Morgunblaðið - 24.02.2008, Page 2

Morgunblaðið - 24.02.2008, Page 2
2 SUNNUDAGUR 24. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Sigurlaug Jakobsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Í HNOTSKURN »Loðnuveiðar voru stöðvaðar sl. fimmtudagþar sem ekki hafði tekist að mæla nægi- lega mikið af loðnu til að standa undir þeirri veiðireglu Hafrannsóknastofnunar að tryggja nægilega hrygningu nú í vetur. Til þess þarf 400.000 tonn. Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is „ÞETTA er auðvitað hreinn skellur launalega fyr- ir þá sem í þessu starfa,“ segir Sævar Gunn- arsson, formaður Sjómannasambands Íslands, um áhrif þess að loðnuveiðar hafa verið stöðvaðar. Aðspurður segir Sævar að gera megi ráð fyrir að 400-500 manns á um 40 skipum verði fyrir veru- legum tekjumissi vegna þessa. Talað hefur verið um að sjómenn verði fyrir allt að milljón króna tekjutapi á þessu ári, enda janúar og febrúar bestu aflamánuðirnir. „Þetta hefur þau áhrif að menn fara alvarlega að velta fyrir sér hvort þeir geta yfirhöfuð starfað í greininni, því sjómennsk- an er nú einu sinni þannig að þú vinnur ekki í henni á daginn og í einhverju öðru á kvöldin eins og gert er í mörgum öðrum atvinnugreinum.“ Í ályktun sem stjórn Félags vélstjóra og málm- tæknimanna (VM) sendi frá sér fyrir helgi er skorað á stjórnvöld að koma til móts við þá sjó- menn sem verða fyrir tekjuskerðingu vegna ný- legra stjórnvaldsaðgerða. Bent er á að mótvæg- isaðgerðir sem kæmu sjómönnum til góða væru að hækka sjómannafrádrátt og greiða sjómönnum laun til að stunda öryggisfræðslu og sækja örygg- isnámskeið, enda löngu tímabært að lyfta grett- istaki í öryggismálum. „Ég er mjög sammála þessum hugmyndum, hins vegar lifa menn ekki á öryggisfræðslu einni saman,“ segir Sævar og tekur fram að þessar hugmyndir geti nýst til skamms tíma, en til lengri tíma litið þurfi meira að koma til. Sjálfur segist hann vilja sjá að leyfðar verði auknar veiðar á sumargotssíldinni á Íslandsmiðum. Með því móti gætu sjómenn haldið veiðum áfram í því millibils- ástandi sem ríki þar til loðnan komi aftur í leit- irnar. Minnir Sævar á að áður hafi komið ár þar sem enga loðnu var að finna. „Það var ekkert veitt 1983 og 1992, ef ég man rétt. Tveimur árum seinna voru menn að veiða milljón tonn. Þannig að auðvitað vonar maður að eitthvað svoleiðis lagað gerist,“ segir Sævar og kallar eftir markvissari aðgerðum stjórnvalda sem nýtist sjómönnum beint enda séu sjómenn þeir sem verði fyrir mest- um skellinum. Sjómenn alvarlega hugsi hvort þeir geta haldið áfram Árvakur/Kristinn Formaður Sjómannasambands Íslands vill sjá auknar veiðar á Íslandssíldinni ÞESSIR tveir félagar gengu léttir í bragði á Seltjarn- arnesi í gær og nutu vetrarríkisins. Að eiga hund er eins og að hafa einkaþjálfara á heimilinu, sem sér til þess daglega að eigandinn fái góða hreyfingu. Þó að það sé mannanna verk að fara með hundana í góða göngutúra má í sjálfu sér segja að hundinum sé að þakka að hreyfingin er dagleg og regluleg því hann vill sína göngu hvernig sem viðrar. Vellíðan fylgir ætíð í kjölfarið á góðum göngutúr með góðum félaga. Árvakur/RAX Með einkaþjálfaranum á gangi „AF LESTRI skýrslunnar sést að hún er af- ar vel unnin og greinilega mikil undirbún- ingsvinna að baki. En þeirri vinnu er lokið og því fæ ég ekki séð hvers vegna nefndin ætlar að taka sér þrjú ár í að rannsaka önn- ur vist- og meðferðarheimili,“ segir Jóhanna Guðrún Agnarsdóttir, sem dvaldi í tíu ár á „fjölskylduheimilinu“ í Kumbaravogi, um yf- irlýsinu forsætisráðherra á föstudag þess efnis að Breiðavíkurnefndinni svonefndu hafi verið falið að fjalla um önnur vist- og með- ferðarheimili og ráðgert sé að sú vinna geti tekið um þrjú ár. Alls voru fjórtán börn í varanlegri vistun á heimilinu á fyrri starfstíma þess, frá 1945 til 1957, og var Jóhanna og tvö systkini hennar á meðal þeirra. Hún segir uppeldis- aðferðir á heimilinu hafa verið frumstæðar og einkennst af ströngum aga og mikilli vinnu. Aukinheldur gekk þar laus barnaníð- ingur sem nýtti sér bágborið sálarástand drengja á heimilinu. Sá hefur játað gjörðir sínar en var ekki ákærður þar sem brot hans eru fyrnd. Ósátt við greingargerð forstjóra Barnaverndarstofu „Auðvitað vil ég fá afgerandi yfirlýsingu um að Kumbaravogur verði rannsakaður. Í ljósi allra þeirra upplýsinga sem komið hafa fram, t.d. játningarinnar um kynferðisbrot, hlýtur það að vera ofarlega á forgangslist- anum,“ segir Jóhanna sem vandar forstöðu- manninum ekki kveðjurnar. Jóhanna óttast að máli Kumbaravogs verði sópað undir teppið og segir yfirlýsingu forsætisráðherra aðeins ýta undir þann ótta. „En vel að merkja þá höfum við Mannrétt- indadómstól Evrópu og munum ekki hika við að leita þangað ef þörf krefur. Við erum með mikið af gögnum þar sem margt mis- jafnt kemur fram og munum vissulega beita,“ segir Jóhanna og vísar með orðum sínum til sín og systkina sinna. Í skýrslu Breiðavíkurnefndarinnar sem kynnt var á föstudag er meðal annars grein- argerð eftir Braga Guðbrandsson, forstjóra Barnaverndarstofu, um barnavernd og upp- eldisstofnanir. Jóhanna segist afar hneyksl- uð á því sem þar kemur fram er varðar „fjölskylduheimilið“ í Kumbaravogi, sem bendi til þess að Bragi leggi blessun sína yf- ir þá starfsemi sem fram fór þar. Í greinargerðinni segir m.a.: „Hér var lík- lega um að ræða fyrstu fjölskyldureknu upp- eldisstofnunina á Íslandi og var áhersla lögð á kristilegt uppeldi, enda þau hjón mjög trú- uð. Í blaðaviðtölum við Kristján [Friðbergs- son, forstöðumann heimilisins] frá þessum tíma lagði hann gjarnan áherslu á að um hlýlegt heimili væri að ræða en ekki stofn- un. Þetta rekstrarform þykir í dag börnum hagfelldast sem þurfa á langtímameðferð fjarri kynforeldrum sínum að halda.“  Kumbaravogsbörn vilja að „fjölskylduheimilið“ verði rannsakað sem fyrst  Þau eru ósátt við að Breiðavíkurnefndin muni taka sér þrjú ár í að rannsaka önnur vistheimili Vilja meira afgerandi yfirlýsingu OPIÐ er á skíðasvæðunum í Bláfjöll- um og Skálafelli um helgina, en þar er gott færi að sögn forsvarsmanna skíðasvæðanna. Allar lyftur í Blá- fjöllum voru opnar í gær sem og diskalyfturnar í Skálafelli, en þær hafa ekki verið opnar sl. þrjú ár. Þá hefur einnig verið opið í Hlíð- arfjalli. Gott skíðafæri í Bláfjöllum ÍSLENSK stjórnvöld hafa ekki enn orðið við tilmælum ráðherranefndar Evrópuráðsins varðandi fullnustu dóms Mannréttindadómstóls Evr- ópu frá haustinu 2004 en farið verð- ur yfir málið með fullnustudeildinni í lok næsta mánaðar. Ráðherranefnd Evrópuráðsins telur eðlilegt að íslensk stjórnvöld hafi samband við félaga í Lífeyr- issjóði sjómanna, sem urðu fyrir ákveðinni skerðingu á lífeyrisrétt- indum vegna lagasetningar 1994, og upplýsi þá um hugsanlegan rétt til bóta í kjölfar dóms haustið 2004. Þá komst Mannréttindadómstóll Evr- ópu að þeirri niðurstöðu að íslenska ríkið hefði brotið gegn mannrétt- indasáttmála Evrópu með því að svipta íslenskan sjómann bótalaust áunnum og virkum lífeyrisréttind- um með lagasetningu. Á heimasíðu ráðherranefndarinn- ar kemur fram að 53 íslenskir sjóðsfélagar eigi hugsanlega rétt á bótum vegna fyrrnefndrar skerð- ingar. Hingað til hefur afstaða ís- lenskra stjórnvalda verið sú að þau eigi ekki að hafa samband við þessa menn og hefur verið vísað til þess að ógerningur sé að finna þá sem þurftu að þola nákvæmlega sömu skerðingu og kærandinn í fyrr- greindu máli. Einnig hefur verið nefnt að dómurinn hafi verið þýdd- ur á íslensku og birtur á heimasíðu dómsmálaráðuneytisins. Ragna Árnadóttir, skrifstofustjóri í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu og stað- gengill ráðuneytisstjóra, segir jafn- framt að farið verði yfir málið á fundi með fullnustudeild Evrópu- ráðsins í lok mars. Ógerningur að verða við tilmælunum Óljóst með fullnustu dóms frá árinu 2004 SKIPULAGÐRI leit að bandarísk- um flugmanni Piper Cherokee-flug- vélar, sem leitað hefur verið frá því á fimmudag SSA af landinu, hefur ver- ið hætt. Vonskuveður var á svæðinu í gær. Leitað hefur verið á öllu því svæði sem gera má ráð fyrir að björgunarbátur flugvélarinnar fynd- ist, miðað við veðurfarslegar aðstæð- ur og sjólag. Leitarsvæðið var af- markað eftir útreikningum sértæks leitarforrits sem tekur mið af áætl- uðum lendingarstað vélarinnar á sjónum og mögulegu reki. Skipulagðri leit hætt ♦♦♦ HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hefur dæmt karlmann á fertugsaldri í 30 daga fangelsi fyrir að slá annan mann í höfuðið með biljarðkjuða inni á veitingastað í Reykjavík. Sá sem sleginn var fékk skurð þvert yfir ennið og á augabrún. Maðurinn, sem ráðist var á, sagð- ist hafa ætlað að rukka mann um skuld en skuldarinn brugðist illa við og fengið félaga sinn til að lúskra á honum. Sá tók biljarðkjuða, hélt um mjóa endann og sveiflaði honum af afli í andlit mannsins. Fram kemur í dómnum að árásarmaðurinn á að baki langan sakarferil og hefur m.a. verið dæmdur fyrir skjalafals nánast á hverju ári frá árinu 1993. Skuldarinn brást illa við

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.