Morgunblaðið - 03.02.2008, Blaðsíða 50
50 SUNNUDAGUR 3. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Lögga, læknir og lögfræðingur
Kippan
VIÐ VERÐUM AÐ BYRJA Á ÞVÍ AÐ LÝSA
YFIR GJALDÞROTI. SÍÐAN GETUM VIÐ
SAMIÐ VIÐ LÁNADROTTNA ÞÍNA UM
GREIÐSLUR ÚR ÞROTABÚINU
MÉR LÍÐUR EINS OG
ÉG SÉ AÐ SÖKKVA
OFAN Í FEN
ÞETTA ER ALLT Í LAGI.
ÉG SKAL SJÁ TIL ÞESS
AÐ ÞÚ SÖKKVIR EKKI LENGRA
EN UPP AÐ HÖKU
ALLT Í LAGI!
ALLT Í LAGI! ÉG SKAL
SKIPTA UM EYRU!
VIÐ HÖFUM
ÁKVEÐIÐ AÐ FELA
ALLAR
FJARSTÝRINGARNAR.
HÉÐAN Í FRÁ GERUM
VIÐ ALLT HANDVIRKT
MÉR ÞYKIR ÞAÐ LEITT,
EN ÞÚ ÞEKKIR REGLURNAR...
BLAUTIR HUNDAR VERÐA
AÐ SITJA AFTUR Í
FRAMTÍÐINNI
FYLGIR NÝ
TÍSKA...
GEÐVEIKT
MAÐUR!
TAKK
FYRIR
ÞAÐ!
dagbók|velvakandi
Þakkir
FORELDRAR mínir lentu í því
óhappi laugardaginn 26. janúar sl. að
missa Yaris-bílinn sinn út af Reykja-
nesbrautinni. Þau urðu náttúrlega
skelkuð en sluppu sem betur fer
ómeidd. Það kom þarna eitthvað af
fólki sem aðstoðaði þau, dró bílinn
upp á veg aftur og hlúði að þeim. Þau
eru alveg miður sín yfir að hafa ekki
þakkað þessu yndislega fólki nóg og
vilja hér með senda þeim sínar bestu
kveðjur og hjartans þakkir fyrir alla
hjálpina. Þau heita Heiðar Viggósson
og Sólveig Ástvaldsdóttir.
Sást þú þetta?
MIG langar að lýsa eftir vitnum að
aftanákeyrslu sem átti sér stað laust
eftir klukkan 14, þann 28. desember
sl. á Grandavegi. Þar átti sér stað það
leiðindaatvik að ung stúlka milli tví-
tugs og þrítugs með prjónahúfu ók
grárri Toyotu aftan á bláa Toyotu-
bifreið ömmu minnar.
Stúlkan varð mjög stressuð yfir at-
vikinu og stakk uppá því að frekar
yrði fyllt út tjónaskýrsla í stað þess
að hringja á lögreglu. Amma mín,
sem er yndisleg eldri kona, sá hversu
stressuð stúlkan var og strauk henni
ítrekað um hendina og fullvissaði
hana um að þetta væri ekkert sem
ekki mætti leysa gegnum tryggingar,
og hún þyrfti engar áhyggjur að hafa.
Í sameiningu fylla þær út tjóna-
skýrslu og skilur amma mín eftir all-
ar sínar upplýsingar, heimasíma og
farsíma. Hún kveður svo stúlkuna
með þeim orðum að hún skuli nú bara
klára áramótin í rólegheitum og hafa
svo samband í byrjun árs.
Þegar amma sest svo aftur í bílinn
rennur uppfyrir henni að hún hafði
ekki fengið sitt afrit af skýrslunni og
var því ekki með neinar upplýsingar í
höndunum um bílstjóra tjónabílsins.
Stúlkan ók hins vegar á brott og enn
hefur ekkert heyrst frá henni. Hvort
hún vísvitandi hefur ekki haft sam-
band eða hvort upplýsingarnar sem
hún hafði í höndunum hafi hreinlega
týnst er ekki vitað, en eitt er þó víst
að nú situr ellilíferisþegi uppi með
reikning fyrir viðgerð sem hún neyð-
ist til að borga þrátt fyrir að hafa ekki
valdið tjóninu.
Nú vil ég freista þess, fyrir hönd
ömmu minnar, að biðja stúlkuna að
gefa sig fram, eða þá að lýsa eftir
vitnum að atburðinum.
Ef stúlkan eða vitni atburðinum sjá
þessar línur eru þau beðin að hafa
samband við mig í síma 822-0222 eða
567-6001.
Krista.
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og
13–15 | velvakandi@mbl.is
Í Hlíðahverfi í Reykjavík eru bæði stór og voldug tré sem veita gangandi
vegfarendum skjól fyrir veðri og vindum. Nokkuð hefur snjóað í höfuðborg-
inni síðustu daga og ekki er útlit fyrir að snjóinn taki upp á næstunni.
Árvakur/Golli
Í skjóli trjánna
Íslenskir aðalverktakar hf. Höfðabakka 9, 110 Reykjavík, sími 530 4200
Glæsileg nýbygging
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
Til leigu eru tvær efstu hæðirnar
í glæsilegri nýbyggingu á frábærum
stað við Glæsibæ.
6. hæð er 842,9 fermetrar
og 7. hæð er 584,8 fermetrar.
Nánari upplýsingar veitir Karl Þ ráinsson
aðstoðarforstjóri í síma 530 4200 eða
í tölvupósti á netfanginu karl.th@iav.is.
Til leigu