Morgunblaðið - 30.03.2008, Page 58

Morgunblaðið - 30.03.2008, Page 58
58 SUNNUDAGUR 30. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ Gísli Jónsson, dr.med., sérfræðingur í hjartalækningum og lyflækningum hefur opnað læknastofu í húsi Lækningar að Lágmúla 5, Reykjavík. Tímapantanir alla virka daga milli kl. 9-16 í síma 590 9200. Netfang: gisli.jonsson@laekning.is www. laekning.is NÁMSAÐSTOÐ á lokasprett inum fyrir vorpróf in Innritun í síma 557 9233 frá kl. 17-19 virka daga • Álfabakka 12 Nemendaþjónustan sf. www.namsadstod.is HÉR ER á ferðinni þokkaleg kvik- mynd um tvo lánlausa írska leigu- morðingja. Þeir þurfa að dvelja í tvær vikur í Belgíu eftir misheppn- að verkefni. Ken (Brendan Glee- son), sá eldri, setur sig í túr- istastellingar og nýtur fegurðar Brugge. Ray (Colin Farrell), sá yngri, vill bara fá sér í glas og drekkja sorgum sínum. Leikskáldið Martin McDonagh skrifar og leikstýrir myndinni. Hann hefur gaman af því að láta persónurnar blaðra alveg enda- laust. Stundum er það fyndið. Oft ekki. Hann drepur einnig á veiga- meiri mál inni á milli. Heiður og prinsipp. Himnaríki og helvíti. Verst er að myndin gliðnar í sund- ur undan ofgnótt hugmynda, og Colin Farrell er ekki rétti leikarinn til að tjá djúpa sektarkennd og þrá eftir syndaaflausn. Þá er gamli Gleeson betri. En honum, og meira að segja Ralph Fiennes með lág- klassahreim, tekst ekki að bjarga myndinni, jafnvel þótt Fiennes líti enn þá út eins og Voldemort þar sem hann eltist við Farrell um stræti borgarinnar með byssuna á lofti. Það þyrfti meiri töfra hér til að gera myndina grípandi. Kannski McDonagh hefði átt að láta ein- hvern annan leikstýra. Glæponar í helvíti Byssubrandur Colin Farrell leikur lánlausan leigumorðingja í kvikmynd Martins McDonagh sem líður fyrir ofgnótt hugmynda, að mati gagnrýnanda. Anna Sveinbjarnardóttir KVIKMYND Regnboginn Leikstjóri: Martin McDonagh. Leikarar: Brendan Gleeson, Colin Farrell, Ralph Fi- ennes. Bretland/Belgía. 107 mín. In Bruges bbmnn Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.