Morgunblaðið - 17.04.2008, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 2008 19
AUSTURLAND
Egilsstaðir | Á morgun hefst í Laug-
ardalshöllinni í Reykjavík Íslands-
mót iðngreina. Um 80 keppendur af
öllu landinu taka þátt og keppt verð-
ur í 11 iðngreinum.
Meðal keppenda í grafískri miðlun
er Grindvíkingurinn Tinna Ásgeirs-
dóttir, 22 ára gamall nemi í grafískri
miðlun hjá Héraðsprenti á Egils-
stöðum. Hún segir að hringt hafi
verið frá Iðunni fræðslusetri og sér
boðin þátttaka.
„Við erum fjögur sem keppum í
þessari grein, mætum á staðinn í
fyrramálið ásamt ljósmyndurum og
dregið verður um hverjir raðast með
hvaða ljósmyndara,“ segir Tinna.
„Síðan eigum við að leysa eitthvert
tiltekið verkefni sem fyrir okkur
verður lagt. Það gæti t.d. verið að
setja upp plakat, eða eitthvað í
tengslum við netið. Mér finnst þetta
bara mjög spennandi og gaman að fá
að taka þátt.“
Tinna segist aðspurð hafa á til-
finningunni að iðnmenntun sé af
mörgum enn sett skör lægra en
menntun til stúdentsprófs og finnst
það mikil firra. Iðnnám gefi mjög
víðtæka möguleika og öll menntun
sé af hinu góða.
Framtíðin er óhönnuð enn
Tinna lærði grafíska miðlun í tvö
ár í Iðnskólanum í Reykjavík og hef-
ur verið á samningi hjá Héraðs-
prenti í tæpt ár. Hún tekur sveins-
próf í maí nk. Að því búnu ætlar hún
að starfa hjá Héraðsprenti í ár til
viðbótar, þar sem hún fæst við fjöl-
breytt verkefni. Hún segist ekki vita
hvort hún læri meira í sinni iðn eða
skipti yfir í eitthvað allt annað.
Framtíðin sé alveg óráðin.
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Brött Tinna Ásgeirsdóttir, prentsveinn hjá Héraðsprenti á Egilsstöðum,
keppir á Íslandsmóti iðngreina 2008 sem verður í Reykjavík um helgina.
Tekur grafískri
áskorun með gleði
Seyðisfjörður | Barist var til síð-
asta blóðdropa í síðustu og sjöttu
umferð Íslandsmeistaramótsins
2008 í snjókrossi á Fjarðarheiði
um liðna helgi. Fór keppnin fram
við skíðasvæðið í Stafdal og voru
þeir bræður Steinþór og Reynir
Hrafn Stefánssynir frá Egils-
stöðum búnir að undirbúa stór-
glæsilega og erfiða braut, m.a.
með liðsinni tveggja snjótroðara.
Það rættist betur úr veðrinu en á
horfðist í byrjun og var keppt í
fimm flokkum. Talsverður fjöldi
gesta fylgdist með sleðunum urra
í brautinni og stundum gnast í
tönnum þegar tæpt stóð.
Steinþór hreppti 2. sætið í
Meistaraflokki og Reynir Hrafn 3.
sætið. Íslandsmeistari í flokknum
er Jónas Stefánsson.
Íslandsmeistari í kvennaflokki
er Vilborg Daníelsdóttir, í ung-
lingaflokki Bjarki Sigurðsson, í
flokki 35 ára og eldri Gunnar Há-
konarson og í sport-flokki Baldvin
Þór Gunnarsson.
Riðlarnir í snjókrossinu hafa í
vetur farið fram í Reykjavík, við
Mývatn, á Ólafsfirði, Akureyri,
Húsavík og nú síðast ofan Seyð-
isfjarðar.
Íslandsmeistarar
á Fjarðarheiði
Kraftur Hörkukeppni vetursins í snjókrossi var til lykta leidd á Fjarð-
arheiði um síðustu helgi. Sex mót hafa verið haldin frá því í janúar sl.
Steinþór og Reynir Hrafn frá Egils-
stöðum í 2. og 3. sæti í snjókrossinu
Reyðarfjörður |
Unnið er að því að
fjarlægja sements-
geyma sem verið
hafa áberandi í
bæjarmynd Reyð-
arfjarðar und-
anfarin ár. Þeir
voru settir upp
tímabundið í tengslum við bygg-
ingu álversins sem nú er lokið.
Á þessu svæði eru fyrirhugaðar
miklar breytingar á næstu árum,
ef hugmyndir sem lagðar eru
fram í drögum að aðalskipulagi
Fjarðabyggðar ganga eftir. Í stað
iðnaðarsvæða er nú gert ráð fyrir
miðbæjarsvæði. Aðeins utar, þar
sem nú er fjöldi olíugeyma, er
gert ráð fyrir íbúðabyggð, en at-
vinnustarfsemi verður beint ann-
að. Sementsturnarnir rúmuðu um
átta þúsund tonn af sementi og
samtals fóru um 250 þúsund tonn
um sementsbirgðastöðina. Turn-
arnir verða nú fluttir til Kal-
iningrad í Rússlandi.
Miðbær í stað
sementsturna
Egilsstaðir | 157 hreindýra-
veiðileyfum hefur verið endur-
úthlutað, en það eru leyfi sem ekki
var greitt staðfestingargjald af til
Veiðistjórnunarsviðs fyrir 1. apríl
sl. Um er að ræða 63 leyfi á tarfa og
94 á kýr. Endurúthlutað er til
þeirra sem lægstar tölur hafa í bið-
röð umsækjenda sem ekki fengu
leyfi í útdrætti. Verða þeir að stað-
festa hvort þeir taka leyfin í önd-
verðum maí. Veiðitímabilið hefst 1.
ágúst og stendur til 15. september.
Kvótinn er nú 1.333 hreindýr.
Veiðileyfum
endurúthlutað
LANDIÐ
Eftir Líneyju Sigurðardóttur
Þórshöfn | Ærin Silfurlín frá Syðri-
Brekkum kom í hús um helgina
ásamt tveimur lagðprúðum dætrum
sínum eftir veturlanga útigöngu.
Þær komu ekki fram í göngum sl.
haust en eigendurnir héldu þó í
vonina því seigla er í sauðfénu á
Langanesi.
Um helgina voru menn á ferð úti
á Langanesi og urðu varir við kind-
ur rétt við eyðibýlið Læknesstaði
og létu bændur vita. Þarna reyndist
vera kominn kostagripurinn Silf-
urlín, átta vetra ær sem alltaf hefur
verið þrílembd og hafði hennar ver-
ið sárt saknað. Henni hefur jafnan
verið sleppt að vori með tvö lömb
en það þriðja vanið undir aðra móð-
ur. Lömbin voru vel fram gengin,
spikfeit í góðum haustholdum,
sagði Úlfar Þórðarson, bóndi á
Syðri-Brekkum. Líklegt er að þau
hafi gengið undir móður sinni fram
undir áramót því hún var heldur
rýrari, þó alls ekkert illa á sig kom-
in en nokkuð byrjuð að ganga úr
reyfinu. Snjólétt er oftast útfrá og
greinilega er kjarngóður gróðurinn
milli steinanna á Langanesi.
Þetta vor mun ærin Silfurlín ekki
bæta þremur lömbum í búið eins og
áður, né heldur gimbrarnar henn-
ar, því enginn hrútur hefur haldið
sig á þeirra slóðum í vetur.
Sprækar eftir útigöngu
Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir
Borgarfjörður | Tekin hefur verið
skóflustunga að nýjum leikskóla á
Hvanneyri. Leikskólinn verður við
Arnarflöt 1 á Hvanneyri og verður
587 m² en lóð skólans er 5.894 m².
Lægsta tilboð var frá Nýverk
ehf. í Borgarnesi. Þann 28. mars
sl. undirrituðu Páll S. Brynjarsson
sveitarstjóri og Ólafur Axelsson
hjá Nýverki undir verksamning
verksins en hann hljóðar upp á
180.043.355 kr. Áætluð verklok
eru í desember nk.
Tvö börn úr leikskólanum Anda-
bæ á Hvanneyri fengu að taka
skóflustunguna, það voru þau
Vignir Þór Kristjánsson og Ásdís
Lilja Arnardóttir en þau verða
bæði sex ára á þessu ári og koma
því ekki til með að nota nýja leik-
skólann því grunnskólinn bíður
þeirra í haust. Eftir að fyrsta
skóflustungan var afstaðin komu
öll börn úr leikskólanum Andabæ
og tóku skóflustungu með eigin
skóflu og að endingu reyndi Valdís
Magnúsdóttir leikskólastjóri á
tækjahæfileika sína með því að
taka skóflufylli af jarðvegi með
gröfunni.
Nýr leikskóli áHvanneyri
Morgunblaðið/Davíð Pétursson
BÆJARSTJÓRI Ölfuss, Ólafur Áki
Ragnarsson, segir Lýsi hf. fara með
rangt mál í fréttatilkynningu sinni.
Sú tilkynning var send út vegna und-
irskriftalista íbúa í Ölfusi sem beint
var gegn starfsemi Lýsis í Þorláks-
höfn. Bæjarstjórinn hefur vegna
þessa sent frá sér eftirfarandi yfirlýs-
ingu:
„Lýsi hf. hefur sent frá sér frétta-
tilkynningu vegna starfsemi fyrir-
tækisins í Þorlákshöfn. Í fréttatil-
kynningunni eru augljósar
rangfærslur sem Sveitarfélagið Ölfus
telur sig knúið til að svara.
Um nokkurra ára skeið hefur Lýsi
hf. starfrækt hausaþurrkun að Unu-
bakka 26-28 í Þorlákshöfn með starfs-
leyfi frá Heilbrigðiseftirliti Suður-
lands. Starfsleyfi þessi hafa verið háð
ákveðnum skilyrðum. Skilyrði þessi
hefur fyrirtækið ekki uppfyllt en
þrátt fyrir það hefur Heilbrigðiseft-
irlit Suðurlands ítrekað endurnýjað
starfsleyfi Lýsis hf. þrátt fyrir at-
hugasemdir frá íbúum sveitarfé-
lagsins og bæjaryfirvöldum í Ölfusi.
Árið 2006 auglýsti Heilbrigðiseft-
irlit Suðurlands starfsleyfi Lýsis hf.
með ákveðnum skilyrðum til 18 mán-
aða. Í skilyrðum þessum er m.a. kraf-
ist hreinsunarbúnaðar til að fyrir-
byggja lyktarmengun og mengun í
fráveituvatni.
Lýsi hf. gerði athugasemdir við
auglýsingu á starfsleyfinu og í fram-
haldi af því gaf Heilbrigðiseftirlit
Suðurlands út starfsleyfi til 48 mán-
aða. Sveitarfélagið kærði útgáfu leyf-
isins til umhverfisráðuneytisins sem
féllst á kæru sveitarfélagsins og stytti
leyfið niður í 18 mánuði.
Sveitarfélagið hefur ítrekað gert
athugasemdir við starfsemi Lýsis hf.
á svæðinu. Bæði hvað varðar lyktar-
mengun, mengun í fráveitu og notkun
húsnæðis án leyfis. Umsókn Lýsis hf.
um uppsetningu þvottaturna hefur
verið tekin fyrir og afgreidd í skipu-
lags- og byggingarnefnd svo og bæj-
arstjórn Ölfuss. Fyrirtækinu hefur
verið bent á að til þess að geta tekið
erindið til efnislegrar afgreiðslu þarf
að liggja fyrir deiliskipulag af svæð-
inu. Jafnframt var Lýsi hf. bent á
heimild fyrirtækisins til að leggja
fram tillögu að deiliskipulagi. Í stað
þess kærði Lýsi hf. afgreiðslu bæj-
aryfirvalda í Ölfusi til úrskurðar-
nefndar skipulags- og byggingar-
mála. Þar sem málið bíður
efnismeðferðar.
Það er því alrangt sem kemur fram
í fréttatilkynningu Lýsis hf. að fyr-
irtækið hafi ekki fengið leyfi til upp-
setningar á mengunarvarnarbúnaði.
Það rétta er að Lýsi hf. hefur kosið að
fara með málið í lögfræðilegt þrátefli í
stað þess að vinna af heilindum með
bæjaryfirvöldum í Ölfusi til að leysa
langvarandi lyktarmengun frá fyrir-
tækinu sem hefur staðið eðlilegri
uppbyggingu í Þorlákshöfn fyrir þrif-
um og valdið íbúum ómældum óþæg-
indum og skaða.“
Augljósar rangfærslur
Fimmtudagur 17.apríl
Samvera eldri borgara kl. 15.00
Æskulýðskór Glerárkirkju syngur undir stjórn Ástu
Magnúsdóttur við undileik Valmars Valjaots.
Kaffiveitingar og helgistund.
Allir velkomnir.
GLERÁRKIRKJA