Morgunblaðið - 24.02.2008, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 24.02.2008, Blaðsíða 36
36 SUNNUDAGUR 24. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ 26. febrúar 1978: „Með við- brögðum nokkurra forystu- manna verkalýðshreyfing- arinnar við efnahagsráðstöfunum rík- isstjórnarinnar er bersýnilega stefnt að því að skapa ástand óvissu og öryggisleysis í efna- hags- og atvinnumálum. Launþegar vita ekki á hverju þeir eiga von og öryggisleysið veldur því að atvinnurekst- urinn getur ekki gert ráð fyrir að áætlanir sem gerðar eru um reksturinn standist. Er slíkt óvissuástand launþegum í hag? Þeirri spurningu verður að svara neitandi. Yfirgnæfandi meirihluti launþega hefur áhuga á og hagsmuni af því að festa og öryggi ríki. Fólk vill búa við góð lífskjör og þau lífs- kjör hafa náðst á ný á síðustu misserum. Það er hagsmuna- mál launafólks að takast megi að halda þessu lífskjarastigi. Það tekst ekki ef ólöglegar að- gerðir verkalýðshreyfing- arinnar valda stórkostlegri röskun í þjóðfélaginu. Það er hagsmunamál launafólks að næg atvinna haldist í landinu. Ef ríkisstjórnin hefði ekki gripið til ráðstafana í efna- hagsmálum hefðum við staðið frammi fyrir mjög alvarlegu atvinnuleysi í vor og sumar. Þetta vita foringjar verkalýðs- samtakanna en neita að við- urkenna það opinberlega.“ 28. febrúar 1988: „Armando Valladares, sendiherra Bandaríkjanna hjá Mannrétt- indanefnd Sameinuðu þjóð- anna í Genf, er lifandi tákn þess, að unnt er að lifa af hin- ar hræðilegustu ofsóknir og pyntingar. Í 22 ár mátti hann dúsa í fangelsum Fidels Cast- rós, kommúnistaleiðtoga á Kúbu, vegna þess eins að hann hafði ekki sömu skoð- anir og Castró. Fyrir tilstilli samtaka eins og Amnesty Int- ernational og stjórnmála- manna víða um lönd og ekki síst vegna afskipta Francois Mitterrands, Frakklands- forseta, var Valladares sleppt úr haldi á árinu 1982. Á síð- asta ári skipaði Ronald Reag- an þennan margpínda mann, sem aldrei tapaði sjálfsvirð- ingu sinni af því að hann sótti styrk í trúna á Jesú Krist, sendiherra Bandaríkjanna hjá Mannréttindanefnd Samein- uðu þjóðanna. Þar heldur Val- ladares áfram að berjast gegn ógnarstjórn Fidels Castrós og fyrir rétti til handa þeim, sem ofsóttir eru um heim allan.“ 1. mars 1998: „Mikil um- ræða hefur farið fram um menntamál í þjóðfélaginu í kjölfar niðurstöðu hinnar al- þjóðlegu TIMSS-könnun á stærðfræði- og raun- greinaþekkingu framhalds- skólanema í 21 landi. Íslenskir nemendur urðu í þriðja sæti í könnuninni og hafa menn ým- is lýst ánægju sinni með þá frammistöðu eða bent á fyr- irvara sem verði að hafa á könnuninni. Þórólfur Þór- lindsson, prófessor við Há- skóla Íslands, benti á í viðtali við Morgunblaðið í gær að erf- itt sé að bera saman náms- árangur milli landa í fram- haldsskólum vegna þess hvað skólakerfin eru ólík. Gögn könnunarinnar leyfi því ekki að draga skýrar ályktanir um það hvort íslensku nemend- urnir eru í þriðja, fjórða eða fimmta sæti.“ Úr gömlum l e iðurum Einar Sigurðsson. Styrmir Gunnarsson. Forstjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. VIÐURKENNING Nú liggur fyrir opinber viður-kenning íslenzka ríkisins áþví að rekstur hins svonefnda Breiðavíkurheimilis hafi á köflum ver- ið eitt allsherjarhneyksli. Jafnframt er ljóst, að vistmönnum þar verða greiddar skaðabætur eins og vera ber. Það er líka sjálfsagt að þeir verði beðnir formlega afsökunar. Í samtali við Morgunblaðið í gær segir einn vist- manna, Páll Rúnar Elísson, að hann fari fram á „að Alþingi Íslendinga biðjist afsökunar og þykir mér per- sónulega að forseti Alþingis ætti að sjá um það – ég fer þá fram á, að hann nefni nafnið mitt. Þá mundi ég loksins geta snúið blaðinu við.“ Þetta er sjálfsögð krafa. Alþingi á með formlegum hætti að biðjast afsök- unar á því að líf þeirra, sem þarna voru vistaðir á tilteknum tíma hefur að verulegu leyti verið eyðilagt. Og við lifum bara einu sinni. Því ber jafnframt að fagna, að Geir H. Haarde forsætisráðherra hefur fal- ið nefndinni, sem rannsakaði Breiða- víkurmálið, að starfa áfram og fjalla um önnur vist- og meðferðarheimili. Það verður að hreinsa þetta mál allt út. Það hefur verið erfitt fyrir almenna borgara á Íslandi að skynja og skilja, að þessir atburðir hafi raunverulega gerzt í samfélagi okkar. Og þess vegna er sú spurning áleitin, hvort einhverj- ar hliðstæður sé að finna á okkar dög- um. Er það alveg víst að svo sé ekki? Breiðavíkurmálið er stór og alvar- legur blettur á því samfélagi, sem við höfum byggt upp á síðustu áratugum. Það er blettur, sem ekki er með nokkru móti hægt að afmá. En afsprengi hvers konar samfélags er Breiðavíkurmálið? Það er afsprengi samfélags, sem fyrir hálfri öld kallaði þá sem nú er taldir þroskaheftir fá- vita. Það er afsprengi þjóðfélags, sem fyrir hálfri öld útskúfaði geðsjúkum með þeim hætti að í hverri einustu fjölskyldu á Íslandi var farið með það sem feimnismál ef einhver meðlimur fjölskyldunnar var geðsjúkur. Þögnin ríkti en hvíslað í mörgum hornum. Hvar er Breiðavík að finna á okkar dögum? Er hana að finna í afstöðu okkar til fanga? Er hana að finna í afstöðu okk- ar til útigangsmanna? Það væri barna- legt að halda, að okkur hafi tekizt að útrýma öllum fordómum úr eigin huga. En það er úr fordómum sem at- burðir af því tagi sem urðu í Breiðavík spretta. Í Breiðavík brást eftirlitið, sem átti að hafa með heimilum sem þessum. Þau eru til í dag. Er eftirlitið fullkom- ið? Við eigum engan annan kost en spyrja okkur þessara spurninga og leita svara. Það væri óhugnanlegt ef nýtt Breiðavíkurmál kæmi upp eftir hálfa öld og snerti okkar samtíma. Nefnd dr. Róberts Spanó hefur unn- ið mikilvægt starf með Breiðavíkur- skýrslu sinni. Í skýrslu nefndarinnar er jafnvel að finna nýjar upplýsingar um harðræði, sem vistmenn voru beittir og ekki hafa komið fram áður. Þótti þó mörgum nóg um miðað við þær upplýsingar, sem fyrir lágu. Nú þurfa Alþingi og ríkisstjórn að ljúka þessu máli með viðeigandi hætti. Fébætur eru áreiðanlega í hugum þess fólks, sem hlut á að máli, minna málið. En þær eru þó staðfesting á því að íslenzkt samfélag viðurkennir sök sína og þess vegna eru þær sjálfsagð- ar. Kjarni málsins er það, sem haft var eftir Páli Rúnari Elíssyni hér að fram- an, að hann fari fram á að forseti Al- þingis nefni nafn sitt. Það þarf að gerast með skýrum og afdráttarlausum hætti og um það hljóta alþingismenn að geta sameinast sem einn maður. Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Á forsíðu 24 stunda var fyrr í þessum mánuði sagt frá því á forsíðu að ráðist hefði verið á mann í Reykja- vík og hann kallaður arabi. Í Dan- mörku hefur gengið yfir íkveikju- faraldur vegna þess að dönsk dagblöð birtu á ný skopteikningar af Múhameð spámanni. Ástæðan fyrir birtingunni var sú að danska lögreglan handtók þrjá menn, sem grun- aðir eru um að hafa ætlað að myrða einn af tólf teiknurum, sem teiknuðu skopmyndir af Múhameð í Jyllands-Posten 30. september 2005. Í kjölfarið á þeirri birtingu kom til mótmæla í garð Dana um allan hinn múslímska heim. Nú er aftur mótmælt víða um heim. Í Hollandi er deilt um höfuðklúta og slæður. Í Frakklandi eru höfuðklútar og slæður bannaðar í skólum. Jack Straw, fyrrverandi utanríkisráð- herra Bretlands, hleypti af stað miklu fári 2006 þegar hann skrifaði grein um hvað sér þætti óþægilegt að ræða við kjósendur sína þegar þeir hylja andlitið. Í Tyrklandi geisar deila um höfuð- klúta sem aldrei fyrr. Í augum Vesturlandabúa er höfuðklúturinn tákn kúgunar kvenna. Í Tyrklandi er höfuðklúturinn þrætueplið í deilunni um að- skilnað hins veraldlega og trúarlega. Í dagblaðinu International Herald Tribune var fyrir nokkru vitnað í Fatma Benli, tyrkneskan lögmann, sem hefur barist fyrir réttindum kvenna í Tyrklandi. Hún gengur með höfuðklút: „Ég gæti sagt ykkur frá heimilisofbeldi, heiðursmorðum, þeim hluta refsiréttarins, sem mismunar konum,“ sagði hún. „En við getum ekki hreyft okkur í þessum málum. Við erum föst í höfuðklútnum.“ Í þessum mánuði var samþykkt í Tyrklandi að konur mættu vera með höfuðklúta í háskólum og þurfti til þess stjórn- arskrárbreytingu. Andstæðingar laganna óttast að konur verði neyddar til þess að hylja sig þegar lögin taka gildi og segja að þau beri vitni tilraun núverandi rík- isstjórnar til að blanda í auknum mæli saman trú og pólitík. Recip Tayyip Erdogan forsætisráð- herra segir hins vegar að konum muni verða frjálst að klæðast að vild og ætlunin með breytingunni sé að auka frelsi og lýðræði, ekki hið gagnstæða. Fyrir nokkrum vikum lagði forustumaður ensku biskupakirkjunnar, Rowan Williams, erkibiskup af Kantaraborg, til að ensk lög tækju að hluta til ísl- amskra laga, sharia. Þessar hugmyndir hafa vakið harðar deilur. Umræðan í Hollandi í kjölfarið á morðunum á stjórnmálamanninum Pym Fortuyn og kvik- myndagerðarmanninum Theo Van Gogh snýst um það að fjölmenningarþjóðfélagið hafi beðið skip- brot. Umræðan í Frakklandi eftir óeirðir, sem ítrekað hafa brotist út í hverfum innflytjenda þar í landi, snýst um það að stefna samlögunar sé komin í strand. Þetta eru þær tveir leiðir, sem farnar hafa verið í innflytjendamálum. Fjölmenningarmódelið má kenna við Bretland og samlögunaraðferðina við Frakkland. Samfélag í samfélaginu M illjónir múslíma búa í Evrópu um þessar mundir og þeim fer fjölgandi. Á forsíðu tímaritsins The Economist fyrir nokkru síðan var vísað á umfjöllun um múslíma í Evrópu með orðinu Evrabía. Melanie Phillips, blaðamaður á Daily Ma- il, kallaði bók sína um fyrirbærið Londonistan. Umræðan hefur fallið í þann farveg að íslam og hið veraldlega samfélag fari ekki saman og nú verði að segja hingað og ekki lengra. Vestrænt samfélag geti ekki látið það viðgangast að grundvallarrétt- indi séu fótum troðin. Þetta er vitaskuld hárrétt. Ótækt er að gefa af- slátt af mannréttindum af tillitssemi við menningu eða trúarbrögð. Það jafngildir því að tilteknir ein- staklingar í samfélaginu séu sviptir þeim réttind- um vegna þess eins hvaða hópi þeir tilheyra. Það gengur ekki að konur njóti ekki lögbundinna og stjórnarskrárvarinna réttinda vegna þess eins að þær búi í samfélagi innflytjenda úr röðum músl- íma. Mikið hefur verið skrifað um kúgun kvenna, „hinna réttlausu dætra Allah“ eins og það var orð- að í Der Spiegel, í innflytjendasamfélögum í Evr- ópu. Í Tyrkjasamfélögum þýskra stórborga er staða kvenna mun verri en almennt gerist í Tyrk- landi. Konum er jafnvel meinað að ganga mennta- veginn og þýskunám er dulbúið sem hannyrð- anámskeið til þess að konur geti menntast á laun, svo dæmi sé tekið. Í Þýskalandi geta skilin á milli samfélaganna verið svo skörp að tala má um tvo heima og samgangurinn á milli þeirra er mjög tak- markaður. Þessi skil er að finna víðar í Evrópu. Innflytjendahverfi í Hollandi eru kölluð diska- hverfi og er þá vísað til þess að diskar til að taka á móti gervihnattasendingum eru á hverjum svölum. Inni á heimilunum er ekki fylgst með hollenskri umræðu heldur útsendingum frá landi upprunans. Það býr í öðrum heimi. Gagnrýni á þessi viðhorf innflytjenda hefur komið fram með mjög afdráttarlausum hætti. Einn þekktasti gagnrýnandinn er Ayan Hirsi Ali, sem kom hingað til lands á bókmenntahátíð í fyrra. Hún er talsmaður samlögunar. Innflytjendur eigi að taka upp gildi þess samfélags, sem þeir setjast að í. Umræða á villigötum S purningin er hins vegar hvort þessi umræða sé á villigötum. Stenst sú fullyrðing að íslam sé þess eðlis að trúarbrögðin geti ekki þrifist í ver- aldlegu samfélagi frekar en önnur trúarbrögð? Er íslam svo frábrugðið kristni eða gyðingdómi, svo dæmi séu tekin? Ekki má gleyma því að milljónir múslíma búa í Evrópu og langflestir hafa þeir lagað sitt daglega líf að því samfélagi, sem þeir eru hluti af. Þeir hafa ákveðið að rækta trú sína í einkalífinu, en vera jafnframt þátttakendur í hinu veraldlega samfélagi, rétt eins og kristnir menn. Þeir hafa sætt sig við að þeirra viðhorf munu ekki í einu og öllu verða endurspegl- uð í löggjöf samfélagsins og sætta sig við það. Þeir sætta sig til dæmis við það að þeirra trúarlega af- staða til skírlífis og framhjáhalds sé ekki refsiverð með lögum án þess að grípa til ofbeldis til að knýja fram breytingar á því, rétt eins og kristnir menn eru margir andvígir fóstureyðingum, en grípa ekki til ofbeldis (nema í undantekningartilvikum) held- ur láta sér nægja að andmæla þeim innan ramma opinnar umræðu. Þessir múslímar eiga margir í erfiðleikum í umræðum samtímans og mæta jafn- vel fordómum vegna þess að þeir eru allir settir undir einn hatt. Í hinni skekktu umræðu verður málflutningur þeirra sem vilja ganga lengst í að koma á íslömsku ríki mest áberandi. Skoðanir, sem eiga heima á jaðrinum, eru eignaðar öllum múslímum. Herskáir talsmenn íslamskra öfgaskoðana stela umræðunni og andstæðingar þeirra eigna þeim sviðið. Það er kannski kaldhæðnislegt að oft eiga þeir hópar kristinna manna og múslíma, sem í umræðunni virðast í mestri andstöðu, samleið, til dæmis í af- stöðu sinni til hjónabands og sambúðar samkyn- hneigðra. Hinir hófsömu verða á milli H ófsamir múslímar eru beittir þrýstingi og jafnvel vændir um svik af íslamistunum og brenni- merktir af gagnrýnendum ísl- ams. Fyrir vikið einangrast þeir og eiga erfiðara með að koma málstað sínum á framfæri. Stundum er talað um að það standi íslam fyrir þrifum að þar hafi aldrei átt sér stað siðbót eins og varð í kirkjunni og áður- nefndur Jack Straw er meðal þeirra, sem segja að þetta sé vandi íslams. Þá gleymist að í katólsku kirkjunni átti sér aldrei stað nein siðbót, en hún hefur samt lagað sig að hinu veraldlega samfélagi – vegna þess að hún átti ekki annars kost. Í íslam hefur mikil umræða um þessi efni átt sér stað og íslamskir guðfræðingar hafa sett fram kenningar um það hvernig íslam geti þrifist í veraldlegu sam- félagi. Þá skapast þrýstingur innan samfélags múslíma í slíku samfélagi að þeim verði gert kleift að iðka trú sína í sátt við umhverfi sitt. Það virðist oft gleymast að ekki er langt síðan ítök kirkjunnar voru mun meiri í vestrænu sam- félagi en nú er. Kirkjan losaði ekki sjálfviljug um tök sín, heldur neyddist til þess. Þetta gerðist ekki með sama hætti alls staðar í Evrópu. Annars vegar urðu siðaskiptin í Norður-Evrópu, en hins vegar fór fram rimma milli katólsku kirkjunnar og yf- irvalda í Suður-Evrópu. Þessi átök snerust hins vegar ekki um að útrýma trúnni, heldur að hætt yrði að skilgreina þjóðfélagið út frá trúnni og iðkun hennar. En þótt ríkisvaldið hafi orðið veraldlegt í hinum vestræna heimi, er trúin ekki alltaf langt undan. Það þarf ekki einu sinni að líta út fyrir land- steinana til marks um tengsl ríkis og kirkju á Vest- urlöndum. Með hvaða hætti er íslam frábrugðið öðrum trúarbrögðum ef þau trúarbrögð fá ekki þrifist í veraldlegu samfélagi? Eitt vandamálið í umræðunni um íslam er til- hneigingin til að leggja að jöfnu trú og menningu, að það að halda trúnni jafngildi því að halda í sína menningu. Málsvarar íslams vilja hins vegar hefja trúna yfir einstaka menningarheima og telja hana altæka rétt eins og þeir sem boða kristna trú. Þá má líka spyrja í hvaða menningu liggja rætur hins Laugardagur 23. febrúar Reykjavíkur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.