Morgunblaðið - 24.02.2008, Side 46
46 SUNNUDAGUR 24. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
ÞAÐ varð niðurstaða nefndar um
staðarval flugvallar fyrir innan-
landsflugið að Hólmsheiði væri
hvað heppilegastur kostur, a.m.k.
frá þjóðhagslegu sjónarmiði.
„Margt eigi þó eftir að skoða og
rannsaka áður en ákvörðun verði
tekin.“ Það eru orð að sönnu.
Raunar voru aðeins
tveir kostir skoðaðir,
þ.e. Hólmsheiði og
Löngusker, auk nú-
verandi staðsetningar
í Vatnsmýrinni og
Keflavíkurfugvöllur.
Undirritaður hefur
skrifað tvær greinar í
Morgunblaðið sl. ár
um mögulega flugvall-
arstaðsetningu og sett
fram matslykil til að
vega kostina á hlut-
lægan hátt. Þar kom
„óbreytt ástand“ best
út, þ.e. að flugvöllurinn yrði áfram
óbreyttur í Vatnsmýrinni. Þeir sem
eru mótfallnir þessuhafa sann-
arlega líka nokkuð til síns máls.
Landrýmið sem flugvöllurinn þekur
er dýrmætt byggingar- og útivist-
arland. Fluginu yfir borgina fylgir
ónæði og einhver slysahætta, því
verður ekki á móti mælt. (Þó
myndu væntanlega miklu fleiri slas-
ast og farast í umferðarslysum á
sama svæði, en í slysum tengdum
flugi, ef byggt yrði þar sem flug-
völlurinn er nú.) Það er líka stað-
reynd að staðsetning flugvallarins í
hjarta borgarinnar er skipulagslega
nokkuð á skjön. Norðmenn fluttu
sinn Fornebu-flugvöll í Ósló til Gar-
dermoen, tugi kílómetra upp í sveit,
og Svíar byggðu Arlanda, sinn aðal-
alþjóðaflugvöll, sömuleiðis víðs
fjarri Stokkhólmi, í öðru sveitarfé-
lagi. Eins væri hægt að flytja inn-
anlandsflugið til Keflavíkur og
sætta sig við aðeins lengri ferða-
tíma til og frá velli. Varavellir yrðu
á Egilsstöðum og/eða Akureyri
Valkostirnir
Lítum nú stuttlega á flugvall-
arkostina sem helst koma til greina
fyrir innanlandsflugið:
Reykjavíkurflugvöllur, óbreytt
ástand: Þetta er mjög „þægilegur“
kostur og fær hæstu einkunn í
framangreindum matslykli. Flug-
tæknilega er hann ágætur og krefst
lítilla fjárfestinga. En ókostirnir
eru handan hornsins, eins og rakið
er hér að framan. Deilur um völlinn
munu halda áfram. (Raunar er
Reykjavíkurflugvöllur ekki alveg
öruggur varavöllur
fyrir Keflavík-
urflugvöll, því um
sama veðurfarssvæði
er að ræða.)
Löngusker: Gíf-
urlega kostnaðarsöm
framkvæmd og
áhættusöm. Rök fyrir
því voru færð í fyrri
greinum. Aðflug er
gott. Ónæði af flug-
umferð mundi eitthvað
minnka. Stór ókostur
er særok með tilheyr-
andi seltu, en það er
mjög slæmt fyrir flugvélar og
hreyfla – jafnvel hættulegt. Og
landfyllingar eru afar viðkvæmar
fyrir jarðskjálftum. Auk þess er
fyrirsjáanleg töluverð hækkun yf-
irborðs sjávar á næstu áratugum.
Hólmsheiði: Hæð vallar og nánd
við fjöll skapar ákveðna erfiðleika.
Aðflug gæti orðið erfitt og veð-
urskilyrði eru örugglega verri en
niðri á láglendi með tilheyrandi
ókyrrð og ísingu. Lokunardagar
gætu verið nokkrir á hverjum vetri.
Rétt er að benda á grein um skýja-
hæð og aðflugstakmarkanir sem
Páll Bergþórsson, fyrrverandi veð-
urstofustjóri, skrifaði nýlega í
Morgunblaðið.
Álftanes: Þetta er góður kostur
frá flugtæknilegu sjónarmiði. Að-
flug er gott til allra átta og landið
slétt. Staðsetning með tilliti til
ferðatíma til og frá velli er líka góð
og ónæði í minna lagi. Ókostirnir
eru að svæðið er einstök nátt-
úruperla og friðað, nálægð við emb-
ættisbústað forseta lýðveldisins og
andstaða íbúa og stjórnvalda í
sveitarfélaginu við flugvöll á nes-
inu. Landið er mjög lágt og við
ákveðin skilyrði gæti skapast þar
svæðisbundin flóðahætta.
Hraunið s og sa af Straumi:
Raunar er einkennilegt að þessi
kostur skuli ekki hafa verið skoð-
aður af meiri alvöru í umræðunni
síðustu ár. Staðsetningin er ágæt
með tilliti til samgangna og skilyrði
öll góð. Lítil byggð er í nágrenninu.
Aðflugsskilyrði voru rannsökuð
þarna fyrir nokkrum áratugum og
þar kom fram að nokkurrar ókyrrð-
ar gætti við ákveðin skilyrði. En
svo er víðar. Þessi staðsetning gæti
verið mjög vænlegur kostur því
landið er tiltölulega slétt hraun og
ferðatími til vallar stuttur. Stofn-
kostnaður er nokkur en þó veru-
lega lægri en á Hólmsheiði og
Lönguskerjum. Sumir segja ef til
vill að staðurinn sé of nærri Kefla-
vík, en á móti má benda á að sam-
bærileg vegalengd er milli flugvalla
margra stórborga erlendis, jafnvel
styttri.
Innanlandsflugið flutt til Kefla-
víkur: Þó að töluverð andstaða sé
meðal stjórnmálamanna og almenn-
ings við þennan kost þá hefur hann
sínar jákvæðu hliðar. Fjárfesting er
lítil. Flugvöllurinn er mjög góður
og öruggur og aðflug einkar gott.
Öll þjónusta er fyrir hendi á staðn-
um. Ókostirnir eru helst tveir:
Fjarlægðin frá höfuðborgarsvæðinu
og svo að varavöllur fyrir Keflavík
flyst fjær. (Frá Reykjavík til Egils-
staða, Akureyrar o.fl.).
Raunar er ferðatími frá þunga-
miðju höfuðborgarsvæðisins til
Keflavíkur ekki miklu lengri en út í
Skerjafjörð, þar sem flugafgreiðsla
innanlandsflugsins er nú. Það
breytist þó eitthvað, þegar (og ef)
ný samgöngumiðstöð rís sunnan
Hringbrautar.
Hágæða rafhraðlest milli Reykja-
víkur og Keflavíkur sem gengi með
stuttu millibili er afar hagkvæmur
og umhverfisvænn kostur.
Lokaorð
Það er mjög eðlilegt að val um
framtíðarflugvöll fyrir innanlands-
flugið sé flókið og erfitt viðfangs-
efni. Hver staður hefur sína kosti
og galla. Vandinn er að velja rétt.
Þar vegur flugöryggi langþyngst og
síðan hagkvæmni.
Flugvallarkostir
Óli Hilmar Briem Jónsson skrif-
ar um bestu staðsetninguna
fyrir Reykjavíkurflugvöll
»Hver staður hefur
sína kosti og galla.
Vandinn er að velja
rétt.
Óli Hilmar Jónsson
Höfundur er arkitekt og
flugáhugamaður.
Fréttir í tölvupósti
TJARNARGATA
Mjög fallegt og mikið upprunalegt 232,1 fm einbýlishús á þessum
fallega stað við Reykjavíkurtjörn. Húsið sem er kjallari, tvær hæðir
og geymsluris er í dag innréttað sem tvær íbúðir. Eignin skiptist
m.a. í samliggjandi skiptanlegar stofur með skála útaf og útgangi
á lóð, 4 herbergi, eldhús og baðherbergi auk þvottaherbergis og
sér 2ja herb. íbúðar í kjallara.
Eignin verður til sýnis á morgun, mánud. og þriðjud. kl. 16-18.
Óskað er eftir tilboðum
í eignina fyrir kl. 14.00
þann 7. mars 2008.
FASTEIGNA-
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505.
OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is
Heimasíða: http://www.fastmark.is/.
Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteignasali.
Guðmundur Th. Jónsson, lögg. fasteignasali.
OPIÐ HÚS Í DAG SUNNUDAG KL. 16-17
SÖRLASKJÓL 94 – VESTURBÆR
Ármúla 21 • 108 Reykjavík • Sími 533 4040
kjoreign@kjoreign.is • www.kjoreign.is
Dan V.S. Wiium hdl., lögg. fasteignasali gsm 896 4013
Kristinn Valur Wiium Ólafur Guðmundsson
sölumaður s. 896-6913 sölustjóri s. 896-4090
jöreign ehf
Glæsileg algerlega endurnýjuð sérhæð í góðu steinsteyptu húsi. Sérstæð-
ur bílskúr. Stærð 134,3 fm. Ný gólfefni og innihurðir. Nýjar vatns- og frá-
rennslislagnir. Allt nýtt í eldhúsi og baði. Tvö rúmgóð herbergi og tvær
bjartar og rúmgóðar stofur. VERÐ 49,0 MILLJ. FRÁBÆR STAÐSETNING
MEÐ MIKLU SJÁVARÚTSÝNI. LAUS STRAX.
SÖLUMAÐUR KJÖREIGNAR TEKUR Á MÓTI ÁHUGASÖMUM Í DAG
MILLI KL. 16 OG 17.
M
b
l 9
74
87
2
Bólstaðarhlíð 54, 105 Rvk
Opið hús í dag milli kl. 16 og 16.30
Fasteignakaup kynnir fallega 4ra
herbergja, 114 fm íbúð á 2. hæð
við Bólstaðarhlíð. Svalir í suðvestur.
Lýsing íbúðar: Komið er inn hol með
skápum og parketi á gólfi. Frá holi er
gengið inn í svefnherbergisgang með
tveimur svefnherbergjum með skáp-
um. Baðherbergi er flísalagt hólf í gólf
með sturtuklefa. Úr holi er gengið inn í þriðja svefnherbergið sem er með
skápum. Stofa er rúmgóð með eikarparketi á gólfi og útgengi út á suðvest-
ur svalir. Eldhús er rúmgott með eikarinnréttingu, flísum á milli skápa og
rúmgóðum borðkrók. Skápar eru fram á gangi. Eignin er góðu ásigkomu-
lagi og er íbúðin nýmáluð. Eignin er á góðum stað í Hlíðunum þar sem
stutt er í alla þjónustu og góðum skólum allt í kring. Íbúðin er laus við
kaupsamning. Verð 29,5 millj.
Nánari upplýsingar um eignina gefur sölufulltrúi Fasteignakaupa
Guðmundur Valtýsson í síma 865 3022.
Erna Valsdóttir lögg. fast.-, skipa- og fyrirtækjasali.
Sími 515 0500 www.fasteignakaup.is
Hér er um að ræða um 1.035,-
fm verslunar- og skrifstofu-
húsnæði í traustri leigu.
Í húsnæðinu eru reknar tvær
verslanir auk kaffiteríu.
Eignin gefur mikla möguleika.
Nánari upplýsingar gefur
Þorleifur St. Guðmundsson í
síma 8249094.
Skeifan - fjárfestingarkostur
Skeifan - fjárfestingarkostur