Morgunblaðið - 30.03.2008, Qupperneq 40
40 SUNNUDAGUR 30. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
SENDIHERRAR hafa það hlut-
verk að reka erindi þjóðar sinnar á
erlendri grund og þeir hlíta stefnu
þeirra ríkisstjórna sem eru við völd
hverju sinni. Í Morgunblaðinu birt-
ist nýlega grein eftir Shomrat sendi-
herra Ísraels þar sem
gerð var tilraun til að
réttlæta fjöldamorð
Ísraelshers á íbúum
Gaza-svæðisins og öðr-
um herteknum svæð-
um sem „varn-
araðgerðir“. Það er
ekki öfundsvert hlut-
skipti að hafa það að
atvinnu að réttlæta
stríðsglæpi enda bera
skrif sendiherrans
þess merki.
Frú Shomrat fer út í
fáránlegar ásakanir á
hendur íslenskum fjölmiðlum þar
sem öllu er snúið á hvolf. Hún ásak-
ar sjónvarpið og aðra fréttamiðla um
að segja ekki frá bænum Sderot, en
menn minnast þess að fáir staðir
hafa eins verið í sviðsljósinu og þessi
litli bær sem byggður var eftir her-
nám nærri Gaza-strönd.
Ekki síst þegar utanríkisráðherra
fór í sína ferð síðastliðið sumar til
Ísraels og Vesturbakkans. Þá var
ekki greint frá neinu eins rækilega
og heimsókn ráðherrans til Sderot,
sjónvarpið var með fleiri fréttir og
fréttaauka þaðan. Fréttamaður
sjónvarps, sem fylgdi ráðherranum,
greindi frá látlausum eldaflaugaá-
rásum á bæinn og sagði hundruð
manns hafa farist og þúsundir særst.
Eitthvað fór þetta úr böndunum, því
að hér var dregin upp mjög ýkt
mynd, þótt nógu slæmt sé fyrir
íbúana í Sderot að geta
átt von á heima-
tilbúinni Qassam-flaug,
einskonar fljúgandi
rörsprengju, hvenær
sem er. Sannleikurinn
var hins vegar sá að
það höfðu engin hundr-
uð manna farist heldur
um það bil einn á ári
undanfarinn áratug.
Að snúa sannleik-
anum á hvolf
Í fréttum sjónvarps-
ins var hins vegar ekki
greint frá bakgrunni andspyrnu-
hópsins sem skotið hafði Qassam-
flauginni og var frá Beit Hanoun,
þéttbýlum bæ sem orðið hefur fyrir
miskunnarlausum árásum Ísr-
aelshers þar sem heilu íbúðarhúsin
hafa verið sprengd í loft upp og
fjöldi barna og fullorðinna farist.
Sendiherrann sneri sannleikanum á
hvolf í sinni grein.
Þegar Ísraelsmaðurinn fórst í
Sderot miðvikudaginn 27. febrúar þá
var það fyrsta mannfallið af völdum
slíkra Qassam-flauga í þá níu mán-
uði sem liðnir voru frá því að um-
sátrið um Gaza hófst og alger inni-
lokun íbúanna varð að veruleika.
Samfara innilokuninni hafa allan
tímann átt sér stað eldflauga- og
sprengjuárásir úr lofti og af sjó, sem
og skriðdrekainnrásir. Fjöldi
óbreyttra íbúa, þar á meðal börn og
unglingar, hefur látist í þessum
morðárásum.
Árásarherinn sem ræðst þannig á
íbúðahverfi í þeim yfirlýsta tilgangi
að fella „vígamenn“ er að fremja
stríðsglæpi. Stjórnvöldin sem
ábyrgðina bera eru Ísraelsstjórn
sem samkvæmt Genfarsáttmálanum
og alþjóðalögum ber að tryggja ör-
yggi íbúana. Það er svo hið aumk-
unarverða hlutskipti Shomrat sendi-
herra og annarra slíkra að réttlæta
árásir Ísraelshers og kalla þær
„varnaraðgerðir“. Í vikunni frá því
Ísraelsmaðurinn fórst í Sderot féllu
127 manns í árásum Ísraelshers.
Sendiherrann finnur að því að
fjölmiðlar skuli hafa kallað þetta
hefndaraðgerðir en ekki varn-
araðgerðir. Ísraelsher kallaði árás-
irnar Aðgerðina Heitan vetur
(Operation Hot Winter), og sendi-
herrann hefur rétt fyrir sér að því
leyti, að hér var í sjálfu sér ekki um
að ræða viðbrögð við þessari einu
Qassam-eldflaug, því að slík hern-
aðaraðgerð á sér að sjálfsögðu lengri
undirbúning. Dauði Ísraelsmannsins
varð hins vegar átylla, ekki síst
gagnvart almenningsálitinu heima
fyrir, til að grípa til svo grimmilegra
aðgerða.
Að allir séu seldir undir sömu
sök
Ég er sammála sendiherranum
þegar hann segir það rangt og vill-
andi að lýsa ástandinu sem „víta-
hring“ og segja alla selda undir
sömu sök. Það hlýtur að vera rangt
að setja jafnaðarmerki á milli kúg-
ara og hins kúgaða, þegar annars
vegar er eitt mesta herveldi heims
og hins vegar þjóð sem er varn-
arlaus gagnvart slíku ofurveldi og
hefur búið við grimmúðlegt hernám
þess í meira en 40 ár.
Stefna Ísraelsstjórnar hefur frá
upphafi fyrst og fremst verið mótuð
af síonisma og þar er ekki gert ráð
fyrir Palestínu eða palestínskri þjóð.
Ef tilvist hennar er yfirleitt við-
urkennd, þá á hún að víkja fyrir
þeim sem Jahve gaf landið. Aðskiln-
aðarstefna byggð á trúarbrögðum
varð grundvöllur Gyðingaríkisins
Ísraels (The Jewish State of Israel)
eins og það var nefnt í upphafi fyrir
60 árum.
Þjóðin sem fyrir var í Palestínu,
kristnir og múslimar, mátti víkja og
jafnvel sjónarmið gyðinga, sem fyrir
voru og búið höfðu í landinu frá alda-
öðli, máttu sín lítils í hinu nýja ríki.
Meira en helmingur þjóðarinnar
hraktist á flótta og æ meir er þrengt
að þeim sem eftir urðu. Landránið
heldur áfram og stöðugt stækka
landtökubyggðirnar. Haldið er
áfram byggingu hins ólöglega að-
skilnaðarmúrs og gettó verða til.
Þjóðernishreinsun er í gangi á Vest-
urbakkanum og þjóðarmorð blasir
við á Gaza.
Gamalt orðtæki heyrist stundum
þegar rætt er um framferði Ísr-
aelsstjórnar: Sjaldan veldur einn þá
tveir deila. Þetta máltæki er ekki al-
gilt og á ekki alltaf við fremur en
mörg önnur. Eða er einhver sem vill
hafa það á orði, þegar minnst er út-
rýmingarstefnu nasista gegn gyð-
ingum? Eru báðir seldir undir sömu
sök? Nei, og það á heldur ekki við
þegar horft er upp á framferði Ísr-
aelshers og ríkisstjórnar Ísraels
gagnvart hinum innfæddu íbúum
Palestínu, bæði á Gaza-strönd og á
Vesturbakkanum. Það framferði
minnir orðið á útrýmingarstefnu,
þótt hún sé hægfara í samanburði
við hryllinginn í Evrópu á fjórða og
fimmta áratug síðustu aldar.
Að réttlæta stríðsglæpi
Sveinn Rúnar Hauksson gerir
athugasemdir við málflutning
sendiherra Ísraels í Morg-
unblaðsgrein
» Það er ekki öfunds-
vert hlutskipti að
hafa það að atvinnu að
réttlæta stríðsglæpi
enda bera skrif sendi-
herrans þess merki.
læknir
Höfundur er læknir og formaður Fé-
lagsins Íslands-Palestínu.
OPIÐ HÚS
VATNSSTÍGUR 9
Í dag sunnudaginn 30
mars milli kl 14-16 er
Margrét með opið hús
fyrir áhugasama sem
vilja koma og skoða
áhugaverða eign á frá-
bærum stað í eldra húsi
í 101 hverfinu. Um er að
ræða miðhæð og kjall-
ara í þessu fallega eldra
húsi. Gengið inn frá
Veghúsastíg.
EIGNIN ER LAUS TIL
AFHENDINGAR VIÐ
UNDIRRITUN KAUP-
SAMNINGS.
197 fm einbýlishús með 30 fm bílskúr eða samtals 227 fm. Húsið
er á tveimur hæðum, hæð og ris, mjög opið og bjart. Á neðri hæð
er forstofa, setustofa, borðstofa, arinstofa, eldhús, búr, þvottahús,
svefnherbergi og salerni með sturtu. Á efri hæð eru fjögur svefn-
herbergi, baðherbergi og sjónvarpshol. Góður garður, endurnýjuð
hellulögn að hluta til. Að utan er húsið klætt hvítum steini sem er
mjög fallegur og kallar ekki á neitt viðhald. Sérstæður bílskúr með
nýju epoxí gólfi. Gott hús í góðu standi.
Hamraborg 12, Kópavogi, sími 564 1500, fax 554 2030.
Jóhann Hálfdánarson, Vilhjálmur Einarsson, löggiltir fasteigna- og skipasalar.
☎564 1500
30 ára
EIGNABORG
Fasteignasala
Hæðarsel 12 Reykjavík
EKKI er endilega tekið út með
sældinni að búa í besta landi ver-
aldar. Að vera ung/ur í dag er hæg-
ara sagt en gert; vera í námi eða ný-
skriðin/n úr skóla, að koma sér upp
heimili og á leið út í lífið. Ísland er
nefnilega ekki aðeins best í heimi! –
það er líka dýrast í heimi!
Ungt fólk sem orðið er langþreytt
á að búa inni á foreldrum, hefur ný-
lokið námi, og á því ekki lengur rétt
á stúdentaíbúð, er illa sett. Íslenskur
húsnæðismarkaður er ekkert lamb
að leika sér við. Lífsins ómögulegt er
fyrir ungmenni að kaupa sitt fyrsta
heimili nema búa svo vel að eiga
sterka bakhjarla með fulla vasa af
gulli til að leggja þeim lið. Hin mæta
hindrun í hverjum vegi. Ekki er
hlaupið að því að kaupa íbúð nema
eiga í vasanum nokkrar millur fyrir
fyrstu útborgun, og þær eiga fáir
strax eftir útskrift.
Leigumarkaðurinn er ekki mikið
bjartari. Hann er blóðugur. Fyrir
fleiri tugi þúsunda má leigja kústa-
skáp í miðbænum. Ungmenni ráða
því ekki við að leigja íbúð í Reykja-
vík meðan safnað er upp í fyrstu út-
borgun íbúðar. Eftir leigu og nauð-
synleg útgjöld er ekkert eftir til að
leggja fyrir.
Og fleira kemur til.
Í Reykjavík eru vega-
lengdir langar, al-
menningssamgöngur
fátæklegar og ekki
gert ráð fyrir hjólandi
umferð. Bíll er því
nánast nauðsyn í ís-
lenskri veðráttu, sér í
lagi fyrir barnafólk.
Honum fylgja svo
bílalán, tryggingar,
bensínkostnaður og
annað viðhald.
Þrátt fyrir hreina
vatnið, ferska loftið og
ástvini sem á Íslandi bíða, hika Ís-
lendingar sem stundað hafa nám er-
lendis við að snúa aftur heim að
námi loknu þar sem hér er mun erf-
iðara en víða að koma undir sig fót-
unum eftir nám. Fólk flytur jafnvel
af landi brott án þess að hafa nám í
huga heldur beinlínis til að hefja
mannsæmandi líf á viðráðanlegu
verði. Staðreyndin er sú að unga
fólkið er að flýja land!
Stefnan er gjarnan tekin á hin
Norðurlöndin þar sem ungu fólki
bjóðast betri möguleikar á að hefja
lífið. Tökum frændur okkar Dani
sem dæmi. Þar er skólaganga frí þar
til háskólanámi lýkur svo nemar
safna ekki skuldum á námstímanum.
Hér fara skólagjöld hinsvegar óðum
hækkandi og vaxandi umræða er um
aukna einkavæðingu menntunar.
Þá er leiguhúsnæði ódýrara úti. Á
sambærilegum leiguíbúðum í miðbæ
Kaupmannahafnar og Reykjavík-
urborgar munar frá 50.000 krónum á
mánuði og upp úr. Úti er heilbrigð-
isþjónusta ókeypis og húsaleigu- og
barnabætur töluvert hærri en hér.
Matur og almennur heimilisrekstur
eru einnig hagstæðari í Danmörku.
Til að mynda kemur hjólið í stað bíls,
sem er talsvert ódýrara farartæki.
Þegar allt kemur til alls er talsvert
erfiðara að lifa á Íslandi en t.d. í
Danmörku.
Má Ísland við því að missa unga
fólkið með þann mannauð sem nýst
gæti íslensku atvinnulífi og þjóð-
félagi? Hvernig er hægt að gera Ís-
land að fýsilegri stað til að búa á?
Hvernig er hægt að hjálpa unga
fólkinu að fóta sig betur? Framtíð
landsins er í húfi!
Landsflótti unga fólksins
Unnur María Birgisdóttir og
Eygló Árnadóttir skrifa um erf-
iðleika ungs fólks við að koma
fótunum undir sig á Íslandi
» Staðreyndin er sú að
unga fólkið er að
flýja land!
Unnur María
Birgisdóttir
Höfundar eru nemar sem hyggja báð-
ir á landsflótta síðar á árinu
Eygló
Árnadóttir
MORGUNBLAÐIÐ er með í notkun
móttökukerfi fyrir aðsendar greinar.
Formið er að finna við opnun forsíðu
fréttavefjarins mbl.is vinstra megin
á skjánum undir Morgunblaðs-
hausnum þar sem stendur Senda inn
efni, eða neðarlega á forsíðu
fréttavefjarins mbl.is undir liðnum
Sendu inn efni. Ekki er lengur tekið
við greinum sem sendar eru í tölvu-
pósti.
Í fyrsta skipti sem formið er notað
þarf notandinn að skrá sig inn í kerf-
ið með kennitölu, nafni og netfangi,
sem fyllt er út í þar til gerða reiti.
Næst þegar kerfið er notað er nóg að
slá inn netfang og lykilorð og er þá
notandasvæðið virkt.
Ekki er hægt að senda inn lengri
grein en sem nemur þeirri hámarks-
lengd sem gefin er upp fyrir hvern
efnisþátt.
Þeir, sem hafa hug á að senda
blaðinu greinar í umræðuna eða
minningargreinar, eru vinsamlegast
beðnir að nota þetta kerfi. Nánari
upplýsingar gefur starfsfólk greina-
deildar.
Móttökukerfi
aðsendra greina
ókeypis
smáauglýsingar mbl.is