Morgunblaðið - 24.02.2008, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. FEBRÚAR 2008 43
Stangarhyl 5, sími 567 0765
Ítarlegar upplýsingar um
eignirnar á www.motas.is
www.motas.is
Sími 565 5522 | www.fasteignastofan.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
M
O
T
4
10
44
0
2.
20
08 Söluaðili:
Sjón er sögu ríkari!
Sýningaríbúð á staðnum
Skoðið frágang á íbúðum hjá okkur og berið saman
> Yfir 20 ára reynsla
> Traustur byggingaraðili
• Innangengt úr bílskýli að lyftu.
• Glæsilegt útsýni.
• Granít á borðum og sólbekkjum.
• Ísskápur og uppþvottavél fylgja.
• Hús einangrað og klætt að utan
með álklæðningu.
• Íbúðir með sérinngangi af
svölum, ekki gengið framhjá
svefnherbergi.
• Eikar- eða hnotuspónn í inn-
réttingum.
3ja herb. íbúðir
með allt að 100% fjármögnun!
Glæsilegur frágangur - Hagstætt verð
Skipalón 25 - 27, Hvaleyrarholti, Hafnarfirði
Til afhendingar núna!
Verð frá 26.000.000 kr.
3ja herb. 101.6 m2 íbúð ásamt bílgeymslu
Verð íbúðar:
Lán Íbúðalánasj.
Lán Mótás hf
Afborgun
Vaxtabætur
Mánaðarleg greiðsla
26.000.000 kr. Afb. pr. Mán
18.000.000 kr. 40 ár 5,5% 92.914 kr.*
8.000.000 kr. 20 ár 6,3% 58.868 kr.*
151.782 kr.
- 23.364 kr.**
128.418 kr.*
* án tillits til verðbólgu.
** Vaxtabætur, 297.194 kr. pr ár, miðast við hjón/sambúð.
NÚ hafa nýir kjarasamningar
Starfsgreinasambandsins verið
samþykktir af samninganefndum
og fyrsta sinn í áratugi tekið smá-
skref til lagfæringar á því mikla
launabili sem orðið var á milli
Starfsgreinasambands fólks og
næstu launastétta fyrir ofan. Að
vísu er skrefið ekki stórt en von-
andi það fyrsta til skynsamlegs
launabils milli stétta. Þó eru blikur
á lofti, kennarastéttin telur það
ósvífni að fram á það sé farið að
launasamningar þeirra taki mið af
kjarasamningum Starfgreina-
sambandsins. Það yrði að teljast
kaldhæðni ef hærra launaðir nýttu
sér samningsstöðuna til að lengja
launabilið aftur. Ef sú verður nið-
urstaðan er ljóst að lagfæring get-
ur ekki orðið, nema samið sé við
verkafólk á eftir hærra launuðum.
Með þessu er ég ekki að telja
kennara ofalda í launum, það er
langt í frá, en núverandi samnings-
ferli býður upp á þetta.
Fréttamenn sjónvarpsstöðva
spurðu Vilhjálm Egilsson hvað
þessir samningar kostuðu atvinnu-
rekendur. Væri ekki rétt að frétta-
menn spyrðu einu sinni hversu
miklu verkafólk væri búið að tapa í
launum með því að vinna á ógildum
samningum frá áramótum? Verka-
fólk er eina stéttin sem þarf að
bera slíkt tjón. Þetta hvetur ekki
atvinnurekendur til að semja áður
en samningar renna út. Það er
ótrúlegt að fólk sé beitt slíkri
ósvífni.
Þegar kjarasamningar standa yf-
ir kemur vel í ljós hversu gjör-
samlega er búið að ýta öldruðum út
í ystu jaðra þjóðfélagsins, á kjör
þeirra er ekki minnst. Þeir eru,
sem sagt, ekki til í samfélaginu.
Ráðherrar þurfa oft að koma
fram og láta ljós sitt skína, illa
undirbúnir. Fyrir stuttu sagði
menntamálaráðherra á flokksfundi
að kennarar væru lægst launaða
stétt landsins. Ég vona að ráð-
herrann hafi ekki gleymt því að
verkafólk er talið vera af ættbálki
manna.
Stundum er gaman að líta aftur í
tímann og bera saman atburði í
fortíð og nútíð. Árið 2700 f.Kr.
urðu Egyptar að sækja utanaðkom-
andi auð til að standa straum af
óhófslífi konunga og yfirstétta
landsins. Höfum við virkilega ekk-
ert þroskast, stjórnsýslulega séð, á
þessum 4700 árum?
GUÐVARÐUR JÓNSSON,
Valshólum 2, Reykjavík.
Nýir kjara-
samningar
Frá Guðvarði Jónssyni
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110
Reykjavík Bréf til blaðsins | mbl.is
Bréf til
blaðsins
smáauglýsingar
mbl.is
Fréttir
í tölvupósti