Morgunblaðið - 17.04.2008, Qupperneq 20
Kímileg afgreiðslukona áflugvellinum í PuertoPlata hristir höfuðið neit-andi þegar norrænn ferða-
langur spyr um rakakrem í landi þar
sem húðkrem vill ekki festast á hör-
und. Við erum stödd í hinu klukku-
lausa Dóminíska lýðveldi í Karíbahaf-
inu í miðjum marsmánuði. Hvítir og
kuldahrjáðir menn frá löndum eins og
Íslandi og Kanada eru komnir til
paradísareyjar til að verða brúnir og
fyrir eru dökkir sem forðast sólina
eins og heitan grautinn. Þetta er und-
arlegur staður þar sem flestir eru
blendingjar, eða kaffi með mjólk eins
og innfæddur leiðsögumaður lýsti
hörundi sínu. Hvíti minnihlutahóp-
urinn, mjólkin, stjórnar landinu að
miklu leyti og hér þykir eftirsókn-
arvert að vera sem hvítastur, mjólk-
urhvítum hörundslit fylgir virðing.
„Kaffið“ í landinu, svarti minnihlut-
inn, á svo langan veg í að verða
„mjólk“. Einhver undarleg þversögn
er í þessu öllu saman; í sjálfri paradís
er saman komið fólk sem vill ekki vera
nákvæmlega það sem það er – sem er
kannski mannsins saga – en það er
önnur saga.
Haítí-ógnin í vestri
Hispaníóla nefnist eyjan öll og hún
á sögu um harðstjórn og þrældóm og
enn ríkir eymd á Haítí sem er 1⁄3 hluti
eyjunnar. Rúmlega tuttugu milljónir
manna búa í löndunum til samans og
straumur ólöglegra Haíta liggur inn í
fyrirheitna nágrannalandið sem býð-
ur upp á betra líf á gjöfulum ökrunum.
Laun verkamanna þar eru þó ekki
nema um tíu þúsund íslenskar krónur
á mánuði á meðan fólk í hærri stöðum
eins og læknar er með um 60 þúsund.
Hjá Dóminíkum flæðir allt í dásam-
legum ávöxtum landbúnaðarins ásamt
sykri, rómuðu rommi, kaffi og tóbaki
en vandi Haítí, sem er annað fátæk-
asta lands heimsins, liggur sumpart í
því hversu gróðursnautt landið er eft-
ir að íbúar þess brenndu allt landið til
að mótmæla ógnarstjórn og því rignir
þar bara nokkrum sinnum á ári.
Við hættum okkur ekki til Haítí og
raunar er bannað að fara þangað í
skipulegar ferðir með ferðamenn.
Stór hópur Íslendinga kom sér hins
vegar vel fyrir á vernduðu svæði á
íðilfagurri Dorada-ströndinni rétt
fyrir utan Puerto Plata á norður-
ströndinni þar sem flest hótelanna
eru með allt innifalið og 18 holu golf-
völlur liðast um svæðið. Aðstaðan á
hótelinu okkar, Puerto Plata Village,
var til fyrirmyndar og við gátum valið
úr ágætum veitingahúsum innan
hótelgarðsins og sötrað kælandi
drykki á tveimur börum. Ilmur kó-
kósins lá alls staðar í lofti og ennþá
eimir af gómsætum ananas í munni
enda var uppskerutími hans.
Dóminísk „síesta“ er nauðsyn
Sjálf Paradísareyja var heimsótt
sem reyndist vera pínulítill „sandhóll“
með ótal ferðamönnum en svaml í
náttúrusundlauginni allt í kring og
grunnköfun innan um litskrúðuga
hlýsjávarfiska í kóralrifjum rétt fyrir
utan er ógleymanleg upplifun. Á leið-
inni sáum við Dóminíska lýðveldið í
hnotskurn út um rútugluggann en þá
gefst tækifæri til að sjá hið raunveru-
lega land. Hvarvetna sást kyrrð íbú-
anna: Barn hallar sér upp að vegg,
hundur liggur undir tré, kona stendur
grafkyrr í dyragætt og litlir hópar
sitja í einni sólarpásunni við veginn,
það er augljóst að „síesta“ er nauðsyn
í þessu heita landi. Einhverjum ís-
lensku „veðurfræðinganna“ tókst að
kría út hitatölu: „35°C í forsælu!“
Nokkur raki er líka í loftinu og ekki
allra að vera enn blautur eftir að hafa
þurrkað sér eftir sturtuna.
En það er ekki bara rósemd íbú-
anna sem blasti við manni heldur líka
glaðværð fólksins sem endurspeglast
í litadýrð, gríðarhröðum takti me-
rengue-tónlistarinnar og einstaklega
léttu skapi – „það er eins og þau séu á
einhverju“, sagði einn staðfastur
ferðalangur. Vestræn gildi hafa að
mörgu leyti ekki tekið sér bólfestu í
þjóðarsálinni – marglit hús til að fæla
burtu illa anda gefa slíkt a.m.k. ekki
til kynna. Það er samt erfitt að átta
sig á þessu landi því mitt í hjátrúar-
legri og tímalausri veröldinni lifir lífs-
gæðakapphlaup góðu lífi, mjög marg-
ir fara um á nýjum og fínum bílum
innfluttum frá Ameríku (Ameríku-
framleiddar Toyotur eru annar hver
bíll á götunum og þá iðulega lúxus-
bílar eins og Land Cruiser og Camry)
og gsm-eign er nánast eins almenn og
á Íslandi!
Ruslið eins og brauðskortur?
Sennilegast sá maður ekki mestu
fátæktina en samt sem áður voru líka
flottir jeppar á sykurökrunum. Nóg
var samt af hreysunum og ruslið
meðfram vegunum er hreint og beint
yfirgengilegt, heilu ruslhrúgurnar og
einstaka úldin dýrahræ. „Getur allt
þetta fólk ekki farið að tína upp rusl-
ið?“ spurði einn kaffibrúnn ferða-
félaginn, mjólkurhvítur að innan, og
beindi spjótum sínum að öllum þeim
sem virtust ekki hafa neitt fyrir stafni
yfir hádaginn. – Athugasemdin
minnti örlítið á fleyg orð hinnar
frönsku Mariu Antoinette þegar hún
heyrði af hungursneyð þegnanna
sinna: „Af hverju borðar aumingja
fólkið ekki bara kökur?“
– Ef betur var að gáð var margt
þetta aðgerðalausa fólk að selja ým-
iss konar nauðsynjavöru eins og vatn
og ávexti og þraukaði þannig til að
eiga fyrir salti í grautinn dag hvern.
Yfirstandandi samfélagsbreyting
sviptir einnig marga vinnunni. Land-
búnaðurinn er enn mikilvægasta at-
vinnugrein landsins en sú vinna þykir
mörgum nútíma Dóminíkum ekki
nógu eftirsóknarverð og leita þess
vegna í borgirnar sem veldur því að
fátækrahverfin rísa og atvinnuleysi
eykst.
Dóminíska lýðveldið er draumur í
dós en hann er kannski ekki alltaf
raunverulegur, draumurinn sem birt-
ist á vernduðu ferðamannaslóðunum.
Safírblátt hafið við blaktandi pálma-
blöð er hins vegar engin lygi. Mis-
brúnir Íslendingar voru lygilega þol-
inmóðir í löngu ferðalaginu heim sem
tók allt að hálfan sólarhring með
klukkutíma stoppi í Halifax í Kanada.
Að bjóða fullvöxnu fólki upp á fóta-
pláss fyrir smábörn kemur furðulega
fyrir sjónir í ljósi þess að þetta sama
fólk er talið þurfa vernd í kaffibrúnu
paradísarlandi.
thuridur@mbl.is
Morgunblaðið/ÞuríðurSólarsæla Marsmorgunn á Dorada-ströndinni er algjör unaður.
Vefja í vindil Tóbaksframleiðsla er umsvifamikil í
Dóminíska lýðveldinu og það var stórkostlegt að fylgj-
ast með þrautþjálfuðum starfsmönnunum. Á bak við
sjást tóbakslaufin í þurrkun.
Leita í skuggann Dæmigert götulíf í bænum Sosúa.
Heimamaður gerir að ávöxtum með sveðjuna á lofti og
kyrrlátir áhorfendur fylgjast með. Hvarvetna má sjá
mótorhjólamenn sem bjóða far gegn gjaldi.
Undir pálmablöðum Öðruvísi stemning á meðal ferðamanna á Para-
dísareyjunni. Verra var að á eyjunni er engin salernisaðstaða!
Mjólkurhvít
verða kaffi-
brún í paradís
Hér eru engar klukkur og engir lofthitamælar enda þarf ekki að mæla eitt né neitt
í þessari tímalausu paradís; pálmatrén, hvítu strendurnar og steikjandi sólin eru komin
til að vera. Þuríður Magnúsína Björnsdóttir heimsótti Dóminíska lýðveldið á dögunum.
|fimmtudagur|17. 4. 2008| mbl.is
daglegtlíf