Morgunblaðið - 15.05.2008, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. MAÍ 2008 45
Þjóðleikhúsið Á öllum sviðum lífsins
551 1200 | midasala@leikhusid.is
Miðasalan er opin mánudaga og þriðjudaga kl. 12:30-18:00, aðra daga vikunnar frá kl. 12:30
til 20, og alltaf klukkustund fyrir sýningu ef um breyttan sýningartíma er að ræða.
Stóra sviðið
Ástin er diskó - lífið er pönk
Fim 15/5 6. sýn. kl. 20:00 U
Fös 16/5 7. sýn. kl. 20:00 U
Lau 17/5 8. sýn. kl. 20:00 Ö
Fös 23/5 kl. 20:00 Ö
Lau 24/5 kl. 20:00
Fös 30/5 kl. 20:00
Lau 31/5 kl. 20:00
Ath. pönkað málfar
Kassinn
Sá hrímhærði og draumsjáandinn
Þri 27/5 kl. 20:00
Gestasýning frá Beaivvá˚ leikhúsinu
Smíðaverkstæðið
Sá ljóti
Fös 16/5 kl. 20:00 Ö Lau 17/5 kl. 20:00
Síðasta sýning 17. maí
Kúlan
Skoppa og Skrítla í söngleik
Lau 17/5 kl. 11:00 U
Lau 17/5 kl. 12:15 Ö
Sun 18/5 kl. 11:00 U
Sun 18/5 kl. 12:15
Sun 18/5 kl. 14:00 Ö
Lau 24/5 kl. 11:00
Lau 24/5 kl. 12:15
Sun 25/5 kl. 12:15
Sun 25/5 kl. 14:00
Sun 25/5 kl. 20:11
Lau 31/5 kl. 11:00
Lau 31/5 kl. 12:15
Sun 1/6 kl. 11:00
Sun 1/6 kl. 12:15
Sun 1/6 kl. 14:00
síðasta sýn.
Síðustu sýningar 1. júní
Borgarleikhúsið
568 8000 | midasala@borgarleikhus.is
Miðasala Borgarleikhússins er opin alla virka daga frá klukkan 10 og fram að sýningum á sýningardegi,
annars til klukkan 18. Um helgar er opið frá kl. 12-20.
Alveg brilljant skilnaður (Nýja sviðið)
Lau 17/5 kl. 20:00
Sun 18/5 kl. 20:00
Fim 22/5 kl. 20:00
Fös 23/5 kl. 20:00
Sun 25/5 kl. 20:00
Aðeins sýnt í mai
Dauðasyndirnar-guðdómlegur gleðileikur (Litla sviðið)
Lau 17/5 kl. 20:00
Sun 18/5 kl. 20:00
Lau 31/5 kl. 20:00
Sun 1/6 kl. 20:00
Fim 5/6 kl. 20:00
Fös 6/6 kl. 20:00
Lau 14/6 kl. 20:00
Sun 15/6 kl. 20:00
Aðeins 9 sýningar
Gítarleikararnir (Litla sviðið)
Fim 15/5 kl. 20:00
Fös 16/5 kl. 20:00
Fim 22/5 kl. 20:00
Fös 23/5 kl. 20:00
Fim 29/5 kl. 20:00
Fös 30/5 kl. 20:00
Sýningum lýkur í mai
Gosi (Stóra sviðið)
Sun 18/5 kl. 14:00 Ö Sun 18/5 aukas. kl. 17:00
Sýningar hefjast á ný í haust
Kommúnan (Nýja Sviðið)
Fim 29/5 kl. 20:00 Lau 31/5 kl. 20:00
Aðeins sýnt í mai
LADDI 6-TUGUR (Stóra svið)
Fös 16/5 kl. 20:00 Lau 17/5 kl. 20:00 Fös 30/5 kl. 20:00
Sumarnámskeið Sönglistar
Mið 21/5 kl. 10:00
Mán 16/6 kl. 10:00
Mán 23/6 kl. 10:00
Mán 30/6 kl. 10:00
Mán 7/7 kl. 10:00
Hvert námskeið er ein vika
Leikfélag Akureyrar
460 0200 | midasala@leikfelag.is
Wake me up - LeikhópurinnBRAVÓ
(Samkomuhúsið)
Fös 16/5 aukas kl. 18:00 U
Lau 17/5 aukas kl. 18:00 Ö
Lau 17/5 aukas kl. 21:00 Ö
Fim 22/5 aukas kl. 20:00
Killer Joe (Rýmið)
Fim 22/5 1korta kl. 20:00 U
Fös 23/5 2korta kl. 19:00 U
Fös 23/5 aukas kl. 22:00 Ö
Lau 24/5 3korta kl. 19:00 U
Sun 25/5 4korta kl. 20:00 U
Alveg brilljant skilnaður (Samkomuhúsið)
Fim 29/5 1korta kl. 20:00 U
Fös 30/5 2korta kl. 19:00 Ö
Lau 31/5 aukas kl. 19:00 Ö
Lau 31/5 aukas kl. 22:00
Hvers virði er ég? (Samkomuhúsið)
Fös 23/5 gestas kl. 19:00 Ö Lau 24/5 gestas kl. 21:00
Landnámssetrið í Borgarnesi
437 1600 | landnamssetur@landnam.is
BRÁK eftir BrynhildiGuðjónsdóttur (Söguloftið)
Fim 15/5 kl. 14:00 Ö
ath. br. sýn.artíma
Fös 16/5 kl. 20:00
Mið 21/5 kl. 16:00 Ö
Fös 23/5 kl. 20:00 Ö
Sun 25/5 kl. 16:00 Ö
Mið 28/5 kl. 17:00 Ö
ath breyttan sýn.artíma
Lau 31/5 kl. 16:00 U
Lau 31/5 aukas. kl. 20:00 U
Fös 6/6 kl. 20:00 U
Lau 7/6 kl. 15:00 U
Lau 14/6 kl. 20:00
Sun 15/6 kl. 16:00
Lau 28/6 kl. 15:00
Lau 28/6 kl. 20:00
Mr. Skallagrímsson eftir Benedikt Erlingsson
(Söguloftið)
Lau 17/5 kl. 15:00 U
Lau 17/5 kl. 20:00 Ö
Sun 18/5 kl. 16:00 Ö
Lau 24/5 kl. 15:00 U
Lau 24/5 kl. 20:00 U
Fös 30/5 aukas. kl. 20:00 U
Lau 7/6 kl. 20:00 Ö
Sun 8/6 kl. 16:00 U
Lau 14/6 kl. 15:00
Lau 21/6 kl. 15:00
Lau 21/6 kl. 20:00
Íslenska óperan
511 4200 | midasala@opera.is
Dagbók Önnu Frank
Sun 25/5 kl. 20:00
Smaragðsdýpið
Þri 20/5 kl. 09:00 F
Þri 20/5 kl. 10:30 F
Þri 20/5 kl. 20:00
Mið 21/5 kl. 09:00 F
Mið 21/5 kl. 10:30 F
Fim 22/5 kl. 09:00 F
Fim 22/5 kl. 10:30 F
Ferð án fyrirheits
Fim 29/5 kl. 20:00 Fös 30/5 kl. 20:00
Þorkell Sigurbjörnsson - Afmælistónleikar
Mið 4/6 kl. 20:00
Iðnó
562 9700 | idno@xnet.is
Sigfúsarvaka Sigfús Daðason 80 ára Hjalti
Rögnvaldssonflytur ljóð
Mán 19/5 kl. 17:00
Systur
Lau 17/5 kl. 20:30
Fös 23/5 kl. 20:30
Lau 24/5 kl. 20:30
Dómur Morgunblaðsins
Hafnarfjarðarleikhúsið
555 2222 | theater@vortex.is
Mammamamma (Hafnarfjarðarleikhúsið)
Fim 15/5 kl. 20:00 Ö
Sun 18/5 kl. 20:00 Ö
Fös 23/5 kl. 20:00
Sun 25/5 kl. 20:00
Fim 29/5 kl. 20:00
Sun 1/6 kl. 20:00
Íslenski dansflokkurinn
568 8000 | midasala@borgarleikhus.is
Ambra (Borgarleikhúsið stóra svið)
Fös 23/5 kl. 20:00
heimsfrums.
Lau 24/5 kl. 20:00
Sun 25/5 kl. 20:00
Möguleikhúsið
5622669 / 8971813 |
moguleikhusid@moguleikhusid.is
Höll ævintýranna (Möguleikhúsið/ferðasýning)
Fim 15/5 kl. 10:00 U
Langafi prakkari (Möguleikhúsið/ferðasýning)
Sun 1/6 kl. 14:00 F
þingborg
STOPP-leikhópurinn
8987205 | eggert@centrum.is
Bólu Hjálmar (Ferðasýning)
Fös 16/5 kl. 10:00 F
borgaskóli
Kómedíuleikhúsið Ísafirði
8917025 | komedia@komedia.is
Búlúlala - Öldin hans Steins (Tjöruhúsið
Ísafirði/Ferðasýning)
Fim 15/5 kl. 20:00
Fim 22/5 kl. 21:00 F
vagninn flateyri
Fös 23/5 kl. 21:00 F
baldurshagi bíldudal
Lau 24/5 kl. 21:00 F
einarshús bolungarvík
Fim 29/5 kl. 20:00 F
haukadal dýrafirði
Lau 21/6 kl. 20:00 F
snjáfjallasetur
Forleikur (Hótel Ísafjörður/Ferðasýning)
Fös 16/5 kl. 21:00
Sun 18/5 kl. 21:00
Fös 23/5 kl. 21:00
Fös 6/6 kl. 21:00
einarshús bolungarvík
„ÞAÐ er í rauninni allt mögulegt, því nú eru svo
margar dyr opnar fyrir íslenskt myndlistarsam-
félag,“ segir Karlotta Blöndal um stöðuna í ís-
lensku myndlistarlífi. Hún og Anna Júlía Frið-
björnsdóttir gefa út Sjónauka: Tímarit um
myndlist og eru að fylgja öðru tölublaði tímarits-
ins úr hlaði. „Það þarf að passa að það sé vel séð
um þau tækifæri sem bjóðast og það þarf að hugsa
vel um þær fáu stofnanir sem fást eingöngu við
myndlist. Það þarf skýrari stefnu frá stjórnvöld-
um og öðrum sem að þessu koma um það hvernig
eigi að nýta þessa grósku og þessi tækifæri.“
Tungumálið og myndlistin
Yfirskrift Sjónauka er að þessu sinni „Ljóð-
ræna“. „Þetta er mikið notað orð í myndlist, en
hefur ekki verið mikið skilgreint,“ segir Karlotta.
„Það eru viðtöl við listamenn sem fást við tungu-
mál í tengslum við myndlist og bókmenntahefðina
í tengslum við myndlist.“
Listamaður þessa tölublaðs er Guðný Rósa
Ingimarsdóttir og hún gerði plakat af því tilefni
sem fylgir blaðinu. „Með plakatinu fylgir kalki-
pappír og leiðbeiningar um það hvernig er hægt
að færa verkið upp á vegg hvar sem maður vill,“
segir Karlotta. Sjónauki er eina myndlistartímarit
landsins, fyrir utan Artímarit sem nemar í list-
fræði gáfu út í fyrsta skipti í vetur. Það að nú sé
komið annað tölublað Sjónauka gefur ákveðin fyr-
irheit um framhaldið. „Það er oft þannig með
svona frumkvöðlaverkefni að fólk hættir eftir
stuttan tíma og verkefnin brenna út. Það er oft
stutt við svona verkefni til þess að koma þeim af
stað, en síðan er þeim ekki fylgt eftir,“ segir
Karlotta. „Þetta er náttúrlega ekki fyrirtæki sem
ber sig en okkur hefur tekist að gera þetta núna
tvisvar. Það vantar ákveðinn skilning á því hversu
mikilvæg svona miðlun er í myndlistarstarfinu,
hún skilar sér áfram í formi þekkingar og fjárfest-
inga seinna meir.“
Myndlistarsagan er óskráð
Áhugi á íslenskri myndlist fer vaxandi erlendis
og í samræmi við það kemur blaðið bæði út á
ensku og íslensku. „Það er mikill fókus erlendis
frá, það er að koma hingað endalaust mikið af fólki
að skoða íslenska myndlist bæði til að kaupa og
sýna erlendis. Þess vegna fannst okkur vanta mið-
il sem væri líka á ensku og brúaði þetta bil.“
Við vinnuna við þessi tvö fyrstu tölublöð kom
það þeim í opna skjöldu hversu mikið verk er
óunnið í faglegri umfjöllun um myndlist. „Þetta
þýðir að það er af nógu að taka, sem er auðvitað
svolítill lúxus. Myndlistarsagan er óskráð, það er í
rauninni alveg einstakt að ekki sé búið að skrá-
setja íslenska myndlistarsögu. En það hafa ekki
verið mjög margir færir um að skrifa um mynd-
list. Núna er listfræðin orðin vinsæl og eins sýn-
ingarstjórnun og menningarstjórnum. Það er að
koma upp kynslóð sem fæst við myndlist og mynd-
listarheiminn á faglegan hátt.“
Margar dyr opnar
Eftir Gunnhildi Finnsdóttur
gunnhildur@mbl.is
Morgunblaðið/Frikki
Ritstjórar Karlotta Blöndal og Anna Júlía Friðbjörnsdóttir við aðsetur Sjónauka þar sem
kaffistofa Samhjálpar var áður til húsa. Annað tölublað Sjónauka er að koma út.
ÖLL grunnskólabókasöfn landsins
fá sjónvarpsmyndina Njálssögu að
gjöf á næstunni. Verkefnið er kost-
að af Minningarsjóði Margrétar
Björgólfsdóttur og menntamála-
ráðuneytinu. Í myndinni er hluti
Njálssögu rakinn þar sem segir frá
útistöðum Gunnars á Hlíðarenda
við þá Oddkel og Skammkel.
„Hugmyndin á bak við þessa
mynd var að gera kafla úr Njáls-
sögu alveg eftir lýsingum í sög-
unni,“ segir Björn B. Björnsson
leikstjóri. „Það er til dæmis bardagi
þarna í lokin sem er látinn gerast
högg fyrir högg eins og höfundur
Njálu lýsti honum. Þetta er tilraun
til þess að sjá söguna eins og hann.“
Þetta átti ekki aðeins við um
framvindu myndarinnar heldur
búninga og leikmynd. „Við tókum
upp við þjóðveldisbæinn í Þjórs-
árdal, en í Njálu segir „Bær Gunn-
ars var af viði gjör.“ Það þýddi að
við þuftum að smíða utan um bæinn
því Gunnar bjó jú í timburhúsi.
Svona getur ein setning í sögu verið
dýr leikmunadeildinni,“ segir
Björn, en í myndinni fer önnur hlið
Þjóðveldisbæjarins með hlutverk
Hlíðarenda og hin Kirkjubóls.
Björn segir kvikmyndagerð-
armenn ekki gera nóg af því að
vinna með bókmenntaarfinn og
sækja innblástur í hann. „Það er
partur af því að vekja áhuga þeirra
á þessum sögum og halda þessum
arfi lifandi að færa þetta í nýjan
búning, bæði með því að gera kvik-
myndir eftir sögunum og upp úr
þeim. Þetta er arfur sem við eigum
að vinna með, þessar bækur gulna
bara inni á bókasöfnunum ef þær
eru ekki lifandi í því sem við erum
að búa til og gera, sérstaklega
gagnvart unga fólkinu.“
Njálssaga var valin besta leikna
sjónvarpsefni ársins á Edduverð-
laununum árið 2004. Meðal leikara
í myndinni eru Hilmir Snær Guðna-
son, Helgi Björnsson og Ingvar E.
Sigurðsson.
Handaband Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir menntamálaráð-
herra tekur við fyrsta disknum frá
Birni B. Björnssyni leikstjóra.
Högg fyrir
högg