Morgunblaðið - 06.07.2008, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 06.07.2008, Blaðsíða 47
ur við að þótt lífi hennar hér sé lok- ið þá slokknar ljósið hennar aldrei og minning um hana lifir í hjörtum okkar og barnanna okkar. Elsku Hnikarr, Ýr, Arnór, Re- bekka, Arnar, Anna, Hnikarr Örn, afi og amma, Guð veri með ykkur í þessari miklu sorg ykkar. Kristín, Guðmundur, Höskuldur Ægir og Embla Ýr. Með sorg í hjarta sest ég niður og skrifa nokkur orð vegna fráfalls ástkærrar móðursystur minnar. Ég hef alltaf litið upp til Jónu frænku, allt frá því ég man eftir mér og fram á hennar síðasta dag. Það var aðdáunarvert hvernig hún tókst á við veikindi sín, með kraft- inn og staðfestuna sem alla tíð ein- kenndu hana að vopni. Ég á margar dýrmætar minn- ingar frá samverustundum með Jónu. Ég man eftir að sitja við eld- húsborðið á Brekkugötunni sem nýfermdur unglingur og hristast af hlátri vegna skemmtilegrar frá- sagnar hennar. Og þannig var það oftast þar sem Jóna var; hlátur og gleði, húmor og kraftur. Þau Hnik- arr voru ómissandi hluti af fjöl- skyldufögnuðum og tóku alltaf virkan þátt í öllu sem fram fór. Þá eru einnig ófáar minningarnar úr fjölskylduútilegum þar sem þau hjónin voru hrókur alls fagnaðar, ómissandi hluti af heildinni. En nú hefur sú heild verið rofin og eftir stöndum við lömuð af sorg. Elsku Jóna, fráfall þitt hefur fært dimm- an skugga yfir okkur öll og það eina sem við getum gert er að ylja okkur við allar góðu minningarnar sem við eigum um þig. Elsku Hnikarr og fjölskylda, amma og afi, ég bið þess að Guð styrki ykkur í sorg ykkar. Hvíldu í friði, elsku Jóna. Margrét S. Höskuldsdóttir. Elsku Jóna. Nú ertu farin frá okkur, eftir mikil veikindi sem þú tókst á með miklu æðruleysi. Minningar sem streyma um hug- ann er best lýst með þessum erind- um. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð. Þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir.) Elsku Hnikarr minn, mikill er missir þinn, Guð verði með þér og styrki og styðji. Ýri, Arnóri, Re- bekku og öðrum aðstandendum sendi ég mínar innilegustu sam- úðarkveðjur, Guðmundur G G. MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. JÚLÍ 2008 47 Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl Dýrahald Langar þig í Boxer? Boxer hvolpar til sölu með ættbók frá HRFÍ. Foreldrar íslenskir meistarar, mjaðmamyndaðir og hafa lokið skap- gerðarmati. Nánari upplýsingar www.boxer.is og 891 8997. Garðar Nýtt, uppsett barnahús/ geymsluhús Til sölu 4,1 fm barnahús með verönd. Upplagt sem geymsluhús á veturna. Verð aðeins kr. 220.000. Upplýsingar í síma 5814070 og www.jabohus.is Ferðalög Íbúð í Barcelona Íbúð til leigu, miðsvæðis í Barcelona, til lengri eða skemmri tíma. Nánari upplýsingar á vefsíðunni www.ibudbcn.blogspot.com og á póstfanginu ibud.bcn@gmail.com Íbúðir til leigu í Barcelona á Spáni, hagstætt verð, Costa Brava Playa de Aro, Baliares- eyjan, Menorca Mahon, Vallado- lid, www.helenjonsson.ws Sími 899 5863. Heilsa Ljósabekkir! Ergoline Evolution ljósabekkir, 5 ára, vel með farnir, dúndurtilboð: 350 þ. Einnig 2 standbekkir á 100 þ. saman. Upplýsingar í s: 896-8557, Gunnar. Djúpslökun hugarfarsbreyting til betra lífs með EFT og sjálfsdáleiðslu. Viðar Aðalsteinsson dáleiðslufræðingur, sérfræðingur í EFT, sími 694 5494, vidar@theta.is, www.theta.is Húsnæði í boði Studíóíbúð til leigu í 101 Reykjavík. Er laus strax. Einungis reglusamir og reyklausir koma til greina. sps@hive.is eða í síma 863 9378. Íbúð til leigu 3 herb 100 fm íbúð til leigu. Laus strax. Reyklaust og reglusamt fólk kemur aðeins til greina. Uppl í síma 770-1760. 4 herb. íbúð til leigu m/öllu í 109 Rvk frá 2. sept 2008 til 3. nóv 2008. Allt innifalið, rafmagn, ísskáp- ur, húsgögn o.fl. Reyklaust, trygging samkomulag. Leigist á sanngjörnu verði. Hafið samb. s. 693 0003. Húsnæði óskast 3ja herb. íbúð í miðbæ Kaupmannahafnar með húsgögnum óskast til leigu 4 mán (sept-des). Um er að ræða reyk- lausa námsmenn í skiptinámi. Skilvísum greiðslum heitið Nánari uppl. í s. 866 0778. Atvinnuhúsnæði Stór skemma á svæði 104 Rvík. Mikil lofthæð - Innkeyrsludyr. 4 - 500 fm leigist á 750 pr. fm. Upplýsingar í 893-6020. Sumarhús www.spain-casa.com, fjöldi nýrra eigna Höfum bætt fjölda af eignum inn á söluskrá okkar á mjög góðu verði. T.d. þetta einbýlishús á aðeins 167.000 evrur. Allar uppl. í s. 496 0848 eða á info@spain-casa.com Sumarhús - orlofshús. Erum að framleiða stórglæsileg og vönduð sumarhús í ýmsum stærðum. Áratuga reynsla. Höfum til sýnis á staðnum fullbúin hús og einnig á hinum ýmsu byggingarstigum. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, símar 892 3742 og 483 3693, netfang: www.tresmidjan.is Lóð við Úlfljótsvatn Til sölu lóð við Úlfljótsvatn. Leyfi f. bát og veiði. Uppl. 893 5414 og www.bergfast.is Falleg og vönduð sumarhús frá Stoðverk ehf. í Ölfusi. Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup- enda, sýningarhús á staðnum. Einnig til sölu lóðir á Flúðum. Símar: 660 8732, 660 8730, 892 8661, 483 5009. stodverk@simnet.is Hestar Hross til sölu Hef til sölu nokkur góð tamin hross og eitthvað af efnilegum trippum. Erum staðsett á Hvolsvelli, 14 km frá landsmóti á Hellu. hemlahestar.com Til sölu Tékkneskar og slóvenskar handslípaðar kristal- ljósakrónur. Mikið úrval. Frábært verð. Slóvak kristall, Dalvegi 16b, Kópavogi. S. 544 4331. Fyrirtæki Hársnyrtistofa til sölu Hársnyrtistofa í góðum rekstri á hjúkrunarheimili í Rvk til sölu. Upplýsingar í síma 861 7892. Þjónusta Móðuhreinsun glerja! Er komin móða eða raki milli glerja? Móðuhreinsun Ó.Þ. Sími 897 9809. Gæðabón Ármúla 17a, það besta fyrir bílinn þinn. Alþrif, mössun, teflon, djúphreinsun. Opið mán.-fö 8-18. S. 568 4310. Byggingavörur www.vidur.is Harðviður til húsbygginga. Vatns- klæðning, panill, pallaefni, parket o.fl. o.fl. Gæði á góðu verði. Sjá nánar á vidur.is. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 6600230 og 5611122. Ýmislegt www.heitirpottar.is Kleppsvegur 152, sími 554 7755 Tilboð Skeljar 199.000.- Volare húðvörur Er að selja frábærar húðvörur frá Volare. Hringið í síma 662 6560. Tek líka að mér heimakynningar. Helga, sjálfstæður söluráðgjafi hjá Volare. Hópstjóri Lydía. Rafstöðvar 5 kw, 12 kw, 30 kw öflugar vélar - Verktakar, bændur, sumarhúseigendur, við höfum raf- stöðina sem hentar. Beinn innflutn- ingur. Betra verð. Bílaverkstæðið Holti, s. 435 6662, www.holt1.net . Mikið úrval af flottum leðurskóm fyrir dömur. Margar gerðir. Mjög gott verð. erð frá 7.885 til 9.685.- Misty skór, Laugavegi 178, sími: 551 2070 opið mán-fös 10-18 Ath. lokað á laugardögum í sumar Góð þjónusta, fagleg ráðgjöf Blómakór. Margir litir. Eitt par 1.000 kr., tvö pör 1.690 kr. og barnaskór 500 kr. Póstsendum. Skarthúsið, Laugavegi 12. Sími 562 2466. Bílar Toyota Land Cruiser 100 TDI 5/1998 dísel, ssk., tems. ek. 245 þ.km nýsk. Lækkað v. 1990 Þ. Uppl. í s. 897 1998. Til sölu Audi quattro 2003, ný skoðaður. Tilboðsverð vegna fluttnings 2.3 mill. Áhvílandi lán 1600 þús. Upplýsingar í síma 849 1281 eða bleki@intro.is Plymouth Laser eða Eagle Talon ‘92 eða ‘93 óskast til kaups. Má vera bilaður. Upplýsingar í síma 825 2173. Glæsilegur Cadillac Fleiri myndir á hofdabilar.is Upplýsingar í síma 899 7230. Hópbílar Get bætt við mig verkefnum 20 manna rúta og 5 manna Land Cruiser fyrir lengri og styttri ferðir. 896-4466 eða gkrutur@gmail.is Hjólhýsi Sumarhús á hjólum Landhaus 750 UMF 2006. Ódýr lausn, bæði lúxus sumarhús og hjólhýsi. Til sýnis í Kópavogi. S. 893 4416 eða aolar@simnet.is. Ásett 3,7 m, (lv. 4,4 m). Eins og nýtt. Húsbílar Mercedes Benz húsbíll ´85 árg. Mjög góður húsbíll, mikið endurnýj- aður, ísskápur, eldavél, kalt vatn, wc o.fl. Verðtilboð. Uppl. í s. 691-4521. Bílar aukahlutir Útdraganlegur pallur Hef til sölu útdraganlegan pall á pallbíla. 5 mm stál, mikill burður, gal- vaníseruð grind. Aukin þægindi fyrir iðnaðarmenn, hjólamenn og veiði- menn. Ómar Orri, 893 0885. Ný sumardekk 16" Ný sumardekk, stærðin 235/60R16. 13 þús. kr. stk. í stað 19 þús. Sími 898 1214 / 437 1115. Einkamál Stefnumót.is Nýr stefnumótavefur og tengslanet: "Þar sem íslendingar kynnast". Líttu við og tryggðu þér gott notanda- nafn til frambúðar. Stefnumót.is Nýr samskiptavefur: "Þar sem Íslendingar kynnast". Líttu við og tryggðu þér gott notandanafn til frambúðar. Vinnuvélar JCB minigrafa til sölu JCB minigrafa árg. 2006, kerra, 4 skóflur, brothamar, jarðþjappa 250kg, upplýsingar í s. 691-4521. Þjónustuauglýsingar 5691100
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.