Morgunblaðið - 06.07.2008, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 06.07.2008, Blaðsíða 2
Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.is ÓBIFANDI staðfesta indversku ömmunnar Omkari Panwar bar gleðilegan árangur í gær þegar heilbrigðir tvíburar hennar voru teknir með keisaraskurði, um mánuði fyrir tímann. Panwar og eiginmaður hennar, Charan Singh Panwar, 77 ára gamall bóndi sem hefur látið af störfum, þráðu son og fengu þá heitu ósk sína ríflega uppfyllta, því í heiminn kom einnig stúlkubarn, en fyrir eiga þau hjónin tvær dætur og fimm barnabörn. Panwar fór í tæknifrjóvgun og til að greiða fyrir meðferðina seldi maður hennar vísundana, veðsetti land sitt, lagði til allt spariféð og tók kreditkortalán að auki. Horfðist í augu við sársaukann Panwar sagði mánuðina átta á meðgöngunni hafa verið sársaukafulla. „Ég hef gengið í gegn- um fæðingu áður og vissi því við hverju ég átti að búast. Stundum þarf maður að mæta sársauk- anum ef maður vill að eitthvað gott gerist,“ sagði nýbökuð elsta móðir heims. Þau hjónin áttu sem fyrr segir tvær dætur fyrir og nú þegar þau hafa eignast son geta þau vænst þess að hann taki við landinu og að hann fái heimanmund þegar hann festir ráð sitt. „Loksins eignuðumst við son og erfingja. Ég dey stoltur faðir,“ sagði Charan glaður. Sjötug og alsæl með tvíburana  Indverska amman Omkari Panwar fékk ósk sína uppfyllta og varð um leið elsta móðir sögunnar  Tvíburarnir, piltur og stúlka, voru teknir með keisaraskurði mánuði fyrir tímann Í HNOTSKURN »Panwar á ekki fæðingar-vottorð en fullyrðir að hún hafi náð sjötugu. »Aðgerðin fór fram í Mu-zaffarnagar, sem er í um sjö klukkustunda aksturs- fjarlægð frá Nýju-Delhí. »Spænska konan Maria delCarmen Bousada de Lara er elsta móðir sem vitað er um fram að þessu, en hún átti viku í 67 ára afmælið þegar hún eignaðist tvíbura fyrir tveimur árum. Þeir voru teknir með keisaraskurði. Undur Tvíburarnir, piltur og stúlka, komu í heiminn á Indlandi í fyrradag. Þeim heilsast vel. 2 SUNNUDAGUR 6. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is, Bergþóra Njála Guðmundsdóttir, ben@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gud- laug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Eftir Unu Sighvatsdóttur unas@mbl.is „ÁSTANDIÐ er óviðunandi en við erum enn vongóð um að þetta verði leiðrétt,“ segir Árni Sigfússon, bæj- arstjóri Reykjanesbæjar, um fjár- skortinn sem plagað hefur Heil- brigðisstofnun Suðurnesja (HSS). Verulega hefur verið skorið niður í þjónustu þar undanfarið, eins og Morgunblaðið sagði frá í gær, og stefnir í að vísa þurfi frá 9 af hverj- um 10 sjúklingum sem leita á heilsu- gæsluna utan dagvaktar. Árni segir bæjarstjórnina gera þá kröfu að íbúar Suðurnesja geti sótt grunnheilbrigðisþjónustu í sína heimabyggð, þótt ekki sé óeðlilegt að hluti þjónustunnar sé sóttur til Landspítala til að nýta þann búnað og þekkingu sem þar er til staðar. Þess má þó geta að í upphafi árs gerði LSH samkomulag við fjögur nágrannasjúkrahús, þar á meðal Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, um að veita ríkari heilbrigðisþjónustu í heimabyggð til að létta álagið á LSH. Markmið þess samkomulags, sem heilbrigðisráðherra kallaði í janúar tímamót, virðist því ekki geta gengið eftir á meðan ekki er komið til móts við fjárþörf HSS. Ferlið of hæggengt „Þegar við sáum fyrst hversu ójafnt er skipt á milli landshluta töldum við að einhver misskilningur væri í tölunum, en ég hef sjálfur far- ið yfir þær með okkar fólki og það er ótvírætt að þarna er mikil mis- munun,“ segir Árni. Hluti ósam- ræmisins geti skýrst af örri fjölgun íbúa á svæðinu, en þegar sú breyta hafi verið tekin með í reikninginn standi enn eftir óútskýrður munur sem þurfi að leiðrétta. Að sögn Gunnars Svavarssonar, formanns fjárlaganefndar, eru mál HSS ekki enn komin frá heilbrigðis- ráðuneytinu inn á borð fjárlaga- nefndar og er ekki von á aðgerðum fyrr en frumdrög að fjáraukalögum birtast í október. Árni segist von- góður um að heilbrigðisráðuneytið sinni kallinu. „Við höfum fengið staðfestingu á að þetta verði tekið til alvarlegrar skoðunar. Hinsvegar er þetta hægt ákvörðunarferli miðað við þá stöðu sem opinber stofnun er í. Henni ber að vera innan fjárlaga og á meðan er ekki um neitt annað að ræða en að skera niður.“ Óviðunandi mismunun  Mismunun í fjárveitingu til HSS miðað við aðrar heilsugæslur er ósanngjörn segir bæjarstjóri Reykjanesbæjar  Íbúar eiga heimtingu á þjónustunni Í HNOTSKURN »Fjárveiting til HSS er um-talsvert lægri en til sam- bærilegra heilbrigðisstofnana. Næstlægsta upphæðin er um 450 milljónum hærri en sú sem HSS er veitt. »Um 50-100 sjúklingarkoma á heilsugæsluna ut- an dagvaktar, en öllum nema bráðatilfellum verður vísað frá vegna niðurskurðar. »Samkvæmt samkomulagiLandspítala og HSS frá því í janúar stóð til að bráðaþjón- usta yrði efld á Suðurnesjum ÖLVAÐUR bílstjóri ók á N1 bensín- stöðina á Ártúnshöfða aðfaranótt laugardags. Við áreksturinn brotn- aði rúða á bensínstöðinni og fram- endi bílsins var kominn inn í versl- un hennar þegar hann staðnæmd- ist. Þegar öryggisvörður ætlaði að hafa tal af manninum ók hann á brott. Hann var handtekinn skömmu síðar og gisti fanga- geymslur í nótt. Að sögn lögreglu átti að yfirheyra manninn þegar víman væri runnin af honum. Tvær líkamsárásir voru til- kynntar í Reykjavík í fyrrinótt. Maður var fluttur á slysadeild með áverka í andliti eftir slagsmál á Laugavegi og kona var flutt á slysa- deild eftir barsmíðar af hendi karl- manns í Tryggvagötu. onundur@mbl.is Ók ölvaður inn í bensín- stöð N1 TVÆR líkamsárásir og fjögur fíkni- efnamál komu til kasta lögreglunnar á Akranesi á föstudag og aðfaranótt laugardags, en þrjú til fjögur þús- und manns eru í bænum á írskum dögum. Tveir óku undir áhrifum áfengis og fjórir undir áhrifum fíkni- efna. Töluvert var um pústra og átök og þurfti að vísa unglingum af tjald- stæðum, en alls komu fimmtíu mál inn á borð lögreglu. Landsmót gengur vel fyrir sig Nóttin var hins vegar rólegri en búist var við á Landsmóti hesta- manna á Hellu, að sögn lögregl- unnar á Hvolsvelli. Við hefðbundið eftirlit á Suðurlandsvegi komu upp tíu fíkniefnamál þar sem fíkniefni fundust við leit í bifreiðum, talsvert magn að sögn lögreglu. Erill á írsk- um dögum VIÐGERÐIR standa nú yfir á kirkjugarðsveggnum við Kotstrandarkirkju í Ölfusi, en úr honum hrundi í Suð- urlandsskjálftanum þann 29. maí síðastliðinn. Að sögn séra Jóns Ragnarssonar skemmdist veggurinn lítillega í skjálftanum árið 2000, en mun meira sá á honum eftir skjálftann í ár og réðst því sóknin í það verk að styrkja hann og endurhlaða að hluta. Kostrandarkirkja var byggð 1909 en steinhleðslan er um hálfrar aldar gömul. Morgunblaðið/Golli Grjótið hrundi úr veggnum Viðgerð vegna skjálftaskemmda við Kotstrandarkirkju EKKI var fallegt um að litast fyrir utan gistihúsið Chez Monique við Tjarnargötu í Reykjavík að morgni laugardags. Gestir á Monique urðu um nóttina varir við ungan mann sem fékk útrás fyrir reiði sína á blómapottunum í ölæði, eftir rifrildi við stúlku. Davíð Friðbertsson, son- ur eiganda gistihússins, segir þreyt- andi að búa við skemmdarverk drukkins fólks um helgar, þau séu orðin ansi algeng. Hann vonar að sá sem vann skemmdirnar átti sig á al- varleika þess að skemma eigur ann- arra. onundur@mbl.is Ljósmynd/Davíð Friðbertsson Braut blóma- potta í ölæði Villa í frétt um Baug MEINLEG villa var í frétt blaðsins í gær, sem bar fyrirsögnina „Baugur farinn frá Íslandi“. Í fréttinni stóð að með flutningnum gæti Jón Ásgeir Jóhannesson tekið að nýju við stjórnarformennsku í Baugi. Hið rétta er að Jón Ásgeir hafði ekki lát- ið af stjórnarformennsku í félaginu. Beðist er velvirðingar á þessum mis- tökum. LEIÐRÉTT
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.