Morgunblaðið - 17.04.2008, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 2008 41
Félagsstarf
Árskógar 4 | Bað kl. 8.15, opin
smíðastofa og handavinnustofa kl. 9-
16.30, boccia kl. 9.30, helgistund kl.
10.30, leikfimi kl. 11 og myndlist kl.
13.30. Uppl. í síma 535-2700.
Bólstaðarhlíð 43 | Slökunarnudd
sími 535-2760, hárgreiðsla, böðun,
lífsorkuleikfimi, almenn handavinna,
myndlist, morgunkaffi/dagblöð, fóta-
aðgerð, hádegisverður, bókband,
kaffi.
Dalbraut 18-20 | Postulínsnámskeið
kl. 13-16, leiðb. Hafdís. Lýður og harm-
onikkan kl. 14, guðsþjónusta kl. 15.10,
sr. Bjarni Karlsson, annan hvern
fimmtudag.
Félag eldri borgara, Reykjavík |
Brids kl. 13 í Stangarhyl 4.
Félag kennara á eftirlaunum | EKKÓ-
kórinn æfir í KHÍ kl. 17. Nýjar raddir
velkomnar.
Félagsheimilið Gjábakki | Ramma-
vefnaður, almenn leikfimi og málm-
og silfursmíði fyrir hádegi, bókband
og róleg leikfimi kl. 13, bingó kl. 13.45,
og myndlistarhópur kl. 16.30.
Félagsheimilið Gullsmára 13 |
Handavinna kl. 9, ganga kl. 10, hádeg-
isverður, brids og handavinna kl. 13,
jóga kl. 18.15.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ |
Bókband kl. 10, gönguhópur kl. 11,
Vatnsleikfimi kl. 12.40, karlaleikfimi
kl. 13, boccia og handavinnuhorn kl.
13, námskeið í bútasaumi, síðasti tími
fyrir vorsýningu, gler- og leir kl. 13.
Óperukvöld í Garðabergi kl. 17, Aida
eftir Verdi.
Félagsstarf Gerðubergs | Helgistund
í umsjá sr. Guðmundar Karls Ágústs-
sonar kl. 10.30. Frá hádegi eru vinnu-
stofur opnar, m.a myndlist og perlu-
saumur. Á morgun kl. 10.30 er
fjölbreytt leikfimi o.fl. (frítt) í ÍR heim-
ilinu v/Skógarsel, á eftir er kaffi og
spjall.
Hraunbær 105 | Handavinna og
postulínsmálun kl. 9, boccia kl. 10,
leikfimi kl. 11, hádegismatur, félagsvist
kl. 14, kaffi.
Hraunsel | Morgunrabb kl. 9, leikfimi
kl. 11.20, tréskurður kl. 13, bingó kl.
13.30.
Hvassaleiti 56-58 | Hannyrðir kl. 9-
16 hjá Jóhönnu, boccia kl. 10, böðun
fyrir hádegi, hádegisverður. Fé-
lagsvist kl. 13.30, vinningar og kaffi-
veitingar í hléi. Hársnyrting.
Hæðargarður 31 | Listasmiðjan; út-
skurður, bútasaumur, glerlist, postu-
lín, frjáls verkefni. Ókeypis tölvu-
kennsla á miðvikud. og fimmtud.
Línudans, Bör Börsson, söngur, þegar
amma var ung og afi líka, brids, skap-
andi skrif, félagsvist, hláturklúbbur,
framsögn. Leikfimitilboð á þriðjud. kl.
9.15. Uppl. 568-3132.
Korpúlfar Grafarvogi | Sundleikfimi í
Grafarvogssundlaug á morgun kl.
9.30 og Listamiðjan á Korpúlfs-
stöðum er opin kl. 13-16.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Sögu-
stund og spjall kl. 9.45, boccia, karla-
klúbbur kl. 10.30, handverks- og
bókastofa opin – postulínsmálun.
Námskeið kl. 13, boccia kvennaklúbb-
ur kl. 13.30, kaffiveitingar kl. 14.30.
Hárgreiðslustofa, sími 552-2488.
Norðurbrún 1 | Smíðastofan opin kl.
9-16, vinnustofa í handmennt opin
leiðb. Halldóra kl. 9-16, leirlist-
arnámskeið leiðb. Hafdís kl. 9-12,
boccia kl. 10. Sími 411-2760.
Sjálfsbjörg | Skák kl. 19 í félagheimili
Sjálfsbjargar á höfuðborgarsvæðinu,
Hátúni 12.
Vesturgata 7 | Hárgreiðsla og fóta-
aðgerðir kl. 9-10, boccia kl. 9 15-14,
aðstoð v/böðun kl. 9 15-15.30, handa-
vinna kl. 10-12, spænska framh. kl.
11.45, hádegisverður, kóræfing kl. 13,
leikfimi kl. 14.30, kaffiveitingar.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja,
bókband, glervinnsla, morgunstund,
boccia, handavinnustofan opin, hár-
greiðslu og fótaaðgerðarstofan opin
allan daginn, upplestur kl. 12.30, spil-
að kl. 13. Uppl. í síma 411-9450.
Þórðarsveigur 3 | Bænastund og
samvera kl. 10, salurinn opinn kl. 13,
leikfimi kl. 13.15, félagsvist kl. 14.15,
kaffiveitingar.
Kirkjustarf
Áskirkja | Opið hús, söngstund með
organista kl. 14. Kaffisopi á eftir.
Klúbbur 8 og 9 ára barna kl. 17 og
TTT-starfið kl. 18. Efni beggja
fundanna er „Furðufatadagur“ (allir
komi með furðuleg föt).
Digraneskirkja | Foreldramorgnar kl.
10-12, leikfimi ÍAK kl. 11, bænastund kl.
12, 6-9 ára starf kl. 16-17, Meme juni-
or kl. 19.30-21.30. digraneskirkja.is.
Dómkirkjan | Opið hús í safn-
aðarheimilinu Lækjargötu 14a kl. 14-
16, kaffi og spjall. Kvöldkirkjan er opin
kl. 20-22, bænastundir kl. 20.30 og
21.30, prestur á staðnum. Hægt er að
kveikja á bænarkerti og eiga kyrrláta
stund.
Grafarvogskirkja | Foreldramorgunn
kl.10-12, fræðandi samverustund,
kaffi, djús og brauð fyrir börnin. TTT
fyrir 10-12 ára kl. 15-16 í Víkurskóla.
Grensáskirkja | Hversdagsmessa
með Þorvaldi Halldórssyni kl. 18-19.
Bænin, orð guðs og altarisganga eru
uppistaða messunnar. Hversdags-
messan einkennist af kyrrð og ein-
faldleika.
Hallgrímskirkja | Kyrrðarstund kl. 12.
Orgelleikur, íhugun. Léttur máls-
verður í safnaðarsal eftir stundina.
Háteigskirkja | Samvera með Taizé-
sniði kl. 20. Gengið inn í þögnina.
Ljúfir bæna- og íhugunarsöngvar,
Guðs orð, ilmur og lifandi ljós. Alt-
arisganga, fyrirbæn og smurning.
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía |
Bænastund á íslensku kl. 20, bæna-
stund á ensku og grunnfræðsla krist-
innar trúar. Allar stundir eru opnar
hverjum sem vill.
Hæðargarður 31 | Fastir liðir eins og
venjulega. Línudans á föstudögum kl.
15. Hláturhópur hittist kl. 13. Opið kl.
9-16. Uppl. 568-3132.
Kristniboðsfélag kvenna | Fundur í
dag kl. 17. Gestur er Þórdís Klara
Ágústsdóttir. Bænastund á undan
fundi kl. 16.30.
Laugarneskirkja | Morgunbæn kl. 8,
kyrrðarstund kl. 12, orgeltónlist í
kirkjuskipi kl. 12-12.10. Að bænastund
lokinni, kl. 12.30, er léttur málsverður
í boði í safnaðarheimilinu. Helgistund
í félagsaðstöðunni á Dalbraut 18 og
20 kl. 15. Sr. Bjarni talar.
Neskirkja | Foreldramorgnar kl. 10-
12. Tannheilsa ungra barna, Margrét
S. Þórisdóttir tannfræðingur sér um
efnið.
Vídalínskirkja Garðasókn | Kyrrðar-
og fyrirbænastund kl. 22. Tekið við
bænarefnum af prestum og djákna.
Boðið upp á kaffi í lok stundarinnar.
Biblíulestur síðasta fimmtudag í
mánuði kl. 21, opið öllum.
Morgunblaðið/Ómar
Hallgrímskirkja
Orð dagsins: Biðjið og yður mun gefast, leitið og þér munuð finna, knýið á, og fyrir yður mun upplokið verða. (Matt. 7, 7.)
Tónlist
Gamla Bókasafnið í Hafnarfirði | Í
Gamla bókasafninu verða haldnir rokk-
tónleikar með hljómsveitunum Unchas-
tity, Furry Strangers og Wistaria
fimmtudaginn 17. apríl. Húsið verður
opnað kl. 19.30 og byrja tónleikarnir um
áttaleytið.
Ingólfsskáli | Fyrri vortónleikar Jóru-
kórsins á Selfossi verða í Ingólfsskála á
Efstalandi, Ölfusi kl. 20.30 og verður
kaffihúsastemning. Gestir eru sunnlenski
tónlistarmaður Ólafur Þórarinsson
(Labbi) og tenórinn Halldór Unnar Óm-
arsson.
Uppákomur
Bókasafn Kópavogs | Rússnesk vika
hefst með erindi kl. 17.15 sem Sergey
Gushin sendiráðsritari heldur: „The
Philosophy of the Russian Space Exp-
loration“. Sýnd verður rússnesk fræðslu-
mynd um geimferðir. Kaffiveitingar og
enginn aðgangseyrir. Einnig er dagskrá
laugard. og sunnud.
Fyrirlestrar og fundir
Átthagafélag Múlahrepps | Fundur
verður laugardaginn 19. mars kl. 13.30 í
Konnakoti, Hverfisgötu 105.
Félagsheimili Samtakanná78 | FAS,
samtök foreldra og aðstandenda sam-
kynhneigðra halda opinn fræðslu- og
umræðufund kl. 20 um reynslu fyrri
maka samkynhneigðra, í fundarsal Þjóð-
arbókhlöðu á 2. hæð. Fyrirlesarar eru dr.
Árelía E. Guðmundsdóttir og S. Sía
Jónsdóttir ljósmóðir.
Háskóli Íslands, VRII, Hjarðarhagi 2-6,
stofa 157 | Fundur um áhrif hnatt-
rænnar hlýnunar á verkfræðina verður
kl. 16. Trausti Valsson, prófessor við-
verkfræðideild HÍ, talar um Yfirlit yfir
áhrif hlýnunar. Næstur talar Gísli
Viggósson forstöðumaður á Sigl-
ingastofnun um Öldurannsóknir er varða
olíuvinnslu í sjó og umskipunarhafnir.
Seinastur talar Óli Grétar Blöndal
Sveinsson deildarstjóri hjá Landsvirkjun
Power um um Áhrif hlýnunar á orku-
málin.
Landakot | Fræðslunefnd Rann-
sóknastofu í öldrunarfræðum heldur fyr-
irlestur kl. 12.15 í kennslusalnum á 7.
hæð á Landakoti. Hallgrímur Magnússon
öldrunargeðlæknir fjallar um svefntrufl-
anir hjá öldruðum. Sent út með fjarfund-
arbúnaði.
Skaftfellingafélagið í Reykjavík | Mál-
þing um skógræktarreit Skaftfellinga-
félagsins í Heiðmörk verður haldið í
gamla bænum að Elliðavatni (aðkeyrsla
frá Rauðhólum) kl. 20. Saga reitsins
rakin, sýndar myndir frá upphafsárum
gróðursetningarinnar og tillögur að
göngustígum í reitnum.
Frístundir og námskeið
Klúbbhús Íslenska fjallahjólaklúbbsins |
Námskeið í reiðhjólaviðgerðum fyrir
byrjendur – frítt námskeið. Farið verður
yfir algengustu viðgerðir og stillingar á
hjólinu. Stilling gíra og hvernig megi
herða út í legur í sveifarhúsi og nöfum
og stýrislegu. Slit á keðju mælt. Almenn
yfirferð og útskýring á drifbúnaði. Stutt
yfirferð á stillingu bremsa. Skráning á
fbjorgvinsson@actavis.is
AFMÆLI
báðum að rita svo
ágæt verk um feður
sína, skáldin á Fjalli
og Sandi, að fáir
munu eftir leika. Þá
hefir ættfræðingurinn
Indriði unnið slíkt
þrekvirki með bókum
sínum um ættir Þing-
eyinga að það eitt
myndi teljast prýði-
legt æviverk venju-
legs manns. En ef til
vill er hann minnis-
stæðastur sem félags-
málagarpurinn
óþreytandi, ræðumaðurinn sem
flutti íslenskt mál af einstakri
snilld, hugsjónamaðurinn sem sá
lengra og kafaði dýpra en flestir.
Fundinum er ekki lokið og okkur
vinum Indriða og bræðrum gefst
nú sérstakt tækifæri til að þakka
honum allt sem hann „var og
vann“. Ef að líkum lætur mun
fundinum við Indriða ekki heldur
ljúka þegar hann hverfur til ann-
arra heimkynna. Orð hans og at-
hafnir munu lifa í hugum okkar og
það sem meira er: Bestu verk hans
munu tala til fólks meðan íslensk
tunga er töluð og þjóð vor man
uppruna sinn og ætterni.
Ólafur Haukur Árnason.
Fundinum er ekki
lokið. Síðasta rit-
gerðin og ekki sú
sísta í Indriðabók,
sem gefin var út til
heiðurs Indriða Indr-
iðasyni á áttræðisaf-
mæli hans, heitir Að
loknum fundi. En
fundinum er alls ekki
lokið, fundinum með
leiðtoganum góða,
bróður og vini, Indr-
iða. Enn stígur hann
sínum „fæti á fold“,
ungur í anda, sköru-
legur og djúpvitur þó að aldargam-
all sé. Enn getur hann miðlað úr
heilnæmum þekkingarbrunni sín-
um. Enn bregður hann lit og ljóma
á tilveruna hvar sem hann birtist.
„Hvar skal byrja“ ef minnast
skal óvenjulangs starfsdags Indr-
iða Indriðasonar? Kornungur setti
hann saman smásagnasafn á
nokkrum vikum af því að hann
hafði ekki annað að gera. Hlaut
það góðar viðtökur. Síðar gerðist
hann listfengur ritgerðasmiður og
er gott dæmi um það prýðileg og
fróðleg ritgerð um föður hans,
skáldið Indriða Þórkelsson. Merki-
legt er að þeim frændum, Indriða
og Þóroddi Guðmundssyni, tókst
Indriði
Indriðason
dagbók
Í dag er fimmtudagur 17. apríl, 108. dagur ársins 2008
Íslandsmót iðngreina fer fram áföstudag og laugardag í forsalgömlu Laugardalshallarinnaren mótið er haldið samhliða
sýningunni Verki og viti sem fram
fer í nýju Laugardalshöllinni.
Tryggvi Thayer er verkefnisstjóri
hjá Iðnmennt, sem skipuleggur
keppnina: „Markmiðið með Íslands-
mótinu er að vekja athygli á þeim
tækifærum sem felast í námi og
starfi í ýmsum iðn- og starfs-
greinum,“ segir Tryggvi. „Sú þróun
hefur verið undanfarin ár og áratugi
að iðnmenntun hefur ekki fengið
eins mikla athygli og bóklegt nám. Á
sama tíma er mikil þörf fyrir vel
menntað iðngreinafólk í samfélag-
inu, og spennandi atvinnu- og tekju-
möguleikar sem bjóðast.“
Íslandsmótið er nú haldið með
breyttu sniði. Ein helsta breytingin
er sú að keppnin teygir sig yfir tvo
daga, í stað eins áður og gefur það
möguleika á að keppendur fáist við
meira krefjandi verkefni: „Um ein-
staklingskeppni er að ræða, og geta
sigurvegararnir átt kost á því að
keppa í Evrópumóti og heimsmóti
iðnnema,“ segir Tryggvi en mótið er
núna opið bæði iðnnemum og einnig
þeim sem nýlokið hafa námi og eru
undir 22 ára aldri, nema í snyrti-
fræði þar sem miðað er við 24 ára há-
marksaldur.
Í ár verður keppt í ellefu greinum:
málmsuðu, trésmíði, pípulögn, bíla-
iðngreinum, múrverki, málaraiðn,
dúklagningu, hársnyrtingu, snyrti-
fræði, rafvirkjun og upplýsinga- og
fjölmiðlagreinum. „Einnig verða
kynningar á fleiri námsgreinum, t.d.
fatahönnun og rafeindavirkjun, svo
að gestir í Laugardalshöll geta
fræðst um hátt í 20 iðngreinar,“ seg-
ir Tryggvi. „Alls verða keppendur
tæplega 80 talsins, og tveir til þrír
dómarar í hverri grein.“
Finna má nánari upplýsingar um
keppni föstudagsins á slóðinni is-
landsmot.skillsiceland.is. Keppni
hefst kl. 9 á föstudagsmorgni, en
formleg setning keppninnar verður
kl. 11 þegar Össur Skarphéðinsson
iðnaðarráðherra setur mótið. Verð-
launaafhending mun fara fram kl.
16.30 á laugardag.
Ókeypis er inn á mótið og allir vel-
komnir.
Menntun | Keppt í ellefu greinum á Íslandsmóti iðngreina um helgina
Æsispennandi iðngreinar
Tryggvi Tha-
yer fæddist í Tex-
as 1968. Hann
lauk stúdents-
prófi frá Kvenna-
skólanum 1990,
BA-prófi í heim-
speki frá HÍ 2003
og MA-prófi í
stjórnsýslu al-
þjóðl. menntunar frá Háskólanum í
Minnesota 2007. Tryggvi starfaði
hjá Rannsóknarþjónustu Háskól-
ans, síðar hjá CEDEFOP í Grikk-
landi, og hjá Mennt 2001-2004. Frá
2006-2007 starfaði hann hjá Al-
þjóðaskrifstofu háskólastigsing og
hefur verið verkefnisstjóri hjá Iðn-
mennt frá áramótum. Tryggvi er
kvæntur Hlín Gylfadóttur nema og
eiga þau eina dóttur.
FRÉTTIR
MÁLÞING um íslenskukennslu er-
lendis, þýðingar, bókmenntakynn-
ingu og norræna málstefnu verður
haldið í Þjóðarbókhlöðunni föstu-
daginn 18. apríl kl. 14-17. Íslensk
málnefnd, Bókmenntasjóður og
Landsbókasafn Íslands – Háskóla-
bókasafn bjóða til málþingsins.
Fram kemur í tilkynningu m.a.
að meðal þess sem rætt verður á
þinginu er kennsla íslenskra barna
erlendis og tvítyngi, íslensku-
kennsla við erlenda háskóla, þýð-
ingar á íslenskum bókmenntum á
önnur tungumál og bókmennta-
kynning, íslenskt mál og norræn
málstefna.
Frummælendur verða Annette
Lassen, dósent í dönsku við HÍ, Jón
Gíslason, stundakennari í íslensku
við HÍ, Philip Roughton, þýðandi,
rithöfundurinn Sjón og Þorbjörg
St. Þorsteinsdóttir, verkefnisstjóri í
Laugalækjarskóla. Almennar um-
ræður verða að loknum fram-
söguerindum.
Málþing um
íslenskukennslu
erlendis
ÞRIÐJA og síðasta ferðakynning Ís-
lenskra fjallaleiðsögumanna í vetur
verður haldin í kvöld kl. 20. Kynn-
ingin verður í höfuðstöðvunum á
Vagnhöfða 7 í Reykjavík. Þema
kvöldsins er fjallgöngur á framandi
slóðum, segir m.a. í tilkynningu. Ein-
ar Torfi Finnsson segir m.a. frá fjall-
göngu á Toubkal en þangað verður
farið 6.-13. september nk.
Kynning fjalla-
leiðsögumanna
RANGLEGA var haft eftir íbúa í
Kópavogi í frétt á sunnudag að al-
gengt sé að bréfburðarpokar séu
skildir eftir í anddyri fjölbýlishúss
sem hann býr í. Hið rétta er að íbú-
inn sagði það hafa verið algengt þar
til hann kvartaði yfir því til Póst- og
fjarskiptastofnunar. Þá hafi það
hætt en svo byrjað að gerast aftur
og hafi gerst 1-2 sinnum á þessu ári.
Beðist er velvirðingar á því hversu
seint þessi leiðrétting birtist.
LEIÐRÉTT
Var algengt en
er það ekki lengur