Morgunblaðið - 24.02.2008, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 24.02.2008, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. FEBRÚAR 2008 25 um fjóra menn kjörna sem var frá- bær árangur.“ Höskuldur var áfram tengdur starfinu fyrir norðan á kjörtímabilinu og fylgdist vel með. Þegar líða fór að kosningunum 2007 fór grasrótin á Akureyri síðan að toga í hann. „Ak- ureyringa vantaði frambjóðanda og málsvara en það var langt síðan flokkurinn hafði átt þingmann í bæn- um. Við Eyja fórum vandlega yfir málið. Mér fannst ég hafa sitthvað til málanna að leggja og langaði að gera þetta. Ég taldi mig líka eiga ágæta möguleika. Ég þekkti marga frá því í kosningunum 2003 og átti góða vini víðsvegar um kjördæmið. Auðvitað gerðum við okkur grein fyrir því að þetta yrði krefjandi og tímafrekt en Eyja studdi mig strax heilshugar. Ég ákvað því að láta slag standa og bauð mig fram í þriðja sætið í prófkjöri flokksins í Norðausturkjördæmi. Það reyndist á endanum vera þingsæti. Það var erfitt að kveðja gamla vinnu- staðinn á Mörkinni en þessu pólitíska brölti mínu var sýndur mikill skiln- ingur.“ Það dundi margt á okkur Þegar kosningabaráttan hófst fyrir alvöru í febrúar í fyrra kveðst Hösk- uldur hafa upplifað mikið and- streymi. „Langt samstarf við Sjálf- stæðisflokkinn í ríkisstjórn reyndist flokknum erfitt og það var augljós taktík hjá stjórnarandstöðunni að beina spjótum sínum alfarið að Framsóknarflokknum í kosningabar- áttunni. Það dundi margt á okkur. Smám saman breyttist andrúms- loftið, einkum fyrir norðan og við fundum að við áttum hljómgrunn og að Framsókn var farin að njóta sann- mælis. Baráttan gekk því vel þegar á leið og niðurstaða flokksins í kjör- dæminu var góð. Framsóknar- flokkurinn tvöfaldaði til að mynda fylgi sitt á Akureyri frá sveitar- stjórnarkonsingunum árið áður.“ Kosninganóttin var dramatísk. Höskuldur var meira og minna inni alla nóttina en í miðju sjónvarps- viðtali datt hann skyndilega út. „Það var óþægilegt en ég var samt alltaf sannfærður um að ég kæmist inn. Jón Kristjánsson, fyrrverandi heil- brigðisráðherra, hafði keyrt með mig um Austurland skömmu áður og kvatt mig með þeim orðum að næst þegar við hittumst yrði ég orðinn þingmaður. Það voru orð að sönnu.“ Kosningarnar voru persónulegur sigur fyrir Höskuld en Framsókn- arflokkurinn hafði komið illa út á landsvísu. Þingmannafjöldinn var í sögulegu lágmarki, aðeins sjö, og flokkurinn í sárum. Skynsamleg ákvörðun „Fyrstu dagarnir í þingflokknum voru erfiðir,“ viðurkennir Höskuldur. „Stóra spurningin var hvort við ætt- um að halda áfram í ríkisstjórn. Rík- issjóður hafði aldrei staðið betur og margt gott áunnist í velferðarmálum. Framsóknarflokkurinn átti drjúgan þátt í þeim árangri og út frá því fannst okkur sanngjarnt að við héld- um áfram. En svo einfalt var þetta ekki. Okkur var ljóst fyrir kosning- arnar að Sjálfstæðisflokkurinn var farinn að líta Samfylkinguna hýru auga og í raun tel ég að búið hafi ver- ið að mynda nýja ríkisstjórn fyrir kosningar. Auðvitað er maður í póli- tík til að hafa áhrif en ákvörðunin um að draga sig í hlé, sem þingflokkurinn tók á endanum, var eigi að síður yf- irveguð og skynsamleg við þessar að- stæður. Hún kemur til með að verða flokknum til hagsbóta til lengri tíma litið.“ Höskuldur segir sínar pólitísku hugsjónir byggja á gömlum og góð- um gildum Framsóknarflokksins. „Við framsóknarmenn leggjum áherslu á öflugt velferðar- og skóla- kerfi sem allir hafa aðgang að óháð efnahag eða búsetu og erum alfarið á móti einkavæðingu í heilbrigðiskerf- inu. Til að standa straum af þessu kerfi verðum við hins vegar að hafa öflugt atvinnulíf með eins litlum af- skiptum ríkisvaldsins og unnt er án þess þó að það stuðli að einokun og hringamyndunum. Þetta er í mínum huga heilbrigð miðjustefna þar sem fjölskyldan er í fyrirrúmi.“ Hann er þeirrar skoðunar að best sé að byggð sé um allt land með fjór- um stórum byggðarkjörnum, hverj- um í sínum landsfjórðungi. „Svo að þetta megi verða þarf að efla sam- göngur og fjarskipti, sérstaklega gsm-samband og nettengingar, og tryggja að byggðarlögin hafi styrk hvert af öðru. Mig dreymir um að Norðurland verði allt eitt atvinnu- svæði í framtíðinni en það hefur að vissu leyti tekist nú þegar á Austur- landi. Vantar bara herslumuninn. Það er mín tilfinning að hrepparígur sé á undanhaldi, nú vill fólk taka höndum saman og efla sína byggð.“ Norðausturkjördæmi er stórt í sniðum og segir Höskuldur hagsmuni fólks marga og misjafna. „Þetta starf gerir manni ekki bara kleift að kynn- ast fjöldanum öllum af fólki heldur líka landinu sínu niður í kjölinn. Það eru forréttindi.“ Enginn veit sína ævina... Það er ekki alltaf tekið út með sældinni að vera stjórnmálamaður og stutt er síðan jafnaldri Höskuldar og flokksbróðir, Björn Ingi Hrafnsson, sagði af sér trúnaðarstörfum fyrir flokkinn í borgarstjórn í kjölfar heitr- ar umræðu um verk hans og persónu. Kvaðst Björn Ingi ekki síst gera það til að vernda fjölskyldu sína. Höskuldur, sem á unga fjölskyldu eins og Björn Ingi, vonar að hann lendi aldrei í slíkum darraðardansi en „enginn veit sína pólitísku ævina fyrr en öll er“. „Partur af skýringunni á því að Björn Ingi sagði af sér er að and- stæðingar Framsóknarflokksins vilja helst halda uppi umræðu um eitthvað allt annað en málefni og árangur flokksins. Í þessu ljósi má segja að þeir hafi unnið þá umræðu,“ segir Höskuldur en viðurkennir þó að inn- anflokksátök hafi vegið þungt líka. „Það sem er erfiðast í pólitík er þegar samherjar ráðast á mann og líklega var það kornið sem fyllti mælinn hjá Birni Inga. Þetta var mjög dapurleg atburðarás. Ég held hins vegar að þetta hafi verið einangrað tilvik og við getum ekki átt von á fleiri svona uppákomum í Framsóknarflokkn- um.“ Höskuldur segir alltaf slæmt að missa gott fólk úr flokknum. „Von- andi snýr það fólk aftur seinna. Ég hef raunar enga trú á öðru. En maður kemur sem betur fer í manns stað og fjöldi öflugs fólks hefur komið í stað- inn fyrir þá sem hafa horfið af sjón- arsviðinu.“ Framsókn mun auka fylgi sitt Síðustu Alþingiskosningar voru á heildina litið vonbrigði og ekki hefur blásið byrlega fyrir Framsóknar- flokknum í skoðanakönnunum síðan. Höskuldur er samt sem áður sann- færður um að flokkurinn muni ná sér á strik. „Ég er bjartsýnn á framtíðina vegna þess að grunnurinn er góður. Rætur Framsóknarflokksins eru sterkar og flokkurinn hefur söguna og hefðina með sér. Við eigum líka gott fólk úti um allt land sem er tilbú- ið að leggja á sig mikla vinnu í þágu flokksins. Við þingmennirnir höfum verið á fundaherferð um landið að undanförnu og þar hef ég skynjað mjög mikla jákvæðni í okkar garð. Við höfum fengið hvatningu, hrós og hæfilegar skammir. Góðir hlutir ger- ast hægt og ég er sannfærður um að við munum auka fylgi okkar jafnt og þétt þegar líður á kjörtímabilið og ná góðum árangri í næstu kosningum.“ Fermingin Höskuldur ásamt föður sínum, séra Þórhalli heitnum Höskulds- syni, á fermingardaginn í Akureyrarkirkju. Þórhallur féll frá árið 1995. orri@mbl.is » Það þarf að styrkja stoðir þingsins og persónulega myndi ég vilja sjá mun fleiri frum- vörp frá þingmönnum. VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | S. 510 1700 | F. 510 1717 | WWW.VR.IS Virðing Réttlæti Á þriðjudaginn, 26. febrúar, verður nýgerður kjarasamningur VR og Samtaka atvinnulífsins kynntur. Fundurinn verður haldinn á Hilton Reykjavík Nordica hótel og hefst kl. 19:30. Einnig bryddum við upp á þeirri nýjung að sýna fundinn beint á netinu, á www.vr.is. Við hvetjum alla félagsmenn til að mæta og kynna sér samninginn eða smella sér á www.vr.is og fylgjast með fundinum í beinni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.