Morgunblaðið - 06.07.2008, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 06.07.2008, Blaðsíða 11
ER NÁTTÚRAN AÐ REYNA AÐ SEGJA ÞÉR EITTHVAÐ? *Save&Save opinn skv. vaxtatöflu Glitnis 1.7. 2008 ÞÚ FÆRÐ 15% VEXTI OG LEGGUR NÁTTÚRUNNI LIÐ & HAGUR FYRIR ÞIG Þú leggur inn á Save&Save reikning og færð 15% ársvexti* HAGUR FYRIR HEIMINN Glitnir leggur mótframlag í Glitnir Globe – Sustainable Future Fund, sjóð sem styrkir sjálfbæra þróun. Save&Save er reikningur sem Glitnir mun bjóða á helstu markaðs- svæðum sínum. Farðu inn á saveandsave.is eða talaðu við ráðgjafa Glitnis og kynntu þér málið. Glitnir er leiðandi í fjármögnun verkefna á sviði sjálfbærrar nýtingar náttúruauðlinda. H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA – 0 8 -0 9 4 2 „ … áhrifum er varasamt hugtak og auðvelt að villast í því, en ég held að Joseph Konrad hafi hreyft við þeim báðum, og örugglega Gunnari. Maður sér það greinilega. Og Konrad er meistarinn í óveðurslýsingum. Enginn er honum fremri þar, einkum þeim sem tengjast hafinu.“ – Hvar lærðirðu galdurinn við góða frásögn? „Vestur í Dölum var fólk sem gat sagt frá, sérstaklega einn bóndi, góður vinur minn, sem var og er ennþá meistari í ýkjum. Ég hlustaði á hann sem unglingur segja frá böllum og æv- intýrum og trúði hverju orði, hann sagði svo sannfærandi frá. Síðar meir áttaði ég mig á því að við frásagnir hans gilda orð Megasar; helm- ingurinn lygi og afgangurinn plat. Og það var einmitt svo heillandi við frásögnina, að þetta var satt og rétt meðan hann sagði það; hann bjó til nýjan heim við hliðina á okkar. Það er galdur frásagnar og skáldskapar, að búa til heim við hliðina á heiminum, stækka hann og margfalda. Ég er sjálfur lítill frásagnarmaður, sam- kvæmt hefðbundnum skilgreiningum, og vil síður skrifa eins og aðrir höfundar, vil helst finna alveg nýja leið, segja sögur á nýjan hátt, og í þeirri viðleitni skiptir stíllinn höfuðmáli. Ég segi sögu, já, en reyni um leið að skilja lífið og dauðann, manneskjuna og steinana í fjörunni, og slíkt er ekki hægt að gera nema slá saman ljóði og sögu. Ekkert form kemst eins nálægt kjarnanum og ljóðið, og það gefur skáldsagna- forminu nýjar víddir, nýja möguleika. Skáld- sagan þarf helst að ná yfir allan heiminn, fanga bæði líf og dauða, og það er vonlaust verkefni nema hún sæki liðsstyrk í ljóðið. – Og hrynjandi þarf að vera í frásögninni, ekki síður en ljóðinu? „Takturinn sem þú talar um; það er eitthvað sem maður finnur þegar maður fer að skrifa. Hann kom eiginlega til mín óvænt á Vesturgöt- unni fyrir 13 árum. Þá opnaðist hann eins og æð inni í mér og hefur slegið þar síðan. Reyndar eftir að ég hafði grafið lengi eftir honum. Og svo er þetta eins og músík, maður bara spilar og reynir að bæta við nýjum tónum og fleiri strengjum.“ Morgunblaðið/Kristinn Frásagnargáfa Jón Kalman þekkir bónda vestur í Dölum sem er meistari í ýkjum. guna
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.