Morgunblaðið - 15.05.2008, Side 44
■ Í kvöld kl. 19.30
Swingle Singers – frá Bach til Bítlanna
Hinn heimsþekkti sönghópur Swingle Singers hefur fyrir löngu sann-
að að honum er ekkert ómögulegt og efnisskráin er vægast sagt fjöl-
breytileg. Það mun ekki fara framhjá áheyrendum á þessum tónleik-
um: Bach, Mozart, Berio, Lennon og McCartney munu hljóma í með
förum meistanna. Tónleikar sem söngunnendur vilja ekki missa af.
Hljómsveitarstjóri: Bernharður Wilkinson
Söngvarar: Swingle Singers
■ Lau. 17. maí kl. 14
Maxi snýr aftur! Vegna fjölda áskorana og mikilla vinsælda
bókarinnar um Maxímús Músíkús verður þetta stórkostlega ævintýri
endurflutt. Tryggið ykkur miða!
■ Fim. 22. maí kl. 19.30
Tveir básúnuguðir Þegar tveir virtúósar eins og Christian
Lindberg og Charlie Vernon leiða saman hesta sína verður útkoman
göldrum líkust. Ómissandi fyrir áhugamenn um flugeldasýningar.
Miðasala
S. 545 2500
www.sinfonia.is
Ég veit að hún kemur
aftur til baka af krafti
eins og popplegið kasttré …
47
»
reykjavíkreykjavík
FRIÐRIK Ómar veitti Evróvisjón-vefnum (www.esc-
today.com) viðtal áður en hann vatt sér á sviðið í Beo-
gradska-höllinni í Belgrad á þriðjudag. Viðtalið er allt
hið hressasta eins og við var að búast þegar Friðrik
Ómar er annars vegar, en ekki síður upplýsandi. Til að
mynda kemur fram í viðtalinu að Friðrik Ómar hafi sent
frá sér tvær plötur áður en hann náði 18 ára aldri og að
hann hafi hljómað eins og önd á þeim báðum. „Ég er
mjög stoltur af þessum plötum og var staðráðinn í að
taka þær upp, þrátt fyrir að ég hlusti ekki á þær í dag.“
Snýst um að sameina Evrópu
Friðrik Ómar viðurkennir í viðtalinu að það hafi valdið
honum miklum vonbrigðum þegar hann tapaði fyrir
Eiríki Haukssyni í forkeppninni hér heima í fyrra. Hann
hafi hins vegar gert sér grein fyrir því að á undanförnum
árum hafi almenningur á Íslandi valið söngvarann fram
yfir lagið og Eiki Hauks hafi verið uppáhald þjóðarinnar
í þetta skiptið.
Á hinn bóginn telur hann almenning í Evrópu ekki
undir sömu sök seldan og því sé hann viss um að besta
lagið fái að lokum flest stigin. Það hafi til dæmis ekki
komið honum á óvart þegar Serbía hafi sigrað því honum
hafi einfaldlega fundist það besta lagið.
„Satt að segja kann ég oftast að meta lögin sem koma
frá Austur-Evrópu best. Ég hef enga trú á því að það sé
nokkur pólitík í gangi, undanfarin ár hafa austur-
evrópsku lögin einfaldlega borið af. [Evróvisjón] á ekk-
ert skylt við pólitík. Hún snýst um að sameina Evrópu.“
Hljómaði eins og önd
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Friðrik Ómar Hélt með serbneska laginu í fyrra.
Ólafi (de
Fleur) Jóhann-
essyni hefur ver-
ið boðið með
heimildarmynd
sína The Amazing
Truth about
Queen Raquela á Kvikmyndahátíð
Los Angeles-borgar (Los Angeles
Film Festival) sem fram fer dagana
19.-29. júní. Hátíðin er stærsta
kvikmyndahátíð sem haldin er þar í
borg og iðulega mæta um 100 þús-
und manns á hverju ári til að berja
augum bæði það nýjasta og besta í
bandarískri kvikmyndagerð sem og
alþjóðlegar kvikmyndir, heimildar-
myndir og stuttmyndir. Samkvæmt
heimasíðu Ólafs var hann búinn að
afþakka boð á hátíðina en lét til
leiðast þegar hann skoðaði hótelið
sem honum hafði verið úthlutað.
Þetta er að sjálfsögðu allt spurning
um forgangsröðun.
Queen Raquela á
Kvikmyndahátíð í LA
Leikritið
Killer Joe eft-
ir Tracy Letts
verður frum-
sýnt á fjölum
Leikfélags
Akureyrar í
næstu viku.
Sýningin
fékk ágætis
viðtökur þeg-
ar það var
sett upp hér
syðra í Borg-
arleikhúsinu
og í kjölfarið var leikritið tilnefnt
til átta Grímuverðlauna, þar á með-
al sem besta sýningin. Þá var sýn-
ingin á lista Morgunblaðsins yfir
áhugaverðustu leiksýningar ársins
2007, og hafði María Kristjáns-
dóttir m.a. þetta um hana að segja:
„Leikstíllinn er framan af eins og
staðið sé fyrir framan sjónvarps-
vélar, lágstilltur.“
Leikstjóri sýningarinnar er Stef-
án Baldursson.
Killer Joe til Akureyrar
INFERNO 5 er í raun réttri listahópur og hefur
sem slíkur snert á ýmsu þar að lútandi allt frá
stofnun 1984. Tónlistin var snemma tekin föst-
um tökum, þónokkrar snældur liggja eftir hóp-
inn og svo kom geislaplatan Angeli daem-
oniaque omnigena imbecilli sunt út árið 1996.
Hræringar á þessu sviði hafa síðan þá verið litl-
ar.
„Við komum síðan fram á tónleikum um
páskana,“ segir Þorri Jóhannsson. „Og þeir
gengu afskaplega vel. Við vorum með karlakór,
Þorraþræla, og svo ýmislega gjörninga eins og
hefur alltaf fylgt.“
Skiptir ekki máli …
Erfitt er að flokka tónlist Inferno 5, helst að
manni detti Residents í hug sem viðhöfðu (og
viðhafa) ýmsa gjörninga samfara skringilegri
tónlist.
„Jú, jú, Residents, góð og gild sveit. En hún
hafði ekki bein áhrif,“ segir Þorri. „Í upphafi
vorum við svona „multimedia“ hópur, vorum í
ýmsu, og við töluðum stundum um að við værum
með gerningaþjónustu. En já, í upphafi var
þetta mikið post-pönk. Can var líka í myndinni,
sumir voru hrifnir af Velvet Underground. Sum-
ir alls ekki.“
Þorri segir að upphaflega hafi þetta átt að
vera salsasveit. Nokkrir meðlima hafi búið um
hríð í Barcelona og átti þá að stofna slagverks-
væna danssveit.
„En það voru aðrir sem sáu síðan um það,“
segir Þorri og glottir við tönn.
Inferno 5 hélt mikið til á gamla 22 og því við-
eigandi að tónleikar kvöldsins fari fram á Barn-
um, sem er í sama húsnæði. Á sínum tíma var rík
– og einkar jaðarbundin – stemning á staðnum,
neðanjarðarmenning þreifst vel og framsækin
listaöfl stunduðu staðinn eins og félagsmiðstöð
og oft voru þar uppákomur sem keyrðu að ystu
brún hins viðtekna.
„Einn okkar var einn af stofnendum 22 og því
eðlilegt að við værum að flækjast svolítið þar
um. Við tókum mið af dada-ismanum og gerðum
okkur fulla grein fyrir því að við værum starf-
andi úti á kanti, værum svona jaðarhópur. Á því
höfðum við og höfum áhuga, sölu- og markaðs-
menningin stendur afskaplega fjarri okkur.“
… gildir einu
Aðspurður segist Þorri gera sér grein fyrir
því að margir yngri listamenn hafi hópinn á
stalli, líti á sveitina sem goðsagnakennda.
„Og það er nú ein af ástæðunum fyrir því að
við erum að ræsa á nýjan leik. Við erum gagn-
gert að afbyggja eða öllu heldur afhjúpa þessa
goðsögn. Sýna fólki hvað það er sem stendur á
bak við allar þessar munnmælasögur. Því að það
er nú einu sinni svo, og einherjir kunna að verða
fyrir vonbrigðum núna, að við erum einfaldlega
menn – ekki ósnertanlegar, goðsagnakenndar
verur.“
Goðsögnin afhjúpuð
Hin goðsagnakennda jaðarsveit Inferno 5 hefur gefið út nýja plötu, Fávitaein-
veldi, sem hún kynnir á tónleikum í kvöld Átti upphaflega að vera salsasveit
Morgunblaðið/Golli
Inferno 5 „…við erum einfaldlega menn – ekki ósnertanlegar, goðsagnakenndar verur.“
Útgáfutónleikar Inferno 5 vegna Fávitaeinveldis
verða haldnir á Barnum (gamla 22) eins og áður
segir. Aðrir sem fram koma eru Gjöll, Product 8,
Digital Madness og Klive. Þá verður sjónhátta-
fræðingurinn Kokkur Kirjan Kvæsir með uppá-
komu.
www.myspace.com/inferno5album
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is