Morgunblaðið - 27.09.2008, Blaðsíða 24
tíska
24 LAUGARDAGUR 27. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Þetta kom mér ekki beinlínisá óvart,“ segir HaraldurFinnsson þegar hann rifjarupp daginn fyrir tíu árum
þar sem hann var að ganga heim eft-
ir langan vinnudag og fékk hjarta-
áfall, 56 ára gamall. Sem skólastjóri
í Réttarholtsskóla var hann önnum
kafinn maður sem þurfti að glíma við
fjöruga unglinga frá morgni til
kvölds, auk rekstursins á skólanum.
Það er því óhætt að segja að hann
hafi fengið sinn skerf af streitu í
starfi sínu auk þess sem saga var
um hjartasjúkdóma í fjölskyldu
hans. Engu að síður átti hann sér
einskis ills von þegar áfallið dundi
yfir, jafnvel þótt það hafi átt sér
svolítinn aðdraganda. „Ég var búinn
að vera þreklítill og ræfilslegur, og
kominn með háan blóðþrýsting sem
ég var kominn á lyf vegna. Svo ein-
hvern mánudagsmorgun labbaði ég
upp í skóla úr Álfheimunum en þeg-
ar ég var á leiðinni upp brekkuna
við Réttarholtsveg varð ég hand-
ónýtur og fékk verk fyrir brjóstið.
Ég komst nú samt inn í skólann og
þá fór þetta að lagast og leið hjá.“
Tveimur dögum síðar endurtók
leikurinn sig. „Ég var að ganga heim
úr vinnu þegar þetta kom aftur og
þá sýnu verra. Mér fannst ég vera
með skósíða handleggi og rétt
dragnaðist heim. Þar hringdi ég í
heimilislækninn minn sem sagði mér
að fara beint upp á bráðamóttöku,
sem ég og gerði.“ Á spítalanum voru
læknar fljótir að greina stíflur í
kransæðum Haralds sem fór í beinu
framhaldi í hjartaþræðingu.
„Ég var farinn að átta mig á því að
það væri einhver skollinn í þessa átt-
ina,“ segir hann aðspurður um hvort
áfallið hafi komið honum að óvörum.
„Sennilega er það þess vegna sem
ég fékk ekki andlegt áfall, eins og
margir fá í þessari stöðu. Ég er bú-
inn að kynnast mörgum hjartasjúk-
lingum síðan og veit að eitt af vanda-
málunum við að fá hjartaáfall er að
það kemur fólki á óvart. Þannig
verður það andlegt áfall líka, sem oft
er ekki tekið nægilega alvarlega.“
Samherjar í ræktinni
Eftir hjartaþræðinguna fór Har-
aldur að stunda reglulega líkams-
rækt, fyrst í formi æfinga á Land-
spítalanum og í framhaldinu á
HL-stöðinni. Og hann segist allur
betri maður síðan. „Ég fór að hreyfa
mig miklu skipulegar en ég gerði áð-
ur og hef reynt að halda mig við það
síðan því það skiptir rosalegu máli.
Ég hef tröllatrú á hreyfingunni og
er t.a.m. í badminton auk líkams-
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Í formi Haraldur fer reglulega í æfingar á HL-stöðinni. „Ég hef tröllatrú á
hreyfingunni og er t.a.m. í badminton auk líkamsræktarinnar á veturna
enda held ég að menn þurfi góða hreyfingu þrisvar, fjórum sinnum í viku.“
Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur
ben@mbl.is
Haraldur Finnsson var í blóma lífsins þegar
hann fékk hjartaáfall og þurfti að taka lífsstíl sinn
til endurskoðunar. Nú, tíu árum síðar, hefur
hann aldrei verið hressari.
Samherjar „Þetta verður ákveðinn félagsskapur,“ segir Haraldur um þjálfunina á HL-stöðinni.
Gerist hjá fólki
á besta aldri
Eftir Önnu Sigríði Einarsdóttur
annaei@mbl.is
Efnismiklir og víðir síðkjólar sáust víða ásýningarpöllum fatahönnuðanna semsýndu vor- og sumarlínu sína fyrir árið2009 í Mílanó í vikunni. Gucci, Roberto
Cavalli, Salvatore Ferregamo og D&G-línan þeirra
Domenico Dolce og Stefano Gabbana – á öllum þess-
um sýningum mátti sjá kjóla sem námu við háls,
ökkla og jafnvel úlnlið. Engin holdasýning þar á
ferð. Og það frá tískuhúsum sem alla jafna gera sér
meiri mat úr lögulegum línum kvenlíkamans. Það er
ekki laust við að hugsun um kreppu skjóti upp koll-
inum. Því þótt vestrænir tísku-
fíklar dragi saman eyðslusegl-
in, þá er aldrei að vita nema
pyngjur austrænna auðmanna
standi enn opnar!
Pínupils og aðsniðnar línur
voru vissulega enn á sínum
stað enda horft til sólríkrar
sumartíðar, en settlegheit
og efnismeiri klæði settu
samt skemmtilegan
svip á sýningarnar. Hjá
Emporio Armani voru
stuttbuxur t.d. settar
yfir síðbuxurnar á með-
an að í D&G-línunni
voru stuttbuxur, sundföt
og ýmis annar sumar-
fatnaður hafður í síðari
kantinum – allt í anda
strandlífsins á fyrstu ára-
tugum síðustu aldar. Með
nostalgíu þeirrar strand-
stemningar í huga er svo
ekki annað að gera en að
skella á sig sundhettunni,
grípa strandboltann og grípa
svo andann á lofti þegar
fyrstu sundtökin eru tekin í
köldum sjó.
Dulúð Hátt mitti og klauf á
vetrarlegum kjól frá Gucci.
Reuters
Horft til austurs Efnismikill kjóll frá Roberto Cavalli
sem alla jafna sýnir meira af kvenlíkamanum.
Sítt og sumarlegt Léttur síðkjóll
frá Gucci-tískuhúsinu.
Þverröndótt Óvenjulegt
höfuðfat frá D&G.
Í síðum undir Stuttbuxurnar eru
yfir síðbuxum hjá Emporio Armani.
Fortíðarandinn Sundfötin
frá D&G hefðu átt vel við
snemma á síðustu öld.
Efnismikil
sumartíska
Helstu áhættuþættir hjarta-
og æðasjúkdóma eru m.a.:
Hár blóðþrýstingur
Hækkað kólesteról
Hækkaður blóðsykur
Reykingar
Lítil neysla ávaxta og
grænmetis
Ofþyngd og offita
Hreyfingarleysi, sem eykur
hættuna á því að þróa með sér
hjartasjúkdóm um 50%
Þekktu þína
áhættu