógarbæjar og öllu öðru hjúkrunarfólki
Landspítalans, Starfsmannafélagi Reykjavíkur og Hálfdáni
Gunnarssyni fyrir ómetanlegan stuðning.
Guðmundur Hanning Kristinsson, Eyrún Þorsteinsdóttir,
Magnús Birgir Kristinsson, Jónfríður Loftsdóttir,
Sigrún Ásta Kristinsdóttir, Ragnar Wiencke,
Sigurður Kristinsson, Anna Jónsdóttir,
Ingólfur Kristinsson, Jóhanna Ellen Valgeirsdóttir,
Anna Guðrún Kristinsdóttir, Jóhann Snorri Jóhannesson,
barnabörn og barnabarnabörn.