Morgunblaðið - 03.02.2008, Page 63
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. FEBRÚAR 2008 63
BANDARÍSKI leikarinn Brad Pitt er sá ein-
staklingur sem flestir karlmenn vilja líkjast. Þetta
kemur fram í stórri könnun sem 20.000 lýtalæknar
um allan heim stóðu fyrir en könnunin var gerð á
meðal sjúklinga þeirra. Á meðal þeirra líkamshluta
leikarans sem sjúklingarnir horfðu sérstaklega til
voru augun, nefið, varirnar, hakan og rassinn. Það
var svo unnusta Pitts, leikkonan Angelina Jolie, sem
var á toppnum meðal kvenna. Þó vildu konur fá
brjóstin hennar Pamelu Anderson, rass Jennifer
Lopez og augu Sophiu Loren.
Annars er það að frétta af Brad Pitt að hann hefur
vaxandi áhyggjur af aldrinum en kappinn er orðinn
44 ára gamall. „Hann er með útlitið á heilanum og
þetta virðist verða meiri og meiri þráhyggja hjá hon-
um,“ segir kunningi leikarans. „Það hefur mikil áhrif
á hann að hann skuli ekki líta eins vel út og hann
gerði þegar hann var yngri.“ Sætur Brad Pitt á sínum yngri árum.Kynþokkafull Leikkonan Angelina Jolie.
Brad Pitt er
fyrirmyndin
DÓMARI í Los Angeles svipti fyrir
helgi söngkonuna Britney Spears
lögræði tímabundið en Britney var
í vikunni flutt á geðsjúkrahús.
James Spears, faðir söngkonunnar,
var skipaður lögráðamaður hennar
en lögmaðurinn Andrew Wallete
var skipaður lögráðamaður bús
Spears.
Lynne Spears, móðir Britneyjar,
var einnig í réttarsalnum.
Dómarinn kvað einnig upp úr-
skurð um að Sam Lutfi, sem stund-
um hefur komið fram sem umboðs-
maður Spears, sætti nálgunar-
banni. Þá veitti dómarinn
lögráðamönnum söngkonunnar
heimild til að skipta um lása á húsi
hennar og fjarlægja þá sem þar
kynnu að vera.
Mál Spears verður tekið fyrir á
ný á morgun.
Reuters
Britney Spears
Svipt
lögræði
LEIKKONURNAR ungu Lindsay
Lohan og Keira Knightley munu
berjast um aðalhlutverkið í mynd
sem á að gera eftir sögu Emily
Bronte Fýkur yfir hæðir eða Wuth-
ering Heights.
Þær vilja báðar fara með hlut-
verk rómantísku hetjunnar Cather-
ine Earnshaw í stórri mynd sem á
að gera eftir bókinni sem er frá
1847.
Leikstjóri myndarinnar, John
Maybury, sagði: „Ég myndi alls
ekki slá Keiru út af borðinu en
þetta fer svolítið eftir því hvort hún
vilji leika enn og aftur í svona bún-
ingadrama, hún hefur verið í
nokkrum slíkum myndum að und-
anförnu.
Lohan kemur líka til greina, ég
hef trú á henni. Hún kemur vel út
eftir öll vandræðin sem hún kom
sér í, það þarf bara að taka hana al-
varlega.“
Þjóðerni Lohan gæti reyndar
unnið gegn henni. „Það getur verið
svolítið óþolandi að hafa banda-
ríska leikkonu í bresku hlutverki.
Þær geta alveg náð breska hreimn-
um vel en það getur fælt frá ef
hreimurinn er of fullkominn,“ sagði
leikstjórinn.
Lohan átti að leika með
Knightley í Dylan Thomas-
myndinni The Edge of Love, sem
Maybury leikstýrði einnig, en þurfti
að draga sig til baka vegna vand-
ræða með áfengi og eiturlyf.
Vilja báðar
í Fýkur
yfir hæðir
Keira KnightleyLindsay Lohan