Morgunblaðið - 03.02.2008, Side 55
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. FEBRÚAR 2008 55
Listræn Ljósmyndun og LavAzza á Café Milano Faxafeni 11, en þá mun
ítalski kaffiframleiðandinn LavAzza opna sýningu á ljósmyndum úr
almanaki sínu fyrir árið 2008.
Fremstu ljósmyndarar heims hafa frá árinu 1994 tjáð þetta uppáhaldskaffi
Ítala á sinn listræna hátt, og þar má nefna Helmut Newton, David La
Capelle, Ellen Von Unwerth meðal þeirra listamanna.
Almanaki frá LavAzza er ávallt beðið með eftirvæntingu í ljósmynda-
heiminum,enda er um safngrip að ræða, en það kemur út í takmörkuðu
upplagi ár hvert.
Hver og einn listamaður tjáir sína sýn á viðfangsefnið,espresso og
vörumerki LavAzza sem hefur skipað veigamikinn sess í kaffimenningu
ítala allt frá árinu 1895.
Ljósmyndari ársins 2008 er hinn skoski Finlay Mackay, og er þemað að
þessu sinni það tignarlega Majestic eða Drottningar og þeirra tignarlegi
espresso.
Á Café Milano, sem er eitt elsta kaffihús Reykjavíkur, verður
sýningin opin frá 26 janúar til 23 febrúar.
Listræn
Ljósmyndun
og LavAzza
„Frumsýning í Hafnarfjarðarleikhúsinu er alltaf
tilhlökkunarefni. Í þetta sinn stigu flinkir
leikarar á svið með skemmtilega sýningu.“
„Leikstjórinn Hilmar Jónsson nær hér mjög góðum
tökum á samspili leikaranna.“
**** Elísabet Brekkan, Fréttablaðið.
„ ... konan sem sat tveim sætum frá mér hló oft hátt og
snjallt. Og ég er viss um að hún var í raun og veru að
skemmta sér...“
Jón Viðar Jónsson, DV.
í kvöld kl. 20
Lau. 9. febrúar kl. 20
Sun. 10. febrúar kl. 20
Midasala: 555 2222.
www.midi.is
„Hjálmar Hjálmarsson fer á kostum í hlutverki sjónvarpsins“
„ ... get ég ekki annað en mælt með sýningunni, sem er troðfull af
skemmtilegum atriðum ...“
Martin Regal, Morgunblaðið.
■ Fim. 7. febrúar kl. 19.30
Myrkir músíkdagar
Einstakur viðburður, frumflutningur tveggja íslenskra sinfónía, eftir
Atla Heimi Sveinsson og John Speight. Tónleikar sem enginn
áhugamaður um spennandi nýja tónlist má missa af.
Stjórnandi: Roland Kluttig. Einsöngvarar: Ágúst Ólafsson og
Gunnar Guðbjörnsson. Bakraddir: Hulda Björk Garðarsdóttir,
Sesselja Kristjánsdóttir og Hrólfur Sæmundsson.
■ Lau. 16. febrúar kl. 17
Kristallinn – kammertónleikaröð Þjóðmenningarhúsinu
Fransk-rússneskur kammersirkus. Verk fyrir fjölbreytta hljóðfæra-
skipan eftir Debussy, Ravel og Prokofiev.
■ Fim. 21. febrúar kl. 19.30 – Nokkur sæti laus
Sellósnillingur í toppformi
Daniel Müller-Schott, ein skærasta stjarna sellóheimsins í dag,
leikur einleik í byltingarkenndum konsert Haydns. Einnig eru á
dagskrá forleikur eftir Mozart og Sveitasinfónía Beethovens.Miðasala
S. 545 2500
www.sinfonia.is
Viltu eflast í starfi?
Menntamálaráðuneytið býður
leik- og grunnskólakennurum
15 e VIÐBÓTARNÁM
íslenska, danska, enska,
stærðfræði, náttúrufræði
Ný námskeið hefjast í
febrúar og mars
Skráningarfrestur
er til 15. febrúar
Nánari upplýsingar
eru á vef SRR í Kennaraháskóla Íslands
http://srr.khi.is
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
ÞAÐ hefur verið gríðarleg keyrsla á
söngkonunni Lay Low, eða Lovísu
Elísabetu Sigrúnardóttur, und-
anfarin misseri svo maður grípi nú
til líkingamáls úr heimi bifreiðanna.
Nýjasta verkefnið er enda tónlist
við leiksýninguna Ökutíma sem hef-
ur notið fádæma vinsælda. Það er
harla sjaldgæft að tónlist leikrita sé
jafnumrædd og nú en engan skyldi
þó undra, enda Lay Low ofarlega í
huga fólks sem þyrstir eftir nýju
efni frá söngkonunni. Á plötunni er
að finna fimm ný lög með íslenskum
textum og svo átta ábreiður yfir lög
kántrísöngkonunnar Dolly Parton.
Ekki bara brjóst
„Ég er mikill aðdáandi Dolly,“
segir Lovísa. „Ég og María (Reyn-
dal, leikstjóri) sátum einhverju sinni
saman að horfa á sjónvarpið og
súpa hvítvín er hugmyndinni laust í
hausinn á okkur. Mér fannst þetta
alveg upplagt og merkilegt hversu
fáir gera sér grein fyrir því hversu
framúrskarandi lagahöfundur Dolly
er. Flestir sjá hana bara sem eitt-
hvert bimbó með stór brjóst.“
Lovísa segir að það hafi ekkert
endilega átt að gefa tónlistina út, en
formið á henni hafi verið að þróast
alveg fram að frumsýningardegi.
„Í leikritinu sjálfu eru stutt stef
sem eru ekki á plötunni. Að sama
skapi koma sum lögin sem eru í
heilu lagi á plötunni fyrir í mý-
flugumynd í sjálfu leikritinu. Þar
eru þau hluti af hljóðmyndinni,
poppa upp þegar það er farið á ball,
sem lög í útvarpinu o.s.frv.“
Önnur Lay Low-plata
Frumsömdu lögin eru með ís-
lenskum textum, en breiðskífa Lay
Low frá því í hittifyrra, Please
Don’t Hate Me, var með enskum
textum.
„Ég átti dálítið erfitt með mig í
upphafi hvað þetta varðaði, ég við-
urkenni það,“ segir Lovísa. „Fannst
þetta skrítið en þegar fram í sótti
gekk þetta vel upp og ég er glöð að
hafa opnað fyrir íslenskuna.“
Sýningum á Ökutímum lýkur í
kvöld. Lovísa segist ætla að setjast
niður eftir það og skoða hvort hún
eigi ekki efni í aðra Lay Low-plötu.
Þá hefur verið mikið látið með sam-
skipti hennar og bandarísku söng-
konunnar Lucindu Williams, en sú
síðarnefnda hafði jafnvel í hyggju
að gefa Lovísu út. Lovísa undir-
strikar að ekkert sé fast í hendi sem
stendur en öllum möguleikum sé þó
að sjálfsögðu haldið opnum.
Lay Low úti að aka
Árvakur/G. Rúnar
Keyrsla Lay Low ætlar að setjast niður eftir að sýningum á Ökutímum lýk-
ur og athuga hvort hún eigi ekki efni í aðra Lay Low-plötu.
Tónlistin við
leikritið Ökutíma er
komin út á plötu
www.myspace.com/baralovisa
SVO virðist sem hjartaknúsarinn George Clooney sé
endanlega genginn út. Hann hefur nú beðið kærustu
sína, Söruh Larson, að flytja inn til sín.
Hinn 46 ára leikari hefur átt í sambandi við hina
29 ára Söruh síðan í sumar, er hann hitti hana á hót-
eli í Las Vegas þar sem hún vann sem barstúlka.
Hann hefur nú beðið hana að búa með sér á heimili
sínu í hæðum Hollywood.
„Sarah er alltaf með George svo það hlaut að
koma að þessu. Hann vill líka hafa hana nálæga. Hún hefur gert hann mjög
hamingjusaman enda er hún mjög auðveld í umgengni, létt í lund og elsku-
leg og það er það sem hann þarf núna,“ sagði vinur leikarans um samband
þeirra.
Clooney, sem var frægur fyrir piparsveinslíferni sitt áður en hann féll
fyrir Söruh, hefur líka beðið hana að deila íbúð sinni í New York með sér.
Farin að búa
George Clooney og
Sarah Larson.