Morgunblaðið - 24.02.2008, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 24.02.2008, Qupperneq 28
tengsl | systurnar Elma Lísa og Nína Björk Gunnarsdætur 28 SUNNUDAGUR 24. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ Elma Lísa Nína Björk er ákaflega opin og frökk manneskja. Hún er algjörlega ófeimin og kemur manni alltaf í gott skap. Hún hlær líka rosalega hátt, það hvellir í henni. Fyrir vikið er hún mjög vinsæll gestur á gamansýningum í leikhúsi. Smitar allan salinn á augabragði. Nína er voðalega góð manneskja og góður vinur. Bjáti eitthvað á er hún ævinlega fyrst á staðinn. Það má algjörlega stóla á hana. Nína hefur alltaf staðið þétt við bakið á mér og ef einhver hallmælti mér í æsku var hún umsvifalaust komin með hnefann á loft. Einu sinni fóru einhverjar stelpur að tala illa um mig í strætó svo að Nína heyrði til og það lá við handalög- málum. Hún vandaði þeim víst ekki kveðjurnar. Nína er ekki mann- eskja sem liggur á skoðunum sín- um. Systra- og systkinatengsl eru ótrúlega sterk og ég er mjög þakk- lát fyrir að eiga systkini. Ég myndi gera hvað sem er fyrir systkini mín. Við systurnar vorum allar mjög samrýmdar í æsku og Nína vildi helst alltaf vera utan í mér og mín- um vinkonum. Ég hafði, eins og gengur með eldri systur, mismikinn skilning á því. Samt var oftast gam- an að hafa hana með og hún hefur alltaf gengið inn í mína vinahópa og verið aufúsugestur í saumaklúbb- um. Það skemmdi heldur ekki fyrir að sem börn og unglingar höfðum við sömu áhugamál, m.a. dans og fyrirsætustörf. Ég var alltaf að keppa í freestyle-dansi á unglings- árunum og þótt Nína hefði ekki aldur til að horfa á keppnirnar tókst henni einhvern veginn alltaf að smygla sér inn. Nína gerir það sem hún ætlar sér. Við vorum mjög skapandi sem börn, alltaf að búa eitthvað til. Taka upp á segulbandsspólur o.s.frv. Þá var oftar en ekki glatt á hjalla og Nína fór iðulega á kost- um. Það hefur alltaf farið mikið fyrir Nínu. Hún er mikill grallari og var mjög uppátækjasamt, stríðið og hreinskilið barn. Einu sinni kom hún að mér og vinkonu minni þar sem við vorum að fikta við að reykja – níu ára gamlar – og hljóp beint heim og klagaði í mömmu. Ég reiddist þá en í dag er ég henni þakklát. Ég var ein í herbergi á æsku- heimili okkar, þar sem ég er elst, en Nína og Tinna saman. Á tímabili langaði okkur Nínu að vera saman í herbergi og eina nóttina stálumst við til að flytja Tinnu yfir til mín, svo ég gæti verið hjá Nínu. Það tókst ekki betur til en svo að við misstum hana í gólfið. Sem betur fer varð henni ekki meint af því. Nína hefur alltaf verið fín í tauinu og var á tímabili kölluð Nína fína. Snemma beygist krókurinn og ég man eftir henni pínulítilli í Mela- skóla rosalega fínni. Á þeim árum þótti henni fátt skemmtilegra en stelast í föt af mér. Nína hefur allt- af haft sinn stíl og skorið sig úr fjöldanum. Við vorum báðar í fyrirsætustörf- um um tíma og eyddum meðal ann- ars einu sumri í Aþenu ásamt And- reu Róberts. Ætli ég hafi ekki verið nítján ára og Nína sextán. Það var frábær lífsreynsla en við vorum komnar með talsverða heimþrá undir lokin, sérstaklega Nína enda var hún svo ung. Við höfum átt margar góðar stundir saman í útlöndum og það var frábært að heimsækja hana til Danmerkur um árið en þar bjó Nína í eitt og hálft ár meðan hún var að læra ljósmyndun. Gallar Nínu eru fáir og smáir. Því verður þó ekki mælt í mót að hún er svolítill sveimhugi. Getur verið utan við sig. Í miðjum sam- tölum veitir maður því stundum at- hygli að hún er komin eitthvert allt annað. Fólk sem þekkir hana veit um hvað ég er að tala! Við Nína erum í mjög góðu sam- bandi í dag. Við hittumst kannski ekki á hverjum degi en heyrumst reglulega. Ég fæ strákinn hennar, Egil Orra, stundum lánaðan, fór til að mynda með hann á Gosa um síð- ustu helgi. Egill Orri er alveg frá- bær strákur og augasteinn móður sinnar. Nína er góð móðir, þau Eg- ill Orri eiga mjög fallegt samband. Framtíðin blasir við Nínu Björk. Ég bjóst alltaf við því að hún færi út í eitthvað skapandi. Hún er al- veg frábær ljósmyndari og ég reikna fastlega með að hún láti frekar að sér kveða á því sviði. Þar held ég að hún geti náð langt, bæði er hún klár og svo er hún með afar gott auga. Það á líka ljómandi vel við hana að vera í sjónvarpi. Ég hef mikla trú á Nínu og styð hana í öllu sem hún tekur sér fyrir hendur. Kemur manni alltaf í gott skap Yngismeyjar Elma og Nína byrjuðu snemma að brosa í myndavélina. »Nína hefur alltaf staðið þétt við bakið á mér og ef einhver hall- mælti mér í æsku var hún umsvifalaust komin með hnefann á loft. Árvakur/Kristinn Ingvarsson Elma Lísa Gunnarsdóttir fæddist 7. september 1973. Hún vakti ung athygli sem dansari og fyrirsæta og út- skrifaðist úr leiklistardeild Listaháskóla Íslands árið 2001. Hún hefur leikið í ýmsum leiksýningum, kvik- myndum, stuttmyndum og sjónvarpsþáttum. Þessa dagana leikur Elma Lísa í uppfærslu Þjóðleikhússins á Baðstofu Hugleiks Dags- sonar og er að hefja æfing- ar á nýjum söngleik eftir Hallgrím Helgason, Ástin er diskó, sem frumsýndur verður í Þjóðleikhúsinu í vor. Þá fer hún með hlut- verk í nýjum sjónvarps- þætti, Ríkinu, sem tekin verður til sýninga á Stöð 2 síðar á árinu. Eiginmaður Elmu er Reynir Lyngdal kvikmyndaleikstjóri og á hún eina stjúpdóttur, Unu Margréti, sex ára. Nína Björk Gunnarsdóttir fæddist 21. október 1976. Hún vakti ung athygli sem fyrirsæta en starfar í dag sem ljósmyndari og stílisti. Nína Björk hefur líka unn- ið við sjónvarp, var m.a. með innslög í þættinum Veggfóður á Stöð 2, og gæti hugsað sér að starfa meira á þeim vettvangi í framtíðinni. Hún nam ljós- myndun í Danmörku og hyggur á frekara ljós- myndanám. Skoða má ljós- myndir hennar á heimasíð- unni ninabjork.is. Nína Björk á einn son, Egil Orra Árnason, sjö ára, og er í sambúð með Matthíasi Ás- geirssyni, meistaranema í byggingarverkfræði. Foreldrar Elmu og Nínu eru Gunnar Þór Indriðason og Elín Sjöfn Sverrisdóttir. Þær eiga tvö yngri systk- ini, Tinnu Dögg (f. 1979) og Sverri Þór (f. 1985). Eldri bróðir þeirra, Sverrir (f. 1969), lést í bílslysi aðeins sjö ára að aldri.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.