Morgunblaðið - 24.02.2008, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 24.02.2008, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. FEBRÚAR 2008 39 P R [ p je e rr ] 2006 Rannsóknamiðstöð Íslands • Laugavegi 13 • 101 Reykjavík • sími 515 5800 • rannis@rannis.is. • www.rannis.is Ó sk að e ft ir t iln ef ni ng um Hvatningar- verðlaun Vísinda- og tækniráðs Hvatningarverðlaun Vísinda- og tækniráðs eru árlega veitt vísindamanni sem snemma á ferlinum þykir hafa skarað fram úr og skapað væntingar um framlag í vísindastarfi er treysti stoðir mannlífs á Íslandi.Verðlaunin voru fyrst veitt árið 1987 í nafni Rannsóknarráðs ríkisins, á 50 ára afmæli atvinnudeildar Háskóla Íslands. Verðlaunin eru tvær milljónir króna. Tilnefningar mega koma frá öllum sviðum vísinda, tækni og fræða.Tilnefna má vísindafólk sem starfar á Íslandi við háskóla, rannsóknarstofnanir, fyrirtæki eða er sjálfstætt starfandi. Öllum sem eru í aðstöðu til að meta störf einstakra vísindamanna er heimilt að koma með tilnefningar til verðlaunanna. Með tilnefningu fylgi ferilskrá vísindamannsins. Við mat á tilnefningum til verðlaunanna er tekið tillit til námsferils viðkomandi vísindamanns, sjálfstæðis, frumleika og árangurs í vísindastörfum að loknu námi; ritsmíða, einkaleyfa og framlags í störfum á alþjóðavettvangi svo og annarra vísbendinga um líklegan árangur af störfum viðkomandi. Sérstaklega er litið til brautryðjandastarfs í vísindum. Þá er litið til faglegs framlags til starfsfélaga á vinnustað og miðlunar þekkingar til íslensks samfélags. Almennt er miðað við að þeir sem koma til álita séu ekki eldri en 40 ára, en tekið er tillit til tafa sem kunna að verða á ferli vísindamanns vegna umönnunar barna. Fimm handhafar verðlaunanna skipa dómnefnd: Jakob K. Kristjánsson, framkvæmdastjóri Tækniseturs Arkea ehf., Svanhildur Óskarsdóttir, rannsóknardósent á Stofnun Árna Magnússonar, Steinunn Thorlacius, sérfræðingur hjá Íslenskri erfðagreiningu, Freysteinn Sigmundsson, jarðeðlisfræðingur við Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands, og Hilmar Janusson, þróunarstjóri Össurar hf. Frestur til að skila inn tilnefningum er til og með 14. mars 2008. Tilnefningum og upplýsingum um feril tilnefndra skal skilað til Rannís, Laugavegi 13, 101 Reykjavík, eða með tölvupósti á netfangið rannis@rannis.is. 8 Á SÍÐASTA degi Myrkra músíkdaga, sem ný- lega eru afstaðnir, voru haldnir rómaðir tón- leikar með kunnugu samspilstvíeyki. Þó að öll verk efnisskrárinnar myndu flokkast undir óræðan nútímatónlistarhatt eru engu að síður rúmlega tuttugu ár milli þeirra og fátt sameig- inlegt með þeim þegar upp er staðið. Byrjað var á dúói Jóns Nordals, „Myndum á þili“, sem hefur skotið rótum í efnisskrám íslenskra selló- leikara. Bryndís Halla og Anna Guðný léku alla fjóra kaflana af miklu öryggi og með góðri snerpu, enda hafa þær margoft flutt verkið frá því að það heyrðist fyrst fyrir sextán árum. Næsta verk á efnisskránni var eitt það yngsta sem undirrituð hefur heyrt eftir Hauk Tómasson, en hann hefur átt farsælan tón- skáldsferil í um tvo áratugi. „Eter“ er einleiks- sellóstykki sem tónskáldið samdi um það leyti sem námsferlinum lauk og var því áhugavert að heyra þróun í tónsmíðastíl hans. Síðari verk Hauks hafa einkennst af mikilli og hnitmiðaðri orkumyndun og -losun, en hér virtist orku- dreifingin jafnari. Verkið naut sín þó eins og best var á kosið í þróttmiklum flutningi Bryn- dísar Höllu. Lokaverkin tvö voru eftir Atla Heimi Sveins- son. Hinu fyrsta var kippt úr þriðju óperu hans, Tunglskinseyjunni. Um var að ræða magnþrungið og draumkennt millispil sem vafalaust hefur margfalda þýðingu í réttu sam- hengi. Undirrituð átti því miður ekki kost á að sjá óperuna þegar hún var síðast sýnd í heild sinni í Þjóðleikhúsinu fyrir tæpum 11 árum. Það vill af einhverjum ástæðum loða við ís- lenskar óperur að ef þær á annað borð eru frumfluttar hér á landi þá eiga þær sjaldnast afturkvæmt á fjalirnar. Nú liggur fyrir vilja- yfirlýsing bæjarstjórnar Kópavogs um bygg- ingu óperuhúss þar í bæ, og fer þá vonandi ný og farsælli þróun af stað. Að minnsta kosti bíð- um við öll spennt. Í lok tónleikanna var ný sellósónata síðast- nefnda tónskáldsins frumflutt, en hún sam- anstendur af átta míníatúrum sem renna ánægjulega í gegn vegna fjölbreytileika þeirra; frá mögnuðum forleik og frjálslegum hend- ingaslettum yfir í m.a. léttgeggjaða og húm- oríska tangósveiflu og ljúfsára fegurð. Og þetta er ýmist í frjálsum eða bundnum tíma. Að verkunum ólöstuðum var tvíeyki þeirra Önnu Guðnýjar og Bryndísar Höllu líklega meginað- dráttarafl tónleikanna, enda er þær stöllur lítt þekktar fyrir annað en að skila verkum frá sér í hámarksgæðum. Glænýtt og nýlegt TÓNLIST Salurinn, Kópavogi Bryndís Halla Gylfadóttir, selló, og Anna Guðný Guð- mundsdóttir, píanó, léku verk eftir Jón Nordal, Hauk Tómasson og Atla Heimi Sveinsson. Sunnudaginn 10. febrúar kl. 20. Tíbrá og Myrkir músíkdagar  Alexandra Kjeld EINU sinni áður hefur kvenmað- ur stjórnað Stórsveit Reykjavík- ur og var sú ekki af verri end- anum, sjálf Maria Schneider, sem nú er einn fremsti stórsveit- arhljómsveitastjóri djassins og afburða tónskáld og útsetjari. Maria var undir sterkum áhrifum frá hinu impressjóníska tónamáli Gil Evans, en hefur tekist að skapa sér sinn eigin stíl í áranna rás. Nafna hennar Babtist hin þýska, sem nú stjórnaði Stórsveit Reykjavíkur við flutning eigin verka hefur mikið lært af Evans og Schneider, en er þó um margt ólík þeim. Fyrsta verkið á efnisskránni, og það besta, var mínísvítan Minotaurus, þar sem Kjartan Valdimarsson gegndi veigamiklu hlutverki og frábær var tenging hans milli málmgjallandi fyrri- hluta og mjúks seinni hluta þar sem flautur voru í aðalhlutverki; Cecil Taylor og Rachmaninoff komu uppí hugan en fyrst og fremst Kjartan, sem brilleraði þetta kvöld þótt Stórsveitin væri í aðalhlutverkinu. Blue Picture inspírerað af Dalimálverki var á evrópskum nótum og Kjartan Hákonarson blés fínan flýgilhorn- sóló. Edvard Lárusson var heitur á gítarinn og tenging hans milli annars og þriðja þáttar Ibizus- vítu Mariu, sem var frumflutt á tónleikunum, var bæði það spænskasta og besta í því tón- verki. Fancy Blues var ellington- ískur á köflum og Woodyard- bragur á Jóa Hjörleifs við trommurnar. Óskar barítón, Stef- án tenór og Snorri trompet með fína sólóa sem féllu áheyrendum vel í geð. Stundum voru frjálsir kaflar í verkunum með miklu glissi og mishljómum og minntu oft á undanfara hljómleika er menn stemma og hita upp. Aftur á móti hafði allt glissið og óreið- an hlutverki að gegna í verki Mariu um Avur-hraðbrautina í Berlin. Lokalagið var Goodbye með þykkum evanískum hljómum og lauk þar einum bestu Stór- sveitartónleikum vetrarins. Af sjaldheyrðum sólistum skal nefna Eyþór Kolbeins á básúnu og Ara Braga á flygilhorn, sem stóðu sig með sóma. Maria Babtist stjórnar Stórsveit- inni TÓNLIST Ráðhús Reykjavíkur 19. febrúar 2008 Stórsveit Reykjavíkur undir stjórn Mariu Babtist. bbbbn Vernharður Linnet
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.