Morgunblaðið - 24.02.2008, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 24.02.2008, Blaðsíða 22
H ann er nýkominn heim þegar mig ber að garði. Hafði með skömmum fyrirvara þurft að hlaupa í skarðið fyrir Valgerði Sverrisdóttur á fundi þar sem hún var veðurteppt fyrir norðan. Það er í mörg horn að líta hjá þingmönnum þessarar þjóðar og Höskuldur Þór Þórhallsson, 34 ára gamall lögmaður frá Akureyri, sem tók sæti á Alþingi fyrir Fram- sóknarflokkinn í Norðaust- urkjördæmi síðastliðið vor, er þar engin undantekning. Hann biður um hálfa sekúndu til að losa um bindið. Síðan er hann klár í slaginn. „Það er gott að vera þingmaður. Ég ber virðingu fyrir starfinu og er heppinn að fá tækifæri til að takast á við það,“ svarar Höskuldur þegar spurt er hvernig hann kunni við sig í hinu nýja starfi. „Það má samt breyta ýmsu á Al- þingi. Það er að mínu mati mikilvægt að styrkja löggjafarvaldið gagnvart framkvæmdavaldinu. Það þarf að styrkja stoðir þingsins og persónu- lega myndi ég vilja sjá mun fleiri frumvörp frá þingmönnum. Ráð- herrafrumvörpin eru fyrirferð- armikil og oft og tíðum keyrð í gegn- um þingið án mikillar umræðu.“ Við sitjum við eldhúsborðið hjá Höskuldi á Langholtsveginum og ég fæ trakteringar. Höskuldur færir mér kaffi og leggur smekkfullt fat af bakkelsi á borðið. „Þú færð ekkert megrunarfæði hér,“ segir hann og brosir út í annað. Frammi á gangi er sambýliskona hans til sextán ára, Þórey Árnadóttir, á ferli. Ég veiti því athygli að bumban kemur nokkuð á undan henni inn í eldhús. Ekki er það þó bakkelsi sem situr í frúnni, heldur er hún komin á steypirinn. Fáeinum dögum síðar fæðist þeim hjónum myndarlegur drengur. Fyrir áttu þau tvær ungar dætur, Steinunni Glóeyju (f. 2003) og Fanneyju Björgu (f. 2006). Það fjölgar sumsé ört í fjölskyld- unni. „Við fluttum hingað inn fyrir rúmu ári en þetta er þegar að verða heldur lítið,“ segir Höskuldur bros- andi. Góður andi á Alþingi Alþingi er áfram til umræðu og í ljósi aðstæðna kemur ekki á óvart að Höskuldur vilji gera vinnustaðinn fjölskylduvænni. „Dagskrá þingsins liggur aldrei fyrir fyrr en að kvöldi næsta dags á undan og þingfundir standa oft fram á kvöld, þó að vissu- lega hafi verið stigin jákvæð skref í haust með breytingunni á þingsköp- unum. En þetta venst eins og annað og maður tileinkar sér það.“ Að dómi Höskuldar er góður andi á Alþingi. „Þetta er um margt eins og kappleikur. Menn takast á í sal og fjölmiðlum en setjast svo niður í mesta bróðerni á eftir yfir kaffibolla. Ég hef þegar eignast góða vini í öll- um flokkum. Ef maður er málefna- legur og sanngjarn eru manni allar leiðir færar á þingi. Það er eigi að síð- ur mikilvægt að svara fyrir sig ef á mann er hallað og ég er ekki maður sem færist undan hressilegum póli- tískum tæklingum.“ Honum líður líka vel í þingflokki Framsóknarflokksins. „Ég hef átt gott samstarf við alla þar. Þingflokk- urinn samanstendur af hæfileikaríku, góðu og lífsglöðu fólki sem berst fyrir sömu hugsjónum og er staðráðið í að láta gott af sér leiða. Það eru vissu- lega afar reyndir einstaklingar þarna, m.a. fyrrverandi ráðherrar, en það hefur ekki verið vandamál. Ég upplifi samkennd og góðan anda í þingflokknum. Það er tekist hæfilega mikið á og mál rædd ofan í kjölinn. Það er einmitt þannig sem ég vil að hlutirnir virki. Ég hef frá fyrsta degi látið í mér heyra og tala umbúðalaust enda finnst mér mikilvægt að fólk viti fyrir hvað ég stend og hvert ég vil fara.“ Þingmenn flokksins eru aðeins sjö og Höskuldur staðfestir að smæðin hafi ákveðna kosti í för með sér, ekki síst fyrir nýja þingmenn. „Mér var strax hent út í djúpu laugina. Er í pontu á nánast hverjum einasta degi og gegni ýmsum nefndastörfum. Það er hið besta mál enda var ég kosinn til þess að láta í mér heyra.“ Höskuldi þykir hinum nýja for- manni, Guðna Ágústssyni, hafa tekist vel að binda flokkinn saman við erf- iðar aðstæður. „Hann vill byggja á breiddinni og samstöðunni og gætir því jafnræðis milli þingmanna. Mér finnst Guðna hafa farnast vel sem formaður hingað til og líkar vel að starfa með honum.“ Sleit barnsskónum á Möðruvöllum Höskuldur fæddist á Akureyri 8. maí 1973, sonur hjónanna séra Þór- halls Höskuldssonar og Þóru Stein- unnar Gísladóttur sérkennara og fyrrverandi skólastjóra. Hann sleit barnsskónum á því merka sögubóli Möðruvöllum í Hörgárdal, þar sem faðir hans var sóknarprestur á ár- unum 1968 til 1982. Séra Þórhallur er einn fárra presta sem lofað hefur verið brauði áður en guðfræðinámi lauk. Sóknin hafði klofnað í kjölfar prestkosninga árið áður og eina leiðin til sátta var að leita til nýs aðila. Þórhallur, sem fæddist á Skriðu í Hörgárdal, var álitlegur kostur og settu sóknar- börnin það ekki fyrir sig að hann væri enn í guðfræðinámi. Það varð því úr með samþykki biskups að brauðið beið eftir honum í eitt ár. Höskuldur á þrjú systkini. Elstur er Gísli Sigurjón vélstjóri, fæddur 1958 en hann er hálfbróðir Hösk- uldar sammæðra. Þá kemur Björg óperusöngkona, fædd 1964, og yngst er Anna Kristín læknanemi, fædd 1983. Athygli vekur að systkinin eru fædd á 25 ára tímabili og allt upp í tíu ár á milli. „Þannig að við erum í raun öll einbirni,“ segir Höskuldur og brosir. „Það má líka segja að ekkert okkar hafi alist upp hjá „sömu“ for- eldrunum þar sem þau voru aldrei á sama stað í lífinu.“ Lít ennþá á mig sem sveitastrák Það var, að sögn Höskuldar, frá- bært að alast upp í Hörgárdalnum, sveitalífið átti vel við hann. „Ég lít ennþá á mig sem sveitastrák og segi alltaf „heima“ á Möðruvöllum.“ Frelsið var mikið og Höskuldur var ungur farinn að ráða sínum ferð- um. Fyrir vikið þekkir hann hverja þúfu í landi Möðruvalla og næsta ná- grenni. „Einu sinni varð mömmu þó ekki um sel, þegar ég týndist í háu grasi úti á túni. Ætli ég hafi ekki ver- ið fjögurra, fimm ára. Mig var hvergi að sjá en það varð mér til happs að mamma heyrði í hundinum mínum, Spora, sem var lengi vel ígildi barna- píu. Vék aldrei frá mér. Þegar ég fór milli húsa var hann vanur að sækja skóna mína og ég kom svo hlaupandi á eftir – á sokkaleistunum.“ Þegar Pétur Sigurgeirsson varð biskup yfir Íslandi 1982 losnaði starf sóknarprests við Akureyrarkirkju og hreppti séra Þórhallur hnossið. Höskuldi leist ekkert á búferla- flutningana í upphafi en það hjálpaði til að hann var byrjaður í Barnaskóla Akureyrar, þar sem móðir hans kenndi. Svo var hann farinn að æfa fótbolta og handbolta hjá KA. „Þann- ig að á endanum tók þessi aðlögun ekki nema daginn.“ Höskuldur upplýsir raunar í óspurðum fréttum að hann hafi verið Þórsari fyrstu árin sem hann bjó í sveitinni – vegna nafnsins. Hann heitir jú Höskuldur Þór. Eitt augna- blik horfumst við undrandi í augu. Ég yfir þessum óvæntu tíðindum og hann yfir því að hafa ljóstrað þessu upp. „Ég veit ekki hvers vegna þetta kemur fram núna, ég hef ekki sagt nokkrum manni frá þessu áður,“ seg- ir hann hlæjandi. Höskuldi þótti frábært að alast upp á Akureyri. „Þar var allt til alls. Og frelsið mikið. Ég var líka mjög heppinn með kennara í Barnaskóla Akureyrar, Elínu Sigurjónsdóttur, sem kenndi mér lengi, og fleira vand- að fólk. Það er engin tilviljun að mörgum úr bekknum mínum hefur vegnað vel í lífinu.“ Allt hverfðist um íþróttir Prestbústaðurinn var á Brekk- unni, nánar tiltekið í Hamarstíg, og Morgunblaðið/G.Rúnar Þingmaðurinn „Þetta er um margt eins og kappleikur. Menn takast á í sal og fjölmiðlum en setjast svo niður í mesta bróðerni á eftir yfir kaffibolla. Ég hef þegar eignast góða vini í öllum flokkum. Ef maður er málefnalegur og sanngjarn eru manni allar leiðir færar á þingi,“ segir Höskuldur Þór Þórhallsson um þingstörfin. Færist ekki undan pólitískum tæklingum Höskuldur Þór Þórhallsson var á sinni tíð skot- fastur knattspyrnumaður og lunkinn markaskor- ari. Nú situr hann á hinu háa Alþingi Íslendinga fyrir Framsóknarflokkinn og enda þótt hann leggi áherslu á að vera málefnalegur og sann- gjarn þingmaður mun hann ekki kinoka sér við að skjóta föstum skotum úr ræðustól gerist þess þörf. Orri Páll Ormarsson fékk að blaða í lífsbók prestssonarins frá Möðruvöllum í Hörgárdal. »Mér var strax hentút í djúpu laugina. Er í pontu á nánast hverj- um einasta degi og gegni ýmsum nefnda- störfum. daglegtlíf
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.