Morgunblaðið - 27.09.2008, Blaðsíða 6
6 LAUGARDAGUR 27. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
FORYSTA Samtaka atvinnulífsins heimsækir
Evrópusambandið í Brussel í byrjun næstu viku.
Samtökin munu hitta og ræða við valda aðila innan
og utan ESB og eiga viðræður við háttsetta menn
á vettvangi sambandsins, m.a. Olli Rehn, sem fer
með stækkunarmál í framkvæmdastjórn ESB.
„Ferðin er liður í umræðum innan aðildarsam-
taka Samtaka atvinnulífsins um kosti og galla að-
ildar Íslands að Evrópusambandinu,“ segir Þór
Sigfússon, formaður SA. „Markmið okkar með
þessari ferð eru að fá nánari vitneskju um hvernig
evrópsku atvinnulífi farnast innan ESB, hver sé
líkleg þróun ESB á næstu árum og hvernig efla
megi samskipti íslensks atvinnulífs og ESB,“ segir
Þór. Fjölmörg málefni verða til umfjöllunar, m.a.
gjaldmiðilsmál, sjávarútvegsmál, aðgangur að
innri markaði ESB og orkumál
ásamt mikilvægi rannsókna og
nýsköpunar. Þá munu fulltrúar
SA kynna sérstaklega árangur
íslensks atvinnulífs á liðnum
misserum. Þór segir að Íslend-
ingar eigi að leggja miklu meiri
rækt við að kynna á vettvangi
ESB árangur Íslendinga á ýms-
um sviðum atvinnulífsins og
hvað megi læra af honum. Þar
standi upp úr mál eins og stjórnun fiskveiða og
rekstur í sjávarútvegi ásamt árangri okkar í orku-
málum.
Þór segist hafa fundið fyrir miklum áhuga for-
ystumanna atvinnulífsins í ýmsum Evrópuríkjum
á árangri Íslendinga í uppbyggingu nýrra háskóla
sem atvinnulífið hefur komið beint að hérlendis.
„Margir forystumenn í atvinnulífinu í Evrópu
hafa sýnt því mikinn áhuga sem við erum að gera í
skólamálunum og hversu mikil gróska er í þeim
málum. Það hefur líkið vakið mikla athygli sam-
taka atvinnulífsins í Evrópu hvað mikill kraftur er
í stofnun fyrirtækja hér á landi og í þeirri frum-
kvöðlamenningu sem hér ríkir. Við höfum margt
fram að færa í þeim málum,“ segir hann.
„Ég er þeirrar skoðunar að margt af því sem
kemur frá Evrópusambandinu og tengist atvinnu-
lífinu sé til mikilla bóta fyrir samkeppni og at-
vinnulífið í Evrópu,“ segir hann. Hins vegar valdi
það miklum vonbrigðum hvernig málum sjávar-
útvegs sé komið innan ESB. omfr@mbl.is
Kynna sér þróun ESB í Brussel
Forysta Samtaka atvinnulífsins heimsækir Evrópusambandið í Brussel Ferðin er liður í umræðum
innan aðildarsamtaka SA um kosti og galla aðildar Efla samskipti íslensks atvinnulífs og ESB
Þór Sigfússon
Í HNOTSKURN
»Fulltrúar SA munu m.a.eiga fund með fram-
kvæmdastjóra Evrópusam-
taka atvinnulífsins
(BUSINESSEUROPE).
»SA eru aðili að þessumsamtökum sem eru sögð
vera öflugasti málsvari at-
vinnulífs í Evrópu – með meira
en 20 milljónir fyrirtækja á
bak við sig.
HÖFUÐBORGARBÚAR hafa ekki farið varhluta
af vætutíðinni sem ríkt hefur að undanförnu. Fyrr
í vikunni rigndi þannig látlaust án uppstyttu í
rúman sólarhring, sem telst til tíðinda ef marka
má skrif Einars Sveinbjörnssonar veðurfræðings
á veðurbloggi hans. Á vef sínum bendir Einar á að
Reykjavík sé ekki þekkt fyrir stórrigningar, enda
njóti höfuðborgarsvæðið úrkomuvars frá Reykja-
nesfjallgarðinum og Hengli.
Morgunblaðið/Kristinn
Látlaus rigning í sólarhring án uppstyttu
Eftir Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
VAXANDI óþreyju gætir innan
stéttarfélaga vegna kjaramála og
mikilla verðhækkana að undanförnu.
Forsendunefnd ASÍ og SA á reglu-
lega fundi vegna endurskoðunar
kjarasamninga og auk þess undir-
búa stéttarfélög og landssambönd
sig þessa dagana fyrir kjaravið-
ræður við sveitarfélögin.
Sigurður Bessason, formaður Efl-
ingar, sagði í gær að öll umræða um
þjóðarsáttarsamninga væri út í hött.
„Það er mikill misskilningur að hér
sé einhver umræða í gangi um þjóð-
arsátt eins og við heyrum í fjölmiðl-
um. Bak við þessa umræðu er ná-
kvæmlega ekki neitt,“ sagði hann í
frétt frá félaginu í gær. Nýjasta út-
spil Orkuveitu Reykjavíkur um
nærri 10% hækkun á gjaldskrá heita
vatnsins sé sameiginlega á ábyrgð
ríkisstjórnarinnar og borgarstjórnar
þar sem iðnaðaráðherra hafi þegar
staðfest hækkunina. „Á sama tíma
og þessi ákvörðun Orkuveitunnar er
tekin er ekki hægt að halda fund í
borgarráði Reykjavíkur vegna utan-
landsferðar borgarfulltrúa. Nær
hefði verið að þeir hefðu verið að
sinna vinnu sinni og komið í veg fyr-
ir hækkunina.“
Hann segir að engin áhrifaöfl í
þjóðfélaginu verji stöðugleikann.
Forsvarsmenn ríkisstjórnarinnar
tali um mikilvægi þess að halda niðri
verðlagi. „Það er ekki hægt að taka
mark á þeim þar sem þetta eru bara
innantóm orð. Nýlega hækkaði Sím-
inn gjaldskrá sína um 4% og trygg-
ingafélögin hafa einnig hækkað
gjöld sín að undanförnu. Allir þessir
stóru aðilar hleypa öllum kostnaðar-
hækkunum beint út í verðlagið.
Þannig er ljóst að stórfyrirtæki og
opinberir aðilar leggja ekkert af
mörkum til að halda hér niðri verð-
lagi.“
Aðalsteinn Á. Baldursson, for-
maður Framsýnar-stéttarfélags, var
í gær á fundum með félagsmönnum í
Þingeyjarsýslum vegna undirbún-
ings viðræðna við sveitarfélögin um
endurnýjun kjarasamninga. „Það er
þungt hljóð í fólki og krafa um há
laun og stuttan samning,“ segir
Aðalsteinn. Hann segir að launafólk
sem samþykkti kjarasamningana í
febrúar sl. sé farið að lengja eftir
endurskoðun þeirra og vilji sjá veru-
legar lagfæringar á kjörum sínum.
Hann rifjar líka upp að í tengslum
við gerð febrúarsamninganna hafi
ríkisstjórn lofað ýmsum aðgerðum.
„Menn bundu vonir við þetta. Ég tel
að ríkisstjórnin þurfi að fara að finna
plaggið og vinna eftir því. Það var
m.a. talað um ýmsar breytingar á
húsaleigubótum.“
Hækka eins og ljósmæður
„Verkalýðsfélag Akraness getur
ekki og mun ekki horfa lengur upp á
það hvernig farið er með íslenskt
verkafólk í sínum kjarasamningum,“
segir í frétt. „Verkalýðsfélag Akra-
ness á eftir að ganga frá þó nokkrum
samningum t.d. við launanefnd sveit-
arfélaga og stóriðjurnar á Grundar-
tanga og þar verður krafist hækk-
ana í samræmi við þær sem ljós-
mæður fengu í sínum samningi.“
„Bara innantóm orð“
Forystumenn þriggja verkalýðsfélaga gagnrýna harðlega hækkanir að undan-
förnu og aðgerðaleysi stjórnvalda „Þungt hljóð í fólki og krafa um há laun“
Nokkuð skiptar skoðanir hafa ver-
ið um það hvort hvort ástæða sé
til að flýta endurskoðun kjara-
samninganna. Forsendunefnd við-
semjenda á að fjalla sérstaklega
um það fyrir lok febrúar hvort for-
sendur samninga hafi staðist. Einn
af forystumönnum launþega-
samtakanna segir ekki ástæðu til
að flýta vinnunni og það sé nokkuð
útbreidd skoðun. Talsmenn SA eru
sagðir hafa gefið til kynna að þeir
væru tilbúnir að flýta endurskoðun
samninga svo launþegar nytu fyrr
umsamdra kauphækkana en at-
vinnulífið hafi ekki bolmagn til að
bæta neinu þar ofan á. Þetta telja
heimildarmenn innan verklýðsfor-
ystunnar að sé hvergi nærri nóg til
að vega upp á móti þeim hækk-
unum sem dunið hafa yfir að
undanförnu.
Óvíst hvort endurskoðun verður flýtt
UPPSETNING hraðamyndavéla
við stofnbrautir á vegum Vega-
gerðarinnar er ekki byggingarleyf-
isskyld samkvæmt skipulags- og
byggingarlögum. Hvalfjarðarsveit
fór í fyrrahaust fram á að úrskurð-
arnefnd skipulags- og byggingar-
mála fjallaði um þetta atriði og féll
úrskurður nefndarinnar fyrr í þess-
um mánuði.
Í úrskurðinum segir m.a. að ýmis
mannvirki tengd vegi og notkun
hans, svo sem umferðarskilti, hafi
ekki verið talin byggingarleyfis-
skyld enda metin sem eðlilegur og
nauðsynlegur búnaður við notkun
vega.
„Með uppsetningu hraðamynda-
véla við vegi er verið að sinna lög-
gæslu og væntanlega einnig að
sporna við hraðakstri og auka þar
með öryggi vegfarenda. Slíkur
búnaður hefur á seinni árum í
auknum mæli verið tekinn í notkun
við vegaeftirlit, hérlendis og er-
lendis, og verður nú að teljast
venjulegur og eðlilegur búnaður
við rekstur og notkun vega,“ segir í
úrskurðinum.
Ekki sótt um leyfi
og ekki gert aðvart
Sveitarfélagið Hvalfjarðarsveit
hafði í erindi sínu vísað til þess að
sumarið 2007 hefðu verið settar
upp tvær hraðamyndavélar í Hval-
fjarðarsveit. Hvorki hefði verið sótt
um leyfi fyrir hraðamyndavélum til
skipulags- og byggingarnefndar
Hvalfjarðarsveitar né sveitarstjórn
gert aðvart um þær framkvæmdir.
aij@mbl.is
Ekki þarf leyfi
fyrir hraða-
myndavélum
ÍÞRÓTTA- og
ólympíusamband
Íslands (ÍSÍ) hef-
ur farið þess á
leit við Reykja-
víkurborg að
styttan af Gísla
Halldórssyni,
arkitekt og fyrr-
um borgarfull-
trúa og forseta
ÍSÍ, verði flutt
nær höfuðstöðvum ÍSÍ við Engja-
veg 2. Erindið hefur verið rætt á
fundum í íþrótta- og tómstundaráði
og í skipulagsráði og hafa ekki ver-
ið gerðar athugasemdir við flutn-
inginn.
Styttan af Gísla Halldórssyni hef-
ur staðið sunnan við knattspyrnu-
völlinn í Laugardalnum. Gísli er 94
ára gamall og teiknaði á sínum tíma
flest íþróttamannvirki í dalnum.
Það er mat forystu ÍSÍ að styttan af
Gísla sé betur staðsett nær höfuð-
stöðvum ÍSÍ og verður hún í for-
grunni bygginga höfuðstöðva
Íþróttasambandsins. aij@mbl.is
Styttan af Gísla
flutt nær ÍSÍ
Gísli
Halldórsson