Morgunblaðið - 24.02.2008, Blaðsíða 20
20 SUNNUDAGUR 24. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Eftir Freystein Jóhannsson
freysteinn@mbl.is
1938 sendi tólf ára drengur áKúbu Bandaríkjaforsetaaðdáunarbréf með ósk um 10dollaraseðil. Þessi drengur
varð síðar forseti síns föðurlands, en
hefur látið það ógert að ausa forseta
handan sundsins lofi, heldur hafa
þeir vægast sagt eldað grátt silfur
saman og nú þegar Kúbumaðurinn
lætur af embætti þá þykir honum
einna sárast að hann skuli ekki hafa
setið af sér enn einn Bandaríkjafor-
setann, þann tíunda.
Vegna veikinda síðustu misseri fól
Fidel Castro, Kúbuforseti, Raúl
bróður sínum stjórnartaumana og
nú hefur hann tilkynnt að hann sé
ekki í framboði til frekari setu á for-
setastóli. Þing Kúbu mun kjósa eft-
irmann hans í dag.
Rætt hefur verið um að Raúl verði
kosinn forseti, en menn líta líka til
þeirra orða Castro að hann vilji ekki
standa lengur í vegi yngri manna
sem vísbendingu þess að næsti for-
seti Kúbu verði af annarri kynslóð
en þeir Castrobræður. Fari svo að
Raúl verði kjörinn er litið á það sem
eins konar biðleik, litlar breytingar
verði á Kúbu, til þess er Raúl ein-
faldlega of gamall í hettunni og háð-
ur bróður sínum, sem mun án efa
láta til sín taka bak við tjöldin. Þessi
millikafli myndi vara meðan Castro
dregur andann, en að honum gengn-
um munu koma yngri menn á valda-
stólana, menn sem færa Kúbu í lýð-
ræðisátt og laga sambandið við þau
ríki, sem Castro hefur haft á óvina-
listanum.
Meiri áhugi á
íþróttum en bókum
Fidel Alejandro Castro Ruz fædd-
ist 13. ágúst 1926 á sykurbýli í Birán
á Kúbu, þar nærri sem Holguínhér-
að er nú. Hann var þriðji í röð barna
Ángel Castro y Argiz, fransks inn-
flytjanda, sem varð auðugur af syk-
uriðnaði. Móðirin, Lina Ruz Conzá-
les, sem einnig var af frönsku bergi
brotin, var þjónustustúlka á heim-
ilinu, en Ángel Castro var kvæntur
maður, Maríu Luisu Argota. Þegar
Fidel var 17 ár gekk faðir hans að
eiga móður hans, en þau höfðu þá
eignast 7 börn; þrjá drengi og fjórar
stúlkur. Og hálfsystkini þeirra voru
tvö. Þegar Ángel Castro gekk að
eiga Linu Ruz Conzáles tók Fidel
upp nafn hans og varð Fidel Castro í
stað Fidel Ruz. Fidel og systkini
hans urðu framanaf skotspónar ann-
arra fyrir „föðurleysið,“ en þótt
bernskan yrði honum erfiðari fyrir
vikið, gekk hann í góða skóla, einka-
rekna kaþólska heimavistarskóla og
eftir það í Belén framhaldsskólanum
í Havana. Fidel Castro var meira
fyrir íþróttir en bóknám og í Belén
var hann valinn í hafnaboltalið skól-
ans, þar sem hann vakti þá athygli
að sögur fóru af tilboðum frá banda-
rískum hafnaboltaliðum.
1945 hóf Castro lögfræðinám við
Havanaháskóla og var fyrr en varði
kominn á kaf í stúdentapólitíkina
sem dró dám af hviklyndi stjórnmál-
anna á Kúbu. Þegar harðnaði á þeim
dalnum urðu miklir flokkadrættir
meðal stúdenta og var ekki óalgengt
að kæmi til átaka þeirra í millum,
þar sem vopn urðu uppi. Svo mikil
harka færðist í hópana að Castro tók
þátt í morðtilraun gegn einum and-
stæðingi sínum.
Slapp fyrir horn í Kólumbíu
1947 gekk Castro í flokk Eduardo
Chibás, sem bauð sig fram til forseta
gegn Ramón Grau San Martín sem
stóð höllum fæti sakir spillingar,
sem hafði vaðið uppi í forsetatíð
hans. Chibas og flokkur hans börð-
ust gegn spillingu, kröfðust þjóð-
félagsumbót og vildu losa Kúbu und-
an fjötrum bandarískra
stórfyrirtækja og úr herkví þeirra
og kúbönsku yfirstéttarinnar. Chi-
bás tapaði kosningunum, en Castro
leit á hann sem sinn pólitíska læri-
föður og barðist áfram fyrir málstað
hans.
Ársgamall í flokki Chibás fór
Castro til Bogotá í Kólumbíu á stúd-
entaþing rómönsku Ameríku, sem
lenti á sama tíma og þing Ameríku-
sambandsins; bandarískra samtaka
sem urðu undanfari Samtaka Amer-
íkuríkja. Til mikilla óeirða kom í
borginni og slapp Castro með naum-
indum í kúbanska sendiráðið sem
kom honum heim aftur.
Fjölskyldan
Heimkominn kvæntist Castro
Mirtu Díaz Balart, sem var af auð-
ugu fólki komin og fékk Castró þar
með nasasjón af lífi kúbönsku yfir-
stéttarinnar. Þau eignuðust soninn
Fidel Castro Díaz-Balart, sem m.a.
stýrði kjarnorkunefnd Kúbu. Castro
og Mirta skildu 1955 og hún giftist á
Spáni, en kom svo aftur til Kúbu og
býr hjá syni sínum. Castro eignaðist
utan hjónabands dóttur, Alinu Fern-
ández-Revuelta, sem flúði Kúbu
1993 og sótti um hæli í Bandaríkj-
unum, þar sem hún hefur opinber-
lega talað gegn pólitík föður síns.
Castro kvæntist aftur; Daliu Soto
del Valle og eignaðist með henni
fimm syni; Alexis, Alexander, Alej-
andro, Antonio og Angel.
Þegar lögin þraut
tók byltingin við
Castro lauk laganámi 1950 og hóf
störf á lögfræðiskrifstofu í Havana.
Þegar hér var komið sögu var
Castró þekktur þjóðernissinni og
ákafur andstæðingur þeirra ítaka
sem Bandaríkin höfðu í innanríkis-
málum Kúbu. Hann ákvað að hella
sér út í stjórnmálabaráttuna og bauð
sig fram til þingmennsku, en þá
rændi Fulgencio Batista, hershöfð-
ingi, völdum á Kúbu og ekkert varð
úr þingkosningum.
Batista naut stuðnings yfirstéttar-
innar og Bandaríkjamanna og
Castro kaus að fara þá leiðina að
honum að kæra hann fyrir brot á
stjórnarskránni. Stjórnarskrárdóm-
stóllinn vísaði kæru hans frá og neit-
aði honum um áheyrn og þar með
voru úrræði lögfræðingsins þrotin
og Castro komst á þá skoðun að ekk-
ert nema bylting gæti komið Batista
frá völdum.
Og þegar Castro var kominn á
þessa skoðun hikaði hann hvergi
heldur hætti að praktísera og stofn-
aði byltingarhreyfingu, sem Raúl
bróðir hans tók þátt í. Eftir liðs- og
vopnasöfnun stýrði Castro liði sínu
til árásar á Moncadabúðirnar, sem
voru stærstu búðir Batista utan höf-
uðstaðarins. Árásin misheppnaðst
en þrátt fyrir skipanir um að upp-
reisnarforingjar yrðu umsvifalaust
skotnir, slapp Castro við þau örlög,
en var dæmdur til 15 ára fangels-
isvistar. Það var við þessi réttarhöld
sem Castro flutti sína frægu ræðu;
„Sagan mun sýkna mig.“ Í fangels-
inu hélt Castro áfram neðanjarðar-
starfsemi gegn Batista og varð laus
eftir tveggja ára fangelsisvist er
Batista veitti almenna sakaruppgjöf
sem hann var þvingaður til af stuðn-
ingsmönnum sínum. Castro brá við
skjótt og hélt til Mexíkó.
Blóðug byrjun á byltingunni
Í Mexíkó hitti Castro fyrir marga
kúbanska útlaga og stofnaði 26. júl-
íhreyfinguna, sem sótti nafn til mis-
heppnuðu árásarinnar á Oncadabúð-
irnar. En Castro hitti fleiri en landa
Eitilharður einræðisherra
Fidel Castro lætur nú af forsetaembætti Kúbu eftir tæplega hálfrar aldar forsetaferil Afdrátt-
arlaus kommúnisti og þjóðarkúgari Afgerandi breytingar bíða þess að hann verði úr heimi hallur.
Hörkutól Fidel Castro Kúbuforseti hefur verið hörkutól á valdastóli, en verður nú að draga sig í hlé.
Í HNOTSKURN
»Fidel Castro fæddist 13.ágúst 1926 utan hjónabands
föður síns, en foreldrar hans
giftust þegar hann var 17 ára.
»Castro tók virkan þátt í stúd-entapólitíkinni og lærði lög-
fræði.
»Hann leiddi byltingu gegnFulgencio Batista og steypti
honum úr forsetastóli.
»8. janúar 1959 kom Castro tilHavana og 16. febrúar varð
hann forsætisráðherra Kúbu.
»1965 varð hann aðalritarikúbanska kommúnista-
flokksins.
»2. desember 1976 varð hannforseti Kúbu.
»31. júlí 2006 fól hann Raúlbróður sínum forsetaemb-
ættið.
SVIPMYND»
» Castro var fljótur aðsnúa við blaðinu og
beitti engum vett-
lingatökum, þegar hann
var búinn að skipa sér í
kommúnistaliðið.
Reuters
Eftir Orra Pál Ormarsson
orri@mbl.is
Norrænt víkingablóð vætl-ar enn í æðum manna íNorðvestur-Englandi efmarka má nýlega rann-
sókn. Vísindamenn hafa undanfarin
fimm ár rannsakað eitt hundrað
karlmenn sem búsettir eru á Mer-
seyside í Wirral og í Vestur-
Lancashire en þeir eiga það allir
sameiginlegt að ættarnöfn þeirra
hafa verið við lýði frá miðöldum.
Niðurstaða rannsóknarinnar er sú
að helmingur þessara manna eru af
norrænum uppruna. Jafnhátt hlut-
fall reyndist vera af orkneysku
bergi brotið.
Rannsóknin er samstarfsverkefni
háskólanna í Nottingham, Leicest-
er og College-háskólans í Lund-
únum og fyrir fjórtán manna teymi
fóru prófessorarnir Stephen Har-
ding, Judith Jesch og Mark Jo-
bling. Verkefnið naut veglegra
styrkja. Frá rannsókninni er greint
í febrúarhefti hins virta vísinda-
tímarits Molecular Biology and
Evolution.
Litningar gott leiðarmerki
Stephen Harding, sem er pró-
fessor í lífefnafræði við Nott-
ingham-háskóla, segir DNA Y-
litninganna í körlum ganga mann
fram af manni án þess að taka
miklum breytingum og fyrir vikið
sé tiltölulega auðvelt að rekja upp-
runa manna. Y-litningarnir eru
með öðrum orðum leiðarmerki
karlmanna – staðfesta hvaðan þeir
eru komnir í karllegg.
„Þessi aðferð skilar mestum ár-
angri þegar íbúar á ákveðnu svæði
eru bornir saman í stað ein-
staklinga. Sú hefð að ættarnöfn
fylgja karlmönnum kom líka í góð-
ar þarfir,“ segir Harding en til
þátttöku í rannsókninni völdust
sjálfboðaliðar sem bera ættarnöfn
sem haldið hafa velli á svæðinu frá
því fyrir aldamótin 1600. „Með
þessum hætti sneyddum við hjá
miklum búferlaflutningum sem átt
hafa sér stað allar götur frá iðn-
byltingunni á svæðum eins og Mer-
seyside,“ segir Harding.
Hann gerir ráð fyrir að ýmsir
muni fagna þessum tíðindum uppi á
Íslandi, ekki síst stuðningsmenn
hins fornfræga knattspyrnufélags
Liverpool. „Ég veit að þeir eru fjöl-
margir á Íslandi.“
Þess ber að geta að hvorki Ste-
ven Gerrard né Jamie Carragher
Reuters
Víkingur? Ætli Steven Gerrard sé afkomandi Ingimundar norska?
» Þessi aðferð skilarmestum árangri þeg-
ar íbúar á ákveðnu
svæði eru bornir saman
í stað einstaklinga.
UPPRUNI»
Með víkinga-
blóð í æðum
Helmingur karla í Wirral og í Vestur-
Lancashire afkomendur víkinganna