Morgunblaðið - 27.09.2008, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 27.09.2008, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. SEPTEMBER 2008 41 Skálholtsskóli Kyrrð, bæn og íhugun 3.-5. október nk. leiða Pétur Pétursson prófessor og Anna Ingólfsdóttir jógakennari kyrrðardaga í Skálholtsskóla. Spennandi dagskrá. Nánari upplýsingar á vefsíðunni www.skalholt.is. Skráning í síma 486 8870 og með netfanginu rektor@skalholt.is. Allir velkomnir! Skálholtsskóli www.skalholt.is Rafvirkjar – rafvirkjanemar Rafrún ehf. óskar að ráða rafvirkja og eða rafvirkjanema til starfa sem fyrst. Umsækjendur hafi samband við skrifstofu Rafrúnar ehf. að Gjótuhrauni 8 Hafnarfirði, í síma 555 6060 - 896 1012 eða sendi umsókn í tölvupósti: rafrun@rafrun.is. Atvinnuauglýsingar Fundir/Mannfagnaðir Haustfundurinn 2008 verður haldinn í Golfskálanum Grafar- holti/Grafarholtsvegi, Reykjavík, fimmtudaginn 2. okt. kl.18.00. Dagskrá: 1. Formaður segir frá starfi deildarinnar 2. Kvöldverður 3. Kvennadeildarkonur sýna fatnað frá versluninni “Verðlistinn”. Tilkynnið þátttöku í síma 545 0405 sem allra fyrst. Félagsmálanefnd. Kennsla Félagslíf Fræðsludagur í dag kl. 12-19 “Hvar er Guð á reynslutímum?” Kennarar: Brit og Jan Öystein Knedal, majórar. Þátttaka ókeypis, seldar verða veitingar. Allir velkomnir. 28.9. Strútur í Borgarfirði, 937 m. Brottför frá BSÍ kl. 08:00. Ath. klukkan átta. V. 4600/5300 kr. Vegalengd 12-14 km. Hækkun 500 m. Göngutími 6 klst. Fararstj. Grétar W. Guðbergsson. 25. - 28.9. Norðan Hofsjökuls og Vonarskarð - Jeppaferð. Brottför kl. 19:00. Gisting: skáli. V. 9600/11.600 kr. 0809JF02 Helgin tekin snemma og allir skella sér í laugina á Hvera- völlum á fimmtudagskvöldi. Kröfur um búnað bíla fara eftir aðstæðum og snjóalögum. Þátttaka háð samþykki fararstjóra. 10. - 12.10. Grill og gaman í Básum Brottför frá BSÍ kl. 20:00. V. 14.100/16.200 kr. Fararstj. Jóhanna Benedikts- dóttir og Emilía Magnúsdóttir 17. - 19.10. Haustblót í Strút Brottför: kl. 19:00. 0810HF01 Haustið er tími uppskeru, nýmetis og villibráðar en það er líka notalegt að dvelja á fjöllum í haustkyrrðinni. Fararstj. Ragn- heiður Óskarsdóttir. Skráning á utivist@utivist.is eða í síma 562 1000. Sjá nánar www.utivist.is Raðauglýsingar 569 1100 Fasteignir til sölu Úr þrotabúi Krækis - fiskverkunar ehf. eru til sölu eftirtaldar fasteignir á Dalvík: Hafnarbraut 7, hl. 07-0101, fn. 215-4882, fiskv./atvinnuh. á 1. hæð, 448,2 fm. Hafnarbraut 7, hl. 07-0204, fn. 230-5327, iðn./atvinnuh. á 2. hæð, 155,8 fm. Hafnarbraut 11, hl. 01-0101, fn. 226-1795, fiskv. á 1. hæð og skrifst. á 2. hæð, 476,9 fm. Hafnarbraut 11, hl. 01-0201, fn. 230-5328, at- vinnuh. á 2. hæð, 248,1 fm. Hafnarbraut 15, hl. 04-0101, fn. 215-4891 fiskv. á 1. hæð og starfm.aðst. á 2. hæð, 553.4 fm. Hafnarbraut 15, hl. 04-0201, fn. 230-5330 at- vinnuh. á 2. hæð, 263,3 fm. Hafnarbraut 15, hl. 08-0101, fn. 215-4892 at- vinnuh. á 1. og 2. hæð, 621,8 fm. Fasteignirnar verða til sýnis föstudaginn 3. október n.k. frá kl. 13:30 til 16:00. Óskað er eftir sérgreindum tilboðum í hverja eign. Tilboðum skal skila til undirritaðs í síðasta lagi þriðjudaginn 7. október n.k. kl. 15:00. Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði sem er og hafna öllum. Nánari upplýsingar veitir undirritaður. Ingvar Þóroddsson hdl., skiptastjóri, Glerárgötu 36, 600 Akureyri sími: 466 2700, fax: 466 2701 netfang: ingvar@logmannshlid.is Til sölu Af hverju að bíða og bíða eftir stóra vinningnum þegar þú getur unnið fyrir öllu sem þig langar að eignast? Það eina sem þú þarft að gera er að bera út blöð í 1-3 tíma á dag. Besta aukavinna sem þú getur fundið og góð hreyfing í þokkabót! Hringdu núna og sæktu um í síma 569 1440 eða á mbl.is! Sæktu um blaðberastarf – alvörupeningar í boði! ÁRANGUR íslensku þátttakend- anna á Evrópumeistaramóti ung- menna sem lauk sl. miðvikudag í Herceg Novi í Svartfjallalandi er vel viðunandi. Alls tóku tíu ungmenni þátt í mótinu, mun fleiri en í fyrra enda verða ekki sendir keppendur á HM unglinga í Víetnam seinna í haust. Í fyrra fengu íslensku kepp- endurnir Hjörvar Steinn, Sverrir Þorgeirsson og Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir samanlagt rösklega 50% vinningshlutfall og var Hjörvar í hópi efstu manna. Hann var fyrirfram álitinn eiga mesta möguleika okkar manna á verðlaunasæti enda blandaði hann sér í baráttuna þegar í byrjun. Í næstsíðustu umferð mætti hann öfl- ugum spænskum keppanda og átti góða vinningsmöguleika lengi vel en Spánverjanum tókst með mikilli seiglu að halda hróksendatafli peði undir. Sigur hefði fleytt honum í úr- slitaskák um efsta sætið en svo óheppilega vildi til í síðustu umferð- inni að Hjörvar fékk aftur svart og tapaði þá fyrir gömlum kunningja við skákborðið, Svíanum Grandelius. Í þessari skák og nokkrum öðrum komu rannsóknir með aðstöð tölvu- forrita við sögu en um þessar mundir er forritið Rybka í miklum hávegum haft. Við komumst að því að útreikn- ingar sem Hjörvar studdist við á flóknu afbrigði í Sikileyjarvörn voru ekki sem nákvæmastir og fór allmik- ill tími í leiðréttingar. Svíinn valdi svo allt aðra leið og sást Hjörvari yfir fremur ódýra brellu og tapaði án bar- áttu. Hann fékk 5½ vinning úr 9 skákum sem er góður árangur í svo sterku móti. Fyrir mótið lét undirritaður í ljós þá skoðun sína að 50% vinningshlut- fall væri góður árangur. Þrír kepp- endur gerðu betur. Hallgerður Helga Þorsteindóttir fékk 5 v. af 9 mögulegum í flokki stúlkna 16 ára og yngri. Ef undan er skilið eina tap hennar í mótinu var taflmennska hennar vönduð og í flestum jafnteflis- skákum hennar, sem voru sex talsins, var hún nálegt sigri, þ. á m. gegn stigahæsta keppanda mótsins. Spútknik í hópi íslensku keppend- anna var hinsvegar hin 13 ára gamla Geirþrúður Anna Guðmundsdóttir. Í lokaumferðinni vann hún aftur rúss- neska stúlku en þá tókst henni að snúa erfiðri stöðu í sigur í peðsenda- tafli, hlaut að lokum 5 v. af 9 mögu- legum í flokki stúlkna 14 ára og yngri. Verður gaman að fylgjast með Geirþrúði á næstunni. Almennt má segja að þessi ferð hafi verið sigur fyrr skákþátttöku stúlkna. Jóhanna Björg Jóhanns- dóttir fékk 4 vinninga í 16 ára flokkn- um en taflmennska hennar var afar lífleg og skákirnar viðburaríkar eftir því. Tinna Kristín Finnbogadóttir hlaut 3½ vinning af 9 í flokki 18 ára og yngri. Hún er frá Hítardal í Mýra- sýslu þar sem hún byrjaði að tefla og þetta var hennar fyrsta mót af þess- ari styrkleikagráðu. Af piltunum náði Dagur Andri Friðgeirsson sér vel á strik eftir slæma byrjun. Hann hlaut 4 vinninga í flokki pilta 14 ára og yngri. Friðrik Þjálfi fékk 2½ vinning í flokki 12 ára og yngri en verður ekki skotasuld úr að bæta þann árangur á næstunni. Þeir Daði Ómarsson og Sverrir Þor- geirsson fengu báðir 3½ vinning í flokki 18 ár og yngri. Daði tefldi mun betur en vinningatalan segir til um en var seinheppinn í mörgum skák- um og missti allt of oft unnið tafl nið- ur í tap. Patrekur Maron Magnússon fékk einnig 3½ vinning úr 9 skákum í flokki 16 ára og ygri. Hann hefur ekki áður teflt í svo öflugu móti, byrj- aði illa en barðist vel í lokaskákunum. Fyrirsæta og stórmeistari – Kosteniuk er nýr heimsmeistari kvenna Aklexandra Kosteniuk frá Rúss- landi sl. fimmtudag er heimsmeistari kvenna eftir sigur í einvígi á kín- versku stúlkunni Hou Yifan 2½: 1½. Mótið fór fram í bænum Nalchik sem tilheyrir Rússlandi. Það hófst í skugga versnandi sambúðar Rússa og Georgíumanna en enginn kepp- andi frá Georgíu var með. Mótið fór fram með útsláttarfyrirkomulagi, hófst 28. ágúst og lauk 18. september sl. Hin 24 ára gamla Kosteniuk sem eignaðist sitt fyrsta barn í fyrra varð stórmeistari kvenna aðeins 14 ára gömul og gaf af því tilefni út ævisögu sína sem inniheldur skákir hennar, ljóð og dagbókarfærslur. Hún hefur unnið fyrir sér sem fyrirsæta og hafa myndir af henni birst víða um heim. Einkennisorð hennar eru „Skák er svöl.“ Stúlkurnar stóðu sig vel á Evrópumótinu Nýr heimsmeistari Alexandra Kosteniuk frá Rússlandi. Ljósmynd/Davíð Ólafsson Stórstígar framfarir Hallgerður Helga að tafli i Herceg Novi. Hún hlaut fimm vinninga af níu mögulegum. Helgi Ólafsson | helol@simnet.is SKÁK Herceg Novi, Svartfjallalandi EM ungmenna 14.-25. september 2008.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.