Morgunblaðið - 24.02.2008, Blaðsíða 18
18 SUNNUDAGUR 24. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Orka | Evrópa verður stöðugt háðari Rússum um orku og innan ESB fara áhyggjur vaxandi af að öryggi sam-
bandsins sé ógnað. Svipmynd | Fidel Castro Kúbuforseta fannst einna sárast þegar hann lét af embætti að hafa
ekki setið af sér tíunda Bandaríkjaforsetann. Uppruni | Norrænt víkingablóð vætlar enn í æðum manna í Englandi.
VIKUSPEGILL»
Eftir Robert Amsterdam
Hugtakið „orkuöryggi“ íEvrópu hefur verið af-bakað til að styrkja út-flytjendur og veikja inn-
flytjendur. Það gefur til kynna
afgerandi samdrátt í samkeppni,
vaxandi pólitískan veikleika og rétt-
arríki í vanda. Sú staðreynd að lík-
legasti arftaki Vladimírs Pútíns for-
seta, Dmítrí Medvedev, er
stjórnarformaður Gazprom skilur
lítið svigrúm eftir til efasemda um
að Kremlverjar eru staðráðnir í að
halda orkugeiranum í járngreipum
sínum. Ójafnvæginu í samskiptum
Evrópusambandsins og Rússa í
orkumálum verður hins vegar að
linna.
Áhyggjur innan ESB af öryggi í
orkumálum hafa aldrei verið meiri
og ástæðan er hvað sambandið er
háð Rússlandi. Rússnesk yfirvöld
hafa þjóðnýtt olíufyrirtækið Yukos
og flæmt útlendinga burt úr orku-
vinnslugeiranum í Rússlandi. Það
er því skiljanlegt að margir í Evr-
ópu telji lítið að marka loforð úr
Kreml.
Evrópusambandið ætti hins veg-
ar fremur að sækjast eftir dýpri
samskiptum og gagnkvæmni en að
snúa baki við Rússum. Það ætti að
auðvelda frekari innlimun Gazprom
í Evrópumarkaðinn með því að
draga úr markaðshöftum og auð-
velda aðlögun í viðskiptum á þeim
enda olíuferlisins, sem snýr að neyt-
endum. Um leið ætti ESB að ýta á
endurskipulagningu Gazprom og að
Rússland verði opnað fyrir evrópsk-
um fyrirtækjum. Andstaða Rússa
við það er ávísun á óöryggi Evrópu í
orkumálum.
Tudda á erlendum fjárfestum
Stjórn Pútíns hefur getið sér orð
fyrir að sveigja reglurnar og tudda
á erlendum fjárfestum með fulltingi
saksóknara, skattyfirvalda, eftir-
litsembætta og dómstóla. Samtímis
hefur Gazprom þróast í ráðandi
markaðsafl á gasi í Evróopu og með
atferli fyrirtækisins eru tilraunir
ESB til aukins samstarfs við Rússa
hafðar að háði og spotti.
Þríþættar aðferðir Gazprom
Aðferðir Gazprom eru þríþættar:
samsömun með því að rækta sam-
skiptin við tiltekin lönd, stjórnmála-
leiðtoga og fyrirtæki í því skyni að
fá hjálp í hagsmunagæslunni; fyr-
irbyggjandi aðgerðir þar sem valdið
sem fylgir því að hafa aðgang að
auðlindinni í jörðu og rússneska ut-
anríkisráðuneytið eru notuð til að
hafa áhrif neðar í framleiðsluferlinu
og sölsa undir sig eignir; og að reka
fleyg á milli ríkja Evrópusam-
bandsins með tvíhliða samningum.
Samsömunin hefur einkum farið
fram í Þýskalandi. Þar hefur sam-
starf við fyrirtæki og banka hjálpað
til við að sveigja stjórnvöld að rúss-
neskum markmiðum. Viðamiklum
þrýstingi er nú beitt, bæði beint og
gegnum milliliði, til að telja evr-
ópskar eftirlitsstofnanir á að fallast
á orkusamninga til langs tíma þótt
þeir drepi niður samkeppni.
Fyrirbyggjandi aðgerðir Gazp-
rom hafa falist í viðamiklum upp-
kaupum. Gazprom hefur flætt yfir
markaðinn í Tyrklandi, neitað að af-
henda gas í Úkraínu, hótað að gera
slíkt hið sama við Hvíta-Rússland
og boðið viljugum samstarfsaðiljum
á borð við Ítalíu forréttindameð-
ferð.
Ráðamenn í Kreml hafa komið í
veg fyrir að Íranar gætu komið sér
upp leiðslum í Kákasus til að geta
keppt við þá í gasinnflutningi til
Evrópu. Til þess að stöðva áform
Írana keyptu Rússar í raun orku-
geirann í Armeníu eins og hann
leggur sig. Þá þjónar stuðningur
Rússa við kjarnorkuáætlun Írana
þeim tilgangi að tryggja áframhald-
andi einangrun Írana og koma í veg
fyrir að þeir fái vestrænt fé, sem
þeir þurfa á að halda til að verða
keppinautar þeirra í útflutningi á
gasi.
Hlaðið er undir yfirburði Gazp-
rom með fulltingi ráðamanna, sem
hafa hjálpað þeim að ná áhrifum á
mörkuðum á borð við Spán og Ítal-
íu. Þá hafa Rússar gert gassamn-
inga við keppinauta á borð við Alsír
með því að bjóða vildarkjör á vopn-
um og hagstæða meðferð skulda.
Í öðrum tilfellum hefur refsi-
vöndurinn verið dreginn fram.
Dæmi um það var þegar Kreml lok-
aði fyrir olíusendingar til Litháens
eftir að Litháar seldu pólsku fyr-
irtæki olíuhreinsunarstöðina Ma-
zeikiu Nafta eða beittu Úkraínu
sömu þvingunum eftir að kjósendur
þar í landi kusu „vitlausan“ flokk.
Besta dæmið um hvernig þeir
deila og drottna er Nord Stream-
leiðslan, sem nýtur velþóknunar í
Þýskalandi, en vekur reiði í Pól-
landi og Eystrasaltslöndunum.
Þessi neðansjávarleiðsla verður
þrefalt dýrari en hefði ný leiðsla
verið lögð eftir landleiðunum, sem
fyrir eru. Hún grefur undan orku-
öryggi grannríkja Þýskalands í
austri og ógnar viðkvæmu vistkerfi
Eystrasaltsins. En með því að flytja
gas beint til Þýskalands geta Rúss-
ar skrúfað fyrir gasið til Úkraínu,
Póllands og Eystrasaltsríkjanna án
þess að það hafi bein áhrif á útflutn-
ing til Vestur-Evrópu – og hegðun
Rússa undanfarið bendir til þess að
hér sé raunveruleg ógn á ferð.
Nær Gazprom að uppfylla
þarfir viðskiptavinanna?
En Gazprom hefur áhyggjur af
getu sinni til að sinna þörfum við-
skiptavinanna. Það sýnir ákvörðun
þeirra um að beina gasinu frá
Shtokman svæðinu til Evrópu frem-
ur en að nota það til að vinna nýja
markaði í Norður-Ameríku. Svo
lengi sem Gazprom er ógagnsætt
fyrirtæki munu ríki Evrópu ekki
geta áttað sig á því hvort þeirra
stærsti seljandi leggur nógu mikla
áherslu á að tryggja orkubirgðir
fyrir framtíðina. Pólitísk orrusta
Kremlverja um orkugeirann í Rúss-
landi hefur haft í för með sér að
verulega hefur dregið úr vextinum
á framleiðslu á olíu og gasi.
Þetta er vandamál fyrir Evrópu.
Gazprom getur ekki verið sam-
starfsaðili Evrópu ef fyrirtækið
fjárfestir ekki í eigin innviðum, leik-
ur engu að síður lykilhlutverk í að
berstrípa rússnesk einkafyrirtæki,
notar fjórtán milljarða dollara til
fjárfestinga, sem eru ótengdar
kjarnastarfseminni, til dæmis í fjöl-
miðlafyrirtækjum, og er stýrt úr
skrifstofu forsetans. Ljósin mega
ekki slokkna í Evrópu. Brussel
verður að krefjast gagnsæis, sam-
fellu og virðingar fyrir lögunum af
Moskvu og markmiðið á að vera
byltingarkenndur samruni evr-
ópskra og rússneskra orkumark-
aða.
Um leið getur Evrópa færst nær
því að njóta öryggis í orkumálum
með því að leita víðar fanga í orku-
kaupum, fjárfesta verulega í gasi og
styðja við Nabucco-leiðsluna [sem á
að liggja 3.300 km leið frá Azerbaíd-
sjan og öðrum löndum við Kaspía-
hafið til Evrópu] og tengingu milli
landanna við Miðjarðarhafið.
Sá aðgangur, sem Gazprom vill fá
að viðskiptavinum í Evrópu, er
tromp ESB. Sambandið á að segja
við Rússa að það sé skilyrði fyrir
slíkum aðgangi að orkugeirinn í
Rússlandi verði opnaður með sama
hætti. Niðurstaðan yrði sú að Rúss-
um yrði fagnað á evrópskum orku-
markaði og þeir myndu njóta bæði
trausts og virðingar meðal alþjóð-
legra viðskiptavina sinna.
Gazpromvæðing Evrópu
Umsvif Gazprom aukast jafn og þétt og ógna öryggi Evrópu í orkumálum Rússar krefjast óhefts
aðgangs að evrópskum mörkuðum, en reyna að hindra erlenda fjárfesta við hvert fótmál heima fyrir
Reuters
Gazpútín Alexei Miller, forstjóri Gazprom, sýnir Vladimír Pútín, forseta
Rússlands, nýtt skíðasvæði í Krasnaja Poljana í Sochi við Svartahafið þar
sem vetrarólympíuleikarnir verða haldnir árið 2014. Gazprom er vogst-
angaraflið á bak við áhrif Rússa um þessar mundir.
RÚSSLAND» Í HNOTSKURN»Rússneska ríkisfyrirtækiðGazprom gerði á þriðjudag
samning við Írana um að bora
eftir og framleiða olíu og gas í
Íran. Rússar eru þegar aðilar
að kjarnorkuáætlun Írana.
» Í janúar gerði Gazpromsamning um að kaupa
serbneska einokunarorkufyr-
irækið NIS. Kaupin fela í sér
rétt Rússa til að leggja South
Stream-gasleiðsluna að hluta
um Serbíu.
»Gazprom samdi einnig viðBúlgara í janúar um að
leggja sömu leiðslu um Búlg-
aríu.
»Þessir samningar geraEvrópusambandinu erf-
iðara fyrir að öðlast sjálfstæði
frá Rússum í orkumálum.
»Gazprom lýsti í upphafiþessa árs yfir áformum
sínum um að fjárfesta í
olíuframleiðslu í Nígeríu. Þar
eru aðrir olíurisar fyrir og
Gazprom gæti því átt óhægt
um vik, en metnaðurinn leynir
sér ekki.
Höfundur er stofnandi lögmannstof-
unnar Amsterdam og Peroff og al-
þjóðlegur verjandi Mihaíls B. Kho-
dorkovskís. Blogg hans er að finna á
vefsíðunni www.robertamsterdam.co.
©Project Syndicate/PASOS, 2008.
www.project-syndicate.org
www.pasos.org
» Mér er til efs að það hafiverið samið með þessu yfir-
bragði í einhverja áratugi. Það
er æði-sérstakt.
Grétar Þorsteinsson , forseti ASÍ, um ný-
gerða kjarasamninga.
» Það sem er að gerast núna ávinnumarkaðnum er sér-
stakt og óvenjulegt, en jafn-
framt mjög merkilegt.
Geir H. Haarde , forsætisráðherra, um
samningana.
» Athygli unga fólksins endistekki lengur en 4 til 5 mínútur
sem er um það bil lengd á einu
myndskeiði á YouTube.
Guðbjörg Hildur Kolbeins , fjölmiðlafræð-
ingur, fræðimaður og bloggari, hefur
áhyggjur af athyglisbresti ungu kynslóð-
arinnar.
» Við teljum að menn þurfivirkilega að taka til, sér-
staklega á fjármálamarkaðnum,
á næstu misserum.
Jón Ásgeir Jóhannesson , starfandi sjórn-
arformaður Baugs og stjórnarformaður
FL Group, í viðtali Markaðarins á Stöð 2.
» Er ekki oft sagt að fótboltisé fíkn.
Arnar Gunnlaugsson , sem ásamt Bjarka,
tvíburabróður sínum, hefur handsalað
samning við bikarmeistara FH í knatt-
spyrnu um að leika með liðinu á komandi
leiktíð.
» Ég tel að tímabil breytingasé hafið á Kúbu og þetta ætti
að vera upphafið að lýðræð-
islegum umskiptum.
George W. Bush , forseti Bandaríkjanna,
eftir að Fidel Castro tilkynnti að vegna
veikinda hygðist hann ekki taka við völd-
unum að nýju á Kúbu.
» Þetta eru bara alveg skelfi-leg tíðindi og hreint reið-
arslag fyrir sjómannastéttina.
Sævar Gunnarsson , formaður Sjómanna-
sambands Íslands, eftir að sjávarútvegs-
ráðherra tók þá ákvörðun að stöðva loðnu-
veiðar að fenginni tillögu
Hafrannsóknastofnunarinnar.
» Það hefur sýnt sig að hún[loðnan] er ólíkindatól og
kemur stundum fram þótt seint
sé.
Helga Jónsdóttir , bæjarstjóri í Fjarða-
byggð, af sama tilefni.
» Tilfinningin er dálítið þannigað það sé hreinlega verið að
slá mann af.
Einar Heiðar Birgisson , sem var verk-
stjóri í frystihúsi áður en hann veiktist,
um þá ákvörðun að loka Bergiðjunni við
Kleppsspítala í sparnaðaraðgerðum á
geðsviði Landspítalans, en þar hefur hann
unnið í tvö ár og segir starfið hafa breytt
öllu fyrir sig.
» Ég vil taka það fram að þaðer ekki hægt, um svona af-
markað atriði, að hér fari fram
einhverjar kappræður þar sem
skiptast á svör og andsvör.
Jakob Möller hæstaréttarlögmaður lét
þessi orð falla á aðalfundi Glitnis á mið-
vikudag þegar Vilhjálmur Bjarnason bað
um orðið til þess að tjá sig um svör stjórn-
arformanns.
» . . . [Gísli Marteinn Bald-ursson] liggur í pólitísku
blóði sínu fyrir eigin tilverknað
og á sér varla afturkvæmt nema
kraftaverk gerist. Hann klúðr-
aði fyrsta sandkassaleiknum
sínum.
Af bloggsíðu Össurar Skarphéðinssonar
iðnaðarráðherra.
Ummæli vikunnar