Morgunblaðið - 27.09.2008, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 27.09.2008, Blaðsíða 12
Veikt gengi fremur ógn en tækifæri Eftir Ylfu Kristínu K. Árnadóttur ylfa@mbl.is OF veik staða krónunnar var áhyggjuefni á aðalfundi Samtaka fiskvinnslustöðva í gær en í fyrra var málunum þveröfugt háttað. Einar K. Guð- finnsson, sjávar- útvegs- og land- búnaðarráðherra, sagði í ávarpi sínu að þó oft áður hafi verið kallað eftir veikingu krón- unnar úr sölum sjávarútvegsins sé núverandi staða hennar of veik og þurfi gengið að ná jafnvægi. Útflutningsverðmæti aukist „Hagsmunir íslensks sjávarútvegs liggja þess vegna í því að gengi krón- unnar verði sterkara en nú og ró skapist í fjármálaumhverfinu sem hefur svo mikil áhrif á stöðu mála í efnahagslífinu hér á landi. Svona veikt gengi er því fremur ógn en tækifæri.“ Einar sagði frá því að útflutnings- verðmæti þorsks fyrstu ellefu mánuði síðasta fiskveiðiárs hefðu numið um 51 milljarði króna en rúmum 47,5 milljörðum króna á sama tíma árið áður, þrátt fyrir samdrátt í þorskafla. Ástæðurnar væru hækkað verð á þorski á erlendum mörkuðum og gengislækkunin. Hins vegar hefðu útgjöld í sjávar- útvegi aukist samhliða auknum verð- mætum útflutts þorsks. Þar vegi hækkandi olíuverð hvað þyngst. „Auknar skuldir greinarinnar sem fylgja lækkun gengisins eru sömu- leiðis alvarlegar og bíta sársaukafullt í efnahagsreikningi fyrirtækjanna. Þegar við bætast síðan svimandi háir vextir, er ástæða til að hafa áhyggj- ur.“ Gripið til gengisvarna Einar vakti athygli á því að mörg sjávarútvegsfyrirtæki hefðu gripið til gengisvarna sem gerðu það að verk- um að lækkun á gengi krónunnar skilar sér ekki að fullu í þeirra vasa. „Því má ætla að verðmætisþróun ein- stakra fyrirtækja, vegna útflutnings á þorski, geti verið mismunandi og sé ekki endilega í samræmi við tölur um heildaraflaverðmæti.“ Gengisjafnvægi best fyrir sjávarútveg Þorskur Útflutningsverðmætin hafa hækkað milli fiskveiðiára. Einar K. Guðfinnsson 12 LAUGARDAGUR 27. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR STANGVEIÐI Eftir Einar Fal Ingólfsson efi@mbl.is „ÉG er alveg í skýjunum eftir sum- arið,“ segir Jón Þór Júlíusson, leigu- taki Grímsár og Tunguár í Borg- arfirði, en veiði lauk á svæðinu í vikunni og þar var metveiði, eins og svo víða á Vesturlandi. „Lokatölur eru líklega 2.206 laxar. Ég bjóst kannski ekki við þessari veiði en ég var bjartsýnn hvað varð- aði betri júníveiði en síðustu sumur. Ég hafði helst með mér í því, að mér fannst það lukkast svo vel vorið 2007 þegar seiðin gengu út. Þau fóru út á góðum tíma og náttúran tók síðan vel á móti þeim í alla staði. Skilyrðin í sjónum voru mjög góð. Það fer ekki á milli mála, alls staðar er metveiði hér í kringum okkur.“ Um 100 laxanna veiddust í þver- ánni Tunguá. „Ég er klár á því að ef við hefðum ekki lent í þessum gríðarlegu haust- flóðum, þá hefðum við veitt 100 til 200 laxa í viðbót. Um miðjan ágúst var ég satt best að segja farinn að gæla við 2.500 laxa – en mikið vill meira,“ segir Jón Þór og hlær. Þegar fyrra met var sett var einn- ig veitt á maðk. Nú er aðeins veitt á flugu og kominn stífur kvóti, leyft að hirða einn lax á vakt en menn hvattir til að sleppa öllum fiskum. „Burtséð frá veiðitölunum var ég mjög ánægður með það hve vel veiðimenn tóku í þennan nýja kvóta og sleppifyrirkomulagið. Þetta hefur aukið veiðina að einhverju leyti, með endurveiddum löxum. Það grynnkar í öllum bankabókum þessa dagana en það er góð innistæða í Grímsá fyrir framtíðina!“ Met og aftur met Samkvæmt nýjustu veiðitölum á vef Landssambands veiðifélaga, angling.is, má sjá að veiðimetin hafa haldið áfram að falla á Vesturlandi. Haffjarðará, sem áður gaf mest 1.290 laxa, endaði í 2.011. Hítará fór úr 706 löxum í 1.289 og bætir sig um 583. Aðalsvæði árinnar gaf 748 laxa en senuþjófurinn er sagður vera efra svæðið, eða Hítará II, sem gaf 541 lax sem að stórum hluta fékkst á tvær dagsstangir. Langá bætir sig um hátt í 600 laxa. Norðurá endaði 170 löxum yfir gamla metinu, í 3.308, og Andakílsá er að tvöfalda fyrra met, fer úr 331 laxi í 665. Á Skarðsströnd var sett veiðimet í Krossá. Þar veiddust 346 en fyrra metið var frá sumrinu 2004, 208. Ekki var sett met í Gljúfurá í Borgarfirði en veiðin var þó sú besta í 13 ár, 315 laxar. Mun áin hafa end- að á háu nótunum því síðasta veiði- daginn veiddust 22. Enn er hörkuveiði í hafbeitarám á Suðurlandi. Í Tungufljóti í Bisk- upstungum hafa 1.700 laxar verið færðir til bókar og þar af um 350 fyr- ir ofan fossinn Faxa. Í Ytri-Rangá er ennþá mokstur, veiðin er komin í um 12.300 laxa. „Mikið vill meira“  Veiðimet hafa fallið, hvert á eftir öðru, í ám á Vesturlandi  Í sumum ánna er veiðin allt að þriðjungi yfir fyrra meti LÍKLEGA er umtalaðasta nýja veiðifluga sumarsins Friggi, töfratúpa sem 102 cm lax veiddist á í Vatnsdal og hefur virkað vel hjá þeim sem hafa átt gripinn í ein- hverjum litaafbrigðum. Höfundurinn var við annan mann í Leirársveit og þar veiddust 30 af 55 löxum á Frigga, og í einu holli í Víðidalsá veiddust 80% lax- anna á Frigga. Höfundur Frigga er Baldur Her- mannsson múrarameistari og hann er kominn með hönnunarvernd á gripinn. „Ég finn ekkert að því ef menn hnýta hana fyrir sig, en ég vil koma í veg fyrir að Friggi verði fjöldaframleiddur úr vitlausum og lélegum efnum einhvers staðar í Asíu,“ segir Baldur. Hann hnýtir túpuna í nokkrum stærðum og hún er vandhnýtt, en Baldur beitir svokallaðri zonker- badger-aðferð og notar fínskorna hrosshúð sem hann þynnir og litar. Þá fléttar hann tinseli í vængi með nál. Friggi heitir eftir Friðriki bróður Baldurs, sem lést af slysförum fyrir þremur árum, en hann var farinn að veiða vel á gripinn áður en hann lést. Friggi þykir afar fiskinn Töfratúpan Friggi, hnýtt af höf- undi, Baldri Hermannssyni. Einn stórlaxinn Sólveig Ómarsdóttir og Jón Helgi Vigfússon með 22 punda hæng sem hún veiddi í Jakobspolli í Laxá í Aðaldal síðasta veiðidag sumarsins. 1.226 laxar veiddust í ánni, um 200 yfir meðalveiði síðustu ára. „Gengi krónunnar hefur gefið mik- ið eftir frá því í mars á þessu ári og hefur það skilað sér í hærra skila- verði til útflutningsgreina. Á móti kemur að erlendar skuldir og ýmis aðföng til sjávarútvegs hafa hækk- að að sama skapi [...]. Hagsmunir sjávarútvegsins felast ekki í miklu flökti á gengi íslensku krónunnar umfram aðra gjaldmiðla, heldur í stöðugra gengi hennar – jafnvæg- isgengi – þar sem horft verði til mikilvægis útflutnings- og sam- keppnisgreina.“ Þetta segir í ályktun aðalfundar Samtaka fisk- vinnslustöðva sem haldinn var í gær. Þar segir einnig að Seðlabanki Íslands eigi að lækka stýrivexti verulega sem allra fyrst en barátta bankans við þenslu sl. ára með háum stýrivöxtum hafi litlu skilað en bitnað illa á útflutningsgreinum þar sem vextirnir héldu lengi uppi of háu gengi krónunnar. Þá er skorað á bæði Alþingi að ljúka umræðum og samþykkja frumvarp um nýja matvælalöggjöf og sjávarútvegsráðherra að end- urmeta úthlutun á þorski og síld. Hagsmunir sjávarútvegs felast í stöðugu gengi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.