Morgunblaðið - 30.03.2008, Qupperneq 50
50 SUNNUDAGUR 30. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Lögga, læknir og lögfræðingur
Kippan
ÉG ER EKKI KOMINN HINGAÐ TIL AÐ
SLÁ RYKI Í AUGUN Á YKKUR OG BÚA
TIL EINHVERJA ÓTRÚVERÐUGA AFSÖKUN
FYRIR SKJÓLSTÆÐING MINN
ÉG ANDMÆLI!
ÞAÐ ER EINMITT
ÞAÐ SEM HANN
ER AÐ GERA
ANDMÆLI TEKIN
TIL GREINA
AF HVERJU SKILDIR ÞÚ
STIGANN ÞINN EFTIR
LIGGJANDI Í INNKEYRSLUNNI?
OG EF ÞÚ FJÁRFESTIR
Í SKÓGRÆKTINNI
OKKAR...
ÁTTU EFTIR AÐ ÁTTA
ÞIG Á ÞVÍ AÐ PENINGAR
VAXA Í ALVÖRUNNI
Á TRJÁNUM
ÞAÐ SEM
GERIST ÞEGAR
ÞÚ ERT EKKI
HEIMA
...ÉG HEF EKKI
HUGMYND! ÞAU
HAFA BARA ALLTAF
VERIÐ SVONA Á SKÝI
NÚMER NÍU
ÞAÐ SEM GERIST Í
MUNNINUM Á ÞÉR EF
ÞÚ BURSTAR EKKI Í
ÞÉR TENNURNAR
BLESSAÐUR,
GAMLI! HÆ HÆ
HVAÐ
SEGIRÐU?
SÆLIR
ÉG ER
GÓÐURGÓÐAN
DAG
dagbók|velvakandi
Ný spennistöð
við Lyklafell
Byggð og megin-raforkumannvirki
eiga vart saman innan um hvað ann-
að.
Mun að því koma fyrr en síðar að
vegna byggðaþróunar verði spenni-
stöðin og háspennulínur við Geitháls
að víkja fyrir ákjósanlegri landnýt-
ingu á þeim slóðum?
Er nú orðið tímabært að finna
nýjan framtíðarstað fyrir nýja meg-
inspennustöð sem væri hæfilega
langt frá borg og byggð?
Staðsetning upp við Lyklafell ætti
að koma til greina og mundi duga
um langa framtíð.
Kristján
Ómálefnaleg umræða
Undirrituð var að leita í greinasafn-
inu á mbl.is undir leitarorðinu „Gísli
Júlíusson“. Kom þá upp pistill í Vel-
vakanda eftir Gest Gunnarsson frá
1. nóvember 2004. Pistillinn virðist
vera skrifaður sem viðbrögð við
bréfi til blaðsins frá föður mínum,
Gísla Júlíussyni heitnum verkfræð-
ingi. Bréfið fjallar um strætisvagna
sem ganga fyrir rafgeymum og var
birt 10. september 2004. Af ein-
hverjum ástæðum telur Gestur
Gunnarsson sig knúinn til að blanda
málefnum misþroska fólks og fólks
með áfengisvanda inn í þessa um-
ræðu. Undirrituð gagnrýnir hér með
Gest harðlega fyrir að blanda saman
umræðu um þessi ólíku málefni. Úr
því verður einungis hrærigrautur
sem leysir engan vanda.
Þuríður Gísladóttir líffræðingur.
Gamlar ljósmyndir
ÉG er með gamlar ljósmyndir og
langar að vita hvort einhver þekkir
fólkið sem er á þeim. Ég er með
fleiri myndir sem vantar nöfn á. Þeir
sem hafa vitneskju um það, endilega
hringið í mig, síminn minn er: 865-
1323 og netfang: eyrbekk@media.is
Jón
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og
13–15 | velvakandi@mbl.is
GRINDAVÍK er einn öflugasti útgerðarbær landsins með fjölda báta og
togara. Við Grindavíkurhöfn liggja bæði gamlir og nýir bátar sem vita
hvað er bak við ystu sjónarrönd.
Nýtt og gamalt við Grindavíkurhöfn
FRÉTTIR
HRINGSKONUR hafa fært
kvennasviði Landspítala að gjöf þrjú
endurlífgunarborð fyrir fæðingar-
deildina og Siemens-sónartæki fyrir
móttökudeild kvenna. Þessar gjafir
koma starfseminni að afar góðu
gagni sem starfsfólkið er mjög þakk-
látt fyrir. Endurlífgunarborðin, sem
sett eru inn á fæðingarstofur, gera
starfsfólki, læknum og ljósmæðrum
kleift að annast börn sem þurfa sér-
stakt eftirlit eða hjálp eftir fæðingu
með nýjustu og bestu tækni.
Með sónartækinu er unnt að
greina kvilla hjá konum og oft hægt
að komast hjá aðgerð. Hringurinn
hefur áður fært kvennasviði góðar
gjafir og má einkum nefna sónartæki
á fósturgreiningardeildina sem gjör-
breyttu starfseminni á þeirri deild.
Góð gjöf Hringskonur og starfsfólk Landspítala þegar endurlífg-
unarborðin og sónartækið voru afhent.
Gáfu Landspítala tæki