Morgunblaðið - 30.03.2008, Síða 60

Morgunblaðið - 30.03.2008, Síða 60
60 SUNNUDAGUR 30. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ um hana, enda hefur Badu umfaðm- að þær tónstoðir rækilega, og er einn helsti boðberi þess sem hefur verið kallað nýsálartónlist. Þá hefur hún höfðað sterkt til afrískt ættaðra Bandaríkjamanna í ræðu sem og riti og þá sérstaklega í gegnum klæða- burð. Badu á þannig vildarmenn í hverju horni og nokkur synd að framleiðslan á tónlist hefur ekki ver- ið meiri en raun ber vitni. Austur, vestur og suður Badu er með sanni „to cool for school“ eins og segir í Ameríkunni. Manneskjan er svo ofursvöl að manni er stundum til efs að hún sé mennsk. Fötin og tónlistin, allt er þetta eitthvað svo „rétt“ og borg eins og Dallas er orðin svöl í huga þess sem skrifar – bara af því að Badu býr þar nú um stundir en þar fæddist hún árið 1971. Annars hefur hún aðallega dvalið í New York þar sem hún haslaði sér upprunalega Erykah Badu hefur meitlaðtil algerlega einstakanferil á þeim rúmum tíuárum sem hún hefur starfað en um leið hefur hún náð að höfða til margra og ólíkra hópa. Rokkararnir og indíliðið fíla hana, en á fyrstu plötunni, Baduizm, mátti heyra tilraunakennda tóna, hálfgert tripphopp eiginlega. Hún nýtur virð- ingar hjá hipphoppurunum, enda sú list einn af meginþráðunum í sköpun Badu og hefur hún reynst liðsmaður góður í að efla hana og kynna. Gaml- ir blús-, djass- og sálartónlist- arhundar flaðra meira að segja upp völl, vann t.a.m. með Philadelphia- sveitinni Roots og öðrum aðfluttum rappara, Common, en þau áttu um tíma í sambandi (Common á rætur í Chicago). Roots, Common og Badu tilheyra þá laustengdum hópi lista- manna sem kalla sig Soulquarians (D‘Angelo, Q-Tip, Talib Kweli og Mos Def tilheyra einnig þessum hópi). Badu tengist þó líka rappsenu Suðurríkjanna, Dirty South-stefnunni svoköll- uðu (Outkast, Goodie Mob) og á hún barn með Andre 3000 úr Outkast, strák sem heitir Seven. Mikið harmaljóð var kveðið um samband Andre og Badu með lag- inu „Green Eyes“ sem er að finna á annarri plötu Badu, Mama‘s Gun (því var svo svarað í Out- kast-laginu „Ms. Jack- son“). Badu býr í dag með The D.O.C., rapp- ara sem er fæddur í Dallas en ferill hans fór í gang á Vesturströnd- inni, og var hann m.a. meðlimur í N.W.A um hríð. Þau eiga saman dótturina Puma. Þræðir hinnar hógværu Badu liggja því víða um amerískar rappgrundir, eru í austri, vestri og suðri. Þríleikur Áðurnefnd Baduizm sló óforvar- andis í gegn árið 1997 og vakti mikla athygli á Badu. Platan hefur nú náð þrefaldri platínusölu og Badu varð óðar kyndilberi nýju sálartónlist- arinnar eða „nu-soul“. Tónleikaplata kom út sama ár, en Badu var ófrísk að Seven þegar upptökur stóðu yfir og þykir söngur Badu einstaklega nakinn og tilfinningaþrunginn. Næsta hljóðversplata var svo Ma- ma‘s Gun, sem býr yfir nokkuð líf- rænni hljóm en forverinn. Við tóku svo skáldlegar þrengingar, Badu var andlaus en hjó á hnútinn með Worldwide Underground (2003) sem var skilgreind sem stuttskífa þrátt fyrir að vera ellefu laga. Ástæðan er aðallega sú að platan var tekin upp á tiltölulega miklu spani og þjónaði kannski meira þeim tilgangi að losa um stíflu en að standa sem „alvöru“ verk. Einhvern veginn svona er hin opinbera skýring a.m.k. Fréttir af New Amerykah plöt- unum fóru svo að berast í fyrra og hafði fyrsta platan vinnuheitið Kab- bah til að byrja með. New Amery- kah mun verða þríleikur og er næsti skammtur væntanlegur í júlí á þessu ári. Dómar fyrir fyrstu plötuna eru byrjaðir að trítla inn og eru flestir yfirmáta jákvæðir; og eru menn á því að hér sé komið besta, en um leið súrasta verk Badu til þessa. Drottningin snýr aftur arnart@mbl.is Langt er um liðið síðan eiginleg breiðskífa með Erykuh Badu leit dagsins ljós eða full átta ár. Þögnin var rofin í vikunni með breiðskífunni New Amerykah Part One (4th World War). TÓNLIST Á SUNNUDEGI Arnar Eggert Thoroddsen Rætur Erykah Badu hefur komið víða við.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.