Morgunblaðið - 27.09.2008, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. SEPTEMBER 2008 19
L
jó
sm
.:
M
a
ry
E
ll
e
n
M
a
rk
Eftir Bjarna Ólafsson
bjarni@mbl.is
LEIÐTOGAR demókrata í banda-
ríska þinginu segjast sannfærðir um
að samkomulag muni nást um björg-
unaráætlun fyrir fjármálakerfi
landsins. Á fimmtudag leit út fyrir að
slíkt samkomulag væri í höfn, en
þingmenn repúblikana í fulltrúadeild
þingsins vildu ekki sætta sig við
áætlunina, sem þeir töldu fela í sér of
mikil inngrip ríkisvaldsins. Settu
þeir fram eigin áætlun, þar sem
treysta átti í meira mæli á einka-
framtakið til að leysa vandann. Til
dæmis vildu þeir afnema reglur, sem
þeir segja að torveldi fjárfestum að
koma með fjármagn að illa stöddum
fjármálafyrirtækjum.
Athuga ber að repúblikanar í öld-
ungadeildinni standa flestir að baki
björgunaráætluninni og er uppreisn-
in því bundin við þingflokkinn í full-
trúadeild þingsins.
Í frétt Wall Street Journal er haft
eftir Harry Reid, einum leiðtoga
demókrata í öldungadeildinni, að
ekki sé ástæða til að ætla annað en
að samkomulag muni nást fyrir
mánudag.
Demókratar eru með meirihluta í
báðum deildum og gætu því komið
lögunum í gegn án aðstoðar þing-
flokks repúblikana. Margir stjórn-
málamenn virðast hins vegar hafa af
því áhyggjur að björgunaráætlunin
muni ekki skila tilætluðum árangri.
Því vilja demókratar fá repúblikana
til að greiða atkvæði með tillögunni
til að tryggja að þeir geti ekki núið
demókrötum þessu um nasir fari allt
á versta veg. Eins og sakir stóðu í
gær voru aðeins um 30-40 af 199 full-
trúadeildarþingmönnum repúblik-
ana tilbúnir að greiða atkvæði með
björgunaráætluninni.
Aðkoma McCain umdeild
Aðkoma forsetaframbjóðanda
Repúblikanaflokksins, John Mc-
Cain, að viðræðunum hefur sömu-
leiðis verið gagnrýnd af demókröt-
um. Er haft eftir Ellen Tauscher,
demókrata í fulltrúadeildinni, að eft-
ir fund McCains með þingmönnum
repúblikana hafi stuðningur þeirra
við áætlunina gufað upp. Talsmaður
McCain segir hins vegar að repúbl-
ikanar hafi ekki verið ánægðir með
tillöguna til að byrja með. McCain
hafi því viljað finna lausn sem allir
aðilar gætu sætt sig við.
Ríkisstjórn George Bush, með
fjármálaráðherrann Henry Paulson í
fararbroddi, vill hins vegar að hin
svokallaða 700 milljarða dala áætlun
nái fram að ganga og virðist ekki
hafa mikla þolinmæði fyrir þreifing-
um þingflokks repúblikana í aðrar
áttir. Fari svo að fulltrúadeildar-
þingmenn repúblikana láti ekki segj-
ast og demókratar neyðist til að sam-
þykkja tillöguna einir gæti svo farið
að þeir muni gera frekari kröfur á
hendur ríkisstjórnarinnar.
Vilja opinberar framkvæmdir
Bush og Paulson hafa nú þegar
samþykkt breytingartillögur frá
demókrötum. Til dæmis þá að þak
verði sett á laun og starfsloka-
greiðslur til yfirmanna fyrirtækja
sem hljóti aðstoð ríkisins.
Hugsanlegar frekari kröfur, sem
demókratar gætu komið í gegn,
gætu til dæmis verið að dómurum í
gjaldþrotamálum yrði heimilt að
breyta skilmálum íbúðalána. Þá eru
demókratar áhugasamir um aukn-
ingu opinberra framkvæmda til að
örva efnahagskerfið, nokkuð sem
repúblikanar hafa ekki viljað gera.
Áætlunin gerir ráð fyrir stofnun
700 milljarða dala sjóðs, sem gæti
keypt eignir fjármálafyrirtækja,
einkum ótrygg húsnæðislán. Fyrir-
tækin fengju með þeim hætti laust
fé, sem þau skortir tilfinnanlega nú.
Uppreisn repúblikana
setur strik í reikninginn
Leiðtogar á Bandaríkjaþingi segjast búast við að samkomulag náist fyrir mánudag
Reuters
Andstaða Öldungadeildarþingmennirnir Mitch McConnell og Judd Gregg ræddu við fjölmiðla um ástand mála í
þinginu í gær. Þrátt fyrir andstöðu meðal repúblikana í fulltrúadeild þingsins er vonast til að samkomulag náist.
SÆNSKA fjármálaeftirlitið, FI,
rannsakar nú grunsemdir um að er-
lendir vogunarsjóðir eigi þátt í
gengishruni og vandræðum Swed-
bank. Viðkomandi sjóðir eiga að
hafa tekið stórar skortstöður í
hlutabréfum Swedbank og síðan
hringt í sænska miðlara til þess að
koma af stað orðrómi þess efnis að
staða Swedbank væri slæm. Sam-
kvæmt frétt á sænska við-
skiptavefnum di.se hefur FI óskað
eftir því að fá að sendar upptökur
af símtölum vogunarsjóða í London
við sænskt verðbréfafyrirtæki.
Hin meinta markaðsmisnotkun
minnir um margt á þær frásagnir
sem heyrðust af meintri atlögu er-
lendra vogunarsjóða á íslenska
hagkerfið snemma á þessu ári.
Mikið hefur verið fjallað um erf-
iðleika Swedbank í sænskum fjöl-
miðlum undanfarna daga eins og
m.a. kom fram í viðskiptablaði
Morgunblaðsins sl. fimmtudag.
Meðal þess sem komið hefur fram
er að lánasýsla sænska ríkisins hafi
gefið út skuldabréf til þess að
bjarga bankanum auk þess sem
fjöldi viðskiptavina á að hafa tekið
út innlán sín hjá Swedbank. Þessu
hafna stjórnendur bankans alfarið
og segja stöðu hans sterka.
Undir það hefur Mats Odell, fjár-
málamarkaðsráðherra Svíþjóðar,
tekið og segir hann marga geta
brennt sig á skortsölu á Swedbank.
sverrirth@mbl.is
Markaðs-
misnotkun
rannsökuð
BANDARÍSK yfirvöld tóku yfir
hinn gríðarstóra sparisjóð Wash-
ington Mutual og hefur banka-
starfsemi sjóðs-
ins verið seld
JPMorgan Chase
fyrir 1,9 millj-
arða dala, and-
virði um 185
milljarða króna.
JPMorgan seldi
eigin hlutabréf
að andvirði um
10 milljarða dala
til að fjármagna kaupin.
Þrot WaMu eins og bankinn er
oftast kallaður í Bandaríkjunum
er hið stærsta í bandarískri
bankasögu. Með alls um 307 millj-
arða dala eignastöðu yfirgnæfir
hrun WaMu svo um munar þrot
Continental Illinois National Bank
með sína 40 milljarða dala árið
1984 og 32 milljarða dala þrot
IndyMac sem ríkisstjórnin tók yfir
í júlí sl.
Hrun WaMu má eins og í öðrum
slíkum tilfellum undanfarið rekja
til slæmra fasteignalána sem
bankinn sat uppi með ógrynni af.
Vegna þeirra og annarra áhættu-
samra skulda hyggst JPMorgan
færa niður lánasafn MaWu um 31
milljarð dala – fjárhæð sem gæti
breyst ef ríkisstjórnin nær björg-
unaraðgerðum sínum í gegn og
JPMorgan ákveður að vera hluti
af þeim.
Lokun WaMu var fyrirsjáanleg,
eins og nefnt var. Matsfyrirtækið
Standard & Poor lækkaði matið á
bankanum sl. mánudag sem ekki
jók á lífslíkur hans þar sem það
bættist ofan á önnur vandræði svo
sem þau að viðskiptavinir hans
voru farnir að taka út sparifé sitt
af miklum móð eftir að gjaldþrot
Lehman Brothers lá fyrir. Bank-
inn var því að komast í fjárþröng.
Eftir yfirtökuna sitja hluthafar
WaMu eftir með tómar hendur, en
hlutafjáreign þeirra þurrkast út.
bvs@mbl.is
Stærsta
gjaldþrot
sögunnar
Millibankalán fást vart lengur á al-
þjóðlegum fjármálamörkuðum þar
sem bankar eru hræddir við að
lána fé til fjármálastofnana sem
hugsanlega gætu orðið gjaldþrota.
Seðlabankar Bandaríkjanna,
Bretlands, Evrópu og Sviss hafa
tekið höndum saman og munu
bjóða fjármálastofnunum lán gegn
veði í verðbréfum. Mun Englands-
banki til dæmis bjóða 30 milljarða
dala og nota til þess gjaldeyris-
skiptasamninga, sem bankinn
gerði nýlega við seðlabanka
Bandaríkjanna.
Danski seðlabankinn hefur
sömuleiðis víkkað út möguleika
þarlendra fjármálafyrirtækja til að
fá skammtímalán frá bankanum.
Annars vegar munu fyrirtækin
geta tekið að láni fé frá seðlabank-
anum sem jafngildir muninum á
eigin fé fyrirtækisins og lögbund-
inni lágmarksstöðu eigin fjár. Í
raun munu þau geta veðsett um-
fram eigið fé sitt. Þá munu dönsk
fjármálafyrirtæki geta tekið lán
hjá seðlabankanum með veði í
fleiri tegundum verðbréfa en þau
gátu áður.
Frekari aðgerðir seðlabanka