Morgunblaðið - 17.04.2008, Qupperneq 44
Hún segist ætla að
leggja peningana inn á
banka og fara svo á nám-
skeið … 49
»
reykjavíkreykjavík
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
„ÉG horfði á yfir 40 Evró-
visjón-myndbönd víðs vegar
að úr Evrópu og svo lengst
aftur í tímann á Íslandi og
reyndi að finna leið sem ekki
hefur verið farin áður,“ segir
Baldvin Zophoníasson leik-
stjóri myndbands við lagið
„This Is My Life“ með Euro-
bandinu sem verður frumsýnt
á vefnum nova.is á hádegi í
dag. „Þetta er svona lamba-
gúllas með bernaise-sósu,
þannig myndi ég lýsa þessu
myndbandi af því að maður
fær sér aldrei lambagúllas
með bernaise-sósu,“ útskýrir
leikstjórinn, myndbandið sé
óhefðbundið og fullt af húm-
or. „Þarna er til dæmis
ákveðin aukapersóna sem
kemur inn í þetta dæmi, per-
sóna sem er mikill aðdáandi
Eurobandsins.
En þetta er líka markaðs-
sett svolítið fyrir Youtube
enda er stærsti markaðurinn
fyrir þetta þar. Þannig að í
byrjun látum við þetta líta út
eins og það sé einhver strák-
ur að búa til sitt eigið mynd-
band heima hjá sér,“ segir
Baldvin sem vill að öðru leyti
ekkert gefa upp um innihald
myndbandsins. Áhugasamir
verða því hreinlega að skella
sér á nova.is um hádegisbilið
í dag.
Lambagúllas með bernaise
Myndband við
This Is My Life
frumsýnt í dag
Eurobandið Regína Ósk og Friðrik Ómar.
Fyrstu tón-
leikar Bjarkar
Guðmundsdóttur
af þrennum í
Hammersmith
Apollo í London
fóru fram á mánu-
daginn. Troðfullt
var út úr dyrum
og þóttu tónleikarnir takast með af-
brigðum vel, eins og fram kemur í
umsögn Árna Matthíassonar hér
aftar í blaðinu. Á meðal þeirra sem
fylgdust með tónleikunum voru
hjónin Þorkell Jóelsson tónlist-
armaður og Sigrún Hjálmtýsdóttir
(Diddú) en dóttir þeirra er Valdís
Þorkelsdóttir trompetleikari sem
ásamt níu öðrum blásarastelpum
hefur ferðast um allan heim með
Björk. Þess má svo geta að blaða-
menn tímaritsins Dazed & Confu-
sed fengu að fylgjast með baksviðs
þegar undirbúningur fyrir tón-
leikana fór fram og því von á fróð-
legri Bjarkar-grein í næsta blaði.
Foreldrarnir flugu út á
Bjarkartónleika
Fréttablaðið
sagði frá því í gær
að Birgir Örn
Steinarsson
myndi taka við
starfi Atla Fann-
ars Bjarkarsonar
á 24 stundum, og
hafa þar með yf-
irumsjón með
dægurmenningu.
Áður hefur það
svo komið fram að
Atli sé að ganga
inn í starf Birgis á
Monitor. Fullkomin sætaskipti sem-
sagt. Sæmilega traustar heimildir
eru fyrir því að þeir félagar ætli að
taka þennan dans sinn enn lengra.
Birgir mun því taka við söngv-
arastöðu Atla í hljómsveitinni
Haltri hóru og hefja textagerðina
þar á annað plan en Atli tekur við
stjórninni í Maus og setur eilítinn
ræflarokksbrag á popprokk henn-
ar. Þetta segja gárungarnir a.m.k.
Skipta líka um bönd
Eftir Helga Snæ Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
BJARNI Haukur Þórsson leikari neitar að svara
því hvers virði hann sé, þegar blaðamaður spyr
hann að því, þó svo hann frumsýni á morgun
einþáttunginn Hvers virði er ég? „Þú verður
bara að koma á sýninguna,“ segir Bjarni og
hlær kvikindislega.
Bjarni er þjóðkunnur fyrir einþáttunga sína,
fyrst Hellisbúann, þá Pabbann og nú þann sem
nefndur var í upphafi. Bjarni er höfundur
verksins og tekur að þessu sinni á „bráðsmit-
andi efnishyggju Íslendinga“ og hlífir engum,
hvorki sjálfum sér, auðmönnum né almenningi.
Hann hlífir ekki einu sinni styrktaraðila sýning-
arinnar, sparisjóðnum BYR.
„Ég er ekkert að predika,“ segir Bjarni en
viðurkennir þó að hann taki fólk í smá kennslu-
stund í raunverulegu gildi tilverunnar. „Ég geri
aðallega grín að sjálfum mér en tek auðvitað
fyrir peninga- og efnishyggju Íslendinga, geri
stólpagrín að ykkur fjölmiðlafólki …“
Þó ekki menningardeild Morgunblaðsins?
„ … nei, mínus menningar- og íþróttadeild.
Fjölmiðlar eru auðvitað spegill samfélagsins og
það sem birtist okkur í fjölmiðlum er auðvitað
nákvæmlega það sem við erum að pæla í. Fjöl-
miðlar eru fólkið og tala, fyrir utan menning-
ardeildina að sjálfsögðu, bara um peninga og ég
veit ekki alveg hvað er málið,“ segir Bjarni. Það
sé hreint ótrúlegt hvað Íslendingar hafi í mörg
hundruð ár verið helteknir af peningum. Íslend-
ingar séu ekki kallaðir „Ítalir norðursins“ fyrir
ekki neitt, þjóðin sé hádramatísk. „Ef það geng-
ur vel erum við að sigra heiminn en ef illa geng-
ur er Ísland að sökkva og það er ekkert þar á
milli. Þetta er svona Ragnar Reykás-synd-
rome.“
Auðmaður áhugasamur um virði Bjarna
Bjarni segist hafa verið spurður að því af
auðmanni einum, yfir snittum í boði hjá rík-
isbubbum, hvers virði hann væri. Hann hafi
ekki getað svarað manninum en velt spurning-
unni mikið fyrir sér og endað með gamanleik í
höndunum. „Það er engin ný saga eða sannindi
að heilsan og fjölskyldan og börnin og allt það
sé mikilvægara en hið efnislega. Enda erum við
sem vinnum við að segja sögur eflaust aldrei að
segja nýjar sögur heldur setja þær í nýja bún-
inga. En þessi saga á hins vegar mjög vel við
núna og mitt hlutverk er að setja hana í sem
ferskastan búning,“ segir Bjarni um raunveru-
leg gildi lífsins. Ríkt fólk sé ekki endilega vont
fólk. Bjarni bendir á Al Gore, hann vilji heim-
inum vel en sé samt sem áður vellauðugur.
Hvers virði er ég? verður frumsýnt í Salnum í
Kópavogi annað kvöld kl. 21. Sigurður Sig-
urjónsson leikstýrir verkinu.
Ítalir norðursins
Bjarni Haukur Þórsson frumsýnir á morgun gamanleikinn Hvers virði er ég?
Morgunblaðið/Frikki
Fégræðgi Bjarni Haukur bjó sér til blævæng úr fimmþúsundköllum í útibúi sparisjóðsins Byrs í gær
til að kæla sig aðeins niður. Peninga- og neysluhyggjan er allsráðandi á Íslandi, eins og sjá má.
Brot úr Hvers virði er ég?:
„Ég kalla íbúðalán „Bill Murray- lán“.
Munið þið ekki eftir myndinni með Bill
Murray, Groundhog Day?
Hann vaknaði og það var alltaf sami dag-
urinn. Þannig eru þessi lán.
Munurinn á Groundhog Day og íbúða-
lánum er auðvitað sá að myndinni lauk.
Íbúðalánum lýkur ALDREI.“
Bill Murray-lán
■ Í kvöld kl. 19.30
Söngfuglar hvíta tjaldsins
Söngleikjadívan Kim Criswell flettir söngbókum helstu lagahöfunda
Bandaríkjanna frá gullöld söngvamyndanna og fetar í fótspor
sönggyðja á borð við Judy Garland, Marilyn Monroe og Doris Day.
Hljómsveitarstjóri: John Wilson
Einsöngvari: Kim Criswell
■ Lau. 19. apríl kl. 14.00
Bíófjör - Tónsprotatónleikar
Öll fjölskyldan skemmtir sér konunglega á þessum tónleikum þar
sem tónlist úr kvikmyndum á borð við Stjörnustríð, Harry Potter,
Mary Poppins og Simpsons hljómar. Trúðurinn Barbara kynnir
tónlistina á sinn einstaka hátt.
■ Fim 9. maí kl. 19.30
PPP áttræður
Íslenskt tónlistarlíf og ekki síst Sinfóníuhljómsveit Íslands stendur í
þakkarskuld við Pál Pampichler Pálsson og heiðrar hann áttræðan
með þessum tónleikum þar sem flutt verður fimmta sinfónía
Mahlers, sellókonsert Schumanns auk verks eftir afmælisbarnið.
Miðasala
S. 545 2500
www.sinfonia.is