Morgunblaðið - 30.03.2008, Side 38
38 SUNNUDAGUR 30. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Finnbogi Hilmarsson,
Einar Guðmundsson og
Bogi Pétursson
löggiltir fasteignasalar
Opið mán.- fös. frá kl. 9-17
Sími
530 6500
Glæsilegt fullbúið frístundarhús 92,6
fm og geymsla 12.0 fm alls 104,6 fm. í
landi Tjarnar Bláskógarbyggð. Húsið er
fullbúið en án eldunartækja. Heitt vatn
er komið og tilbúið til tengingar. Stór
verönd er í kringum húsið, gert er ráð
fyrir heitum potti á veröndinni. Allar nánari uppl veitir Daniel á skrifstofu Heimilis.
KÖTLUÁS BLÁSKÓGARBYGG
SUMARHÚS – HEILSÁRSHÚS
Nýtt hús á góðum útsýnisstað við Út-
hlíð í Biskupstungum. Aðalhúsið og
gestahúsið mælast um 175 fm. Húsið
er á steyptum grunni og hitalagnir eru í
steyptri gólfplötu, bæði heitt og kalt
vatn og rafmagn er til staðar en á eftir
að tengja. Öll inntaksgjöld eru greidd.
Sumarhúsið er byggt úr 210 mm þykk-
um límtrésbjálkum, mjög gott einangr-
unargildi. Á veröndinni er aukahús/gestahús sem er hluti af eigninni. Í aukahúsinu
er gert ráð fyrir geymslu, sánu og svefnherbergi með baði. Í kringum sumarhúsið er
verönd, alls um 250 fm, gert er ráð fyrir heitum potti. Möguleg kaup í núverandi
ástandi eða algjörlega fullbúið án gólfefna.
DJÁKNAVEGUR Í ÚTHLÍÐ
Í einkasölu Heilsárshús í byggingu í Hraunborgum Grímsnesi. Húsið er 100 fm auk
8 fm gestahús og reistur verður 100 fm sólpallur í kring um húsið. Áætlað er að
húsið skilist fullbúið að utan, fokhelt, einangrað og plastað að innan. Þetta er ein-
ingabústaður fluttur inn frá Svíþjóð. Allt efni fylgir til að klára bústaðinn frá grinda-
efni til innréttinga skv. fyrirliggandi skilalýsingu á skrifstofu.
SKIPASUND GRÍMSNESI
ÖLL SKIPTI MÖGULEG
Nýr fullbúinn sumarbústaður 76,4 fm
með svefnlofti. Í húsinu eru auk svefn-
lofts 2. herbergi, eldhús, stofa og bað-
herbegi. þá fylgir uppsett 14 fm gesta-
hús með svefnherbergi og baði með
sturtu. Og annað hús sem er ca 10 fm
og hugsað sem geymsla. Í kringum
húsið er 82 fm verönd með heitum potti. Húsið stendur á 6049 fm kjarrivaxinni lóð
og er laust til afhendingar. Verðtilboð.
MÚLABYGGÐ BORGARFIRÐI
Nýtt 110 fm sumarhús á góðum útsýn-
isstað rétt ofan við Háskólann Bifröst.
Húsið stendur á stórri lóð og möguleg
kaup á lóðinni við hliðina. Mikið útsýni,
auðveldar samgöngur, þjónusta, versl-
un, laxveiði og nýr golfvöllur auka alla
tómstundamöguleika. Húsið selst í nú-
verandi ástandi, fullbúið að utan með
110 fm sólpalli og einangrað og plastað að innan. V. 22,0 m. Áhv 10,0 m.
BIRKIHRAUN VIÐ BIFRÖST
Gott mikið endurbætt einbýlishús á
einni hæð. Húsið stendur á stórri 800
fm lóð með möguleika til stækkunar
með viðbyggingu. og byggingu bíl-
skúrs. Við húsið er timburverönd til
suðurs og stór bakgarður og fallegt út-
sýni. Stutt út í náttúruna og í margar
gönguleiðir. Húsið hefur verið mikið endurbætt nýlega, svo sem nýjar hurðir og gólf-
efni, eldhúsinnrétting og ný tæki ásamt baðherbergi og hluti af pípulögn. Nýlegir
gluggar og gler í suðurhlið. Í húsinu eru tvö svefnherbergi, forstofa, þvottahús og
geymsla, baðherbergi, opið eldhús og stór stofa. V. 14,9 m. Áhv 8,7 m.
HÁBREKKA ÓLAFSVÍK
Lóðirnar eru frá 6500 fm að stærð. Það má byggja allt að 150 fm sumar - heilsárs-
hús og 25 fm gestahús. Heitt og kalt vatn verður skaffað af sveitarfélaginu og lagt
að lóðarmörkum.
LÓÐIR Í LANDI FELLS VIÐ
ARATUNGU BLÁSKÓGARBYGGÐ
Úthlíð 16
Glæsileg 7 herbergja – neðri sérhæð
Opið hús í dag frá kl. 14-16
Glæsileg 150 neðri sérhæð á
þessum eftirsótta stað í Hlíðun-
um auk sér geymslu í kjallara.
Hæðin skiptist í forstofu, stórt
hol, rúmgott eldhús, 4 herbergi,
bjarta stofu, borðstofu, sjón-
varpsherbergi og baðherbergi.
Suðursvalir út af einu herbergi.
Aukin lofthæð og franskir gluggar
í stofu. Garður nýhellulagður á
allri framhlið hússins ásamt annarri hliðinni. Góð eign sem vert er að
skoða. Laus fljótlega. Verð 49,9 millj.
Eignin verður til sýnis í dag, sunnudag, frá kl. 14-16.
Verið velkomin.
Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteignasali.
Guðmundur Th. Jónsson, lögg. fasteignasali.
Vel skipulögð 101 fm 4ra herb.
íbúð á 11. Hæð Íbúð 1104 auk
sér geymslu í kjallara. Íbúðin
skiptist í forstofu, eldhús, rúm-
góða stofu, 3 herbergi og baðher-
bergi. Útgangur á suðursvalir úr
stofu og hjónaherbergi. Sameigin-
legt þvottahús á efstu hæð. Frá-
bært útsýni. Laus strax. Verð
29,5 millj.
Eignin verður til sýnis
í dag, sunnudag,
frá kl. 13-14.
Sölumaður verður á
staðnum.
Verið velkomin.
FASTEIGNA-
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505.
OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is
Heimasíða: http://www.fastmark.is/.
Sólheimar 27
4ra herb. útsýnisíbúð á 11 hæð
Opið hús í dag frá kl. 13-14
Tjarnarmýri 13 – Seltj.nesi
Góð 2ja herb. íbúð
Opið hús í dag frá kl. 14-16
Falleg 59 fm 2ja herb. íbúð á 2.
hæð í nýlegu fjölbýlishúsi ásamt
sér geymslu á jarðhæð og stæði
í lokaðri bílageymslu. Björt stofa
með útgengi á suðursvalir, rúm-
gott herbergi með skápum, góð
borðaðstaða við eldhús og bað-
herbergi, flísalagt í gólf og veggi.
Sameiginlegt þvottaherbergi á
hæðinni. Stutt í alla þjónustu. Verð 22,5 millj.
Eignin verður til sýnis í dag, sunnudag, frá kl. 14-16.
Íbúð merkt 0202. Verið velkomin.
FANNBERG FASTEIGNASALA ehf.
ÞRÚÐVANGI 18 - 850 HELLU
Guðmundur Einarsson, lögg. fasteignasali
Jón Bergþór Hrafnsson, viðskiptafræðingur Sími 487 5028
LÓÐ Í RANGÁRÞINGI
Til sölu er lóð undir íbúðarhús í landi Selás í Rangárþingi ytra, stærð 30.021 fm. Lóðin
er staðsett við Landveg skammt frá Laugalandi í Holtum. Lóðin er á svæði sem er
deiliskipulagt fyrir íbúðarhúsabyggð. Heimilt er að reisa á henni íbúðarhús allt að 250
fm, bílskúr, allt að 60 fm og hesthús allt að 300 fm. Kominn er vegur, raflögn og kal-
davatnslögn að lóðarmörkum. Fallegt útsýni. Verð kr. 3.600.000.
Nánari upplýsingar og myndir á www.fannberg.is
SPANÓNEFNDIN
hefur komist að nið-
urstöðu og samkvæmt
henni telst það nú
staðreynd að brotið
var á drengjum sem
dvöldust að Breiðu-
vík. Og hvað svo? Eða
hvað halda menn? Að
allir þeir drengir sem
nú eru lifandi eða
liðnir hafi komist
klakklaust frá þessari
reynslu? Ég get bent
á eitt dæmi um hið
gagnstæða. Ég á bróður
sem ráfar um stræti Reykjavík-
urborgar í leit að húsnæði. Ég veit
að hann hefur aldrei borið sitt
barr eftir vistina á Breiðuvík.
Hann var beittur grófu líkamlegu
og andlegu ofbeldi þar. Í dag er
hann er í mismunandi ástandi.
Stundum er hann drukkinn, stund-
um edrú og stundum skítugur og
illa til reika eftir neyslutúra. Hann
hefur átt samastað í
gistiskýlinu við Þing-
holt. En þar eru
menn í misjöfnu
ástandi, svo auðveld-
lega fuðrar upp í
þræði ofsa og reiði í
mannlegum sam-
skiptum. Lalli lenti í
slíkri glímu og var
auðvitað vísað út. Ég
hef um nokkurn tima
gert tilraunir til að
tala við ráðamenn
borgarinnar í leit að
lausn á vanda bróður
míns. Mér hefur verið
lofað úrræðum sem ekki hafa stað-
ist. En ég gerði eina tilraun enn.
Þetta var miðvikudaginn 13. mars
sl. og ég man að ég hugsaði þegar
ég ók að heiman : – Já, það er sá
þrettandi, skyldi eitthvert óhapp
gerast í dag?
Og viti menn, það óhapp átti sér
stað í formi viðtals við Jórunni
Frímannsdóttur borgarfulltrúa!
Þegar við höfðum heilsast vinalega
bar ég upp erindi mitt.
Jú, hún kannaðist við mig og
vissi líka um vandamál bróður
míns.
– Já það er rétt hjá þér – sagði
hún að menn sæju það að Lárusi
hefði hrakað gífurlega núna síðast-
liðna mánuði. – Henni fannst það
mjög sorglegt – sagði hún – en þvi
miður hún gæti ekkert gert.
Ég var hálfgáttuð á þessum við-
brögðum hennar og hváði. Hún fór
aftur yfir þá möguleika sem eru í
stöðunni, að hennar mati: – Njáls-
gatan, nei, þar er fullt. Gist-
iskýlið? Já, alveg rétt hann er í
banni þar! Gámar, jú það væri
möguleiki. En vandinn er að þeir
eru ekki tilbúnir enn og enginn
veit hvenær þeir verða tilbúnir.
Auk þess get ég nú ekki getað lof-
að neinu um vist þar. Ég ræð
engu hvort eð er. Ég er bara póli-
tíkus.
Ég benti henni á að Lalli hefði
vistast í rúm fjögur ár að Breiðu-
vík og minnti hana á nefndarálit
Spanónefndarinnnar. Jú, hún
kannaðist við það. En virtist ekki
sjá nein tengsl þar á milli.
Mér er efst í huga að spyrja eft-
ir þetta viðtal:
Gerir þessi stjórnmálamaður sér
ekki grein fyrir orsökum og afleið-
ingum? Gerir hún sér ekki grein
fyrir að það eru ekki allir sem lifa
af vosbúð og erfiðan aðbúnað í
bernsku?
Jú, Jórunn benti réttilega á í
ofangreindu viðtali að það væri
erfitt að hjálpa mönnum sem vildu
ekki hjálpa sér sjálfir. En hér er
ekki spurningin um það. Hér er
um að ræða fársjúkan mann sem
kann ekki fótum sínum forráð og
getur ekki hjálpað sér sjálfur. Hér
er um að ræða einstakling sem
hefur dvalist lungann úr lífi sínu
inni á stofnunum. Fyrstu fjórtán
ár ævinnar var það fyrir tilstuðlan
barnaverndarnefndar Reykjavíkur.
Næstu 40 árin hefur hann dvalist í
fangelsi. Hver hafa afbrotin verið.
Jú, hnupl og eiturlyfjaneysla.
Hann hefur setið af sér alla sína
dóma. En hvenær ætla yfirvöld
Reykjavíkurborgar að greiða hon-
um þá skuld sem þau eiga honum
að gjalda? Sitja af sér dóminn sem
forverar þeirra eftirlétu þeim? Er
það ekki á skjön við allt réttlæti
að manni sem hefur verið með-
höndlaður á þennan hátt af yf-
irvöldum skuli ekki vera gjört eitt-
hvert fleti til að fleygja sér í?
Það er annað sem sló mig í
þessu viðtali. En það var þessi al-
gjöri skortur á virðingu fyrir og
skilningi gagnvart mannlegri
eymd og niðurlægingu. Það var
eins og að horfa á holdi klædda
auðvaldshyggjuna gráa fyrir járn-
um með yfirskrifitina: Þeir hæf-
ustu lifa af.
Ég vona innilega að viðbrögð og
viðhorf Jórunnar Frímannsdóttur
séu einsdæmi af hálfu stjórnmála-
manna og að borgaryfirvöld stuðli
að mannúð í framkvæmd í borg-
inni.
Úrræðaleysi borgaryfirvalda
við neyð heimilislausra
útigangsmanna
Rósa Ólöf Ólafíudóttir skrifar
um fund sinn með Jórunni Frí-
mannsdóttur um vanda bróður
hennar, Lárusar Svavarssonar,
sem er útigangsmaður
» Gerir hún sér ekki
grein fyrir að það
eru ekki allir sem lifa af
vosbúð og erfiðan að-
búnað í bernsku?
Höfundur er hjúkrunarfræðingur og
kennari
Rósa Ólöf
Ólafíudóttir