Morgunblaðið - 24.02.2008, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 24.02.2008, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. FEBRÚAR 2008 51 ✝ Magnús Kjart-an Guðmunds- son fæddist í Reykjavík 16. jan- úar 1924. Hann lést á Landakotsspítala 2. febrúar síðastlið- inn. Foreldrar hans voru Guðmundur Guðmundsson skip- stjóri, f. 16.12. 1894, d. 26.4. 1963 og Guðlaug Gríms- dóttir húsfreyja, f. 21.7. 1890, d. 28.3. 1982. Systkini Magnúsar eru Ásmundur, f. 1921, d. 2005, Guðmundur, f. 1923, Valtýr, f. 1925, d. 1991, og Sverrir, f. 1927, d. 1965, Guð- Guðnýju Reynisdóttur. Barna- börnin eru 26, og barna- barnabörnin eru fjölmörg. Magnús ólst upp í Reykjavík en fór á sjó aðeins 14 ára gamall. Á árunum 1947-1948 stundaði hann nám í farmanna- og fiski- mannadeild Stýrimannaskólans. Hann stundaði síðan sjómennsku ýmist sem skipstjóri á bátum eða stýrimaður á togurum á árunum 1949-1963. Árið 1964 kemur hann alkominn í land. Hann byrj- ar að starfa hjá Verktakafyr- irtækinu Véltækni sem vélamað- ur en síðar starfaði hann þar sem verkstjóri og sprengimaður. Á árunum 1982-1985 starfar hann hjá Miðfelli sem sprengi- maður. Á árunum 1986- 1990 var hann lagermaður hjá Listsmiðj- unni en síðustu árin starfaði hann á Hrafnistu. Magnús hætti störfum 70 ára að aldri. Útför Magnúsar fór fram frá Fríkirkjunni 8. febrúar. mundssynir, og Lára og Ferdina Stefanía Bachman Ásmunds- dætur (sammæðra), f. 1917, d. 1968. Sonur Magnúsar og Elínar Fanný Friðriksdóttur, er Ágúst Jónsson Magnússon, kvænt- ur Kolbrúnu Lind Eiríksdóttur, dóttir þeirra er Kristín Magnúsdóttir. Magnús kvæntist 29. ágúst 1962 Hjör- dísi Erlu Pétursdóttur, þau eiga tvö börn, Kjartan og Erlu Stef- aníu. Fyrir átti Hjördís Hörð Oddgeirsson, Hauk Reynisson og Elsku besti pabbi. Ég vil þakka þér fyrir allt sem þú hefur gert fyrir mig og börnin mín þrjú á þinni lífsleið. Börnin eiga öll svo jákvæðar minningar um þig, þau urðu aldrei lyklabörn samtímans þar sem þú tókst alltaf á móti þeim eftir skóla. Ég naut þeirra forréttinda að vera yngst og geta búið í risinu hjá þér og mömmu fyrir utan árin sem við bjuggum í Kaupmannahöfn en þá komu þið oft í heimsókn og studd- uð við bakið á okkur, t.d á próf- tímum. Það var alveg sama hvaða ákvörðun ég tók varðandi framtíð mína, þú studdir mig og barst virð- ingu fyrir ákvörðun minni þó að þú værir ekki alltaf sammála mér og mínum ákvörðunum. Fyrir það hef ég alltaf borið mikla virðingu fyrir þér. Þú varst yndislegur faðir í alla staði og því var ég svo glöð yfir því hvað ég gat sinnt þér og gefið þér mikinn tíma á síðustu mánuðum þínum sem þú þurftir því miður að eyða á sjúkrahúsi. Það var alltaf jafn gott að koma til þín alveg sama hversu veikur þú varst, bara smá fréttir af hinu daglega lífi okk- ar komu þér til að brosa og já- kvæðni þín og æðruleysi þitt var með ólíkindum. Þú varst ólíkur okkur að mörgu leyti því þú barst ekki tilfinningar þínar á torg. Þú varst þó búinn að biðja um að kveljast ekki þegar „stundin“ rynni upp og við það var staðið en þú hafðir varla tekið verkjatöflu alla þessa fimm mán- uði. Þú varst dugnaðarforkur og hafðir mætt mörgu mótlæti í lífinu bæði í þínum uppvexti og síðar í lífinu en þú efldist bara og mættir því sem upp kom hverju sinni með mikilli ákveðni og virtist alltaf geta nýtt þér það á jákvæðan hátt. Ég vona að ég hafi erft þennan góða eiginleika þinn. Allar okkar stundir og minning- ar geymi ég með mér og börnum mínum. Við erum búin að sitja og skoða myndir síðustu ára og það er ljúft að sjá hvað við höfum átt góð- ar stundir öll saman stórfjölskyld- an. Hvíl þú í friði elsku pabbi. Þín dóttir, Erla Stefanía. Með örfáum orðum langar mig að minnast þín, kæri Maggi. Þegar ég rifja upp mín fyrstu kynni af þér, sé ég hörkuduglegan, ósérhlíf- inn mann sem starfaði á þeim tíma sem jarðvinnuverkstjóri. Fyrstu árin sem ég kynntist þér varst þú nánast alltaf í vinnunni, svo ef ég þurfti að hitta þig þá var þig helst að finna einhvers staðar úti í skurði með þinn vinnuflokk. Þú tókst mér strax opnum örm- um og á milli okkar myndaðist vin- átta sem var mér mikils virði og ég mun aldrei gleyma. Við áttum oft skemmtilegar samræður um stjórnmál, heimsmálin og annað fréttnæmt efni sem við höfðum báðir mjög gaman af. Við vorum ekki alltaf sammála en virtum skoðanir hvor annars. Árin liðu og heilsunni fór smám saman að hraka en jákvæðnin og áræðnin var alltaf til staðar til að vinna bug á því. Með breyttum lífs- stíl tókst þér að eiga mörg yndisleg ár eftir að starfsferli þínum lauk. Þau eru ófá ferðalögin sem við höfum farið saman á undanförnum árum, bæði hérlendis og erlendis. Það var sama hvort við fórum í sumarbústað, á sólarströnd, eða í ökuferð um Evrópu, alltaf varst þú jákvæður þótt heilsan væri farin að dvína. Jákvæðni þín gerði það að verkum að við komumst allra okk- ar ferða og notuðum til þess þau hjálpartæki sem fengust þar sem við vorum hverju sinni. Þú reyndist börnunum mínum alltaf afskaplega vel og hefur verið mikill vinur þeirra í gegnum tíðina. Þeim fannst alltaf jafn gaman að hafa ykkur Dísu með í sumarfríin okk- ar. Mér varð það hins vegar ljóst eftir síðustu ferðina okkar sem var síðastliðið sumar að það yrði sú síðasta. Heilsan leyfði einfaldlega ekki meira. Með dugnaði og baráttu tókst þér að berjast gegn þínum sjúk- dómi í lengri tíma en nokkur hefði trúað, en ert á þessari stundu lík- lega hvíldinni feginn. Ég þakka fyrir allar dýrmætu og góðu minningarnar sem ég hef átt með þér í gegnum tíðina. Jónas. Elsku afi, takk fyrir allar góðu stundirnar heima hjá þér og ömmu á Löngubrekkunni. Ég á margar góðar minningar frá þeim tíma þegar við sátum fram eftir kvöldi og spiluðum eða horfðum saman á sjónvarpið þegar ég fékk að gista hjá þér og ömmu. Þú leyfðir mér alltaf að velja hvað við horfðum á, fyrir utan auðvitað þegar fréttirnar voru að byrja, því ekki máttirðu missa af þeim. Það var alltaf gaman að koma í heimsókn til ykkar ömmu og fylgj- ast með ömmu þjóta um eins og byssubrandur að gera hitt og þetta meðan þú fylgdist með í rólegheit- unum og hafðir lúmskt gaman af öllum látunum. Það er gott að vita að þú ert kominn á betri stað og að þér líði vel eftir erfið veikindi síð- ustu mánuði. Við systurnar munum sakna þín. Hrafnhildur. Elsku afi, ég veit að þú varst ekki mikið fyrir að úthella tilfinn- ingum opinberlega en mig langar nú samt til að minnast þess stóra hlutverks sem þú gegndir í lífi mínu í fáeinum orðum. Alla mína æsku vissi ég varla hvað húslykill var því að afi minn var alltaf heima á Löngubrekk- unni. Sú öryggistilfinning gleymist aldrei. Þegar ég kom heim úr skóla var þeyttur eða hristur Royal-búð- ingur og spilað þar til allir komu heim. Fréttatíminn ógurlegi hófst síðan eftir kvöldmat og þá var eins gott að vera ekki að trufla. Á ung- lingsárunum voru þær ófáar ferð- irnar sem hann afi minn keyrði í MH og í Listaháskólann. Án þess hefði ég ekki getað afrekað það sem ég gerði á þessum árum. Þetta er nú bara örlítið brot af því sem ég gæti þakkað honum fyrir. Hann var einfaldlega stór hluti af mínu daglega lífi, allt frá fæðingu og þar til ég flutti að heiman 18 árum síð- ar. Hann veitti traust, stuðning og skilyrðislausa væntumþykju. Ég var einnig svo heppin að á síðustu árum, eftir ég fluttist frá Löngu- brekkunni, fór ég tvisvar til út- landa með afa Magnúsi. Annað skiptið til Spánar þar sem við nut- um lífsins í botn og seinna skiptið í síðustu ferðinni hans núna í sumar þar sem hann kom og heimsótti mig til Þýskalands. Eftir það veikt- ist hann mikið og átti fimm mánaða langa og erfiða baráttu á spítala. Þegar ég var á landinu var það nánast fastur liður á hverjum degi að líta til hans og heyra það nýj- asta í fréttum og fá veðurspána. Þá gat ég einnig sagt frá deginum mínum og við áttum góðar stundir þrátt fyrir sorglegt umhverfi. Ég mun alltaf sakna þín, elsku afi minn. Takk fyrir allt. Kveðja, Guðný litla. Magnús Kjartan Guðmundsson Útfararþjónusta Davíðs Ósvaldssonar ehf. Davíð Ósvaldsson Útfararstjóri S. 896 6988 / 553 6699 Óli Pétur Friðþjófsson Útfararstjóri S. 892 8947 / 565 6511 ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, systir og frænka, SVANDÍS JÚLÍUSDÓTTIR, Skúlagötu 78, Reykjavík, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi, mánudaginn 18. febrúar. Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík, þriðjudaginn 26. febrúar kl. 13.00. Karl Valur Guðjónsson, Díana Björnsdóttir, Brynja Guðjónsdóttir, Sveinn Þór Hallgrímsson, Júlíus Kristinsson, Lotte Knudsen, Kristján Kristinsson, Egill Kristinsson, Hafdís Ósk Gísladóttir, barnabörn og aðrir aðstandendur. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, JÓNÍNA HANNESDÓTTIR, Skálagerði 15, Reykjavík, áður til heimilis að Kolbeinsgötu 6, Vopnafirði, sem lést á Vífilsstöðum 14. febrúar verður jarðsungin frá Bústaðakirkju mánudaginn 25. febrúar kl.13.00. Hólmfríður Kjartansdóttir, Sigurður Adolfsson, Inga Hanna Kjartansdóttir, Kjartan Þórir Kjartansson, Áshildur Kristjánsdóttir, Baldur Kjartansson, Hrönn Róbertsdóttir, Erla Kjartansdóttir, Ágúst Borgþór Sverrisson, börn og barnabörn. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, BIRNA HALLDÓRSDÓTTIR Dalalandi 1, Reykjavík, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík, mánudaginn 25. febrúar kl. 15.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Minningarsjóð Sóltúns hjúkrunarheimilis sími 590 6000. Laufey Vilhjálmsdóttir, Samir Bustany, Halldór Vilhjálmsson, Bryndís Helgadóttir, Sigríður Vilhjálmsdóttir, Þórarinn Þórarinsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og langafa, ÞÓRHALLS KRISTINS ÁRNASONAR, skipstjóra frá Kolbeinsvík. Guðbjörg Sigrún Björnsdóttir, Árni Ólafur Þórhallsson, Anna Marta Valtýsdóttir, Halla Þórhallsdóttir, Magnús H. Guðmundsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskuleg eiginkona mín, MARGRÉT GUÐMUNDSDÓTTIR, Hveragerði, er látin. Jarðsett verður í kyrrþey. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Sigmundur Bergur Magnússon. Morgunblaðið birtir minning- argreinar alla útgáfudagana. Skil | Greinarnar skal senda í gegn- um vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is – smella á reitinn Senda efni til Morg- unblaðsins – þá birtist valkosturinn Minningargreinar ásamt frekari upplýsingum. Skilafrestur | Ef birta á minning- argrein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins tiltekna skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birting- ardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Minningargreinar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.