Morgunblaðið - 18.07.2008, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. JÚLÍ 2008 35
✝ Ingibjörg Guð-björnsdóttir
fæddist í Reykjavík
3. september 1929.
Hún lést á Landspít-
alanum við Hring-
braut föstudaginn
11. júlí síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru Kristbjörg
Jónsdóttir, f. 11. jan-
úar 1898, d. 7. mars
1977 og Guðbjörn
Ásmundsson, f. 26.
júní 1893, d. 19. júlí
1966. Systkini Ingi-
bjargar eru Jón Ágúst, f. 1923, d.
2000, Ólafur, f. 1925, Ásmundur, f.
1926, Sigríður, f. 1927 og Guð-
mundur Vestmann, f. 1938.
Ingibjörg giftist 14. febrúar
1959 Hans Ragnari Sigurjónssyni,
f. 16. júní 1927. Foreldrar hans
voru Anna Scheving Sveinsdóttir,
f. 11. október 1901, d. 30. júlí 1975
og Sigurjón Hansson, f. 14. febrúar
1902, d. 6. maí 1994. Systkini Hans
urssyni, synir þeirra eru
Pétur og Arnar Már, í sambúð
með Heiðu Rut Guðmundsdóttur.
5) Unnur Björg, f. 27. apríl 1961,
gift Pjetri Einari Árnasyni, synir
þeirra eru Árni Ingi, Hans Ragnar
búsettur í Englandi og Bjarki. 6)
Sigurjón, f. 11. maí 1965, í sambúð
með Kristínu Guðbrandsdóttur Je-
zorski, börn þeirra eru Katarína
Eik og Emil Bjartur.
Ingibjörg ólst upp í Reykjavík og
bjó þar alla tíð. Árið 1949 hóf hún
búskap með eftirlifandi eig-
inmanni sínum Hans Ragnari Sig-
urjónssyni skipstjóra. Lengst af
var Ingibjörg heimavinnandi og
hlúði að heimili, börnum og barna-
börnum með miklum myndarskap.
Árið 1982 hóf hún störf hjá Rann-
sóknarstofu búvörudeildar Sam-
bandins, sem síðar varð kjötvinnsla
Goða og starfaði hún þar til ársins
1995.
Útför Ingibjargar fer fram frá
Fossvogskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 15.
eru Sveinn Scheving,
f. 1924, d. 1942, Anna
Hólmfríður, f. 1930,
Þráinn Scheving, f.
1940 og Sveinn
Scheving, f. 1942.
Börn Ingibjargar
og Hans eru: 1) Sig-
urjón, f. 28. febrúar
1950, d. 6. júní 1964.
2) Anna Scheving, f.
6. ágúst 1952, gift
Trygga Tómasi
Tryggvasyni, synir
þeirra eru: Hans
Heiðar í sambúð með
Ernu Sif Jónsdóttur, dóttir þeirra
Álfdís Freyja, og Gunnar, í sambúð
með Ivu Stojákova, búsett í Prag.
3) Ása Björk, f. 6. febrúar 1957,
gift John Steven Berry, börn eru:
Sigríður Inga, í sambúð með Sig-
urði Má, börn þeirra, Jónína Ása
og Fannar Már, Ólafur Þór í sam-
búð með Emmu Hönnu Ein-
arsdóttur og Hlíf. 4) Ágústa, f. 14.
nóvember 1958, gift Halldóri Pét-
Tilvera okkar er undarlegt ferðalag.
Við erum gestir og hótelið okkar er jörðin.
Einir koma og aðrir koma í dag,
því alltaf bætast nýir hópar í skörðin.
Og til eru ýmsir sem ferðalag þetta þrá,
en þó eru margir, sem ferðalaginu kvíða.
Og sumum liggur reiðinnar ósköp á,
en aðrir setjast við hótelgluggann og bíða.
Elsku mamma, ég kveð þig með
þessum línum úr ljóði Tómasar Guð-
mundssonar sem þú hafðir mikið dá-
læti á.
Þú varst tilbúin í ferðalagið og
þarft ekki að kvíða reikningnum.
Sofðu rótt.
Þín,
Unnur.
Með fáum orðum langar mig að
minnast tengdamóður minnar Ingi-
bjargar Guðbjörnsdóttur sem lést á
Landspítalanum við Hringbraut
föstudaginn 11. júlí sl.
Hann var ekki hár í loftinu síð-
hærði drengurinn, með höfuðið í
bringu sem barði að dyrum í Bjarma-
landi 16 fyrir margt mörgum árum,
eftir smástund kemur til dyra snagg-
araleg og glaðlind kona, ég spyr
hvort að Unnur sé heima er ég geng
inn ganginn er mér litið inn í eitt her-
bergið er þá ekki konan kominn upp í
stiga, hún var að mála loftið í her-
berginu viti menn, ég hafði nú talið
að þetta væri „karlmannsverk“ en
svona var Inga alltaf í framkvæmd-
um, mála, skipta um gardínur og
snyrta heimilið. Hún lagði mikla alúð
og natni í verkin sín, var mikill fag-
urkeri, ávallt verið að huga að end-
urbótum og lagfæringum enda um-
fangið nóg fyrir konu með stórt
heimili þar sem eiginmaðurinn Hans
Ragnar Sigurjónsson skipstjóri var
langdvölum að heiman. Það má með
sanni segja að Inga hafi verið skip-
stjórinn í landi. Síðhærði drengurinn
flutti í Bjarmalandið og hófst þá nýr
tími í lífi hans, mikil og góð kynni
urðu með mér og Ingu, sýndi hún
mér ávallt hlýhug, vináttu og góða
leiðsögn.
Drengirnir okkar Unnar komu til
sögunnar, Árni Ingi, Hans Ragnar
og Bjarki, amma var ávallt til taks
þegar á þurfti að halda, þeir töluðu
alltaf um ömmu sem snilling, amma
gat allt, kenndi að skrifa, reikna,
teikna og pissa í kopp, kunni nöfnin á
fótboltahetjunum, amma reddaði
hönskum í túttubyssu, amma átti
plástur, amma átti góða kremið,
amma átti allt.
Ekki skal þessum orðum lokið án
þess að minnst sé á fatnað, þar var
hún á heimavelli, flottar dragtir,
blússur og skór, oftar en ekki var
Inga amma klædd sem drottning,
vissu bófarnir af öllu gullinu hennar?
Hún var drottningin okkar.
Með Ingu sem fyrirmynd, var oft
tekið til hendinni á heimili okkar
Unnar, ávallt eftir að því handverki
lauk var kallað á Ingu til þess að taka
út verkið, betri stílisti var ekki til.
Með þakklæti, kærleika og hlýhug
kveð ég þig mín kæra, minningin um
góða konu lifir. Góði guð gefðu Hans
tengdaföður mínum, Sigurjóni, Unni,
Ágústu, Ásu, Önnu og fjölskyldum
styrk á þessari kveðjustund.
Pjetur.
Elsku amma mín, mig langar að
kveðja þig með nokkrum orðum sem
eiga þó aldrei eftir að jafnast á við all-
ar minningarnar sem þú skildir eftir
hjá mér. Allar mínar minningar um
þig eru góðar, sumar grátbroslegar
og aðrar lærdómsríkar. Þú kenndir
mér margt, nota kopp, telja, reikna,
spila og svo mætti lengi telja. Allt til
þíns síðasta dags varst þú að kenna
mér og leiðbeina mér til að ég gæti
notið góðs af í lífinu.
Þú tókst alltaf á móti mér opnum
örmum, sama hvar og hvenær á sól-
arhringnum ég mætti til þín. Þú
varst alltaf fyrst til að hjálpa mér
þegar ég lenti í erfiðleikum, hvað
sem það var, og alltaf þegar um veik-
indi eða íþróttameiðsl var að ræða.
Þú opnaðir nýjar dyr og kenndir mér
að gefast ekki upp þó allar aðrar dyr
hafi reynst lokaðar.
Ég skaut köngulær fyrir þig í úti-
legu, ég týndist á Kanarí, ég braut
ótal húsgögn heima hjá þér og afa, ég
gleymdi einu sinni kjöti úr frystinum
á gólfinu í kjallaranum, ég meira
segja gleymdi einu sinni dóttur þinni
í Bónus, en alltaf fyrirgafst þú mér
með bros á vor.
Síðasta minning mín um þig er
þegar ég og Hans bróðir minn heim-
sóttum þig fyrir nokkrum dögum síð-
an, þú ljómaðir öll, og þrátt fyrir
slæma heilsu þá notaðir þú tækifærið
til að tala við mig um lífið og varst
enn að kenna mér.
Þú varst stórkostleg kona og alltaf
glæsilegust. Ég á eftir að sakna þín
mikið en mun ávallt njóta minning-
anna um þig og þakka fyrir alla lífs-
kennsluna sem þú gafst mér.
Guð geymi þig.
Árni Ingi.
Ég elska þig af öllu mínu hjarta
amma og við vitum það bæði, ég gaf
þér loforð um að ég myndi ekki gráta
þegar þú myndir fara burt, en í mín-
um augum ertu ekki farinn og munt
aldrei gera það. Ég þó verð ég að við-
urkenna að ég hef ekki staðist lof-
orðið en ég geri mitt besta, bara fyrir
þig.
Ég á líklega eftir að sakna mest
samræðnanna okkar um lífið og til-
veruna. Ég var að hugsa um þegar
við vorum að rifja upp saman þegar
þú sagðir mér nýlega frá þegar
ónafngreindur bróðir minn komst í
skartið þitt og hringana þína og
klæddi sig í fötin þín og lék kven-
mann (þegar hann var lítill) ég hélt
að við ætluðum aldrei að hætta að
hlægja. Eða þegar við vorum að spila
Olsen olsen og ég undirbjó leikinn
með að láta allar átturnar í stokkinn
þannig að ég myndi enda með alla
átturnar á hendi þegar þú varst bú-
inn að gefa, síðan stakk maður líka
áttunum undir rassinn þegar þú
skrappst á klósettið, þér var farið að
finnast þetta allt saman frekar grun-
samlegt en við hlógum bara af þessu
saman.
Það er með ólíkindum hvað þú
þekktir mig vel amma og kunnir vel á
mann, t.d. töfrasteinarnir sem lækn-
uðu öll veikindi, tala nú ekki um þeg-
ar maður var að nýbyrjaður að hitta
einhverja stelpu og hélt því leyndu
fyrir öllum þangað til að ég kom í
heimsókn til þín og afa, því þegar
eitthvað var í gangi þá þurfti ég ekki
að segja þér það, þú vissir það.
Þegar ég var að kveðja þig sein-
ustu mánuðina þína á Aflagrandan-
um þá sagði ég alltaf í blöndu af gríni
og áhyggjum við afa: þú ferð vel með
gömlu fyrir mig og þú svaraðir að
hann fari alltaf vel með mig. Því heiti
ég því að ég ætla að fara vel með afa
núna fyrir þig og ætla biðja þig um að
hafa ekki áhyggjur af honum. Einnig
að hafa alltaf nóg að gotti í skúffunni
eins og þú kaust að hafa það.
Ég ætla nota það sem þú hefur
kennt og sagt mér í gegnum ævina til
þess að styrkja og bæta mig í því sem
ég tek mér fyrir hendur. Hvort sem
það er í fótboltanum, tónlistinni eða
stelpunum (ég reyni áfram að vera
herramaður). Að lokum þá ætla ég
varðveita þau merku orð sem þú
sagðir við mig, t.d. að „öfundin væri
það versta sem til er“ og að sjálf-
sögðu læra af þeim. En ég heyri í þér
næst amma, ber að ofan eins og allt-
af, undir kertaljósinu okkar sem þú
hélst svo mikið upp á.
Þitt „gamla“ yngsta barn.
Bjarki Pjetursson.
Með innilegum kærleik þá kveð ég
þig nú, elsku amma.
Ég er þakklátur fyrir að hafa feng-
ið að alast upp og kynnast jafnsterkri
og góðri manneskju og þér.
Minningarnar sem ég á um þig og
þá hluti sem þú kenndir mér eiga eft-
ir að lifa í hjarta mér allt til við hitt-
umst á ný og það er gott að hugsa til
þess að þú finnir nú fyrir þeirri hlýju
og þeim notalegheitum sem ég upp-
lifði alltaf í návist þinni.
Þinn,
Hans Ragnar.
Veistu ef þú vin átt
þann er þú vel trúir
og vilt þú af honum gott geta.
Geði skaltu við þann blanda
og gjöfum skipta,
fara að finna oft.
(Úr Hávamálum.)
Í gegnum lífið verðum við flest
þeirrar gæfu aðnjótandi að kynnast
góðu fólki og eignast kæra vini.
Hjónin Ingibjörg og Hans eru ein af
þeim sem ég hef hitt og fylgst með úr
fjarlægð sl. 27 ár, í gegnum ástkæra
dóttur þeirra, tengdason og syni
þeirra.
Ég minnist Ingibjargar með virð-
ingu og þakklæti í huga, með þá vissu
að hún hefur nú fengið lausn frá erf-
iðum veikindum og komin í faðm
horfinna ættingja. Ég sé hana fyrir
mér, loksins sameinaða drengnum
sínum sem ég veit að hún saknaði
alltaf svo mikið. Enginn veit hvernig
sú sorg er nema sá sem misst hefur
barn sitt. Það var ein af ástæðunum
fyrir því að ég hef ávallt nálgast þau
Ingibjörgu og Hans með lotningu
þess er ekki veit.
Börn, tengdabörn og barnabörn
þeirra Ingibjargar og Hans eru ein-
staklega samheldið og gott fólk. Allt-
af er gleði og gaman þegar ég hef hitt
stórfjölskylduna við hin ýmsu tæki-
færi og einstaklega fallegt hefur ver-
ið að fylgjast með sambandi þeirra
hjóna við barnabörnin.
Skarðið sem ættmóðirin skilur eft-
ir getur enginn fyllt. Eftir situr
minning um góða konu. Þó sorgin við
fráfall hennar sé sár getur verið í
henni fólgin dýrmæt gjöf því sorgin
getur líka gert okkur að betra fólki
þegar við yljum okkur við minningar
og allt það sem löng ævi hefur kennt.
Það er e.t.v. síðasta gjöfin hennar.
Kæru Unnur, Pjetur, Árni, Hans,
Bjarki og Hans eldri, Guð gefi ykkur
styrk í sorginni. Innilegar samúðar-
kveðjur til allrar fjölskyldunnar frá
okkur Guðmundi.
Blessuð sé minning Ingibjargar.
Margrét Blöndal.
Ingibjörg Guðbjörnsdóttir
V i n n i n g a s k r á
11. útdráttur 17. júlí 2008
A ð a l v i n n i n g u r
Kr. 2.000.000 kr. 4.000.000 (tvöfaldur)
3 2 7 8
V i n n i n g u r
Kr. 100.000 Kr. 200.000 (tvöfaldur)
3 1 2 4 3 5 7 4 2 4 6 0 1 5 5 8 7 0 0
V i n n i n g u r
Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur)
8620 15718 36226 45277 49262 76480
10099 19272 36537 48520 55236 77304
V i n n i n g u r
Kr. 12.000 Kr. 24.000 (tvöfaldur)
9 4 1 3 7 4 9 2 6 6 7 4 3 5 2 7 0 4 7 5 3 3 5 6 4 7 8 6 5 8 2 8 7 4 3 4 9
4 0 4 1 4 9 5 6 2 6 7 2 6 3 6 1 8 9 4 8 2 7 4 5 7 8 0 0 6 6 8 9 2 7 4 5 4 9
1 9 6 6 1 5 0 8 2 2 7 1 3 1 3 6 4 0 5 4 9 0 3 4 5 8 3 7 7 6 7 1 1 0 7 5 0 5 4
2 0 3 1 1 7 2 2 3 2 8 5 0 4 3 8 4 2 6 4 9 0 7 7 5 9 0 7 7 6 8 3 6 3 7 5 3 1 3
2 7 2 1 1 7 3 1 5 2 9 3 9 2 4 1 1 9 3 4 9 4 5 6 6 0 2 4 6 6 8 7 5 6 7 6 1 9 3
3 2 4 0 1 7 8 9 0 3 0 7 2 5 4 1 5 0 1 4 9 4 9 6 6 0 5 2 3 6 9 9 4 5 7 7 1 4 5
3 4 4 8 1 9 8 6 6 3 1 6 0 6 4 1 8 4 2 5 0 4 0 7 6 3 6 5 0 7 1 0 3 4 7 8 3 4 8
8 2 9 6 2 0 4 6 7 3 1 9 3 7 4 1 8 7 4 5 1 6 1 8 6 4 3 7 2 7 1 3 2 0 7 8 7 2 7
1 0 0 3 8 2 1 5 1 7 3 1 9 7 8 4 2 4 4 6 5 2 5 5 5 6 4 6 8 0 7 1 6 6 9 7 9 2 3 9
1 1 1 4 5 2 1 6 1 9 3 2 8 8 7 4 4 2 2 0 5 2 6 0 7 6 4 6 9 8 7 1 9 9 7
1 1 2 6 0 2 4 4 5 8 3 3 6 2 1 4 6 2 0 4 5 3 1 5 3 6 4 9 8 5 7 2 2 7 9
1 2 6 9 5 2 4 6 7 7 3 4 2 2 9 4 6 2 7 2 5 4 3 4 1 6 5 2 5 8 7 3 4 4 2
1 3 7 3 3 2 4 7 3 7 3 4 8 0 0 4 6 8 7 2 5 5 4 0 3 6 5 5 6 9 7 3 5 6 6
V i n n i n g u r
Kr. 7.000 Kr. 14.000 (tvöfaldur)
5 5 1 1 0 2 5 0 2 1 3 7 8 3 2 8 6 6 4 2 1 0 7 5 3 3 0 9 6 4 3 8 8 7 3 6 1 7
7 0 1 1 0 3 0 0 2 1 9 0 3 3 3 0 6 0 4 3 0 6 6 5 3 4 5 2 6 4 5 1 7 7 3 8 8 0
1 5 6 9 1 0 4 8 6 2 1 9 9 0 3 3 3 5 1 4 3 0 7 5 5 4 2 4 2 6 4 5 5 1 7 4 0 3 9
2 1 1 2 1 0 5 9 4 2 2 4 7 2 3 4 0 7 4 4 3 1 8 2 5 4 6 6 9 6 4 8 6 9 7 4 2 6 8
2 4 4 7 1 0 8 1 0 2 2 7 8 8 3 4 1 4 0 4 3 8 0 3 5 5 0 7 5 6 5 0 1 8 7 4 7 2 7
3 3 4 0 1 0 9 6 4 2 3 0 6 5 3 4 3 5 8 4 3 8 2 2 5 5 1 1 1 6 5 7 3 7 7 4 7 3 4
3 6 1 0 1 1 5 7 6 2 3 2 0 0 3 4 6 3 6 4 4 0 6 8 5 5 4 7 5 6 6 2 2 5 7 5 0 9 3
3 9 2 7 1 2 1 1 3 2 4 3 1 3 3 4 8 9 9 4 6 1 4 5 5 5 5 1 5 6 6 2 5 0 7 5 4 0 6
4 0 3 5 1 2 2 4 0 2 4 4 5 4 3 5 1 9 6 4 6 3 0 7 5 6 2 5 4 6 6 6 3 2 7 5 7 2 8
4 1 8 2 1 3 8 5 5 2 4 5 4 7 3 5 5 1 7 4 6 3 5 3 5 8 1 4 2 6 6 8 3 8 7 5 7 4 1
4 2 4 8 1 4 2 4 7 2 5 7 6 7 3 5 6 2 9 4 6 6 2 3 5 8 2 1 7 6 7 5 4 3 7 5 8 0 8
4 3 8 4 1 6 5 9 8 2 5 8 4 1 3 6 2 1 4 4 6 6 6 1 5 8 4 5 3 6 7 5 8 7 7 5 8 6 9
5 3 3 3 1 6 6 1 7 2 5 8 6 3 3 6 3 1 3 4 7 3 3 2 5 8 9 6 1 6 7 6 7 4 7 5 8 7 8
5 6 3 9 1 6 6 8 6 2 5 9 9 2 3 7 4 6 9 4 7 9 5 9 5 9 8 5 7 6 7 9 4 7 7 6 8 7 2
5 6 4 6 1 7 0 9 3 2 6 1 9 3 3 8 3 1 7 4 8 0 3 3 6 0 2 1 2 6 8 1 7 4 7 7 1 9 3
5 9 2 7 1 7 1 3 4 2 6 7 6 5 3 8 4 9 8 4 8 2 2 7 6 0 4 6 6 6 9 2 4 3 7 7 2 3 7
6 1 7 3 1 7 2 3 0 2 7 0 5 3 3 8 5 5 4 4 9 0 8 0 6 0 6 3 4 6 9 3 4 0 7 7 2 6 5
6 2 0 5 1 7 4 1 6 2 7 6 6 2 3 9 3 9 6 4 9 4 8 2 6 1 4 7 3 6 9 4 1 7 7 7 7 5 3
6 2 6 1 1 7 4 1 9 2 7 8 0 2 3 9 5 3 8 4 9 5 3 3 6 1 5 5 0 6 9 8 3 4 7 7 9 0 1
6 9 0 7 1 7 7 1 6 2 8 2 6 2 3 9 6 1 9 4 9 6 0 6 6 1 9 3 8 7 1 1 2 3 7 7 9 8 7
6 9 9 2 1 8 9 3 6 2 8 7 8 4 3 9 7 5 9 4 9 8 4 7 6 1 9 6 7 7 1 2 2 0 7 8 3 9 7
7 1 3 5 1 9 0 8 4 2 9 2 3 0 4 0 0 5 8 5 0 4 8 1 6 2 5 8 2 7 1 5 7 7 7 8 5 6 1
7 3 9 3 1 9 9 5 0 2 9 7 2 2 4 0 2 9 9 5 0 5 4 0 6 2 7 7 0 7 1 6 7 6 7 8 6 4 8
7 7 1 4 2 0 0 8 9 3 0 0 9 9 4 0 3 6 3 5 0 6 6 6 6 2 9 0 5 7 1 8 2 1 7 9 3 9 0
7 8 7 0 2 0 0 9 7 3 0 1 7 7 4 0 5 1 6 5 1 3 7 7 6 2 9 6 6 7 1 9 7 9 7 9 6 4 4
8 0 2 3 2 0 1 9 2 3 1 0 9 9 4 0 6 7 5 5 1 4 4 6 6 3 3 1 0 7 2 1 1 5 7 9 9 9 2
8 1 6 6 2 0 6 0 1 3 1 2 3 2 4 0 9 4 6 5 1 8 3 3 6 3 4 0 2 7 2 1 8 2
8 2 4 8 2 1 0 4 9 3 1 6 6 4 4 0 9 7 8 5 2 0 5 7 6 3 7 1 4 7 2 3 3 2
8 3 9 2 2 1 1 6 9 3 1 8 4 4 4 1 3 5 6 5 2 0 9 7 6 3 9 2 2 7 2 6 1 0
9 4 6 4 2 1 2 7 0 3 2 3 3 4 4 1 5 3 2 5 2 2 2 8 6 3 9 2 6 7 2 7 0 8
9 8 5 0 2 1 2 8 9 3 2 4 6 6 4 1 5 5 4 5 2 4 9 9 6 3 9 4 3 7 2 9 5 5
9 9 8 9 2 1 3 5 5 3 2 7 1 1 4 1 9 7 1 5 2 9 2 1 6 3 9 9 7 7 2 9 6 3
Næstu útdrættir fara fram 24. júlí & 31. júlí 2008
Heimasíða á Interneti: www.das.is
Steinsmiðja
• Viðarhöfða 1
• 110 Reykjavík
• 566 7878
• Netfang: rein@rein.is
• Vönduð vinna
REIN
Legsteinar
í miklu úrvali