Morgunblaðið - 24.02.2008, Blaðsíða 42
42 SUNNUDAGUR 24. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Ólafur B. Blöndal, löggiltur fasteignasali.
Borgartúni 22 • 105 Reykjavík • Fax 5 900 808
fasteign@fasteign.is • www.fasteign.is
5 900 800
Mikið endurnýjuð 114 fm, 4ra herb. endaíbúð á 8. hæð (efstu) í vel við-
höldnu fjölbýlishúsi. Íbúðin er öll parketlögð. Glæsilegt útsýni. Nánari lýs-
ing: Forstofa, sjónvarpsherbergi, eldhús, stór og björt stofa. Útsýnissvalir
frá suðvestri til norðurs. Tvö svefnherb. og hjónaherb. með góðum
skápum. Baðherb. með baðkari/sturtu. Sameiginlegt þvottahús og
sérgeymsla. Verð 26,5 m.
OPIÐ HÚS Í DAG KL. 15:30-16:30
ENGIHJALLI 11, 8F – LAUS STRAX
M
b
l 9
74
57
7
OPIÐ HÚS Í DAG KL.15-16
BERGSTAÐASTRÆTI 48. EFSTA HÆÐ
gengið inn frá Baldursgötu
www.lundur.is • Sími 533 1616 • lundur@lundur.is
OPIÐ FRÁ 8.30-17.00 • ÞJÓNUSTUSÍMI EFIR LOKUN 691 8616 • Fax 533 1617
Karl Gunnarsson, löggiltur fasteignasali.
Suðurlandsbraut 10, 2 hæð 108 Reykjavík (f/ofan Blómastofu Friðfinns)
FRÁBÆRT ÚTSÝNI NÁLÆGT MIÐBÆ.
Björt og rúmgóð 5 herbergja efsta hæð í Þingholtum. Ágætar stofur og út-
gengi úr þeim er á 36 fm þaksvalir að vestanverðu með möguleika á sól-
skála-yfirbyggingu að hluta. Útsýni af svölum og úr stofum, og reyndar úr
öllum vistarverum, er frábært. Nýtt tvöfalt gler er í flestum gluggum og raf-
magn var endurnýjað fyrir 11 árum.
Geymsluloft er yfir nær allri íbúðinni. Í
kjallara er sameiginlegt þvottahús,
einnig 12 fm vinnuherbergi með stór-
um glugga að húsagarðinum og fullri
lofthæð. Þar innaf er um 18 fm
geymsla og við hliðina lítil geymsla
undir stiga. Sameign er snyrtileg (nýtt
rafmagn og nýmáluð), þak endurnýj-
að fyrir 3 árum.
Sundagarðar 2 – Til leigu
Til leigu 2. og 3. hæðin í þessu glæsilega vel innréttaða húsi.
Samtals um 1.000 fermetrar. Leigutími frá 1. apríl 2008.
Fasteignafélagið Kirkjuhvoll
Upplýsingar veitir Karl í síma 892 0160 - karl@kirkjuhvoll.com
Lögg. fasteignasali
Hrafnhildur Bridde
Agnar Agnarsson
Sigurberg Guðjónsson hdl.
Hrafnhildur Bridde,
lögg.fasteignasali
821 4400
534 2000
www.storhus.is
Skógarhlíð 22 • 105 Reykjavík • Sími 534 2000 • Fax 534 2001 • www.storhus.is
OPIÐ HÚS Í DAG Á MILLI KL. 16:30 - 17:00.
BERGSTAÐASTRÆTI 43, 101 RVK. RÚMGÓÐ OG VEL
SKIPULÖGÐ EFSTA HÆÐ Í TVÍBÝLISHÚSI ÁSAMT
BÍLSKÚR. SVALIR OG HÁTT TIL LOFTS.
Tvö svefnherbergi. Rúmgóð stofa með góðum gluggum og er
eldhúsið opið inn í stofuna. Suð-vestur svalir með útsýni.
Baðherbergi m/baðkari. Hátt til lofts. Íbúðin og geymslan eru
um 89,3 fm og bílskúrinn 22,9 fm.
VERÐ 36,9 MILLJ. LAUS FLJÓTLEGA !!
ÞAÐ var skrýtinn leiðari sem
Fréttablaðið birti mánudaginn 18.
febrúar sl. og lítt virðist umræðan
um flugvallarmálið ætla að þrosk-
ast þar á bæ. Svo er
að skilja á aðstoð-
arritstjóranum að þó
það sé „einfaldlega
ekki hægt að ýta
þessari ákvörðun á
undan sér öllu leng-
ur“ þar sem átt er við
framtíð flugvallarins,
gangi ekki að sú
ákvörðun sé tekin
meðan sitjandi borg-
arstjóri sé hliðhollur
vellinum! Ennfremur
má skilja á lestri leið-
arans að þessi borg-
arstjóri sé í einhverjum einleik í
þessu máli, sbr: „flugvallarmálið
verði í pattstöðu næstu tvö árin,
nánast í gíslingu eins manns sem
er borgarstjóri í eitt ár“. Skammt
hrekkur nú minni leiðarahöfundar,
því það er ekki lengra síðan en
hinn 25. janúar sl. sem lesa mátti
á forsíðu sama blaðs þessa fyr-
irsögn (reyndar í mýflugumynd):
„Skoðanakönnun Fréttablaðsins:
Vilja flugvöll í Vatnsmýrinni“,
hvar á eftir fylgdi sú frétt að:
„Tæp 60 prósent borgarbúa telja
að Reykjavíkurflugvöllur eigi að
vera áfram í Vatnsmýrinni“. Má
því ekki meta það svo að borg-
arstjórinn, Ólafur F. Magnússon,
sé hér samstiga meirihluta borg-
arbúa? Og hvað er þá rangt við
það? Eða metur leiðarahöfundur
málið þannig að meiru skipti af-
staða þeirra sem þátt tóku í sam-
keppni um skipulag Vatnsmýrar?
Í leiðaranum er jafnframt gengið
svo langt að ætla meirihluta „inn-
an meirihlutans“ ásamt með jafn-
vel öllum minnihluta borg-
arstjórnar að ganga gegn þessu
meirihlutaáliti borgarbúa, sem
blaðið leiddi í ljós um daginn. Þó
hef ég lítið sem ekkert séð eða
heyrt um afstöðu þessa fólks síðan
niðurstaða þessarar skoðanakönn-
unar var birt. Og eigum við ekki
alltént að gefa borgarfulltrúunum
færi á að meta stöðuna upp á nýtt
í ljósi þess sem þar
kom fram? Skrýtið
sem það er, þá bar
eitthvað lítið á því að
aðilar eins og borg-
arfulltrúar væru innt-
ir álits á þessari nið-
urstöðu
könnunarinnar, sem
við lesendur hljótum
þó að eiga heimtingu
á. Loks er í leiðara
þessum vakinn upp
illkynjaður draugur,
sem blessunarlega
hefur verið til friðs
undanfarið, sem er sú hugmynd að
flytja innanlandsflugið til Kefla-
víkur, og tekið fram að möguleiki
á styttingu leiðarinnar þangað um
Álftanes „virðist að minnsta kosti
liggja ákaflega beint við“. Halda
mætti að ekkert hafi verið fylgst
með umræðunni um þetta atriði á
ritstjórn Fréttablaðsins, svo hér
er nauðsynlegt að tyggja á þessu
eina ferðina enn. Meðal þess sem
fram fer um Reykjavíkurflugvöll
er sjúkraflug, og svo vill einnig til
að öll okkar best búnu sjúkrahús,
hvað varðar búnað og sér-
fræðiþekkingu, eru umhverfis
Vatnsmýrina – í Fossvogi og á
Hringbraut. Ríflega helmingur
þeirra útkalla í sjúkraflugi, þar
sem flytja þarf sjúkling til
Reykjavíkur eru skilgreind í
fyrsta eða öðrum forgangi m.v.
fjögur útkallsstig. Það þýðir að
þau tilfelli eru metin sem lífsógn
eða möguleg lífsógn og þar skiptir
hver mínúta máli, enda mikil
áhersla lögð á stuttan viðbragðs-
tíma og að notuð sé hraðskreið
flugvél. Nú skora ég á ritstjórn
Fréttablaðsins að svara því hvern-
ig koma á til móts við þá fjöl-
mörgu einstaklinga sem nota
þurfa þjónustu sjúkraflugsins, oft
í kappi við tímann, til að lífslíkur
eða batahorfur þeirra skerðist
ekki vegna lengingar á flutnings-
tíma þeirra, fari svo að þessi teng-
ing okkar við bráðalæknisþjónustu
í borginni hverfi úr Vatnsmýrinni.
Eða er litið svo á að um sé að
ræða ásættanlegan fórnarkostnað?
Gjarnan mættu svo þeir borg-
arfulltrúar sem hlynntir hafa verið
færslu vallarins svara þessu líka.
Fáein sannleikskorn dúkkuðu upp
í téðum leiðara og langar mig að
vekja athygli á tveimur þeirra.
Þetta er annars vegar sú fullyrð-
ing að spurningin um framtíð flug-
vallarins „varðar ekki síður fram-
tíð þeirra sem búa fjærst
höfuðborginni og reiða sig á flugið
í ferðum sínum til og frá Reykja-
vík“. Hér er því vert að spyrja
hvers vegna aðeins borgarbúar
eru spurðir álits í þessu máli, þ.e.
hvers vegna ekki við öll hin, sem
eigum líka þennan flugvöll? Hins
vegar segir svo um það þegar
verðlaunatillögur um skipulag
Vatnsmýrarinnar voru kynntar, og
sem fara kunna fyrir lítið verði
flugvöllurinn þar áfram: „Og þá
var nú flugeldasýningin í vikunni
sem leið til lítils“. Mikið rétt!
Ranghugmyndir Frétta-
blaðsins um Vatnsmýrina
Þorkell Á. Jóhannsson skrifar
um leiðara Fréttablaðsins um
Reykjavíkurflugvöll
»… hvers vegna að-
eins borgarbúar eru
spurðir álits í þessu
máli, þ.e. hvers vegna
ekki við öll hin, sem eig-
um líka þennan flug-
völl?
Þorkell Á. Jóhannsson
Höfundur er yfirflugstjóri Mýflugs og
starfar við sjúkraflug.