Morgunblaðið - 27.09.2008, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 27.09.2008, Blaðsíða 34
34 LAUGARDAGUR 27. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ ArnþrúðurGunnlaugsdóttir fæddist á Eiði á Langanesi 3. maí 1921. Hún andaðist á sjúkrahúsinu á Egilsstöðum að kvöldi þriðjudags 16. september 2008. Arnþrúður var yngst 9 barna hjónanna Gunn- laugs Jónassonar frá Eldjárnsstöðum á Langanesi og Þor- bjargar Daníels- dóttur frá Eiði. Þau voru Jóhann, Þorbjörg, Daníel, Jónas, Sigurður, Helga, Rósa og Björg. Fóstur- systkini hennar voru systkinin Jón og Þrúður Þorbjörg Guðmundar- og Helgubörn frá Þórshöfn. Öll eru nú látin. Arnþrúður var skírð þann 12. júní 1921 af séra Þórði Oddgeirssyni sem og fermdi hana í Sauðaneskirkju á hvítasunnu 9. júní 1935. Hún gekk í farskóla á heimili foreldra sinna og á Heiði í sömu sveit. Sumarið 1940 var hún kaupakona hjá Guttormi Sigurðs- syni og Sigurborgu Sigurðardótt- ur í Hleinargarði í Eiðaþinghá á Fljótsdalshéraði en um haustið hóf hún tveggja vetra nám í Hús- mæðraskólanum á Hallormsstað með annarri sumardvöl í Hleinar- garði á milli. Veturinn 1943 trúlofaðist Arn- þrúður Sigurði Guttormssyni á Hallormsstað. Þau voru gefin sam- an af séra Erlendi Sigmundssyni á prestssetrinu á Seyðisfirði 24. júlí sama ár. Arnþrúður og Sigurður þjófsstaðarkirkju 27. febrúar 1971. Bræður Einars voru Sigsteinn, elstur, og Jón Víðir, yngstur. Báðir eru fallnir frá. Einar og Arnþrúð- ur byggðu sér hús að Laugavöllum 5 á Egilsstöðum og bjuggu þar til æviloka Einars, 4. ágúst 1981. Arn- þrúður flutti haustið eftir búferl- um til Reykjavíkur og bjó þar á Melhaga 12 og síðar Hátúni 6. Á þeim árum hafði hún jafnan sum- ardvöl á Sólheimum uns hún, haustið 1991, flutti austur á Hérað aftur og bjó á Einbúablá 26A á Eg- ilsstöðum og síðast á sjúkrahúsinu á Egilsstöðum til æviloka. Á búskaparárunum á Hallorms- stað sá Arnþrúður um símstöð staðarins og pósthús. Hún var ötul í félagslífi sveitarinnar, formaður Kvenfélags Vallahrepps um árabil og söng í efstu rödd í Kirkjukór Vallanessóknar. Í fyrri búsetu sinni á Egilsstöðum veitti hún for- stöðu mötuneyti sjúkrahússins en í Reykjavík mötuneyti Öskjuhlíð- arskóla. Afkomendur Arnþrúðar eru á 5. tug, lífs. Þórhildur á 7 börn, 10 barnabörn og 2 barnabarnabörn; Daníel 3 börn og 3 barnabörn; Guttormur 1 barn; Gunnlaugur 7 börn og 6 barnabörn og Elísabet 1 barn og 1 barnabarn. Sambýlis- maður Þórhildar er Jón Ármann Árnason frá Húsavík; Daníel er ekkjumaður eftir Helgu Einars- dóttur úr Reykjavík; Guttormur er kvæntur Guðríði Pétursdóttur frá Glæsibæ í Skagafirði; Gunnlaugur er kvæntur Ragnheiði Guttorms- dóttur Þormar frá Geitagerði í Fljótsdal og Elísabet er gift Charles Bicker frá Minster í Kent á Englandi. Útför Arnþrúðar verður gerð frá Egilsstaðakirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13. Jarðsett verður í Hallormsstað- arkirkjugarði. bjuggu nú um sinn á heimili tengdaföður hennar og seinni konu hans, Guðrúnar Pálsdóttur frá Segl- búðum í Landbroti. Systkini Sigurðar voru Bergljót, Páll og Þórhallur Guttorms- börn og Sigríðar Guttormsdóttur frá Stöð í Stöðvarfirði og Margrét, Gunnar, Hjörleifur, Loftur og Elísabet Guttorms- börn og Guðrúnar. Af fyrri barnahópnum er Þórhallur á lífi, af þeim síðari er Margrét fallin frá. Arnþrúði og Sigurði fæddust 2 börn á þessum fyrstu hjúskapar- árum sínum á Hallormsstað, Þór- hildur, 1944, og drengur, 1945, er dó sama ár. Árið 1946 reistu þau nýbýli í fremri jaðri Hallormsstað- arskógar og nefndu Sólheima en hét áður Geitagerði. Þar áttu þau Daníel, 1946, Guttorm, 1948, og Gunnlaug, 1950. Haustið 1955 tóku Arnþrúður og Sigurður við heimili og búi Guttorms og Guðrúnar á Hallormsstað sem þá höfðu slitið samvistum. Þar eignuðust þau sitt 6. barn, Elísabetu, 1956. Arn- þrúður missti Sigurð 27. sept- ember 1968. Rúmum 2 árum síðar gekk hún að eiga Einar frá Sturlu- flöt í Fljótsdal, son Halla Þor- steinssonar frá Skjögrastöðum í Skógum í Vallahreppi og Maríu Einarsdóttur frá Víðivöllum í Fljótsdal. Þau voru gefin saman af séra Bjarna Guðjónssyni í Val- Ég var ekki há í loftinu þar sem ég reyndi að klifra upp í svarta ruggu- stólinn á Hallormsstað sem í mínum augum var mun stærri en flestir aðr- ir stólar. Ekki nóg með að hann væri stór, heldur vaggaði hann og lét undan. Amma var oftast innan seil- ingar svo það var óhætt að reyna sig. Hins vegar var það betra ef hún var ekki nærri ef ég þurfti að eiga aðeins við símstöðina, en það var freisting sem erfitt var að standast. Augnaráð ömmu gaf til kynna að það væri ekki vel séð. Þá beið ég færis þar til hún þurfti að bregða sér frá og ég gat setið ein að þessu galdratæki. En mér fannst samt eins og amma sæi í gegnum vegginn þar sem ég sat og fiktaði. Þannig var amma, það duld- ist engum hvað henni fannst. „Enga vitleysu,“ var oft viðkvæðið og þar með var það útrætt. Amma og Einar afi fluttu í Egils- staði og við mamma dvöldum þar oft í lengri eða skemmri tíma og fylgd- umst með þeim byggja húsið sitt á Laugarvöllunum. Afi smíðaði og amma málaði og heklaði, þau voru samhent og útkoman var eftir því. Sérstaklega eru minnisstæð jólin hjá afa og ömmu en þau einkenndust af hlýleika og rólegheitum. Eldurinn snarkaði í arninum og það stirndi á logandi kertin á jólatrénu. Þegar líða fór á hátíðarnar fór að færast fjör í leikinn og við spiluðum púkk. Þegar gesti bar að garði fékk ég ósjaldan það vandasama hlutverk að velja dúk, leggja á borð og finna til sparistell. Ég var upp með mér yfir traustinu sem mér var sýnt. Amma spurði gestina frétta, afi kímdi og ég hlutstaði hugfangin á sögur af mönnum og málefnum. Amma sagði skemmtilega frá og hló oft svo tárin runnu. Eftir tíu ára farsæla sambúð dó afi sviplega. Leiðin frá Egilsstöðum norður í Aðaldal entist ekki til rök- ræðna við Guð, sem mér fannst hafa farið afar illa að ráði sínu. Amma sýndi það enn og aftur að hún var gædd þrautseigju og þoli. Með nýjar ráðagerðir og áætlanir í farteskinu flutti hún til Reykjavíkur. Ég var komin á unglingsár og skrapp suður til þess að kaupa föt áður en skólinn hæfist. Amma var áfjáð í að hjálpa til við valið. Það var eftirvæntingarglampi í hvert skipti sem ég kom út úr mátunarklefanum. Ég kom heim með hvíta lakkskó og ljósar röndóttar buxur, vel valið ef ekki væri fyrir snjóþungan norð- lenskan vetur. Henni fannst að það hlyti að vera gaman að vera ung stúlka í dag, en það var þó sagt án allrar eftirsjár. Tvö sumur dvaldi ég hjá ömmu og Laufeyju á Sólheimum. Við Laufey unnum á hótelinu og amma stóð í framkvæmdum, lét klæða húsið að utan. Amma hafði alltaf eitthvað á prjónunum og oft í eiginlegri merk- ingu. Lauk verkinu hratt og vel, lét sig ekki muna um að prjóna á mig peysu á tveimur dögum áður en ég fór til Danmerkur í nám, ekki hægt að senda mig úr landi án íslenskrar lopapeysu. Amma hringdi reglulega, ætíð áhugasöm um það sem var að gerast í lífi okkar hverju sinni. Samband hennar og mömmu einkenndist af mikilli væntumþykju og tryggð af beggja hálfu. Ég kveð elskulega ömmu mína með miklu þakklæti og söknuði. Svanhildur Gunnlaugsdóttir. Það var seinnipart ágúst sl. að við hjónin fórum austur á Hallormsstað eftir 6 ára hlé. Á Egilsstaðaspítala lá mágkona mín, Arnþrúður, sem hafði dvalið þar alllengi vegna alvarlegra veikinda. Það var mér mikils virði að geta hitt hana í nokkur skipti og við náðum góðu sambandi í einni þess- ara heimsókna. Þegar við sáumst á Hallormsstað árið 2002 var Arn- þrúður hress og bjartsýn og hafði undirbúið komu okkar með sér- stakri leiðsögn um trjásafnið í Mörkinni. Hún hafði fest kaup á fal- legri íbúð við Einbúablá á Egilsstöð- um og virtist mjög sátt við að vera komin aftur austur eftir alllanga bú- setu í Reykjavík en þangað flutti hún frá Egilsstöðum eftir andlát seinni manns síns Einars Hallason- ar. En nú var það ekki bara heilsa mágkonu minnar sem var öðruvísi en um árið. Það var komin brún slikja á Lagarfljótið og stórir trukk- ar geystust nú gegnum skóginn. Það var erfitt að horfast í augu við þessa breyttu mynd við bernskuheimili mitt á Hallormsstað og slóðir mág- konu minnar í áratugi. Það var búið að raska því sem áður einkenndi um- hverfi Hallormsstaðar, kyrrðinni við skóginn og sjálfu Lagarfljóti með sínu sérstaka litrófi. Fyrir okkur, sem ólumst upp með fljótið í dag- legri augsýn og fyrir Arnþrúði, var það mikið áfall að hinu fagra um- hverfi einnar helstu náttúruperlu Ís- lands skyldi fórnað vegna óaftur- kræfra virkjanaframkvæmda við Kárahnjúka. Kynni þeirra Arnþrúðar og Sig- urðar, bróður míns, hófust þegar hún var á Húsmæðraskólanum á Hallormsstað 1940-1942. Börnin á bænum kunnu strax vel að meta frjálslegt og hlýlegt viðmót hennar. Um 1944 hóf Sigurður byggingu ný- býlisins Sólheima sem er spölkorn fyrir innan Hallormsstað. Það var metnaðarmál Arnþrúðar að halda vel við því húsi. Hún var einnig mikil handavinnukonu, óf, saumaði og prjónaði. Sólheimar eru eitt feg- ursta bæjarstæði innan skógar- markanna, þaðan er víðsýnt yfir all- an skóginn og fjallasýn til úthéraðs. Breytingar urðu hins vegar á hög- um hjónanna á Sólheimum þegar þau fluttu út á Hallormsstað, æsku- heimili Sigurðar, haustið 1955. Það var mikil gæfa fyrir föður minn og Hallormsstaðarheimilið að Sigurður og Arnþrúður gátu tekið við búinu eins og á stóð. Eftir að ég fór með móður minni til Reykjavíkur árið 1955 var ég svo lánsöm að geta dval- ið á sumrin á Hallormsstað, fyrst sumarið 1956. Ég verð ævarandi þakklát Arn- þrúði fyrir hve mikinn skilning hún sýndi mér á þessu viðkvæma skeiði í lífi mínu. Börn þeirra Sigurðar höfðu líka verið leikfélagar mínir frá upphafi, ekki síst Þórhildur sem var þeirra elst og á líkum aldri og ég. Fyrsta sumarið saman á Hallorms- stað vorum við frænkurnar liðtækar við heimilisstörfin enda mannmargt á staðnum. Mér fannst Arnþrúði vinnast þar allt létt sem hún gerði og vildi taka hana mér til fyrirmyndar. Fyrir þetta allt skal þakkað nú að leiðarlokum. Við Páll sendum öllum aðstandendum samúðarkveðjur. Blessuð sé minning Arnþrúðar Gunnlaugsdóttur. Elísabet Guttormsdóttir. Aðeins þrjár vikur liðu frá því að við Kristín síðast heimsóttum Arn- þrúði mágkonu mína þar til okkur barst andlátsfréttin. Hún kom ekki á óvart. Allt frá því heilablóðfall lagði þessa hraustu og glaðværu konu í rúmið fyrir þremur árum hefur smám saman hallað undan fæti. Þrátt fyrir afar góða umönnun á Sjúkrahúsi Egilsstaða og vökula nærveru barna hennar var hún sjálf farin að þrá hvíldina eilífu. Fáar konur hafa verið mér ná- komnari um dagana og minningarn- ar hrannast upp. Ég var á sjöunda ári þegar ljóst var að hún myndi bindast Sigurði bróður tryggða- böndum. Þá var hún nýútskrifuð eft- ir tveggja ára nám við Húsmæðra- skólann á Hallormsstað. Þangað höfðu lagt leið sína tvær ungmeyjar norðan af Langanesi, Arnþrúður og fóstursystir hennar Þrúður Guð- mundsdóttir. Stofninn sem þær uxu upp af var sterkur, hertur í lífsbar- áttu útskagans og með sér flutti Arnþrúður frásagnir af umhverfi sem var framandi okkur dalbúum við Lagarfljót, sögur um reka og sel og æðarvarp. Það var heimsstríð og sú gerjun rétt að byrja sem fylgdi í kjölfarið hérlendis. Sigurður hafði numið smíðar í Laugaskóla, prýðilega hag- ur og hafði nokkra atvinnu af iðn sinni. Þéttbýli var þá enn óþekkt á Héraði en á Hallormsstað voru op- inber umsvif með skóla og skóg- rækt. Þau Sigurður stofnuðu nýbýli í útjaðri skógarins þar sem áður hét Geitagerði og kölluðu á Sólheimum. Búskapurinn hófst í hálfum bragga en brátt reis af grunni stæðilegt steinhús sem enn stendur. Ég minn- ist tíðra heimsókna þangað yfir fimm óbrúaða læki sem áttu það til að verða að beljandi ám, samræðna um allt milli himins og jarðar yfir góðgerðum og stundum var gist svo dögum skipti. Glaðværð og þraut- seigja einkenndu heimilið þrátt fyrir lítil veraldleg efni en mikla inni- stæðu í fimm börnum. Þáttaskil urðu þegar þau Arn- þrúður og Sigurður fluttu á ný í Hallormsstað haustið 1955 og tóku þar við búrekstri föður míns. Hér stóð Arnþrúður fyrir stóru heimili með símaþjónustu og miklum gesta- gangi í nær tvo áratugi. Hún kunni þá list að stjórna af hægð og án áreynslu. Það reyndi mikið á hana þessi árin, ekki síst eftir að eigin- maðurinn veiktist og féll frá á miðjum aldri. Föður mínum var hún stoð og stytta síðasta áratuginn sem hann lifði og börnin nutu góðs atlæt- is og leituðu burt til mennta. Þrátt fyrir mótlæti var þetta blómaskeið í lífi Arnþrúðar. Nokkru eftir fráfall Sigurðar gift- ist Arnþrúður öðru sinni ágætum manni, Einari Hallasyni frá Sturlu- flöt. Þau komu sér upp fallegu heim- ili á Egilsstöðum þar sem ég oft naut gestrisni þeirra. En einnig þar barði dauðinn að dyrum fyrirvaralaust þegar Einar féll frá á góðum aldri. Eftir það dvaldi Arnþrúður um skeið í Reykjavík í grennd við börn sín og barnabörn. En hugurinn leitaði austur og í fjórða sinn kom hún und- ir sig fótum, nú í Einbúablá á Egils- stöðum. Arnþrúður fylgdist ætíð vel með þjóðmálum og lá ekki á skoðunum sínum. Að leiðarlokum þökkum við Kristín henni vináttu og stuðning og ótal skemmtilegar samverustundir. Hjörleifur Guttormsson. Var þetta draumur eða veruleiki hugsa ég stundum þegar ég minnist sumranna þriggja sem ég var í sveit hjá Arnþrúði og Sigurði föðurbróður mínum á Hallormsstað um miðjan sjöunda áratuginn. Ég var átta ára þegar ég kom í sveitina fljúgandi að sunnan. Fyrsta kvöldið settist ég að matborðinu með húsbóndanum, frændsystkinum mínum, vinnu- stúlkum og gestum. Gulli frændi hellti mjólk í glasið hjá mér og bað mig að segja „til“. Ég sagði bara takk en ekki til og hann hélt áfram að hella þar til flóði út úr. Ekki var húsfreyjan að kippa sér upp við þetta prakkarastrik sonar síns enda stjórnaði hún heimilinu með glað- værð, ákveðni og röggsemi en eltist ekki við smámuni. Eitthvað hefur frést á undan drengnum að hann væri morgunfúll og man ég ekki bet- ur en að ég hefði fengið að sofa út eins og mér sýndist í sveitinni enda oft fjör frameftir kvöldum. Var þess jafnan gætt að þeir sem yngri voru hefðu hæfilega vinnuskyldu þannig að tími gæfist til að spila badminton, klifra í lerkitrénu á hlaðinu, baða sig í Kerlingaránni og ganga Selveginn. Beta frænka, jafnaldra mín, sá um að kynna mér þessar lystisemdir. Mikill gestagangur var á Hall- ormsstað, bæði vegna þess að Arn- þrúður rak símstöð og pósthús á staðnum og þau hjónin frændmörg og vinmörg. Þegar sólin skein og gesti bar að garði voru bökuð rúnn- stykki og kaffið drukkið úti eins og á herragörðum í útlöndum. Ég og Gutti frændi áttum báðir afmæli í júlí og þeir dagar voru sér- stakt tilhlökkunarefni. Arnþrúður bakaði afmæliskringlu, skilvindan var dregin fram og haldin var keppni í rjómapönnukökuáti. Af til- litssemi við afmælisbarnið fékk ég að vinna með átta pönnukökur borð- aðar. Mikið rausnarheimili var það sem gat boðið stráklingi úr Reykja- vík upp á svona ævintýri. Þorsteinn Þórhallsson. Arnþrúður Gunnlaugsdóttir ✝ Móðir okkar, tengdamóðir og amma, ÁSTHILDUR GUÐRÚN GÍSLADÓTTIR KÖNIGSEDER, lést á heimili sínu laugardaginn 13. september. Hún verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík mánudaginn 29. september kl. 15.00. Már Wolfgang Mixa, Kristín Loftsdóttir, Halla Guðrún Mixa, Jörg Albert Königseder, Mirijam Wolfgruber, Mímir, Alexía og Sól. ✝ Elskulegur faðir okkar, bróðir, afi og langafi, SIGURJÓN INGIMARSSON, Víkurási 2, Reykjavík, lést á deild 11E á Landspítalanum við Hringbraut fimmtudaginn 25. september. Jarðarförin verður auglýst síðar. Jónína Þóra Sigurjónsdóttir, Sveinn F. Sveinsson, Ingibjörg T. Sigurjónsdóttir, Salmann Tamimi, Katrín Sigurjónsdóttir, Sölvi Guðbjartsson, V. Lilly Sigurjónsdóttir, Páll Jóhannesson, Guðjón Þór Kristjánsson, Steinunn Guðmundsdóttir, Sigurósk G. Kristjánsdóttir, Egill Jón Kristjánsson, systkini, barnabörn og barnabarnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.