Morgunblaðið - 24.02.2008, Blaðsíða 29
Samrýmdar Elma Lísa og
Nína Björk ásamt þriðju
systurinni, Tinnu Dögg.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. FEBRÚAR 2008 29
Nína Björk Elma Lísa er ein-
staklega hæfileikarík manneskja
og mikill dugnaðarforkur. Ég hef
alltaf litið upp til hennar og er
stolt af því að vera litla systir
hennar Elmu.
Ætli helsta einkenni hennar sé
ekki persónutöfrarnir. Hún sjarm-
erar alla upp úr skónum. Fólk er
upp til hópa tilbúið að gefa henni
aleiguna – og hefur gert það.
Grínlaust!
Einu sinni sem oftar varð strák-
ur skotinn í Elmu. Mamma hans
átti heildsöluverslun með snyrti-
vörur og strákurinn gekk svo
hraustlega á lagerinn að heild-
salan fór hér um bil á hausinn!
Elma var og er prinsessa. Hún
varð landsfræg ung að aldri fyrir
dans og fegurð. Allir strákar elsk-
uðu hana. Þetta varð til þess að
sumar stelpurnar í hverfinu öf-
unduðu Elmu og töluðu illa um
hana. Það fór ofboðslega í taug-
arnar á mér og ég hafði mjög ríka
tilhneigingu til að vernda hana og
verja. Einu sinni var ég í strætó
þegar einhverjar stelpur byrjuðu
að tala illa um Elmu. Ég beið ekki
boðanna, reis á fætur og sagði
þeim til syndanna. Ég stóð að vísu
ekki út úr hnefa á þessum tíma en
kraftmikil röddin bætti upp fyrir
smæðina. Ég gleymi þessu aldrei.
Eins og gengur með eldri systur
var Elma fyrirmynd mín í æsku
og vinkonum mínum fannst hún
geggjuð! Hún var mikil diskógella
og algjör drottning á „eighties“-
tímanum. Mér eru vængjagreiðsl-
urnar og herðapúðarnir í fersku
minni. Hvað var annars málið með
þessa herðapúða? Þegar maður
skoðar myndir frá þessu tímabili
lítur fólk út eins og hraustustu
ruðningskappar. En þetta var
sjúklega flott í þá daga.
Elma var alltaf að keppa í free-
style-dansi og ég mátti ekki fyrir
mitt litla líf missa af keppni.
Mætti helst tveimur tímum á und-
an öðrum til að ná besta sætinu.
Ég hef allar götur síðan fylgst vel
með því sem Elma er að gera.
Elma sló alls staðar í gegn sem
barn og unglingur. Einu sinni fór-
um við með pabba til Mallorca,
ætli Elma hafi ekki verið tólf ára
og ég níu. Þar tróð hún upp sem
dansari á hótelinu og víðar – utan
auglýstrar dagskrár – og heillaði
Spánverjana upp úr skónum.Var á
endanum valin „Ungfrú Mallorca“.
Elma Lísa er fædd til að koma
fram.
Það kom því ekki á óvart að hún
skyldi leggja leiklistina fyrir sig.
Hún er að mínu viti mjög vaxandi
leikkona og fer til dæmis al-
gjörlega á kostum í Baðstofunni,
sem núna er verið að sýna í Þjóð-
leikhúsinu, í hlutverki konu sem
er gersneydd fegurð og persónu-
töfrum. Þetta er gjörólíkt fyrri
hlutverkum hennar og sýnir
hversu fjölhæf hún er.
Enda þótt Elma sé á hárréttri
hillu liggja hæfileikar hennar á
fleiri sviðum. Hún er til dæmis
mikil viðskiptakona. Ég hef fylgst
með henni selja verðlaust dót fyrir
stórfé í Kolaportinu. Ef hún vildi
gæti hún örugglega haslað sér völl
í viðskiptum með góðum árangri.
Elma er ákaflega metn-
aðargjörn. Vill alltaf vera hæst og
best. Ég man til dæmis hvað hún
varð reið ef hún varð ekki hæst í
bekknum á prófunum í gamla
daga. Hún linnti heldur ekki lát-
um fyrr en hún hafði farið á fund
kennarans, vopnuð fallega svipn-
um sínum og óhrekjandi rökum,
og fengið hann til að hækka sig.
Lundarfar Elmu er gott en hún
hefur stórt skap. Er fljót upp en
líka fljót að jafna sig og hún er
alls ekki langrækin. Það er stór
kostur.
Elma á það einnig til að vera í
sér heimi. Þá heyrir maður
kannski ekki í henni í langan tíma.
Hún meinar auðvitað ekkert með
þessu en þar sem allir vilja hafa
hana hjá sér væri einfaldast að
klóna hana.
Elma getur líka verið smámuna-
söm, sérstaklega inni á heimilinu
sínu. Þar er allt í röð og reglu og
hún botnar ekkert í því þegar litlu
frændsystkinin byrja að rífa og
tæta. „Barnadót á að vera í barna-
herberginu,“ segir hún þá jafnan
af röggsemi.
Elma er vel að merkja rosalega
stjórnsöm og ég er sannfærð um
að hún gæti orðið góður leikstjóri
sýnist henni svo.
Það fer fátt í taugarnar á mér í
fari Elmu en ég verð þó að taka
fram að hún kann ekki á klukku.
Kannski lærir hún á hana seinna?
Samt er henni alltaf fyrirgefið fyr-
ir að koma of seint. Maður verður
alltaf svo ánægður þegar hún er
mætt.
Elma er lítið fyrir drama og ber
ekki tilfinningar sínar á torg. Per-
sónuleg mál ræðir hún bara við
fólk sem hún treystir. Hún getur
líka verið mjög stórtæk varðandi
gjafir og skrifar manni mjög falleg
kort.
Elma er mjög hreinskilin að eðl-
isfari, segir alltaf sína meiningu
og vill ekki hafa að talað sé illa
um náungann. Hún fylgir alltaf
hjartanu og er frábær mannþekkj-
ari. Ég man hvað mér þótti skrýt-
ið þegar ég var lítil að allir strák-
ar sem ég varð skotin í voru
kolómögulegir, að hennar áliti.
Seinna gerði ég mér grein fyrir
því að hún var bara að passa upp
á mig, vildi bara það besta fyrir
litlu systur.
Við Elma erum mjög miklar
systur og systur eru alltaf nánari
en vinkonur. Við getum rifist eins
og hundur og köttur án þess að
það dragi dilk á eftir sér og ég
veit að Elma verður alltaf til stað-
ar fyrir mig ef á þarf að halda. Og
ég fyrir hana.
Elma Lísa á örugglega eftir að
halda áfram að þroskast og eflast
sem manneskja í framtíðinni og
vaxa af verkum sínum. Og eitt
hlutverk á hún eftir, móðurhlut-
verkið. Það yrði stórkostlegt að
sjá hana í því hlutverki og ekki
væri verra að fá eins og eina litla
Nínu... | orri@mbl.is
Allir strákar elskuðu hana
»Hún sjarmerar allaupp úr skónum. Fólk
er upp til hópa tilbúið að
gefa henni aleiguna – og
hefur gert það. Grín-
laust!
Aðferðirnar er að finna í þessari bók.
Febrúartilboð - 1990 kr.
Vertu breytingin
sem þú vilt sjá
verða í heiminum
með Ásmundi Gunnlaugssyni
Uppbyggjandi og traust námskeið sem við
höfum boðið upp á sl. 14 ár við góðan orðstír.
Hentar þeim sem eiga við streitu, kvíða eða fælni
að stríða og/eða eru að ganga í gegnum miklar
breytingar í lífinu.
Hefst miðvikudaginn 27. febrúar.
Kennt á mán. og mið. kl. 20.00 (7 skipti).
Kennslustaður: Menningarmiðstöðin Gerðuberg.
Jóga gegn kvíða
Allar nánari upplýsingar og skráning á
www.jogaskolinn.is og í síma 862 5563