Morgunblaðið - 17.04.2008, Síða 18
18 FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
„ÞETTA er langþráður samningur
enda hefur hann verið þrjú ár í und-
irbúningi,“ segir Eyþór Guðjónsson,
framkvæmdastjóri Fjöreflis ehf.,
sem í gær undirritaði samning við
Reykjavíkurborg um afnot af land-
spildu í Gufunesi til að koma upp af-
þreyingar- og þjónustumiðstöð.
„Markmið þessa samnings er að
lyfta afþreyingarmöguleikum lands-
manna upp á annað og hærra plan.
Hugmyndin er sú að skapa þarna af-
þreyingargarð þar sem allir aldurs-
hópar geta fundið eitthvað við sitt
hæfi,“ segir Eyþór og bendir á að
Fjörefli ehf. hyggist starfrækja ým-
iss konar afþreyingarstarfsemi í
Gufunesinu svo sem hópefli, heilsu-
rækt og skemmtun fyrir fyrirtæki,
félagasamtök, skóla og einstaklinga
á öllum aldri jafnt utan sem innan-
dyra. „Þarna verða strandblaks-
vellir, hjólabrettabrautir, þrauta-
brautir, fótboltavellir, frisbí- og
klifurvellir. Einnig er fyrirhuguð æf-
ingaaðstaða fyrir golfáhugamenn
bæði innan- sem utandyra,“ segir
Eyþór og leggur mikla áherslu á að
garðurinn eigi að nýtast jafnt borg-
arbúum, landsbyggðinni og erlend-
um ferðamönnum sem leið eigi um
landið. „Garðurinn gerir Reykjavík
þannig t.d. skemmtilegri heim að
sækja.“
Opnaður strax í sumar
Að sögn Eyþórs verður á næstu
vikum farið í það af krafti að hanna
nýja afþreyingargarðinn og er stefnt
að því að opna hluta hans strax í
sumar. Aðspurður segir hann stefnt
að því að garðurinn geti, þegar hann
verði fullbúinn, tekið á móti tugum
þúsunda gesta á ári.
Samkvæmt upplýsingum frá
Reykjavíkurborg hefur íþrótta- og
tómstundaráð Reykjavíkur rekið frí-
stundamiðstöðina Gufunesbæ frá
árinu 1998. Vettvangur starfsemi
Gufunesbæjar er frítími allra Graf-
arvogsbúa, en megináherslan er
lögð á barna- og unglingastarf.
Áhersla er lögð á að bjóða upp á fjöl-
breytt og áhugavert frístundastarf
en Gufunesbær hefur m.a. umsjón
með öllum sjö félagsmiðstöðvunum í
Grafarvogi og átta frístundaheim-
ilum við alla grunnskóla í Graf-
arvogi.
Að mati Eyþórs eru aðstæður í
Gufunesi mjög góðar til iðkunar úti-
vistar. Á svæðinu er m.a. gamli
bóndabærinn, hlaðan og súrheys-
turninn sem nýttur er til veggjaklif-
urs og auk þess er golfvöllur á tún-
unum við Gufunesbæinn.
Samkvæmt upplýsingum frá
Reykjavíkurborg telja forsvars-
menn þar að með samningnum við
Fjörefli muni útivistarstarfsemi á
svæðinu eflast til muna og fjöl-
breyttari valkostir verða í boði fyrir
alla aldurshópa.
Samningurinn sem undirritaður
var í gær er tímabundinn og gildir í
15 ár. Upphaf afnotatíma er 1. jan-
úar 2008 og lok er 31. desember
2023. Við lok leigutíma framlengist
samningurinn sjálfkrafa í tíu ár í
senn nema landeigandi eða afnota-
hafi tilkynni um breytingu þar á.
Segir garðinn gera Reykjavík
skemmtilegri heim að sækja
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Skemmtigarður Undirritaður hefur verið samningur um afnot af landspildu í Gufunesi. Ólafur F. Magnússon
borgarstjóri stendur á milli hjónanna Eyþórs Guðjónssonar og Ingibjargar Guðmundsdóttur, eigenda Fjöreflis.
ÖKUMENN mega ekki vera á
nagladekkjum eftir 15. apríl sam-
kvæmt reglugerð en lögreglan á
höfuðborgarsvæðinu mun þó gefa
fólki svigrúm til að skipta yfir á
sumardekk fram að næstu mán-
aðamótum.
Heimilt er að vera á nagladekkj-
um eftir 15. apríl ef snjór og hálka
eru á vegum og mun lögregla taka
mið af því.
Hins vegar beinir hún þeim til-
mælum til ökumanna innan höf-
uðborgarsvæðisins að taka nagla-
dekkin undan ef aksturinn er
bundinn við höfuðborgarsvæðið
fram að mánaðamótum.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Skipti Ökumenn þurfa að huga að
dekkjaskiptum á næstunni.
Nagla-
dekkjatím-
inn liðinn
AKUREYRI
Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur
og Skapta Hallgrímsson
„EFTIR því sem ég kemst næst
er þetta rétt frétt,“ segir Brynj-
ólfur Sigurjónsson, formaður Fé-
lags frímerkjasafnara, um sjald-
gæft íslenskt frímerki sem selja á
á uppboði í New York 16. maí.
Fram kom á Fréttavef Morg-
unblaðsins, mbl.is, á mánudag, að
um væri að ræða yfirstimplað
fimm aura frímerki frá árinu 1897,
en frímerkið er sagt vera eina
heila merkið úr þessari útgáfu
sem vitað er um.
Maður í Eyjafirði áttaði sig á
því, þegar hann sá fréttina á
mbl.is, að hann ætti líklega sams
konar frímerki eða mjög svipað.
Var reyndar búinn að gleyma frí-
merkjunum en hyggst nú láta
verðmeta þau.
Einungis eitt merki þekkt
Brynjólfur segir að á svo-
nefndum Facit-lista, sem er
sænskur verðlisti yfir frímerki,
komi fram að einungis sé þekkt
eitt frímerki frá árinu 1897 með
stórum yfirprentuðum þrem. Líka
voru gerð frímerki með minni yf-
irprentun.
Brynjólfur segir að yfirprent-
unin hafi verið gerð vegna þess að
þriggja aura upplagið af frímerkj-
unum hafi klárast árið 1897.
„Menn brugðu þá á það ráð að yf-
irstimpla næsta gildi fyrir ofan
með því að letra „þrír“ á merkin.“
Þetta hafi verið fyrsta yfirstimpl-
unin á íslensku frímerki.
Verðbréfasalinn Bill Gross ætl-
ar að selja frímerkin sem verða
boðin upp í maí. Andvirði frí-
merkjanna rennur til góðgerð-
arstofnunar, tengdrar Columbia-
háskóla í New York sem hagfræð-
ingurinn Jefrrey Sachs stýrir.
Brynjólfur segist gera ráð fyrir
að gott verð geti fengist fyrir ís-
lenska merkið. „Ég yrði ekki hissa
á því að sjá það fara á um það bil
milljón íslenskra króna,“ segir
hann. Upplagið af merkjum sem
voru yfirprentuð hafi verið afar
lítið.
Kannaðist við merkið
Fréttin um frímerkjauppboðið á
mbl.is vakti athygli Einars Bene-
diktssonar bílstjóra sem búsettur
er í Eyjafirði. Einar hefur um ára-
bil átt gömul frímerki, sem líklega
eru úr fórum annars hvors afa
hans, en hann á einnig frímerki
sem hann fann fyrir algjöra til-
viljun í skjalaskáp sem hann
keypti gamlan fyrir 20 árum en
hefur ekki hugmynd um hvaðan er
kominn. Þar var t.d. frímerkið
sem hann telur svipað því sem fer
á uppboð vestanhafs.
„Afi minn, Einar Árnason, var
fjármálaráðherra á fyrri hluta síð-
ustu aldar. Hinn afi minn var séra
Gunnar Benediktsson og þetta er
áreiðanlega komið frá öðrum hvor-
um þeirra,“ segir Einar um þann
hluta frímerkjasafnsins sem hann
hefur átt lengur. Einari fannst
hann kannast við merkið á mbl.is
og tók sig til og leitaði að merkj-
unum sem hann fann í skápnum
góða um árið. Eitt merkjanna
reyndist samskonar því sem hann
sá á myndinni á mbl.is en það er
þó ekki yfirstimplað.
Hann segir um að ræða fimm
aura merki, en Einar á einnig
þriggja aura merki. Hann hyggst
nú láta skoða frímerkin og fá úr
því skorið hversu verðmæt þau
kunni að reynast.
Sjálfur er Einar enginn sér-
stakur áhugamaður um frímerki.
„Ekki nema áhuginn fari að
kvikna núna,“ segir hann hlæj-
andi.
Það var fyrir tveimur áratugum
sem Einar keypti umræddan skáp
í verslun á Akureyri sem seldi ým-
iskonar notaðan varning. „Þetta er
níðþungur skjalaskápur úr járni.
Greinilega gamall og leit satt að
segja ekkert sérlega vel út! En ég
keypti hann til þess að geyma eitt-
hvert dót í.“
Fann hátt í 200 frímerki
Skápurinn er opnaður þannig að
hurðunum er rennt út. Einar
missti einhverju sinni gögn úr
einni hillunni, náði sér í vasaljós
til þess að finna þau aftur og sá
þá glitta í eitt frímerki í skápnum.
„Ég náði mér í flísatöng til að ná í
það og endaði með því að plokka á
milli 150 og 200 frímerki úr
skápnum! Þau lágu í lítilli rauf
inni á milli sleðanna í skápnum.“
Einar keypti á sínum tíma bók
undir frímerkin sem hann fann.
„Mér fannst þetta svo sem ekkert
voðalega spennandi fyrst en vissu-
lega dálítið sérstakt. Ég var búinn
að steingleyma þessum frímerkj-
um en mundi allt í einu eftir þeim
þegar ég sá fréttina um frímerkið
sem á að fara á uppboðið,“ sagði
Einar í gær.
Gamalt frímerki á eina milljón?
Sjaldgæft „yfirstimplað“ frímerki frá 1897 gæti selst á eina milljón króna á uppboði í New York í
næsta mánuði Maður í Eyjafirði fann svipað frímerki fyrir tilviljun í gömlum skáp fyrir 20 árum
Verðmæt? Frímerkin sem Einar
fann í skjalaskápnum góða, sem
hann keypti notaðan á sínum tíma.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Safnið Einar Benediktsson í Eyjafirði með frímerkjabókina sem hann
keypti á sínum tíma þegar hann fann gömlu frímerkin í skjalaskápnum.