Morgunblaðið - 15.05.2008, Qupperneq 27
%&'&
" () !* + #
#"$ "%&
'&
), ,
- &
+!$
78
,-./
.
/
+!-
1.7
,-0+
=.
3
,--1
011$
+!+
2!2
+!3
1.7
,-+2
8 %&
), 0 1&2)
011. -!,3
B
.C
,-$3 +!3
+!20113
D +!-
,-+1
B +!-
E<.1 ,-0$
+!-
1.
9
011/!
,-$0 +!2
1.
+!-,-01
+!0
=.
,-1/
F
&+""
ÞAÐ var árið 1976 sem jarð-
skjálfti sem var 7,5 á Richter-
kvarðanum lagði stóran hluta kín-
versku iðnaðarborgarinnar
Tangshan í rúst, með gífurlegu
mannfalli. Áætlað er að minnst
250.000 manns hafi týnt lífi en
samkvæmt alfræðiritinu Brit-
annica er jafnvel talið að um
655.000 manns hafi þá farist.
Heimurinn hefur breyst síðan
þá og nú leynir kommúnistastjórn-
in ekki hamförunum, heldur leyfir
óhindrað myndbirtingu fjölmiðla
og einstaklinga frá hamfarasvæð-
unum í Sichuan-héraði.
Eins og sjá má af kortinu hér til
hliðar er áætlað að minnst 740.000
manns hafi farist í skjálftum í
þessu fjölmennasta ríki jarðar.
Tekið skal fram að tölurnar á
kortinu eru umdeildar og hefur
því m.a. verið haldið fram að
nokkru fleiri hafi beðið bana í
skjálftanum í Pakistan 2005, svo
ekki sé minnst á ónefnda skjálfta.
Þá er einsýnt að tala látinna eft-
ir skjálftann í Sichuan á mánudag
á eftir að hækka verulega.
Skjálftatíðnina í Kína má rekja
til þess þegar Indlands/Ástralíu-
flekinn rekst á Evrasíuflekann.
Við flekarekið byggist upp mikil
orka sem síðan losnar úr læðingi
við stóra skjálfta.
Yfir 700.000 farist í jarðskjálftum
í Kína frá aldamótaárinu 1900
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. MAÍ 2008 27
kun Hér-
ð 104. gr.
nn nokkra
gs og vís-
fordæma.
rgerð þar
skýrleik-
aðrar lán-
því að Jón
um megin
reiðslulán
vikum var
án til að
gslum við
og 2000.
lileg, ekki
heimtu og
viðskipta-
ndi, þ.e.
stínar Jó-
ði afkomu
því næst
þeim eru
ærðir sam-
aðsdómur
einn lið og
dæmdir í
orðsbund-
á að afar
með þeim
og hefðu
allar þær
fyrir. Tók
érstaklega
rslum, þar
enndi að
k þess að
bókhaldið
nt stjórn-
inni. Þá las hann upp úr tölvubréfum
frá Jóni Ásgeiri og vísaði í fleiri, þar
sem að hans mati kom bersýnilega í
ljós ásetningur og sekt. Í einu þeirra
stóð að sópa þyrfti „þessum 30. millj-
ónum“. Sagði Sigurður að Jón Ás-
geir hefði með því enn einu sinni ver-
ið að panta ákveðna niðurstöðu í
bókhaldi.
Nokkuð ítarlega var farið í ákæru-
lið 14 en í honum eru Tryggvi og Jón
Ásgeir kærðir fyrir að hafa látið
rangfæra bókhald Baugs og láta líta
svo út að hagnaður félagsins hefði
verið 164 milljónum króna hærri en
raunin var árið 2000. Sigurður Tóm-
as lýsti því að búin hefði verið til leik-
flétta þar sem hver spilaði sitt hlut-
verk. Henni hefði Jón Ásgeir hins
vegar stjórnað.
Fléttan var þannig í stuttu máli:
Gerður var samningur við Kaupþing
í Lúxemborg um að kaupa af Baugi
hlutabréf í breska félaginu Arcadia.
Samningurinn var gerður 1. febrúar
2001 en bréfin voru aldrei seld né af-
hent enda í vörslu Íslandsbanka
vegna fjármögnunar. Bankinn var
skráður eigandi þeirra fram í febr-
úar. Samningurinn við Kaupþing var
hins vegar dagsettur aftur í tímann
og staðfesti Jón Ásgeir hann vegna
ársreiknings árið 2000. Skv. ákæru
voru 164 milljónir af kaupverðinu
færðar sem hagnaður á árinu 2000.
Sigurður sagði að þetta hefði verið
gert til að blekkja hluthafa Baugs og
Jón Ásgeir hefði verið ábyrgðarmað-
ur. Tryggvi var hins vegar einvörð-
ungu dreginn til ábyrgðar í héraði.
Eini ákæruliðurinn sem allir sak-
borningar voru sakfelldir fyrir í hér-
aði er sá fimmtándi. Hann varðar til-
hæfulausan kreditreikning frá
Nordica, félagi Jóns Geralds Sullen-
berger. Sigurður Tómas sagði þá
Jón Ásgeir og Tryggva hafa lagt á
ráðin um reikninginn og Tryggva
kallað eftir honum frá Jóni Gerald.
Sagði hann það sama hafa verið
uppi á tengingnum varðandi SMS í
Færeyjum, en um það er fjallað í 16.
lið. Hins vegar var aðeins Tryggvi
sakfelldur fyrir hann í héraði. Sak-
sóknari sagði þessa liði mjög tengda
og eiga það sameiginlegt að kallað
var eftir kredityfirlýsingunni frá
SMS á sama tíma og kallað var eftir
reikningnum frá Nordica; skömmu
áður en stjórnarfundur var haldinn
þar sem árshlutauppgjör var kynnt.
Um var að ræða um 100 milljónir
króna samtals og varð það til að
fegra afkomutölur Baugs í uppgjör-
inu. Sigurður sagði óhjákvæmilegt
að Jón Ásgeir hefði vitað af hvoru
tveggja, hann hefði sem forstjóri
lagt blessun sína yfir uppjörið áður
en það var kynnt.
Hvað varðar þátt Jóns Geralds
sagði Sigurður að honum hefði átt að
vera ljóst að kreditreikningurinn
yrði notaður í bókhaldi Baugs. Auk
þess sem starfsmaður á skrifstofu
hans hefði ráðið honum frá því að
verða við beiðni Tryggva.
Þætti Tryggva ekki áfrýjað
Jón Ásgeir og Tryggvi voru báðir
ákærðir fyrir fjárdrátt með því að
hafa dregið Gaumi rúmar 30 millj-
ónir króna frá Baugi, til að fjár-
magna eignarhlutdeild Gaums í
skemmtibátnum Thee Viking. Hér-
aðsdómur sýknaði þá báða á þeirri
forsendu að ákært væri fyrir að
draga Gaumi fjármunina en þeir
hefðu í raun runnið inn í fyrirtæki
Jóns Geralds, Nordica. Og ekki má
dæma ákærðan mann fyrir aðra
hegðun en þá sem í ákæru greinir.
Saksóknari tók þá ákvörðun að
áfrýja aðeins þætti Jóns Ásgeirs
hvað þennan lið varðaði og sagði
Tryggva aðeins hafa verið hand-
bendi Jóns, og séð um að greiða
reikningana. Þá reyndi hann að
sannfæra Hæstarétt um að það gæti
ekki skipt sköpum hvert fjármunirn-
ir hefðu runnið, þeir hefðu sannar-
lega verið hugsaðir fyrir Gaum, sem
er fjölskyldufyrirtæki Jóns Ásgeirs
og Jóhannesar Jónssonar. Tók Sig-
urður dæmi úr Landssímamálinu
svonefnda, en aðalgjaldkeri Lands-
símans dró sér fé inn á reikninga
annarra, en var þó dæmdur í Hæsta-
rétti. Einnig minntist hann á að
Gaumur hefði borgar afborganir af
bátum Jóns Geralds þar til í janúar
árið 2000 þegar Baugur hefði tekið
við greiðslunum.
Að lokum fór settur saksóknari
yfir ákæru yfir Tryggva einum fyrir
fjárdrátt. Héraðsdómur sakfelldi
Tryggva fyrir hluta af ákærunni, eða
fyrir rúmar fimm hundruð þúsund –
ákært var fyrir 1,3 milljónir króna.
Aðrar færslur voru taldar tengjast
starfi Tryggva hjá Baugi.
Saksóknari vill sakfella Tryggva
að fullu og benti m.a. á að kortið
hefði verið Baugi óviðkomandi. Það
hefði verið skráð hjá Nordica og
Tryggvi hefði verið með nokkur önn-
ur kort sem skráð voru hjá Baugi.
eirs Jóhannessonar sem forstjóra Baugs
g sekt koma
éfum Jóns
Morgunblaðið/Golli
s Magnússon, settur saksóknari, gera sig klára.
sson,
ssonar.
Í HNOTSKURN
»Sigurður Tómas Magnús-son, settur saksóknari, hafði
farið fram á um fimmtán
klukkustundir til ræðuhalda.
Hæstiréttur féllst ekki á það.
»Honum var gert að ljúkamáli sínu á einum degi. Rétt-
ur var settur klukkan átta og
stóð til klukkan að verða fimm.
»Sigurður Tómas hóf daginná að leggja fram 11 skjala-
möppur máli sínu til stuðnings.
»Deginum í dag verður svoskipt niður á verjendur og
andsvör.
»Ákæran tekur til áranna1999-2002, þá var Baugur
almenningshlutafélag.
»Jón Ásgeir Jóhannesson,Tryggvi Jónsson og Jón
Gerald Sullenberger eru ákærð-
ir í málinu.
»Ákæra í málinu var í upp-hafi í 19 liðum en 1. ákæru-
liðnum var vísað frá héraðs-
dómi sumarið 2006.
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
BETUR fór en á horfðist þegar um
2.000 hermenn voru sendir í skyndi
að stíflu við bæinn Dujiangyan í
Sichuan-héraði í Kína til að loka „af-
ar hættulegum sprungum“ og af-
stýra því að stíflan brysti.
Zipingpu-stíflan, önnur tveggja
stórra stífla á svæðinu, miðlar vatni
til rúmlega 5.000 km² lands, vatns-
miðlun sem á sér rúmlega 2.000 ára
sögu, og hefur það orð farið af Duji-
angyan að þar fari eitt frjósamasta
landbúnaðarsvæði Kína.
Því var óttast að ef stíflan brysti
gæti það aukið enn á neyðina í hér-
aðinu, en stíflan er um kílómetra frá
Wenchuan-sýslu, þar sem upptök
skjálftans urðu á mánudag.
Kínversk stjórnvöld hafa reynt að
gera sem minnst úr málinu og sent
frá sér tilkynningar um að ekkert
hafi verið að stíflunni.
Að sögn AFP-fréttastofunnar
vöknuðu grunsemdir um að stjórn-
völd ritskoðuðu efni um Zipingpu-
stífluna á netinu og sagði þar að þeg-
ar orðin „Zipingpu“ og „hersveitir“
voru slegin inn á kínverska leitarvél í
gærkvöldi hefði birst texti um að
efnisleitin kynni að brjóta í bága við
landslög. Áður höfðu talsmenn ráðu-
neytis vatnsmála í kínversku stjórn-
inni varað við því að 600.000 manns
gætu verið í hættu ef stíflan brysti,
en hún var reist þrátt fyrir viðvar-
anir um að hún lægi á skjálftasvæði,
að því er fram kom á vef breska
blaðsins The Times. Á sama tíma
hafði AP-fréttastofan eftir kínversk-
um skipulagsyfirvöldum að hátt í
400 stíflur, flestar þeirra smáar,
hefðu orðið fyrir skemmdum í Sichu-
an-héraði af völdum skjálftans á
mánudag.
Reuters
Jöfnuð við jörðu Önnur tveggja efnaverksmiðjanna í Shifang-sýslu í Sichuan-héraði sem hrundi til grunna í
skjálftanum á mánudag. Hundruð starfsmanna verksmiðjanna létu lífið, en um 6.000 náðu að forða sér í tæka tíð.
Frásagnir af stíflu
vekja spurningar
Kínverska ríkisstjórnin talin ritstýra umfjölluninni á netinu
„MENN eru að verða dálítið opnari fyrir því í seinni
tíð og farnir að kunna að reikna út hvernig á því
stendur að einn skjálfti hafi áhrif á aðra,“ segir Páll
Einarsson, jarðeðlisfræðingur við Háskóla Íslands,
inntur eftir því hvort vænta megi fleiri stórra skjálfta í
Kína, í ljósi skjálftanna þriggja á árunum 1920, 1927
og 1932.
Samspilið sé þó flókið, einkum á stöðum eins og í
Kína þar sem ekki sé að finna vel skilgreind flekamót
eins og hér á landi. Skjálftavirknin í Kína sé dreifð um
mjög breitt belti og því erfitt að reikna út frá einum
stað til annars hvaða áhrif hver skjálfti hefur á aðra. Stundum geti kom-
ið skjálftar í röð í kjölfar þess fyrsta.
Þekktasta dæmi um röð slíkra skjálfta sé frá Anatólíamisgenginu í
Tyrklandi alla síðustu öld, sem lauk með miklum skjálfta 1999, þegar allt
að 45.000 manns fórust suðaustan við Istanbúl. Leiddar hafi verið líkur
að því að vænta megi stórs skjálfta sunnan við stórborgina á næstu árum.
Páll segir þá ályktun hafa verið dregna að vegna tíðra fregna af miklu
tjóni í skjálftum fari skjálftavirkni vaxandi í heiminum. Hið rétta sé að
sökum þess að borgir fari stækkandi aukist líkur á að tjón verði mikið í
skjálftum, auk þess sem nýir miðlar sýni atburðina í skýrara ljósi en fyrr.
Kenning um raðskjálfta
Páll Einarsson
Baugsmálið fyrir Hæstarétt
mbl.is | Sjónvarp