Morgunblaðið - 24.02.2008, Page 38

Morgunblaðið - 24.02.2008, Page 38
38 SUNNUDAGUR 24. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ MENNING Aðalfundur Tryggingamiðstöðvarinnar hf. verður haldinn mánudaginn 3. mars 2008 kl. 14.00 í húsakynnum félagsins, Aðalstræti 6, Reykjavík. ÍS L E N S K A /S IA .I S /T M I 41 14 3 02 /0 8 Aðalfundur 2008 Dagskrá: 1. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins á síðastliðnu starfsári. 2. Ársreikningur félagsins fyrir liðið starfsár ásamt skýrslu endurskoðenda lagður fram til staðfestingar. 3. Ákvörðun um ráðstöfun tekjuafgangs félagsins, þ.m.t. greiðslu arðs. 4. Ákvörðun um tillögu stjórnar um starfskjarastefnu félagsins. 5. Ákvörðun um þóknun til stjórnar. 6. Kosning stjórnar félagsins. 7. Kjör endurskoðenda (endurskoðunarfélags). 8. Önnur mál löglega fram borin. Framboð til stjórnar skal tilkynna skriflega til félagsstjórnar, Aðalstræti 6, Reykjavík, skemmst fimm dögum fyrir aðalfundinn. Í tilkynningunni skal greina nafn frambjóðanda, kennitölu, heimilisfang, upplýsingar um aðalstarf, önnur stjórnarstörf, menntun, reynslu og hlutafjáreign í félaginu, hagsmunatengsl við helstu viðskiptaaðila og samkeppnisaðila félagsins, sem og hluthafa sem eiga meira en 10% í félaginu. Reikningar félagsins og tillögur liggja frammi á aðalskrifstofu hluthöfum til sýnis viku fyrir fundinn, en verða síðan afhent ásamt fundargögnum til hluthafa á fundarstað. Stjórn Tryggingamiðstöðvarinnar hf. TRYGGINGAMIÐSTÖÐIN / Aðalstræti 6 / 101 Reykjavík / Sími 515 2000 / www.tm.is Aðalfundur TM HÁKLASSÍSK tónlist og selló- leikari á heimsmælikvarða voru á boðstólum á síðustu tónleikum Sinfóníuhljómsveitarinnar, þar sem leikin voru þrjú verk eftir merkustu skáld þess tíma; Mozart, Haydn og Beethoven. Forleik- urinn úr Töfraflautunni var leik- inn fagmannlega af hljómsveitinni í upphafi tónleika undir góðri stjórn Eivinds Aadlands. Dýna- mískar tæknibrellur Mozarts bár- ust hins vegar dauflega til eyrna þeirra sem sátu í aftari helmingi salar. Aldrei hefur hljómburður að- alsalarins í Háskólabíói gramist mér meira en þegar hinn ungi og glæsilegi þýski sellóleikari Daniel Müller-Schott hóf leik í einu mesta stórvirki sellóbókmennt- anna. Ég þori að fullyrða að lágt tíðnisvið hljóðfærisins og ómur hinnar hógværu, klassískt skipuðu hljómsveitar hafi skilað sér illa til verulegs fjölda áheyrenda. Þetta var sérstaklega bagalegt í ljósi þess að tónlist þessa tíma byggist fyrst og fremst á skynjun hennar, umfram tilfinningu. Müller-Schott lék áreynslulaust af léttleika og mikilli mýkt þar sem túlkunin var ávallt í góðu samræmi við tónlistina. Í stíl hans skiptust á barokk-fraseringar með hröðum bogastrokum, flúri og sparlegu víbratói þegar það átti við, og fyllri og ástríðufyllri tónn seinni tíma rómantíkur. Hægur miðkaflinn var leikinn af mikilli ástúð og lokakaflinn af dirfsku sem ekki var ógnað af minnstu tónstöðuörðugleikum, jafnvel á efsta tíðnisviðinu. Hraðar hend- ingar hljómuðu dásamlega stökkar og ferskar í eyrum og allir frasar voru náðarsamlega mótaðir af góðu innsæi. Dynjandi lófataki að loknum konsertinum var fylgt eft- ir með aukalaginu Prayer, fyrsta kaflanum úr From Jewish Life eftir Ernest Bloch. Müller-Schott lék af miklum innblæstri og komst verkið frábærlega til skila án pí- anóundirleiksins. Eftir hlé tók við Sveitasinfónía Beethovens sem frumflutt var á sögufrægum tónleikum fyrir tæp- um 200 árum, eins og drepið var á í texta efnisskrár. Fyrsta og öðr- um kafla fylgdi að vísu kómísk hóstasinfónía áheyrenda sem minnti á flensutíðina sem nú ríkir. Í heildina var hljómsveitin mjög samstillt í leik sínum þrátt fyrir örlitla ósamheldni í fiðludeildinni, einkum í lok viðkvæmra úr- vinnslufrasa. Hinn óvænti og allt að því háðski fuglasöngur, sem heyrist í lok hæga kaflans og á sér hvergi samsvörun annars staðar í verkum tónskáldsins, verður ein- ungis til þess að leggja áherslu á hversu verk hans eru annars meistaralega vel samin. Haydn í ferskum flutningi TÓNLIST Háskólabíó Forleikur að Töfraflautunni eftir Wolfgang Amadeus Mozart, Sellókonsert í D-dúr, Hob. VIIb nr. 2 eftir Joseph Haydn, og Sin- fónía nr. 6 í F-dúr, op. 68, eftir Ludwig van Beethoven. Sinfóníuhljómsveit Íslands lék undir stjórn Eivinds Aadlands. Ein- leikari: Daniel Müller-Schott, selló. Fimmtudaginn 21. febrúar kl. 19.30. Sinfóníutónleikarbbbmn Alexandra Kjeld Ljósmynd/Sonja Werner Léttleiki og mýkt „Müller-Schott lék áreynslulaust af léttleika og mikilli mýkt þar sem túlkunin var ávallt í góðu samræmi við tónlistina.“ Á neðri hæð Startart listamanna- húss stendur nú yfir sýning Hrafn- hildar Ingu Sigurðardóttur, Í forsal vinda. Þetta eru sjávarmyndir sem myndgera veður og byggir listakon- an ímyndirnar á æskuminningum þar sem hún stóð á brún Krísuvík- urbjargs og starði á brimið. Óneit- anlega dáleiðandi athöfn sem flestir Íslendingar ættu að kannast við. Rær Hrafnhildur á nokkuð kunn- ugleg mið í málverkinu og er róm- antískur blær yfir verkunum sem nær allt frá J.M.W. Turner til Ians McKeevers eða Pat Steir. Gætir eilítils skreytis í annars ex- pressjónískum handtökunum sem gefur myndunum útlit leiktjalda- mynda, sérstaklega er það birtan sem er ótrúverðug og virkar eins og í „stúdíói“ (sem reyndar skapar vissa tegund af dramatík). Hins vegar gefa litaflæði og kröft- ug efnistökin þessu formlausa myndefni heilmikið líf og fer sér- staklega vel um stærri strigana í for- salnum, „Kólga“, „Blikur“ og „Belj- andi“. Minni myndir í litlu bakrými njóta sín síður. Kunnugleg mið Dramatískur, rómantískur blær er yfir málverkunum. Veðurbarinn strigi MYNDLIST Startart listamannahús Opið þriðjudaga til laugardaga frá 13-17. Sýningu lýkur 5. mars. Aðgangur ókeypis. Hrafnhildur Inga Sigurðardóttir bbmnn Jón B. K. Ransu Skólavörðustíg 21, Reykjavík sími 551 4050 Glæsileg brúðarrúmföt í úrvali Sími 551 3010

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.