Morgunblaðið - 06.07.2008, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 06.07.2008, Blaðsíða 54
54 SUNNUDAGUR 6. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ H ér hefur áður verið fjallað lítillega um svonefnda Anti-Folk hreyfingu í Banda- ríkjunum sem lýsa má sem þjóðlagasöng þar sem hefðinni er kastað, þ.e. tónlist- armenn troða gjarnan upp einir með gítar eða píanó og syngja sög- ur. Yrkisefnið tengir þá við þjóð- lagasöng fyrri tíma (orðið þjóðlög hér notað sem nafnorð en ekki sem lýsingarorð), sungið er um ást og örlög og hversdagslega hluti og áhersla lögð á að segja sögur þó við það stef séu ótal tilbrigði. Merkimiðar í músík eru snúnir og anti-folk snúnari en flestir, en þó má segja að slíka músík ein- kenni jafnan mikil einlægni í textagerð, á köflum barnsleg ein- lægni, og lítið lagt uppúr fullkom- inni spilamennsku og söng – túlk- unin skiptir mestu, en að sama skapi skín yfirleitt í gegn að lista- mennirnir taki sig sjálfa ekki of al- varlega þó þeim sé alvara. Heiti þessarar „hreyfingar“, sem haft hefur svo ólíka listamenn sem Beck, Ani DiFranco, Regina Spektor, Diane Cluck, Adam Green, Michelle Shocked, Linda Draper og Nellie McKay innan sinna vébanda, en almennt rakið til þess er settur var upp í aust- urbænum í New York, Lower East Side, og opnunarkvöldið var kallað and-þjóðlagahátíð, enda stóð þá yfir í Þjóðlagahátíð New York. Súrrealískar smásögur Linda Draper er nefnd sem ein af and-þjóðlagagenginu og vissu- lega á sá stimpill ágætlega við hana; hún er alla jafna ein með kassagítarinn, spilamennska kæru- leysisleg á köflum, þó ekki vanti í hana fagmennskuna, söngurinn ekki alltaf hreinn og textarnir smásögur úr daglegu lífi, sumar opinskár og hjartnæmar en aðrar svo súrrealískar að þær verða trauðla útskýrðar nema með mik- illi yfirlegu. Linda Draper er komin af tón- listarfólki; móðir hennar lék á pí- anó og gítar og faðir hennar er þekktur gítarleikari í klassík. Hún hóf snemma að syngja í kirkjukór og nam síðan tónlist við skóla í New York og komst þar í tæri við títtnefnda and-þjóðlagahreyfingu. Draper og Kramer Fyrsta breiðskífa Draper, Rico- chet, kom út 2001, en þá skífu hljóðritaði hún með Mark Kramer við stjórnvölinn, en sá er meðal annars þekktur fyrir að hafa stofnað og rekið útgáfuna Shimmy Disc og unnið með Penn & Teller, Boredoms, Ween, Damon & Naomi, Galaxie 500, Low og Dani- el Johnston. Samstarf þeirra Draper og Kramer gekk svo vel að hún vann næstu þrjár skífur með honum; hann var þannig við takk- ana á Snow White Trash Girl, sem kom út 2002, Patchwork, sem kom 2003, og One Two Three Four, sem kom út 2005. Að auki hefur hún komið fram á safnplötum öðr- um til heiðurs, var á Rick Nelson skífunni Easy To Be Free og átti líka lag á plötu sem gefin var út til heiðurs Phil Ochs, Poison Ochs, og á minningarplötu um Harry Nils- son, I’ll Never Leave You. Hún hefur einnig gefið út tvær stutt- skífur, Needlessly og Traces Of. Draper gaf sjálf út fyrstu þrjár skífurnar en tvær þær síðustu komu út á vegum plötufyrirtæk- Ást, örlög og hversdagsleikinn TÓNLIST Á SUNNUDEGI Árni Matthíasson Þjóðlagasögur Bandaríska söngkonan Linda Draper. Þú færð 5 % endurgreitt í Borgarbíó Þú færð 5 % endurgreitt í Háskólabíó Þú færð 5 % endurgreitt í SmárabíóSími 564 0000Sími 462 3500 * Gildir á allar sýningar merktar með rauðu TILBOÐ Í BÍÓ eee SÝND Í SMÁRABÍÓI Það er kominn nýr hrotti í fangelsið... af minni gerðinni! Rob Schneider fer í steininn og leggur fangelslið undir sig í þessari brjáluðu gamanmynd. The Incredible Hulk kl. 3-5:30-8-10:30 B.i. 12 ára Zohan kl. 8 - 10:30 B.i. 10 ára Big Stan kl. 1-3:20-5:40-8-10:20 B.i. 12 ára Horton Kl. 1 eeee 24 stundir SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI eeee - V.J.V., Topp5.is/FBL - Viggó, 24stundir SÝND SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI FÓR BEINT Á TOPPINN Í USA. SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI SÝND SMÁRABÍÓI M / ÍSLENSKU TALI OG HÁSKÓLABÍÓI M / ENSKU TALI 50 kr. afsláttur ef þú kaupir bíómiðann á Hancock kl. 1-3:20-5:40-8-10:10 B.i. 12 ára DIGITAL Hancock DIGITAL kl. 1-3:20-5:40-8-10:10 B.i. 12 ára LÚXUS Kung Fu Panda ísl. tal kl. 1 - 3:20 - 5:40 DIGITAL Hancock kl. 4 - 6 - 8:30 - 10:30 B.i. 12 ára Kung Fu panda enskt tal kl. 4 - 6 - 8 - 10 Big Stan kl. 3:20 - 5:40 - 8 - 10:20 B.i. 12 ára Sex and the City kl. 6 - 9 B.i. 14 ára Kjötborg m/enskum texta kl. 4 - 5 Hancock kl. 4 - 6 - 8 -10 Kraftsýning B.i.12ára Big Stan kl. 8 - 10 B.i.12ára Hulk kl. 3:40 - 5:50 - 10 B.i.10ára SÝND Í SMÁRABÍÓI JACK BLACK SANNAR AF HVERJU HANN ERTALINN EINN AF FYNDNUSTU GRÍNLEIKURUNUM Í HEIMINUM Í DAG. Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og Háskólabíói ef þú borgar bíómiðann með Kreditkorti tengdu Aukakrónum! ath! síðustu sýningar „Kjötborgarkaupmennirnir á horninu klikka ekki” - T.S., 24 stundir eeee SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI SÝND Í SMÁRABÍÓI SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.