Morgunblaðið - 24.02.2008, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 24.02.2008, Blaðsíða 48
48 SUNNUDAGUR 24. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN HELDUR er dapurlegt að fylgj- ast með skrifum Halldórs Halldórs- sonar, bæjarstjóra á Ísafirði og for- manns Sambands sveitarfélaga, um olíuhreinsunarstöð sem neyðarlausn fyrir Vestfirðinga. Í grein sinni fyrr í mánuðinum reyndi hann að varpa ábyrgðinni á erfiðri stöðu Vestfirð- inga yfir á umhverfissinna. Þeir bæru ábyrgð á að lof- orð um uppbyggingu Vestfjarða hefðu verið svikin. Hins vegar forðaðist hann að draga til ábyrgðar hina raunverulegu söku- dólga í þeirri alvarlegu stöðu sem íbúar Vest- fjarða standa frammi fyrir. Ábyrgð Sjálfstæð- isflokksins Er það ekki rík- isstjórn Sjálfstæð- isflokksins sem hefur farið með völd í þessu landi nú samfellt í 17 ár? Sá flokkur hefur átt forsætisráð- herrann nánast allan þennan tíma, sömuleiðis fjármálaráðherrann, sjávarútvegsráðherrann, samgöngu- ráðherrann og menntamálaráðherr- ann. Sumir af þessum ráðherrum hafa meira að segja verið þingmenn Vestfjarða. Ríkisstjórn Sjálfstæð- isflokksins, fyrst með Alþýðuflokkn- um og síðan með Framsókn, ber auðvitað ábyrgð á þeirri stefnu sem framfylgt hefur verið gagnvart Vest- fjörðum. Og hvað hefur gerst? Árið 1991 voru íbúar Vestfjarða 9.740 en í árs- lok 2007 eru þeir 7.309. Það er rík- isstjórn Sjálfstæðisflokksins sem ber ábyrgð á stöðugum niðurskurði á framlögum til vegamála í fjórð- ungnum og sviknum loforðum. Sama ríkisstjórn ber ábyrgð á því að sjáv- arbyggðirnar hafa misst burt réttinn til að sækja sjó á fiskimiðunum fyrir ströndum þeirra. Landaður afli á Vestfjörðum var 99.367 tonn árið 1992, fór hæst árið 1996 í 110.146 tonn en síðustu 3 árin hefur hann verið liðlega 40 þús. tonn. Hlutdeild þeirra í heildarafla landsmanna hef- ur fallið úr 9,32% 1991 í um 3% árið 2006. Eindrægni er þörf Nú þegar Vestfirðingar reyna enn á ný að njóta sérstöðu sinnar með fiskinn fyrir ströndinni til uppbygg- ingar nýrri atvinnugrein, ferðaþjón- ustu með sjóstangveiði, hlaupa stjórnvöld til og setja þeim stólinn fyrir dyrn- ar. Samkvæmt til- lögum sjávarútvegs- ráðherra verður þessi nýja atvinnugrein að kaupa eða leigja kvóta á uppsprengdu verði fyrir sjóstangveiðina, ef hann er þá yfirleitt falur. Þessi krafa ráð- herrans leggur þunga byrði á nýja atvinnu- grein og getur reynst henni ofviða. Nú hafa um 3.000 manns pantað sjóstangveiði á þessu ári. Stjórnvöld ættu að leggja þessari nýju grein lið fremur heldur en að torvelda sókn- armöguleika hennar. Ég hef aldrei skilið linkuna í for- ystumönnum Sjálfstæðisflokksins á Vestfjörðum gagnvart ráðherrum sínum í vegamálum. Dettur nokkr- um Vestfirðingi í hug að Stein- grímur J. Sigfússon eða einhver annar þingmaður Vinstri grænna hefði látið hafa sig í það að boða frestun á vegaframkvæmdum á Vestfjörðum til að slá á þenslu á suð- vesturhorninu vegna stóriðjufram- kvæmdanna umhverfis Reykjavík og fyrir austan? Svari hver fyrir sig í þeim efnum. Ég hef hitt marga Vestfirðinga sem vildu óska sér að Steingrímur J. Sig- fússon hefði verið samgöngu- ráðherra áfram. Þeir minnast harð- fylgis hans þegar ákvörðun var tekin um Vestfjarðagöngin og einnig það að þau skyldu ná til Súgandafjarðar. Áfram stóriðjulausir Vestfirðir Vestfirðingar með Halldór Hall- dórsson í fararbroddi vöktu lands- athygli og virðingu á sínum tíma fyr- ir yfirlýsinguna um stóriðjulausa Vestfirði. Sú yfirlýsing vakti von í brjósti allra þeirra sem vilja byggja upp atvinnulíf sem byggist á fjöl- breytni og nærfærni gangvart nátt- úrunni og lífríkinu. Ég held einmitt að þessi stefnumarkandi sýn fyrir Vestfirðina hafi ráðið nokkru um að Halldór var studdur til formennsku Sambands sveitarfélaga. Óvinur Vestfjarða var hins vegar blind stór- iðjustefna ríkisstjórnar Sjálfstæð- isflokksins og Framsóknarflokksins, sem sá ekkert nema álver í hvern fjörð. Það er ábyrgðarhluti ef for- ystumenn Vestfjarða taka nú þátt í að kynda upp óraunhæfar væntingar í uppbyggingu mengandi stóriðju í fjórðungnum. Svo sannarlega þarf að snúa vörn í sókn í byggðamálum, en það verður ekki gert með því að leggjast flatur og gefast upp gagnvart þeim sem telja að stóriðja sé lausnin á vanda Vestfirðinga. Ég hvet bæjarstjórann til að krefjast stefnubreytingar stjórnvalda og berja frekar á Sjálf- stæðisflokknum sem verið hefur við stjórnvölinn undanfarin 17 ár. Því miður virðist ekki um neina stefnu- breytingu að ræða þar á bæ hvað Vestfirðinga varðar. Það er tími til kominn að Sjálf- stæðisflokkurinn axli ábyrgð á verk- um sínum í stað þess að íslensk nátt- úra, lífríki og samfélög borgi áfram brúsann af misgjörðum stjórnvalda. Stóriðjulausir Vestfirðir Jón Bjarnason fjallar um hnign- andi stöðu Vestfjarða » Sjálfstæðisflokk- urinn á að axla ábyrgð á eigin gjörðum í stað þess að íslensk náttúra, lífríki og sam- félög borgi brúsann af misgjörðum stjórn- valda. Jón Bjarnason Höfundur er þingmaður VG í Norð- vesturkjördæmi. HÆÐARGARÐUR 60 ÁRA OG ELDRI Falleg og björt 2ja herb. 65 fm útsýnisíbúð á efstu hæð í lyftuhúsi á þessum eftirsótta stað við Fossvoginn. Úr íbúð- inni nýturs fallegs útsýnis til austurs, suðurs og suðvest- urs. Svalir til suðurs. Mögu- leiki er að fá keypt eða leigt sér stæði í lokaðri bíla- geymslu. Innangengt er í þjónustumiðstöð á vegum Reykjavíkurborgar. Verð 29,0 millj. FASTEIGNA- MARKAÐURINN ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. - OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17. Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/. Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteignasali. - Guðmundur Th. Jónsson, lögg. fasteignasali. Laugavegur - þakíbúð Til leigu tvær 2ja herb. nýjar og glæsilegar íbúðir. Sér svalir og sér bílastæði. Langtímaleiga kr. 170.000.- Uppl. í s. 896-3420 eða á klauf@simnet.is Smárarimi 96, 112 Reykjavík Opið hús í dag milli kl. 15 og 15.30 149,5 fm einbýlishús við Smárarima í Grafarvogi. Nánari lýsing: Húsið er á einni hæð með innbyggðum bílskúr og skiptist í forstofu, hol, stofu, eldhús, þrjú svefnherbergi, þvottahús og geymsla innaf eld- húsi, baðberbergi með sturtu- klefa og hornbaðkari. Innan- gengt er úr bílskúr í íbúð. Rúmgóður trépallur með girðingu. Verð 51 millj. Nánari upplýsingar um eignina gefur sölufulltrúi Fasteignakaupa Guðmundur Valtýsson 865 3022. Erna Valsdóttir lögg. fast.-, skipa- og fyrirtækjasali. Sími 515 0500 www.fasteignakaup.is Fífulind 2 – 2. hæð – 201 Kópav. OPIÐ HÚS í DAG KL. 15.00-15:30 4ra herb. endaíbúð á 2. hæð í snyrtilegu fjölbýli. Samtals109,3 fm. Eldhús með rúmgóðri innréttingu. Parket á gólfum og flísar. Snyrtilegt baðherbergi. Þrjú svefnherbergi. Góð eign í barnvænu hverfi, stutt í leikskóla og skóla. Ásett verð 29,9 millj. Velkomin í opið hús í dag. ÝMSIR hafa að undanförnu tjáð sig um hvernig vænlegast væri að bregðast við þeim mikla samdrætti sem leitt hefur af margumræddum kvótaniðurskurði. Flestir ef ekki all- ir hafa horft á vandamálið frá sjón- arhóli fiskvinnslunnar og þess fisk- vinnslufólks sem sárt á um að binda vegna þessara hremminga. Ekki hvarflar að mér að gera lítið úr þeim vanda sem fiskvinnslufyrirtækin og starfsfólk þeirra upplifa um þessar mundir. Hins vegar tel ég fulla ástæðu til þess að beina athygli manna að þeim bjarg- ráðum sem talsmenn vinnslunnar vilja beita til að draga úr áfalli skerðingarinnar. Í sem skemmstu máli ganga þær hugmyndir út á að koma í veg fyrir áframhald á útflutn- ing á ferskum fiski með þeim hætti sem þróast hefur undanfarið og gef- ið hefur góðar tekjur til handa við- komandi útgerðum og sjómönnum. Þ.e.a.s fórna skal þeim hluta innan sjávarútvegsins sem býr við að- stæður þar sem fullkomlega fara saman hagsmunir útgerðar og sjó- manna. Leggja skal stein í götu þeirra sem reka veiðiskip þar sem alfarið er lagt upp með það eina markmið að fá eins mikil verðmæti fyrir aflann og mögulegt er á hverj- um tíma. Lesa mátti grein í Morgunblaðinu um daginn þar sem eft- irfarandi mótvæg- isaðgerðir voru tíund- aðar. Númer eitt að afnema vigtunarheim- ild á afla erlendis, núm- er tvö að breyta vigt- unarreglum með þeim hætti að gæði hráefn- isins myndu rýrna verulega og númer þrjú að gámaálag skuli end- urvakið. Þetta telur höfundurinn mikilvægustu breyting- arnar sem gera þurfi til bjargar fisk- vinnslunni. Allt eru þetta hugmyndir sem fela það í sér að kippa grund- vellinum undan þeirri grein sjáv- arútvegsins sem hvað mest gróska hefur verið í að undanförnu. Til- gangurinn helgar meðalið segir ein- hverstaðar, en spurningin er hvort svo hátti til í þessu tilviki. Árni Bjarnason FFSÍ Eins dauði er annars brauð Árni Bjarnason skrifar um sjáv- arútvegsmál Árni Bjarnason » Allt eru þetta hug- myndir sem fela það í sér að kippa grundvell- inum undan þeirri grein sjávarútvegsins sem hvað mest gróska hefur verið í að undanförnu. Höfundur er forseti FFSÍ. MORGUNBLAÐIÐ er með í notkun móttökukerfi fyrir að- sendar greinar. Formið er að finna við opnun forsíðu fréttavefjarins mbl.is vinstra megin á skjánum undir Morgunblaðshausnum þar sem stendur Senda inn efni, eða neðarlega á forsíðu fréttavefjarins mbl.is undir liðnum Sendu inn efni. Ekki er lengur tekið við greinum sem sendar eru í tölvupósti. Í fyrsta skipti sem formið er notað þarf notandinn að skrá sig inn í kerfið með kennitölu, nafni og netfangi, sem fyllt er út í þar til gerða reiti. Næst þegar kerfið er notað er nóg að slá inn net- fang og lykilorð og er þá not- andasvæðið virkt. Ekki er hægt að senda inn lengri grein en sem nemur þeirri hámarkslengd sem gef- in er upp fyrir hvern efn- isþátt. Þeir, sem hafa hug á að senda blaðinu greinar í um- ræðuna eða minning- argreinar, eru vinsamlegast beðnir að nota þetta kerfi. Nánari upplýsingar gefur starfsfólk greinadeildar. Móttöku- kerfi að- sendra greina
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.