Morgunblaðið - 15.05.2008, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 15.05.2008, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 131. TBL. 96. ÁRG. FIMMTUDAGUR 15. MAÍ 2008 LANDSPRENT EHF. mbl.is FRÆG OG FRÖNSK MENNINGARBORG VIÐ MIÐJARÐARHAF FALLEGA NICE >> 22 HVERS VIRÐI ER BERLUSCONI? LITRÍKUR >> VIÐSKIPTI ÍTÖK RÍKA MANNSINS FRÉTTASKÝRING Eftir Bergþóru Jónsdóttur begga@mbl.is LISTAHÁTÍÐ í Reykjavík hefst í dag, en hún er nú haldin í 22. sinn. Til hátíðarinnar var stofnað árið 1970 og var hún haldin annað hvert ár til ársins 2004, er ákveðið var að hátíðin skyldi haldin árlega. Menntamálaráðuneytið og Reykjavíkurborg styrkja Listahá- tíð, en einnig samstarfsaðilar í at- vinnulífinu, auk þess sem hátíðin hefur tekjur af miðasölu. Í ár er sérstök áhersla á mynd- list á Listahátíð í Reykjavík. Þungamiðja hátíðarinnar verður Tilraunamaraþon sem hefst í Listasafni Reykjavíkur í Hafn- arhúsinu kl. 10 í fyrramálið. Til- raunamaraþonið er sérstakt fyrir það, að þar er teflt saman lista- mönnum og vísindamönnum og safninu verður breytt í opna til- raunastofu, en umsjónarmenn maraþonsins eru Hans Ulrich Obrist og Ólafur Elíasson. Þótt myndlistinni verði gert hátt undir höfði í ár er dagskráin fjölbreytt sem endranær. Um fjörutíu listviðburðir verða á þeim þremur vikum sem hátíðin stend- ur og lætur nærri að um 200 lista- menn komi fram. Þar af eru um 120 listamenn tengdir myndlist- arverkefnunum. Hlutfall íslenskra og erlendra listamanna er nokkuð jafnt. Af viðburðunum fjörutíu eru rúmlega 20 myndlistarsýningar. Að sögn Guðrúnar Kristjáns- dóttur, kynningarstjóra hátíð- arinnar, hafa 25 erlendir fjölmiðla- menn boðað komu sína á hátíðina, en hún segir að þeir verði fleiri, því sumir tilkynni hátíðinni ekki um komu sína. Meðal þessa fjöl- miðlafólks eru fastapennar margra virtustu listtímarita heims. Guð- rún telur að vel yfir hundrað er- lendir gestir alls komi hingað til lands til að fylgjast með hátíðinni, en hluti þeirra tengist þeim er- lendu listamönnum sem taka þátt í hátíðinni. Þórunn Sigurðardóttir er list- rænn stjórnandi Listahátíðar í Reykjavík og gegnir því starfi nú í síðasta sinn. Hrefna Haralds- dóttir, núverandi framkvæmda- stjóri hátíðarinnar, tekur við af Þórunni. Tilrauna- stofa lista og vísinda Listahátíð í Reykja- vík hefst í dag Tilraunir Katrín Sigurðardóttir myndlistarmaður skapar eftirlík- ingar þekktra húsa. Þau eru: Bræðraborgarstígur 23a, Sól- eyjargata 13 og hús á Skothúslóð.  Listahátíð | 17-18 og mbl.is Eftir Grétar Júníus Guðmundsson og Ylfu Kristínu K. Árnadóttur „ÞETTA er svartur dagur fyrir starfsmenn,“ segir Anna Karen Hauksdóttir, trúnaðarmaður starfs- manna Glitnis, en í gær var greint frá því að 88 starfsmönnum bankans hefði verið sagt upp frá því um miðj- an apríl. Segir Anna að í apríl hafi 23 verið sagt upp og nú í maí séu upp- sagnirnar 65 talsins. Í samtali við Morgunblaðið segir Lárus Welding, forstjóri Glitnis, að frá áramótum hafi starfsmönnum bankans fækkað um 255, en hluti af því sé eðlileg starfsmannavelta. „Á Íslandi hefur starfsmönnum fækkað um 160 frá áramótum og eru upp- sagnirnar, sem við greinum frá nú, inni í þeirri tölu.“ Lárus segir að unnið hafi verið að því undanfarið að hagræða í rekstri bankans og séu uppsagnirnar þáttur í þeirri hagræð- ingu en hann sjái ekki fram á að frek- ari uppsagna verði þörf. „Það er gott að vera búinn að ljúka þessum aðgerðum núna, en við mun- um halda áfram frekari hagræðing- araðgerðum á árinu,“ segir Lárus. „Ég er hundóánægður með að þetta skyldi þurfa að gerast,“ segir Friðbert Traustason, framkvæmda- stjóri Samtaka starfsmanna fjár- málafyrirtækja. Hann segir upp- sögnina ekki hafa komið verulega á óvart þar sem Glitnir hafði upplýst samtökin um að starfsmannamálin væru í skoðun. „Við vissum þannig hvað til stóð en þessi stærðargráða kemur verulega á óvart eins og hóp- uppsagnir almennt en þetta var leið sem þau völdu að fara.“ Friðbert segist ekki halda að aðr- ir bankar fylgi í kjölfarið, enda sé staða þeirra önnur en Glitnis í starfsmannamálum.  Samræmdum | 4 „Svartur dagur fyrir starfsmenn“ Í HNOTSKURN » Á þessu ári hefur starfsfólkiGlitnis fækkað um 255. » Í fyrra fjölgaði starfsfólkibankans um ríflega 300 og er starfsmannafjöldi því nú orðinn svipaður og í byrjun 2007. Alls hefur starfsmönnum Glitnis fækkað um 255 frá áramótum SETTUR saksóknari í Baugsmálinu svonefnda lagði áherslu á sönnunar- gildi þeirra tölvubréfa sem fyrir lægju í málinu þegar málflutningur hófst í Hæstarétti í gær. Sigurður Tómas Magnússon sagði engar vís- bendingar hafa komið fram um að tölvubréfin væru fölsuð og átta sér- fræðingar hefðu sannreynt það. Því teldi hann að um mjög áreiðanleg gögn væri að ræða. Málflutningur heldur áfram í dag þegar verjendur sakborninga ræða sína hlið á málinu. | Miðopna Ófölsuð tölvubréf Wake me up >> 45 Komdu í leikhús Leikhúsin í landinu „ÞETTA er verkefni sem er búið að vera í gangi á áttunda ár. Við merkjum bæði fugla á Írlandi og hér með litmerkjum. Við erum að fylgjast með lífs- háttum þeirra og öllu sem þeim viðkemur,“ segir Guðmundur A. Guð- mundsson, fuglafræðingur á Náttúrufræðistofnun Íslands, um merkingar á margæsum á Álftanesi síðustu árin. Guðmundur segir gæsirnar merktar með greinilegum litmerkjum svo þær þekkist úr mikilli fjarlægð og að gervihnattasendir sé festur á sumar þeirra svo hægt sé að fylgjast með ferðum þeirra. Að sögn Guðmundar var útvarpsstöðin BBC4 með beina útsendingu frá Álftanesi í fyrradag, í þætti sem er hluti af vikulegri dagskrá um farfugla og önnur dýr sem ferðast um langan veg. Hann segir margæsastofninn nú vera í góðum vexti. Fylgst með mar- gæsum á gervihnetti Morgunblaðið/RAX Merking Fuglafræðingarnir Kendrew Colhoun (f.v.), Guðmundur A. Guðmundsson og Jón Gunnar Jóhannsson. Merking margæsa á Álftanesi í beinni útsendingu BBC4 Litmerkja fugla á Írlandi og hér á landi SKULDBINDINGAR ríkissjóðs vegna eftirlauna ráðherra og alþing- ismanna meira en tvöfölduðust á ár- unum 2000-2006. Þetta er mun meiri hækkun en lífeyrir opinberra starfs- manna hækkaði um á sama tíma. Lífeyrisskuldbindingar ríkissjóðs vegna alþingismanna og ráðherra námu í árslok 2006 8.668 milljónum og miðað við hækkun síðustu ára má gera ráð fyrir að þessar skuldbind- ingar hafi um síðustu áramót verið farnar að nálgast 10 milljarða. Frá 2000 til 2006 hækkuðu lífeyris- skuldbindingar ríkissjóðs vegna ráð- herra um 127% og 105% vegna al- þingismanna. Á sama tímabili hækkaði vísitala lífeyris opinberra starfsmanna sem Hagstofan mælir um 68% og launavísitalan hækkaði um 51%. Meginskýringarnar á þess- um miklu hækkunum eru því hækkun launa alþingismanna og ráðherra og aukin lífeyrisréttindi sem fylgdu nýj- um lögum um eftirlaun æðstu emb- ættismanna þjóðarinnar árið 2003. | 8 Hækkuðu um 127% á sex árum Morgunblaðið/Sverrir ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.